Skip to content
Íslenski Draumurinn

Íslenski Draumurinn

New52. Hilmar Veigar Pétursson - Fenris Creations, áður CCPNovember 16, 2026 · 1 h 46 min
Episodes
53
Released
every two weeks
Latest episode
Nov 16, 2026

About the podcast

Þetta hlaðvarp er fyrir þá sem hafa áhuga á fyrirtækjarekstri, fjármálum, fjárfestingum og að verða besta útgáfan af sjálfum sér. Í þáttunum setjumst við niður með íslenskum frumkvöðlum, viðskiptamönnum og einstaklingum sem hafa þorað að elta sína drauma og hafa náð langt á sínu sviði. Við förum yfir þeirra sögu, velgengnina og mistökin. Meira um hlaðvarpið inn á www.islenskidraumurinn.is

Contributors

Episodes 53

  1. 52. Hilmar Veigar Pétursson - Fenris Creations, áður CCP

    1 h 46 min

    Í þessum þætti af Íslenska draumnum ræðir Sigurður við Hilmar Veigar Pétursson, forstjóra Fenris Creations, áður CCP, sem hefur staðið í brúnni hjá einu þekktasta tölvuleikjafyrirtæki Íslands í meira en tvo …

    Show notes

    Í þessum þætti af Íslenska draumnum ræðir Sigurður við Hilmar Veigar Pétursson, forstjóra Fenris Creations, áður CCP, sem hefur staðið í brúnni hjá einu þekktasta tölvuleikjafyrirtæki Íslands í meira en tvo áratugi. Hilmar segir frá fyrstu tölvunni sem hann safnaði fyrir með blaðburði, lærdómsárunum hjá OZ og ævintýrinu á bak við EVE Online. Hann ræðir opinskátt um tímabil þegar starfsfólk vann mánuðum saman án launa, velgengnina sem leiddi til ofþenslu og erfiðu ákvarðanirnar sem fylgdu í kjölfarið. Einnig er rætt um leiðina úr forritun í forstjórastól, mikilvægi þess að skilja eigin tilfinningar og nýjan kafla þar sem EVE gæti gegnt lykilhlutverki í þjálfun og þróun gervigreindar.

  2. 51. Baksýnisspegillinn og vegvísirinn fram á við

    14 min

    Þátturinn í dag er aðeins öðruvísi. Við lítum í baksýnisspegilinn og drögum saman helstu lærdóma ársins. Við heyrum brot úr mest hlustuðu þáttum ársins og kynnum til leiks markmiðaheftið fyrir 2026.Heftið er …

    Show notes

    Þátturinn í dag er aðeins öðruvísi. Við lítum í baksýnisspegilinn og drögum saman helstu lærdóma ársins. Við heyrum brot úr mest hlustuðu þáttum ársins og kynnum til leiks markmiðaheftið fyrir 2026.

    Heftið er hannað til að hjálpa þér að setja skýr markmið, halda fókus og ná alvöru árangri. Ef þú vilt fá heftið sent, sendu okkur línu á Instagram hjá Íslenska draumnum.

    Gleðilega hátíð og takk kærlega fyrir hlustunina á árinu.

  3. 50. Ingvi Þór Georgsson - Aflamiðlun

    1 h 50 min

    Í þessum þætti af Íslenska Draumnum ræðir Sigurður við Ingva Þór Georgsson, mann sem hefur farið óhefðbundna leið í atvinnulífinu og byggt upp ótrúlega fjölbreyttan feril. Í þættinum opnar Ingvi á fyrstu …

    Show notes

    Í þessum þætti af Íslenska Draumnum ræðir Sigurður við Ingva Þór Georgsson, mann sem hefur farið óhefðbundna leið í atvinnulífinu og byggt upp ótrúlega fjölbreyttan feril. Í þættinum opnar Ingvi á fyrstu skrefum sínum, ævintýrunum í kringum Aflamiðlun, verkefnunum sem spruttu út frá því og þeirri þrautseigju sem hefur haldið honum áfram, verkefni eftir verkefni: borðspilaútgáfu, Alfreð, Pardus, hlaðvarpsrekstur Sýnar, Pyngjan, fyrirtækjasala, hugbúnaðarrekstur og jafnvel þjóðbúningaframleiðslu fyrir börn.

