
LANGA – hlaðvarp
- Episodes
- 118
- Released
- several times a week
- Latest episode
- Nov 5, 2026
About the podcast
Hlaðvarp um langanir og langar vegalengdir.
Episodes 118
108. Hægði á sér og varð bestur í heimi? Andreas ALMGREN, Jess MCCLAIN og USA maraþonsenan
Arnar Péturs tók 360 gráðurnar á frammistöðu Andreas Almgren í New York maraþoninu, hvernig hann sneri meiðslahrinu (beinbrot, vonbrigði og alvöru álagsmeiðsli) yfir í heimsmeistaratitil, bandarísku …
Show notes
Arnar Péturs tók 360 gráðurnar á frammistöðu Andreas Almgren í New York maraþoninu, hvernig hann sneri meiðslahrinu (beinbrot, vonbrigði og alvöru álagsmeiðsli) yfir í heimsmeistaratitil, bandarísku maraþonsenuna og stórkostlega endurkomu Jess McClain.
107. Andrea Kolbeins: „Ég veit að ég get svo miklu miklu betur."
Ef þú hlustar vandlega á þennan þátt þá gætirðu áttað þig á því að þú getur gjörbreytt lífi þínu til hins betra með því að ráðast á það sem er að stoppa þig.
106. Sigurður Tómas: Íslandsmet í 24 tímum, hraðasta hlaup í Kona, sub3 maraþon, sub5 LV, sub10 Ironman
Sigurður Tómas er rafmagnverskfræðingur sem telur að "flestir væru betur settir með meiri sársauka í þeirra lífi."Ég veit hvað þið eruð að hugsa... þessi gæi yrði góður í úthaldsíþróttum. Sigurður hefur náð …
Show notes
Sigurður Tómas er rafmagnverskfræðingur sem telur að "flestir væru betur settir með meiri sársauka í þeirra lífi."
Ég veit hvað þið eruð að hugsa... þessi gæi yrði góður í úthaldsíþróttum. Sigurður hefur náð lengra en flestir á þeirri hillu: Nýbakað Íslandsmet í 24 tíma hlaupi (undir 6 pace í sólarhring), sub3 maraþon í Ironman (einn af tveimur Íslendingum 👀), hraðasti hlaupatími Íslendings í Kona, 9:06 Ironman, sub5 Laugavegur, 10. sæti í Julian Alps 120km og fleiri fleiri áskoranir sem við kryfjum í þessum þætti.
105. Bakgarðs-kapítalistar, dulúð yfir félagi 100km hlaupara og Asía tekur yfir utanvegahlaup
Fræga fólkið, grínistarnir og einkaþoturnar eru mættar í bakgarðinn, Steindi Jr. er tilbúinn til þess að deyja við að reyna að fá 100km derruna, heimsmet (í nafni ástarinnar) og Íslandsmet fellur í sömu …
Show notes
Fræga fólkið, grínistarnir og einkaþoturnar eru mættar í bakgarðinn, Steindi Jr. er tilbúinn til þess að deyja við að reyna að fá 100km derruna, heimsmet (í nafni ástarinnar) og Íslandsmet fellur í sömu keppninni, Andrea keppir í Kóreu og stærstu nöfn trail senunnar (Jim Walmsley, Courtney Dauwalter, Tove Alexandersson, Remi Bonnet...) eru mætt til Kína! Eru Kínverjar að reyna að skáka UTMB senunni eða munu bakgarðshlaupinn verða fyrri til?
462km bakgarður, LJÓSIN SLOKKNA, 0mm drop á ofurskó og besta Kona hingað til
LANGA snýr aftur við mjög langt tilefni, POST-LANGA-DEPRESSION, er bakgarðurinn toppa sig? Einlægur Þorleifur, endurkoma Mari, hvaða mælikvarði spáir best fyrir um árangurinn þinn í bakgarðinum …
Show notes
LANGA snýr aftur við mjög langt tilefni, POST-LANGA-DEPRESSION, er bakgarðurinn toppa sig? Einlægur Þorleifur, endurkoma Mari, hvaða mælikvarði spáir best fyrir um árangurinn þinn í bakgarðinum, POST-LANGA-DEPRESSION, eru ofurskór að slíta hásinarnar á þér? Tárvotur Gustav Iden er maður fólksins og Íslandsmet í 24 klukkustunda hlaupi.
