Skip to content
Hugrænn styrkur

Hugrænn styrkur

New#13 - Ólína Guðbjörg ViðarsdóttirNovember 3, 2026 · 1 h 38 min
Episodes
14
Released
monthly
Latest episode
Nov 3, 2026
WebsiteRSS feed

About the podcast

Hugrænn styrkur er hlaðvarp sem fær til sín afreks- og fagfólk með það markmið að heyra áhugaverðar sögur, fræðslu og opna umræðu á andlegu hlið afrekssviðsins. 

Contributors

  • Hjálmtýr AlfressonHost
  • Viktor Örn MargeirssonHost

Episodes 14

  1. #13 - Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir

    1 h 38 minSeason 2 · Episode 4

    Í þættinum ræðum við við Ólínu Guðbjörgu Viðarsdóttur fyrrum landsliðskonu í knattspyrnu og doktor í sálfræði. Í þættinum er fjallað um vegferð Ólínu í fótboltanum, átök í landsliðinu, kvíða sem hún var að fást …

    Show notes

    Í þættinum ræðum við við Ólínu Guðbjörgu Viðarsdóttur fyrrum landsliðskonu í knattspyrnu og doktor í sálfræði.

    Í þættinum er fjallað um vegferð Ólínu í fótboltanum, átök í landsliðinu, kvíða sem hún var að fást við, heilahristing af eigin reynslu og sem fagaðili ásamt öðru áhugaverðu

  2. #12 - Vignir Vatnar Stefánsson

    1 h 5 minSeason 2 · Episode 3

    Í þessum þætti ræðum við við Vigni Vatnar Stefánsson, einn fremsta skákmann þjóðarinnar og nýkrýndan stórmeistara.Í þættinum talar hann um mikilvægi líkamlegs og andlegs heilbrigðis. Einnig kemur hann inn á …

    Show notes

    Í þessum þætti ræðum við við Vigni Vatnar Stefánsson, einn fremsta skákmann þjóðarinnar og nýkrýndan stórmeistara.

    Í þættinum talar hann um mikilvægi líkamlegs og andlegs heilbrigðis. Einnig kemur hann inn á erfið tímabil, þunglyndi, sjálfsvígshugsanir, bróðurmissir og hvernig hann tókst á við þær áskoranir

  3. #11 - Lára Kristín Pedersen

    1 h 16 minSeason 2 · Episode 1

    Í þættinum er rætt við Láru Kristínu Pedersen, fyrrum landsliðskonu í knattspyrnu. Lára opnar sig um reynslu sína af atvinnumennskunni og þeim andlegu áskorunum sem fylgja afreksíþróttum. Þá ræddum við um …

    Show notes

    Í þættinum er rætt við Láru Kristínu Pedersen, fyrrum landsliðskonu í knattspyrnu. Lára opnar sig um reynslu sína af atvinnumennskunni og þeim andlegu áskorunum sem fylgja afreksíþróttum. Þá ræddum við um matarfíkn og pressuna sem fylgir því að spila á hæsta stigi.

  4. #10 - Arnar Pétursson

    1 h 23 minSeason 2 · Episode 1

    Í þessum þætti er rætt við Arnar Pétursson, einn sigursælasta hlaupara í sögu Íslands. Arnar er sjötíu og þrefaldur Íslandsmeistari, hefur sigrað Laugaveginn tvisvar, sett Íslandsmet í 100 kílómetra hlaupi og …

    Show notes

    Í þessum þætti er rætt við Arnar Pétursson, einn sigursælasta hlaupara í sögu Íslands. Arnar er sjötíu og þrefaldur Íslandsmeistari, hefur sigrað Laugaveginn tvisvar, sett Íslandsmet í 100 kílómetra hlaupi og keppt fjórum sinnum á HM í hálfmaraþoni og einu sinni á HM í utanvegahlaupum. Arnar ræðir um mikilvægi sterks hugarfars og hvernig maður fær það mesta úr sjálfum sér í keppni.