  4. 49. Helga Sigrún Hermannsdóttir - Dottir Skin

    1 h 59 min

    Gestur Íslenska Draumsins þessa vikuna er Helga Sigrún Hermannsdóttir, meðstofnandi og yfirmaður vísinda og vöruþróunar hjá Dottir Skin, hefur vakið athygli fyrir einstaka nálgun sína á snyrtivörur, þar sem …

    Show notes

    Gestur Íslenska Draumsins þessa vikuna er Helga Sigrún Hermannsdóttir, meðstofnandi og yfirmaður vísinda og vöruþróunar hjá Dottir Skin, hefur vakið athygli fyrir einstaka nálgun sína á snyrtivörur, þar sem sameinast djúp þekking á efnafræði, eigin reynsla af húðvandamálum og vilji til að skapa raunverulegar lausnir. Hún hefur alla tíð verið heilluð af húð, innihaldsefnum og þeirri spurningu hvað virkar í raun. Vegferð hennar sem frumkvöðull hófst ekki með fjárfestafundi eða viðskiptaáætlun, heldur með forvitni, einlægni og samfélagsmiðlum.

  5. 48. Árni Jón Pálsson - Alfa Framtak

    1 h 58 min

    Í nýjasta þætti af Íslenska Draumnum tekur Sigurður á móti Árna Jóni Pálssyni, meðstofnanda og fjárfestingastjóra Alfa Framtaks, sem deilir einlægri og heillandi sögu sinni frá fyrstu skrefum í viðskiptalífinu …

    Show notes

    Í nýjasta þætti af Íslenska Draumnum tekur Sigurður á móti Árna Jóni Pálssyni, meðstofnanda og fjárfestingastjóra Alfa Framtaks, sem deilir einlægri og heillandi sögu sinni frá fyrstu skrefum í viðskiptalífinu yfir í það að leiða einn áhugaverðasta og öflugasta framtakssjóð landsins í dag.

  6. 47. Íslenski Draumurinn er kominn aftur

    3 min

    Við kynnum til leiks nýjan og stærri draum. Nýtt stúdíó og stærri hugmyndir. Í þessum stutta kynningaþætti tilkynnum við að Íslenski Draumurinn er hafinn á ný eftir stutt hlé. Við heyrum einnig hljóðbrot úr …

    Show notes

    Við kynnum til leiks nýjan og stærri draum. Nýtt stúdíó og stærri hugmyndir. Í þessum stutta kynningaþætti tilkynnum við að Íslenski Draumurinn er hafinn á ný eftir stutt hlé. Við heyrum einnig hljóðbrot úr næstu tveimur þáttum, sem þú mátt ekki missa af.

    Fyrsta hljóðbrotið er úr þættinum með Árna Jóni Pálssyni, meðstofnanda og fjárfestingastjóra Alfa Framtak. Í þættinum deilir hann einlægri og heillandi sögu sinni frá fyrstu skrefum í viðskiptalífinu yfir í það að leiða einn áhugaverðasta og öflugasta framtakssjóð landsins í dag.

    Svo heyrum við hljóðbrot úr þættinum með Helgu Sigrúnu Hermannsdóttur, meðstofnanda og yfirmanni vísinda og vöruþróunar hjá Dottir Skin. Helga hefur vakið athygli fyrir einstaka nálgun sína á snyrtivörur, þar sem sameinast djúp þekking á efnafræði, eigin reynsla af húðvandamálum og vilji til að skapa raunverulegar lausnir.

    Við lofum frábærum þáttum í framhaldi, takk fyrir að hlusta!