103. TOBBI vill að þú sýnir karakter, egódauði í ultrahlaupum, hvernig talaru við sjálfan þig og 2-0 fyrir UTMB
Tobbi er búinn að tryggja sér miða í UTMB 2027, hlaupið sem að kláraði hann tvö ár í röð, og nú er kominn tími til að ganga í gin ljónsins í þriðja skipti og loka þessum kafla. Við ræðum væntingastjórnun og …
Show notes
Tobbi er búinn að tryggja sér miða í UTMB 2027, hlaupið sem að kláraði hann tvö ár í röð, og nú er kominn tími til að ganga í gin ljónsins í þriðja skipti og loka þessum kafla. Við ræðum væntingastjórnun og sjálfstal í löngum ultrahlaupum, hvernig Elísa snerist frá því að hætta í CCC, að vera með hátt gólf eða hátt þak, Ben Dhiman og hans óvanalega nálgun á íþróttina, tveggja höfuðljósaframmistöðu í Julian Alps og markmið Tobba í götumaraþoni undir lok árs.
102. Af hverju æfir Klæbo ekki í zone 2? Steindi í Bakgarðinum, Almgren heimsmeistari, Johaug og BLUMMENFELT
Rígurinn á milli Steinda og Latsa nær dýpra en ég hélt, 360° greining á 5 hringja Bakgarðs-frammistöðu, Tobbi er kominn í UTMB 2027, Klæbo æfir ekki í zone 2 til að passa upp á samsetningu vöðvaþráðanna sinna …
Show notes
Rígurinn á milli Steinda og Latsa nær dýpra en ég hélt, 360° greining á 5 hringja Bakgarðs-frammistöðu, Tobbi er kominn í UTMB 2027, Klæbo æfir ekki í zone 2 til að passa upp á samsetningu vöðvaþráðanna sinna (vísindahorn Latsa), mikill ávinningur af 20 æfingum í hita, Theresa Johaug eignast barn í janúar og hleypur hraðast allra evrópskra kvenna á heimsmeistaramótinu (1:08 🤯), Blummenfelt tapaði en stal allri athyglinni, Andreas Almgren er bestur í heimi og The Icelandic Hypetrain eru að æfa eins og skepnur!
101. Besta frammistaða allra tíma, Ben Dhiman deep dive, skóleikurinn breytist og Courtney er búin.
Ben Dhiman æfir sig á skíðum, rústar UTMB og segir að við höfum lifað á steinöld hvað varðar frammistöður í 100 mílna hlaupum - má skjóta svona fast á Kilian og Walmsley þegar þú nærð lang bestu frammistöðu …
Show notes
Ben Dhiman æfir sig á skíðum, rústar UTMB og segir að við höfum lifað á steinöld hvað varðar frammistöður í 100 mílna hlaupum - má skjóta svona fast á Kilian og Walmsley þegar þú nærð lang bestu frammistöðu allra tíma? Gulli tók út Chamonix (sem er sprungið) og Egill kemur með fréttir af sviptingum hjá skóframleiðendum Slúður um íslenskt UTMB hlaup, minkur sást í Heiðmörk og allar helstu fréttir sem úthaldsíþróttafólk landsins þarf að fá veður af.
