
Vandað til verka
- Episodes
- 7
- Released
- weekly
- Latest episode
- Nov 9, 2026
About the podcast
Vandað til verka fjallar um byggingariðnaðinn, fagmennsku og fólkið sem býr yfir þekkingunni og reynslunni í greininni. Iðan fræðslusetur stendur fyrir hlaðvarpinu en það er hann Bergþór Ingi Sigurðsson sem stýrir þáttunum. Hann ræðir við fjölbreyttan hóp fólks úr bygginga- og mannvirkjageiranum um verkefni, þróun og það sem skiptir máli í faginu.
Episodes 7
7. Efnisþekking og vönduð vinnubrögð í málun: Erlendur Eiríksson
Sveinsprófið og málaraiðn Bergþór Ingi ræðir við Erlend Eiríksson, formann sveinsprófsnefndar í málaraiðn, um iðnina, fagleg vinnubrögð og hvað skilur vandað verk frá lélegu. Sömuleiðis ræða þeir námið …
Show notes
Sveinsprófið og málaraiðn
Bergþór Ingi ræðir við Erlend Eiríksson, formann sveinsprófsnefndar í málaraiðn, um iðnina, fagleg vinnubrögð og hvað skilur vandað verk frá lélegu. Sömuleiðis ræða þeir námið, sveinsprófið, hlutverk meistara og hvernig fagið hefur þróast.
6. Mistök sem kosta milljónir: Ferdinand Hansen
Smáatriði í framkvæmd geta orðið að stórum og kostnaðarsömum vandamálum síðar. Bergþór Ingi ræðir við Ferdinand Hansen um mistök í byggingarframkvæmdum, hvað veldur því að þau verða og hvernig hægt er að koma í …
Show notes
Smáatriði í framkvæmd geta orðið að stórum og kostnaðarsömum vandamálum síðar.
Bergþór Ingi ræðir við Ferdinand Hansen um mistök í byggingarframkvæmdum, hvað veldur því að þau verða og hvernig hægt er að koma í veg fyrir þau með betri undirbúningi, fagmennsku og verklagi.
5. Gervigreind í byggingariðnaði: Hjörtur Sigurðsson
Getur gervigreindin aðstoðað iðnaðarmenn? Bergþór Ingi ræðir við Hjört Sigurðsson hjá Mynstru um hagnýta notkun gervigreindar við dagleg störf, t.d. við gerð fundargerða og verklýsinga, kostnaðaráætlana og …
Show notes
Getur gervigreindin aðstoðað iðnaðarmenn?
Bergþór Ingi ræðir við Hjört Sigurðsson hjá Mynstru um hagnýta notkun gervigreindar við dagleg störf, t.d. við gerð fundargerða og verklýsinga, kostnaðaráætlana og verkefnastjórnun. En hvar liggja takmörkin og hvenær þarf fagleg dómgreind alltaf að ráða för?
4. Votrými: Halldór Garðar Björnsson
Bergþór Ingi ræðir við Halldór Garðar Björnsson, meðal annars um votrými og frágang þeirra. Hvar verða algengustu mistökin, hvað getur farið úrskeiðis og hvað þarf að vera passa svo votrými endist? Þetta …
Show notes
Bergþór Ingi ræðir við Halldór Garðar Björnsson, meðal annars um votrými og frágang þeirra. Hvar verða algengustu mistökin, hvað getur farið úrskeiðis og hvað þarf að vera passa svo votrými endist? Þetta hlaðvarp er í boði Iðunnar fræðsluseturs.3. Lífsferilsgreiningar: Lilja Sigurrós Davíðsdóttir og Helga María Adolfsdóttir
Hver er raunverulegur kostnaður bygginga fyrir umhverfið? Bergþór Ingi ræðir við Lilju Sigurrós Davíðsdóttur og Helgu Maríu Adolfsdóttur um lífsferilsgreiningar, kolefnisspor, efnisval og grænar vottanir …
Show notes
Hver er raunverulegur kostnaður bygginga fyrir umhverfið?
Bergþór Ingi ræðir við Lilju Sigurrós Davíðsdóttur og Helgu Maríu Adolfsdóttur um lífsferilsgreiningar, kolefnisspor, efnisval og grænar vottanir. Hvernig nýtum við þessar upplýsingar til að taka betri ákvarðanir og byggja með langtímahagsmuni í huga?
Þetta hlaðvarp er í boði Iðunnar fræðsluseturs.
2. Tjón, viðgerðir og endurbætur: Björgvin Stefánsson
Hvað gerir þú fyrstu mínúturnar eftir vatnstjón og hvaða mistök geta gert lítið tjón að stóru? Bergþór Ingi ræðir við Björgvin Stefánsson um viðbrögð við tjónum, algengustu orsakir vatnstjóna, falinn raka og …
Show notes
Hvað gerir þú fyrstu mínúturnar eftir vatnstjón og hvaða mistök geta gert lítið tjón að stóru?
Bergþór Ingi ræðir við Björgvin Stefánsson um viðbrögð við tjónum, algengustu orsakir vatnstjóna, falinn raka og hvað þarf að hafa í huga þegar tjón verður. Þeir ræða líka hvernig faglegt tjónaviðbragð fer fram og hvað má gera til að fyrirbyggja tjón.
Þetta hlaðvarp er í boði Iðunnar fræðsluseturs.
1. Raki og mygla: Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir
Viðmælandi þáttarins er Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir, líffræðingur og stofnandi Verkvistar. Í þættinum ræða hún og Bergþór Ingi, stjónandi þáttarins, meðal annars um hvað veldur rakavandamálum, hvernig þau hafa …
Show notes
Viðmælandi þáttarins er Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir, líffræðingur og stofnandi Verkvistar. Í þættinum ræða hún og Bergþór Ingi, stjónandi þáttarins, meðal annars um hvað veldur rakavandamálum, hvernig þau hafa áhrif á byggingar og innivist og hvers vegna mikilvægt er að bregðast rétt og tímanlega við.
Þetta hlaðvarp er í boði Iðunnar fræðsluseturs.
Similar podcasts
More Education podcastsIs this your podcast?
Confirm it with an entry in your feed: you get a code here, add it as podcast:txt to the channel of your feed, and we check it. Your podcast is then shown as “verified” on SoundNode.