  7. 46. Hekla Arnardóttir - Crowberry Capital

    1 h 32 min

    Í nýjasta þætti Íslenska draumsins ræðir Sigurður Sindri við Heklu Arnardóttur, meðstofnanda Crowberry Capital, sem hefur átt óvenjulega vegferð úr vélaverkfræði yfir í heim fjárfestinga og frumkvöðlastarfsemi …

    Show notes

    Í nýjasta þætti Íslenska draumsins ræðir Sigurður Sindri við Heklu Arnardóttur, meðstofnanda Crowberry Capital, sem hefur átt óvenjulega vegferð úr vélaverkfræði yfir í heim fjárfestinga og frumkvöðlastarfsemi. Hekla hefur starfað við fjárfestingar í nýsköpun í fjölda ára, fjárfest í fjölbreyttum hópi tæknifyrirtækja, og komið að byggingu sprotafyrirtækja sem hafa vaxið út fyrir landsteinana.



  8. 45. Sindri Már Finnbogason - TIX

    1 h 56 min

    Í nýjasta þætti hlaðvarpsins Íslenski Draumurinn ræðir Sigurður Sindri við Sindra Má Finnbogason, stofnanda og frumkvöðulinn á bak við miðasölukerfið Tix. Í þættinum greinir Sindri frá fyrstu kynnum sínum af …

    Show notes

    Í nýjasta þætti hlaðvarpsins Íslenski Draumurinn ræðir Sigurður Sindri við Sindra Má Finnbogason, stofnanda og frumkvöðulinn á bak við miðasölukerfið Tix. Í þættinum greinir Sindri frá fyrstu kynnum sínum af forritun, uppbyggingu eigin hugbúnaðarfyrirtækis, og þeirri alþjóðlegu útrás sem fylgdi í kjölfarið. Ferill hans spannar þrjá áratugi og ber vott um óvenjulegan sjálflærdóm, seiglu og víðsýni í rekstri.

  9. 44. Litið til baka

    32 min

    Í nýjasta þætti Íslenska Draumsins lítum við aftur á þrjá áhrifamikla gesti sem komu í fyrstu þáttunum – hver með sína einstöku sögu, sýn og leið að árangri. Þeir eiga það sameiginlegt að hafa lagt ótrúlega …

    Show notes

    Í nýjasta þætti Íslenska Draumsins lítum við aftur á þrjá áhrifamikla gesti sem komu í fyrstu þáttunum – hver með sína einstöku sögu, sýn og leið að árangri. Þeir eiga það sameiginlegt að hafa lagt ótrúlega vinnu í að byggja upp rekstur frá grunni og eru allir ólík dæmi um hvað frumkvöðlastarf getur falið í sér. Hvort sem það er í hótelrekstri, bílaleigum eða fasteignastarfsemi – þá er eitt sem skín í gegn: þrautseigja, framtíðarsýn og drifkraftur.

    Í þessum þætti lítum á þegar Steinþór Jónsson (Hótel Keflavík), Magnús Sverrir Þorsteinsson (Blue Car Rental) og Þorsteinn Ingi Einarsson (Steinabón, Garður Apartments) deila reynslu sinni af því að byggja upp eigin fyrirtæki frá grunni og hvað hefur drifið þá áfram á leiðinni að árangri.

  10. 43. Árið 2025 - Fyrri helmingur

    35 min

    Í nýjasta þætti hlaðvarpsins Íslenski draumurinn stígur Sigurður Sindri Magnússon skref til baka og fer yfir þrjá eftirminnilega viðmælendur sem hafa komið fram á árinu: Jónas Hagan Guðmundsson, Kristján Inga …

    Show notes

    Í nýjasta þætti hlaðvarpsins Íslenski draumurinn stígur Sigurður Sindri Magnússon skref til baka og fer yfir þrjá eftirminnilega viðmælendur sem hafa komið fram á árinu: Jónas Hagan Guðmundsson, Kristján Inga Mikaelsson og Hjálmar Gíslason. Þátturinn er áminning um breiddina og dýptina í íslensku frumkvöðlaumhverfi – og hversu mikla innblástur er að finna í þeim sem þora að láta til sín taka.