100. Elísa Kristins – stálheiðarlegt CCC uppgjör
Elísa Kristinsdóttir gerir upp frumraun sína í CCC, stærsta 100km hlaupi heims, á stálheiðarlegan máta. Hún er hvergi af baki dottin og frumflytur svakalega keppnisdagskrá sem er framundan og hlutina sem hún …
Show notes
Elísa Kristinsdóttir gerir upp frumraun sína í CCC, stærsta 100km hlaupi heims, á stálheiðarlegan máta. Hún er hvergi af baki dottin og frumflytur svakalega keppnisdagskrá sem er framundan og hlutina sem hún þarf að laga fyrir tilraun tvö.
99. Baldvin Þór - Íslandsmet á EM
Baldvin gerir upp viðburðarríkt Evrópumeistaramót, þar sem hann setti Íslandsmet í 10.000m, og vegferðina fram að mótinu. Við förum yfir æfingabúðirnar, rauðrófu+koffín kokteilinn fyrir keppni, VLOG fram að …
Show notes
Baldvin gerir upp viðburðarríkt Evrópumeistaramót, þar sem hann setti Íslandsmet í 10.000m, og vegferðina fram að mótinu. Við förum yfir æfingabúðirnar, rauðrófu+koffín kokteilinn fyrir keppni, VLOG fram að Ólympíuleikunum, hvernig hann bregst við æfingum í háfjallalofti, að hafa áhyggjur alla keppnisvikuna, yfirburði Andreas Almgren, taktíkina í keppninni og möguleikann á því að hlaupa nálægt 13 mínútum í 5km hlaupi í næsta mánuði!
Elísa í CCC, Baldvin á Íslandsmeti, Arnar á brautarmeti? og ÍBR vill ekki hraða tíma
ÍBR virðist ætla að breyta 10km götuhlaupinu í 10km hindrunarhlaup - Reykjavíkurmaraþonið samt alltaf best mælda, best skipulagða og best tímatekna hlaup landsins.Endurkoma Jakob Ingebrigtsen, Íslandsmet …
Show notes
ÍBR virðist ætla að breyta 10km götuhlaupinu í 10km hindrunarhlaup - Reykjavíkurmaraþonið samt alltaf best mælda, best skipulagða og best tímatekna hlaup landsins.
Endurkoma Jakob Ingebrigtsen, Íslandsmet Baldvins, 800m rimman, ALMGREN og viðburðarríkt Evrópumeistaramót gert upp.
SLÚÐUR um miðbik þáttar sem mun ekki fara framhjá neinum íþróttaáhugamanni á næstu dögum.
Er Arnar Pétursson skemmtilegasti maðurinn í hlaupasenunni? Á hann brautarmetið í Laugaveginum?
Elísa og Andrea eru komnar til Chamonix - Andrea lifir í einhverskonar draumi og Elísa var fædd til þess að gera góða hluti í CCC.
97. Jón Diðriksson - Maðurinn sem setti markið hærra
„Hver er þessi Jón Diðriksson?“Sveitastrákurinn úr Borgarfirði sem setti Íslandsmet í öllum greinum frá 800m og upp í 10km götuhlaup. Jón setti markið svo hátt fyrir þá sem á eftir komu að metin hans stóðu sum …
Show notes
„Hver er þessi Jón Diðriksson?“
Sveitastrákurinn úr Borgarfirði sem setti Íslandsmet í öllum greinum frá 800m og upp í 10km götuhlaup. Jón setti markið svo hátt fyrir þá sem á eftir komu að metin hans stóðu sum hver í meira en 40 ár og eitt þeirra stendur enn þann dag í dag, þó það hafi verið sett fyrir algjöran misskilning!
“Það var bara regla… maður var aldrei ánægður. Maður vildi alltaf hlaupa betur - og hraðar”
96. Stundin er runnin upp: Baldvin og Hlynur reima skóna, Arnar hamrar Laugaveginn og sub2 maraþon sjokk
Gunnar Páll er sendur til Birmingham í nafni LANGA hlaðvarps þar sem hann mun fylgjast með Baldvini Þór keppa í 10.000m og Hlyni Andréssyni í maraþoni fyrir Íslands hönd.Evrópumeistaramótið er feykna sterkt í …
Show notes
Gunnar Páll er sendur til Birmingham í nafni LANGA hlaðvarps þar sem hann mun fylgjast með Baldvini Þór keppa í 10.000m og Hlyni Andréssyni í maraþoni fyrir Íslands hönd.