  5. #9 - Agnar Smári Jónsson

    1 h 23 minSeason 1 · Episode 9

    Agnar Smári Jónsson, handknattleiksmaður, var gestur í níunda þætti. Agnar Smári á farsælan feril á bakinu. Hann talar um baráttu sína við átröskun og afleiðingar hennar, þ.á.m. sjálfsvígshugsanir, og pressuna …

    Show notes

    Agnar Smári Jónsson, handknattleiksmaður, var gestur í níunda þætti. Agnar Smári á farsælan feril á bakinu. Hann talar um baráttu sína við átröskun og afleiðingar hennar, þ.á.m. sjálfsvígshugsanir, og pressuna á að halda andliti og frammistöðu undir pressu. Áhugaverður þáttur um mikilvægt málefni.

  6. #8 - Arnór Sveinn Aðalsteinsson

    1 h 36 minSeason 1 · Episode 8

    Arnór Sveinn Aðalsteinsson, knattspyrnumaður, heimspekingur og kennari, var gestur í áttunda þætti. Arnór Sveinn á langan feril í knattspyrnu. Hann segir frá sinni nálgun á hugarfari bæði innan knattspyrnunnar …

    Show notes

    Arnór Sveinn Aðalsteinsson, knattspyrnumaður, heimspekingur og kennari, var gestur í áttunda þætti. Arnór Sveinn á langan feril í knattspyrnu. Hann segir frá sinni nálgun á hugarfari bæði innan knattspyrnunnar sem og í lífinu. Þá fer hann yfir hvernig hann fann ástríðuna aftur eftir að hafa misst hana um tíma. Arnór Sveinn útskýrir dyggðarsiðfræði og lýsir hvernig hann nýtir sér þau fræði til að verða betri knattspyrnumaður og manneskja.

  7. #7 - Anton Sveinn McKee

    1 h 22 minSeason 1 · Episode 7

    Anton Sveinn McKee, afreksmaður í sundi og Ólympíufari, var gestur í sjöunda þætti. Anton fer yfir feril sinn og segir frá hinum ýmsu verkfærum sem hann nýtti til að ná sínum árangri. Anton fór inn á sín gildi …

    Show notes

    Anton Sveinn McKee, afreksmaður í sundi og Ólympíufari, var gestur í sjöunda þætti. Anton fer yfir feril sinn og segir frá hinum ýmsu verkfærum sem hann nýtti til að ná sínum árangri. Anton fór inn á sín gildi sem íþróttamaður og bað okkur um að bæta hér í textann þriðja gildinu sem hann gleymdi að nefna í viðtalinu. Gildin hans eru þrjú; óttalaus, vera í núvitund og óbrjótanlegur.
    Hann kemur einnig inn á mikilvægi þess að bæta umgjörð fyrir afreksfólk á Íslandi til að framleiða enn fleiri afreksfólk.

  8. #6 - Guðlaug Edda Hannesdóttir

    1 h 14 minSeason 1 · Episode 6

    Guðlaug Edda Hannesdóttir, þríþrautarkona og Ólympíufari, var gestur í þætti sex. Guðlaug Edda fer yfir Ólympíuleikana í París, mótlæti og meiðsli sem hún hefur gengur í gegnum og segir frá þróun hennar sem …

    Show notes

    Guðlaug Edda Hannesdóttir, þríþrautarkona og Ólympíufari, var gestur í þætti sex. Guðlaug Edda fer yfir Ólympíuleikana í París, mótlæti og meiðsli sem hún hefur gengur í gegnum og segir frá þróun hennar sem íþróttakonu. Þá fer hún yfir hvernig hún þjálfaði líkama og huga fyrir íþróttina og sitt daglega líf.

  9. #5 - Kristófer Acox

    1 h 23 minSeason 1 · Episode 5

    Kristófer Acox, landsliðsmaður í körfubolta og leikmaður Vals, var gestur í þætti 5. Farið var yfir sögu hans og Kristófer gaf góð dæmi um hvernig hugurinn getur reynt að leika gegn manni innan sem utan vallar …

    Show notes

    Kristófer Acox, landsliðsmaður í körfubolta og leikmaður Vals, var gestur í þætti 5. Farið var yfir sögu hans og Kristófer gaf góð dæmi um hvernig hugurinn getur reynt að leika gegn manni innan sem utan vallar. Hann lýsir því hvernig hann vann sérstaklega í að þjálfa sig að mæta huganum.