  11. 42. Hjálmar Gíslason - GRID

    1 h 39 min

    Í nýjasta þættinum af Íslenski draumurinn fáum við innsýn í ævintýralegt og lærdómsríkt ferðalag Hjálmars Gíslasonar – eins reynslumesta frumkvöðuls Íslands og stofnanda GRID, sem vinnur að næstu byltingu í …

    Show notes

    Í nýjasta þættinum af Íslenski draumurinn fáum við innsýn í ævintýralegt og lærdómsríkt ferðalag Hjálmars Gíslasonar – eins reynslumesta frumkvöðuls Íslands og stofnanda GRID, sem vinnur að næstu byltingu í töflureiknum. Hjálmar hefur áratugareynslu af því að umbreyta hugmyndum í raunverulegar vörur og fyrirtæki, og í þættinum deilir hann einlæglega sinni sögu – frá því að selja fyrsta tölvuleikinn sinn 14 ára gamall, yfir í að selja hugbúnaðarfyrirtæki sitt til stórfyrirtækis í Bandaríkjunum.

  12. 41. Emin Kadri - At­vinnu­maður í hnefaleikum

    1 h

    Í nýjasta þættinum af Íslenski draumurinn kynnumst við Emin Kadri, 22 ára atvinnuboxara sem þrátt fyrir ungan aldur er þegar orðinn þekkt nafn í íslenskri íþróttasenu. Emin hefur barist tvo atvinnubardaga – og …

    Show notes

    Í nýjasta þættinum af Íslenski draumurinn kynnumst við Emin Kadri, 22 ára atvinnuboxara sem þrátt fyrir ungan aldur er þegar orðinn þekkt nafn í íslenskri íþróttasenu. Emin hefur barist tvo atvinnubardaga – og unnið þá báða – og margir sjá hann sem einn efnilegasta hnefaleikamann Íslands.

    Lestu meira og skráðu þig á póstlistann á islenskidraumurinn.is

  13. 40. Valgerður Hrund Skúladóttir - Sensa

    1 h 24 min

    Í nýjasta þætti Íslenska draumsins hittum við Valgerði Hrund, framkvæmdastjóra Sensa og einn af stofnendum fyrirtækisins. Hún hefur í áratugi verið í fararbroddi íslenskrar upplýsingatækni og lýsir í viðtalinu …

    Show notes

    Í nýjasta þætti Íslenska draumsins hittum við Valgerði Hrund, framkvæmdastjóra Sensa og einn af stofnendum fyrirtækisins. Hún hefur í áratugi verið í fararbroddi íslenskrar upplýsingatækni og lýsir í viðtalinu ótrúlegri vegferð sinni frá Vesturbæ Reykjavíkur til þess að stýra alþjóðlegu tæknifyrirtæki með yfir 160 starfsmenn í 12 löndum.

    Skráðu þig á póstlistann og lestu meira á islenskidraumurinn.is

  14. 39. Jónas Karl - Markmiðaþáttur - Ertu á réttri leið?

    48 min

    Í nýjasta þætti Íslenska Draumsins býður Sigurður upp á sérstaka útgáfu sem tengist markmiðasetningu – grunnstoð allra þeirra sem vilja ná árangri, hvort sem er í lífinu eða í viðskiptum. Þátturinn er framhald …

    Show notes
    Í nýjasta þætti Íslenska Draumsins býður Sigurður upp á sérstaka útgáfu sem tengist markmiðasetningu – grunnstoð allra þeirra sem vilja ná árangri, hvort sem er í lífinu eða í viðskiptum. Þátturinn er framhald af fyrsta markmiðaþætti ársins og nú fer Sigurður dýpra í efnið með tilkomu nýs markmiðaheftis sem allir geta nálgast frítt á islenskidraumurinn.is. …
  15. 38. Kristján Ingi Mikaelson - VISKA Digital Assets & MGMT Ventures - Part 2