Evrópumeistaramótið er feykna sterkt í ár en Gunni Palli upplýsir þig um allt sem þú þarft að vita fyrir mótið: Meiðsli og endurkoma Jakob Ingebrigtsen, Baldvin héraði 5km á 15mín og mældist 1,7mmol í mjólkursýru, Nordås er hættur í þjálfun hjá Gjert Ingebrigtsen, Hlynur virðist leggja allt í sölurnar, Keely Hodgkinson ógnar ósnertanlega metinu, Andreas Almgren (LANGA favorite) mun skrúfa upp í 10.000m fyrir Baldvin, Femke Bol lengir og Gunni Palli mun, þó það sé þyngra en tárum taki, missa af maraþon göngunni.
Það var í þokkabót ekki annað hægt en að bera undir Gunnar tímann hans Arnars á Laugaveginum og fá viðbrögð við stórbætingu á heimsmetinu í maraþoni.
Mjólkursýra = óvinurinn eða leynivopnið? Lyfjapróf að næturlagi, Tour De France, HYROX og hitabylgja
Af hverju eru hlauparar að æfa undir mjókursýruþröskuldi til þess að forðast mjólkursýru en ætla núna að borða hana? Eru lactate gel næsta byltingin í úthaldsíþróttum eða bara snilldar markaðssetning? Stærsta …
Show notes
Af hverju eru hlauparar að æfa undir mjókursýruþröskuldi til þess að forðast mjólkursýru en ætla núna að borða hana? Eru lactate gel næsta byltingin í úthaldsíþróttum eða bara snilldar markaðssetning? Stærsta þrekraun úthaldsíþróttamannsins, Tour de France, er í fullum gangi - hjólarar eru lyfjaprófaðir að næturlagi með ófyrirséðum afleiðingum, Latsi setti hæstu wöttin sín í pedalana eftir stutta og snarpa HYROX blokk í miðju hvíldartímabili og LANGA hlaðvarp fjallar um hjólreiðakeppnir svo lengi sem hlauparar vinni þær.
94. Tove Alexandersson
Sú albesta, stigahæsta og æfingaglaðasta er mætt í LANGA hlaðvarp. 30 klukkutíma hlaupavikur, sænska leiðin, rjómaþamb á æfingum, hákolvetnainntaka, magn fram yfir gæði - en stundum gæði framyfir magn, UTMB > …
Show notes
Sú albesta, stigahæsta og æfingaglaðasta er mætt í LANGA hlaðvarp. 30 klukkutíma hlaupavikur, sænska leiðin, rjómaþamb á æfingum, hákolvetnainntaka, magn fram yfir gæði - en stundum gæði framyfir magn, UTMB > götumaraþon, sænska leiðin > norska leiðin og af hverju eru rathlauparar svona góðir í utanvegahlaupum?
93. Arnar Péturs spáir Laugaveginum - hvað gerist, hvað gerist ekki, sub4, sub5, sigurvegarar og pallsætin.
Arnar Pétursson kann að hlaupa hraðan Laugaveg og Arnar Pétursson hikar ekki við að spá í spilin um frammistöðu bestu hlaupara Íslands í Laugaveginum um næstu helgi. Ekkert bendir til sub 4 Laugavegs, Tove mun …
Show notes
Arnar Pétursson kann að hlaupa hraðan Laugaveg og Arnar Pétursson hikar ekki við að spá í spilin um frammistöðu bestu hlaupara Íslands í Laugaveginum um næstu helgi. Ekkert bendir til sub 4 Laugavegs, Tove mun hrista upp í karlaflokknum og keppnin um pallsætin verður gríðarsterk í ár.