  10. #4 - Hildur Antonsdóttir

    1 h 23 minSeason 1 · Episode 4

    Hildur Antonsdóttir, landsliðs- og atvinnukona í knattspyrnu, var gestur í fjórða þætti. Farið var yfir meiðsli og mótlæti sem hafa haft áhrif á feril Hildar. Hún ræðir mikilvægi þess að þjálfa hugann líkt og …

    Show notes

    Hildur Antonsdóttir, landsliðs- og atvinnukona í knattspyrnu, var gestur í fjórða þætti. Farið var yfir meiðsli og mótlæti sem hafa haft áhrif á feril Hildar. Hún ræðir mikilvægi þess að þjálfa hugann líkt og líkamann. Hildur lýsir hvernig hún þjálfar hugann, meðal annars með sjónmyndaþjálfun, og ræðir áhrif sjálfstrausts á frammistöðu.

  11. #3 - Höskuldur Gunnlaugsson

    1 h 49 minSeason 1 · Episode 3

    Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks í knattspyrnu, var gestur í þriðja þætti Hugræns Styrks. Höskuldur segir frá erfiðleikum sem hann hefur gengið í gegnum, bæði á knattspyrnuferlinum sem og í lífinu …

  12. #2 - Jóhannes Damian Patreksson (JóiPé)

    1 h 8 minSeason 1 · Episode 2

    Jóhannes Damian Patreksson (JóiPé), tónlistamaður og handknattleiksmaður, var gestur í öðrum þætti Hugræns Styrks. Jói sagði frá sínum kvíða og erfiðu hugsunum sem fylgja tónlistinni og handknattleiknum. Hann …

    Show notes

    Jóhannes Damian Patreksson (JóiPé), tónlistamaður og handknattleiksmaður, var gestur í öðrum þætti Hugræns Styrks. Jói sagði frá sínum kvíða og erfiðu hugsunum sem fylgja tónlistinni og handknattleiknum. Hann fór yfir sína upplifun af tónlistarheiminum og hver hans framtíðarplön eru á sínum tónlistarferli.

  13. #1 - Sara Björk Gunnarsdóttir

    1 h 54 minSeason 1 · Episode 1

    Sara Björk Gunnarsdóttir, atvinnukona í knattspyrnu, fyrrum fyrirliði íslenska landsliðsins, var gestur í fyrsta þætti Hugræns Styrks. Sara Björk fór yfir góðu og erfiðu stundirnar á ferlinum. Rætt var um …

    Show notes
    Sara Björk Gunnarsdóttir, atvinnukona í knattspyrnu, fyrrum fyrirliði íslenska landsliðsins, var gestur í fyrsta þætti Hugræns Styrks. Sara Björk fór yfir góðu og erfiðu stundirnar á ferlinum. Rætt var um andlegu hlið knattspyrnunnar.

  14. Kynningarþáttur

    9 minTrailer

    Hugrænn styrkur er hlaðvarp sem fær íþrótta- og annað afreksfólk, fagfólk og fleiri til að ræða áhugaverðar sögur og andlegu hliðina. Hér er stutt kynning á því.

Is this your podcast?

Confirm it with an entry in your feed: you get a code here, add it as podcast:txt to the channel of your feed, and we check it. Your podcast is then shown as “verified” on SoundNode.

Settings

Display

Language

Decides which stations you see first on the home page.

History

Recently played stations and episodes and your latest searches are only stored in this browser.

Notifications

A short notice when a podcast you follow has a new episode. Turn off single podcasts with the bell on their page.

Account

Save favorites – in the app and on the website.

Keyboard shortcuts

/
Open search
Space
Play or pause
← →
In the player: back 15 s, forward 30 s (episodes) · in a row: next tile
↑ ↓
In a row: target within the tile
Home / End
In a row: first or last tile
Esc
Close window or menu
?
This overview
Now playing

Go to station page

Play next

    Add episodes with “Play next” – they play after the current episode.