    1 h 45 min

    Í nýjasta þætti Íslenska draumsins heldur samtal Sigurðar við Kristján Inga Mikaelsson – frumkvöðul, fjárfesti og einn af fyrstu talsmönnum Bitcoin á Íslandi áfram. Í þættinum fer Kristján yfir einstakan feril …

    Show notes

    Í nýjasta þætti Íslenska draumsins heldur samtal Sigurðar við Kristján Inga Mikaelsson – frumkvöðul, fjárfesti og einn af fyrstu talsmönnum Bitcoin á Íslandi áfram. Í þættinum fer Kristján yfir einstakan feril sem spannar tvo áratugi í tæknigeiranum, upphafið í forritun sem ungur maður og leiðina að því að stýra sjóðum og fjárfesta í framtíðarfyrirtækjum.

    Skráðu þig á póstlistann á islenskidraumurinn.is

  16. 37. Kristján Ingi Mikaelson - VISKA Digital Assets & MGMT Ventures - Part 1

    1 h 44 min

    Í nýjasta þætti Íslenska draumsins er fyrsti partur samtals Sigurðar við Kristján Inga Mikaelsson – frumkvöðul, fjárfesti og einn af fyrstu talsmönnum Bitcoin á Íslandi. Í þættinum fer Kristján yfir einstakan …

    Show notes

    Í nýjasta þætti Íslenska draumsins er fyrsti partur samtals Sigurðar við Kristján Inga Mikaelsson – frumkvöðul, fjárfesti og einn af fyrstu talsmönnum Bitcoin á Íslandi. Í þættinum fer Kristján yfir einstakan feril sem spannar tvo áratugi í tæknigeiranum, upphafið í forritun sem ungur maður og leiðina að því að stýra sjóðum og fjárfesta í framtíðarfyrirtækjum.

    Skráðu þig á póstlistann á islenskidraumurinn.is

  17. 36. Sölvi Tryggvason - Fjölmiðlamaður & rithöfundur

    1 h 59 min

    Nýr þáttur af Íslenska draumnum er kominn út og að þessu sinni er gestur Sigurðar enginn annar en fjölmiðlamaðurinn, hlaðvarpsstjórnandinn og rithöfundurinn Sölvi Tryggvason – betur þekktur sem Sölvi Tryggva …

    Show notes

    Nýr þáttur af Íslenska draumnum er kominn út og að þessu sinni er gestur Sigurðar enginn annar en fjölmiðlamaðurinn, hlaðvarpsstjórnandinn og rithöfundurinn Sölvi Tryggvason – betur þekktur sem Sölvi Tryggva. Sölvi hefur verið áberandi í íslensku fjölmiðlalífi í yfir tvo áratugi og deilir hér ótrúlegri og fjölbreyttri vegferð sinni.

    Lestu meira um Sölva og skráðu þig á póstlistann á íslenskidraumurinn.is

  18. 35. Guðmundur Birkir Pálmason - Kírópraktor & áhrifavaldur

    1 h 32 min

    Í nýjasta þætti Íslenska Draumsins ræðir Sigurður við Guðmund Birkir Pálmason, betur þekktur sem Gummi kíró. Guðmundur hefur byggt upp stærstu kírópraktorstofu Íslands, rekið fyrirtæki í Svíþjóð, opnað …

    Show notes

    Í nýjasta þætti Íslenska Draumsins ræðir Sigurður við Guðmund Birkir Pálmason, betur þekktur sem Gummi kíró. Guðmundur hefur byggt upp stærstu kírópraktorstofu Íslands, rekið fyrirtæki í Svíþjóð, opnað hárgreiðslustofu og orðið að áhrifavaldi með sitt eigið fatamerki. Í þættinum fer hann yfir ferðalagið sem liggur að baki þessu öllu – ásamt því að ræða sjálfsvinnu, sjálfsrækt og þörfina til að hjálpa öðrum.