92. Offramboð af úthaldi - Synir LANGA létta af sér
Western States vannst á sögulega hröðum tíma af mesta myrkrahesti hlaupasenunnar - en það er Elísa Kristinsdóttir sem á afrek helgarinnar og lokar þriðja UTMB sigrinum á 8 mánuðum. Helgin var smekkfull af …
Show notes
Western States vannst á sögulega hröðum tíma af mesta myrkrahesti hlaupasenunnar - en það er Elísa Kristinsdóttir sem á afrek helgarinnar og lokar þriðja UTMB sigrinum á 8 mánuðum. Helgin var smekkfull af úthaldsafrekum: Tove vinnur Mont Blanc Marathon á tíma sem fær menn til að spá henni sigri gegn íslensku körlunum í Dyrfjallahlaupinu í næstu viku, Norðmenn sýna enn og aftur að þeir eru bestir í Ironman og LANGA gefur rautt spjald fyrir að skipta um vegalengd í miðju hlaupi.
91. Tilhneigingin til að ofgera sér, beinbjúgur, hjól fyrir hlaupara, WSER og The Swedish Method
Handbolta- hjóla- og hlaupadrottningin Ágústa Edda og bakgarðs- og brokkolíspírukóngurinn Andri Guðmundsson mæta í stúdíóið til þess að ræða tilhneiginguna til þess að gera eins mikið og mögulegt er (👀🫵) …
Show notes
Handbolta- hjóla- og hlaupadrottningin Ágústa Edda og bakgarðs- og brokkolíspírukóngurinn Andri Guðmundsson mæta í stúdíóið til þess að ræða tilhneiginguna til þess að gera eins mikið og mögulegt er (👀🫵), hjólaæfingar fyrir hlaupara (hvað er hægt að læra af Tour de France hjólara sem hleypur hálft maraþon á 61 mínútu?), REDs og beinmeiðsli sem koma aftan að manni, sterkustu ráslínu í Western States frá upphafi, red zone sprengjuárásir í hjólreiðum, sænsku hlaupasenuna - og leggja síðast en ekki síst drög að Langathoninu.
90. Latsi & Geir Ómars - Kominn til Kona!
Latsi er kominn til Kona, Björgvin Karl er kominn í þríþraut og Andrea Kolbeins er komin í hjólreiðarnar.Geir Ómarsson og Einar Sigurjónsson eru komnir frá Filippseyjum með hálfan og heilan járnkarl undir …
Show notes
Latsi er kominn til Kona, Björgvin Karl er kominn í þríþraut og Andrea Kolbeins er komin í hjólreiðarnar.
Geir Ómarsson og Einar Sigurjónsson eru komnir frá Filippseyjum með hálfan og heilan járnkarl undir beltinu til þess að gefa okkur ferðasöguna og fara yfir helstu vendingar í heimi úthaldsíþrótta.
89. Þorbergur Ingi eftir EM
Crazy carb numbers, einkapepparinn Þorsteinn Roy, hærri ITRA stig á Íslandi en í útlöndum, Tobbi vs. Tove (í beinni frá Dyrfjallahlaupinu) og yfirferð á frammistöðu íslenska landsliðsins á Evrópumeistaramótinu …
Show notes
Crazy carb numbers, einkapepparinn Þorsteinn Roy, hærri ITRA stig á Íslandi en í útlöndum, Tobbi vs. Tove (í beinni frá Dyrfjallahlaupinu) og yfirferð á frammistöðu íslenska landsliðsins á Evrópumeistaramótinu í utanvegahlaupum.
88. Enhanced Games, peptides, sál til sölu og hvað fara margir undir 4 í Laugaveginum? - Synir LANGA
Engir gíslar teknir: Foreldrafélag LANGA hlaðvarps fordæmir Enhanced Games, hvað munu margir hlauparar fara undir 4 tíma í Laugaveginum? Gera þeir það í síðbuxum? Sage Canaday tilkynnir Cameron Hanes (58 ára… …
Show notes
Engir gíslar teknir: Foreldrafélag LANGA hlaðvarps fordæmir Enhanced Games, hvað munu margir hlauparar fara undir 4 tíma í Laugaveginum? Gera þeir það í síðbuxum? Sage Canaday tilkynnir Cameron Hanes (58 ára… 2:39 maraþon… ???) til lyfjaeftirlitsins útaf peptíðum, Francesco Puppi efast um að 400km hlaup flokkist sem utanvegahlaup og Íslendingar munu valda skaða á Evrópumeistaramótinu næstu helgi.
DOPING, gráa svæðið, HGH, EPO og löglegar leiðir að heimsmetum - Ingimar Jónsson, Msc. molecular medicine
Á ég rétt á því að vera skeptískur þegar ég horfi á besta árangur mannkynssögunnar nást, þvert á íþróttagreinar? Ingimar Jónsson, Msc. í molecular medicine (Sameindalífvísindi. Takk.), er í beinni frá …
Show notes
Á ég rétt á því að vera skeptískur þegar ég horfi á besta árangur mannkynssögunnar nást, þvert á íþróttagreinar? Ingimar Jónsson, Msc. í molecular medicine (Sameindalífvísindi. Takk.), er í beinni frá Afrekslandinu til þess að ræða um árangur íþróttafólks með tilliti til frammistöðuaukandi efna: Testesterón, HGH, EPO, örvandi efni (hvað ertu búin með marga kaffibolla í dag?) og insúlín - hefur þetta einhver áhrif? Eru allir á sterum? Eru lyfjaprófin að virka sem skildi? Munu Enhanced Games sýna að allir eru að dópa? Af hverju fá sumir undanþágur fyrir frammistöðuaukandi efnum?
Ingimar er bjartsýnn, yfir meðalgreind og trúir á það góða í manneskjunni - rétt eins og hlustendur LANGA hlaðvarps. Eigið góða helgi!
86. Hlynur Andrésson - tilraun við Íslandsmet, maraþonæfingar, sub 1:59, kolvetni og koltrefjar
Hlyni Andréssyni rænt í viðtal beint eftir Kaupmannahafnarmaraþonið þar sem hann hljóp á öðrum hraðasta tíma Íslandssögunnar, 2:15:30, en tókst ekki að slá eigið Íslandsmet. Hlynur veltir hér öllum steinum er …
Show notes
Hlyni Andréssyni rænt í viðtal beint eftir Kaupmannahafnarmaraþonið þar sem hann hljóp á öðrum hraðasta tíma Íslandssögunnar, 2:15:30, en tókst ekki að slá eigið Íslandsmet. Hlynur veltir hér öllum steinum er viðkoma maraþonundirbúningi og þeirri staðreynd um hversu erfitt það er að framkvæma gott maraþon: Kolvetnainntaka, magaóþægindi, carbon skór, maraþon undir 1:59 á árinu, vafasöm hematókrítgildi, að fá ekki mynd af sér með Jakobi Ingebrigtsen (?), Íslandsmetið í hálfu maraþoni og allt hitt sem langhlauparar landsins hugsa um þegar þeir leggjast á koddann eftir erfiðan æfingadag.
85. KRISTIAN BLUMMENFELT
Coming off an epic win streak in early 2026, live from Bergen, the one and only: Kristian Blummenfelt.What could he run for the marathon with a year of marathon-specific preparation? How does he knock off …
Show notes
Coming off an epic win streak in early 2026, live from Bergen, the one and only: Kristian Blummenfelt.
What could he run for the marathon with a year of marathon-specific preparation? How does he knock off multiple half Ironmans and Ironmans in the span of a couple of weeks? What happened to only running 2 marathons a year? When did the high-carb revolution hit the Norwegians? Can recent endurance performances be attributed to the super shoes and carbohydrates alone? Did Kristian hit the coach jackpot when he entered triathlon?
We discuss the high-milage approach, cleaning up his diet while eating 7.000 calories, not being good at any sport as a kid but still wanting to be an Olympic champion, Norseman, Klæbo’s isolation tactics, training with the Ingebrigtsen brothers, almost not being accepted for class, knocking out a 1:08 half marathon in his off season, the possibility that he absorbs more calories from food than the average person, the 100+ VO2max test, deviating from the Norwegian measure-everything approach, and not signing with the Norwegian national team.
84. Baldvin Þór Magnússon
Viðbrögð við sub2 maraþoni, kolvetni og carbon skór, uppgjör á fyrstu götumílunni, hvernig hleypur einhver 25 ára gaur maraþon á 2:05 (fjórði hraðasti tími Bandaríkjamanns), meiðslin, Nike samningurinn og …
Show notes
Viðbrögð við sub2 maraþoni, kolvetni og carbon skór, uppgjör á fyrstu götumílunni, hvernig hleypur einhver 25 ára gaur maraþon á 2:05 (fjórði hraðasti tími Bandaríkjamanns), meiðslin, Nike samningurinn og vegferðin í átt að Birmingham 2026.
BREAKING2, skórnir, lyfjaprófin, kolvetnin og bicarb?
Latsi var sem betur fer á bakvakt þegar Sebastian Sawe og Yomif Kejelcha brutu tveggja tíma múrinn í London maraþoninu. Vænleg yfirferð á Breaking 2 verkefni Nike sem byrjaði þetta allt saman, hvernig Adidas …
Show notes
Latsi var sem betur fer á bakvakt þegar Sebastian Sawe og Yomif Kejelcha brutu tveggja tíma múrinn í London maraþoninu. Vænleg yfirferð á Breaking 2 verkefni Nike sem byrjaði þetta allt saman, hvernig Adidas stal þrumunni og setti báða sub2 hlauparana í Adidas skó, lyfjaprófin 25 sem Sawe bað um aukalega til að sanna sakleysi sitt, ný tegund ofurskóa ryður sér rúms, eru fleiri sem geta hlaupið undir tveimur en eru með samning við vitlausan skóframleiðanda? Virkaði bicarb á keppnisdegi og hvað tóku þeir inn mörg grömm af kolvetnum?
82. PENINGAR, frægð, athygli og samstörf - Snorri Barón
Eru íþróttamenn bara fáklæddir áhrifavaldar með hátt VO2max??Snorri Barón, hlaupari, hefur áratuga reynslu úr auglýsingabransanum sem hann heimfærði á umboðsmennsku og listina við að leiða saman íþróttamenn og …
Show notes
Eru íþróttamenn bara fáklæddir áhrifavaldar með hátt VO2max??
Snorri Barón, hlaupari, hefur áratuga reynslu úr auglýsingabransanum sem hann heimfærði á umboðsmennsku og listina við að leiða saman íþróttamenn og fyrirtæki. Snorri veitir hér sína skoðun á því hvort leikurinn snúist um að verða sá besti eða sá vinsælasti: hver ber ábyrgð á vinsældum íþróttamanns, fjölmiðlar eða íþróttamaðurinn sjálfur? Er það vinsælasti eða besti íþróttamaðurinn sem á peninginn skilið? Eru einstaklingar að þykjast vera sponsaðir? Eiga íþróttamenn peninga skilið yfir höfuð? Hverjir fá samninginn við Nike og Adidas? Hvað vilja fyrirtæki fá út úr samstarfi? Þarf að sýna frá öllu lífi sínu ef maður ætlar að hafa eitthvað upp úr íþróttinni? Eru fyrirtæki of varkár?
Snorri rekur einnig samstarf sitt við Björgvin Karl (lirfan sem varð að fiðrildi), að hjálpa íþróttafólki sem fellur á lyfjaprófi og eigin raunir af því að fá annan séns í lífinu.
Hæsta VO2max Íslendings, KRISTIAN BLU óstöðvandi, leiðir til að bæta sig/meiðast og lygilegar mælingar
Hans fræðsla, þinn árangur.Latsi heldur uppi ábyrgri umræðu um hæstu VO2max mælingar Íslandssgöunnar (official), ástæðu (eintala) þess að Arnar hægði á sér undir lok 100km hlaupsins, konur sem hlaupa Boston …
Show notes
Hans fræðsla, þinn árangur.
Latsi heldur uppi ábyrgri umræðu um hæstu VO2max mælingar Íslandssgöunnar (official), ástæðu (eintala) þess að Arnar hægði á sér undir lok 100km hlaupsins, konur sem hlaupa Boston maraþonið 🤨, tilraun Hlyns við hraðasta maraþon Íslendings, YFIRBURÐIR Kristians Blummenfelt og hrottalegar (leynilegar) hlaupaæfingar, lygilegar mjólkursýrumælingar og nokkrar leiðir til að hlaupa hraðar og meiðast.
Fraser mútar BKG, VO2max genafrík, KLÆBO, komdu þér á framfæri og Northaug í neyslu
Þurfa þessir íþróttamenn stanslausa styrki til þess að iðka íþróttina sína eða er hægt að taka málin í eigin hendur?Gunni Birgis og Björgvin Karl mæta nýklipptir í stúdíóið til að ræða ótrúlegan uppgang og …
Show notes
Þurfa þessir íþróttamenn stanslausa styrki til þess að iðka íþróttina sína eða er hægt að taka málin í eigin hendur?
Gunni Birgis og Björgvin Karl mæta nýklipptir í stúdíóið til að ræða ótrúlegan uppgang og vinsældir CrossFit, hvernig íslensku CrossFittararnir byggðu feril sinn á gríðarlegum vinsældum (og hvaða tækifæri opnuðu dyrnar að stóru samningunum), LYGILEGAR mútugreiðslur frá Matt Fraser til Bjögga, hvatningu til íþróttafólks um að trana sér meira fram, bekkjarbróðir Gunna mældist með hæsta VO2max í sögunni og varð heimsmeistari í hjólreiðum án þess að nenna því neitt sérstaklega, hard work vs. talent, Bjögga-bölvunin og byltan hans Klæbo, HEGGEN26, Ethereum vs. Bitcoin (fjárfestingarráðgjöf), Petter Northaug með ökklaband í heimagymminu og síðast en ekki síst - er kominn tími til að setja íþróttafólk utan á matvörur?
79. Hlaupari með Íslandsmet í kraftlyftingum - Björn Margeirsson
Björn Margeirsson er einn af 5 systkinum sem öll eru doktorar. Hann er einn besti millivegalengdahlaupari Íslandssögunnar, lengdi upp í maraþonið og Laugaveginn, tók brautarmetið hans Þorbergs Inga og sneri sér …
Show notes
Björn Margeirsson er einn af 5 systkinum sem öll eru doktorar. Hann er einn besti millivegalengdahlaupari Íslandssögunnar, lengdi upp í maraþonið og Laugaveginn, tók brautarmetið hans Þorbergs Inga og sneri sér svo að kraftlyftingum - þar sem Íslandsmetin fengu heldur engan frið.
Bjössi er úr sveit og segir hlutina þess vegna eins og þeir eru. Eiga allir að flytja út 15 ára? Eru frjálsar að deyja út? Er CrossFit íþrótt? Af hverju vilja crossfittarar ekki lyfjapróf? Er hægt að fá athygli ef maður hleypur styttra en 10km?
These are the latest 40 of 118 episodes. You’ll find older episodes in the podcast’s feed.
Similar podcasts
More Health & Fitness podcastsIs this your podcast?
Confirm it with an entry in your feed: you get a code here, add it as podcast:txt to the channel of your feed, and we check it. Your podcast is then shown as “verified” on SoundNode.