    Lestu meira um Gumma kíró og skráðu þig á póstlistann á íslenskidraumurinn.is

  19. 34. Karel Ólafsson - PreppUp, Preppbarinn & Lamb Street Food

    1 h 17 min

    Í nýjasta þætti Íslenska Draumsins ræðir Sigurður við Karel Ólafsson, frumkvöðulinn á bak við PreppUp, Preppbarinn og Lamb Street Food. Karel hefur fetað óvenjulega leið inn í veitingarekstur en með hugrekki …

    Show notes

    Í nýjasta þætti Íslenska Draumsins ræðir Sigurður við Karel Ólafsson, frumkvöðulinn á bak við PreppUp, Preppbarinn og Lamb Street Food. Karel hefur fetað óvenjulega leið inn í veitingarekstur en með hugrekki, áræðni og sterka framtíðarsýn hefur hann skapað holla og sjálfbæra veitingamenningu á Íslandi.

    Skráðu þig á póstlistann og lestu meira á islenskidraumurinn.is

  20. 33. Guðjón Már Guðjónsson - OZ

    2 h 18 min

    Í nýjasta þætti Íslenska Draumsins ræðir Sigurður við einn af mest áhrifamestu frumkvöðlum Íslands, Guðjón Má Guðjónsson. Guðjón hefur verið á fullu í nýsköpunarheiminum síðan hann var aðeins 14 ára gamall og …

    Show notes
    Í nýjasta þætti Íslenska Draumsins ræðir Sigurður við einn af mest áhrifamestu frumkvöðlum Íslands, Guðjón Má Guðjónsson. Guðjón hefur verið á fullu í nýsköpunarheiminum síðan hann var aðeins 14 ára gamall og hefur á ferli sínum stofnað og byggt upp mörg af stærstu tæknifyrirtækjum landsins. Hann hefur unnið á fjölbreyttum sviðum – allt frá fjarskiptum yfir í gervigreind og útvarpslausnir fyrir íþróttir. …
  21. 32. Ivan Svan Corvasce - Kokteilaskólinn, Reykjavík Cocktails, Spritz & Heimabarinn

    1 h 9 min

    Í nýjasta þætti Íslenska Draumsins ræðir Sigurður við Ivan Svan Corvasce, stofnanda Kokteilaskólans, RVK Cocktails, Vínskólans og eiganda Spritz Venue. Ivan hefur á síðustu árum byggt upp öflugt fyrirtæki í …

    Show notes
    Í nýjasta þætti Íslenska Draumsins ræðir Sigurður við Ivan Svan Corvasce, stofnanda Kokteilaskólans, RVK Cocktails, Vínskólans og eiganda Spritz Venue. Ivan hefur á síðustu árum byggt upp öflugt fyrirtæki í kringum kokteilamenningu á Íslandi og hefur með elju og ástríðu breytt því hvernig fræðsla, þjónusta og upplifun tengd kokteilum er háttað hér á landi. …
  22. 31. Georg Lúðvíksson - Meniga, Dimon & Spesía

    1 h 53 min

    Í nýjasta þætti Íslenska draumsins er gesturinn Georg Lúðvíksson, raðfrumkvöðull, fjárfestir og fjármálasérfræðingur. Georg er best þekktur fyrir að vera stofnandi Meniga, en hefur einnig byggt upp fyrirtæki …

    Show notes
    Í nýjasta þætti Íslenska draumsins er gesturinn Georg Lúðvíksson, raðfrumkvöðull, fjárfestir og fjármálasérfræðingur. Georg er best þekktur fyrir að vera stofnandi Meniga, en hefur einnig byggt upp fyrirtæki eins og UpDown og Dimon, ásamt því að sitja í stjórnum stórfyrirtækja eins og Icelandair og lífeyrissjóða. …
  23. 30. Linda Pétursdóttir - LMLP

    1 h 24 min

    Í nýjasta þætti Íslenska Draumurinn er engin önnur en Linda Pétursdóttir, betur þekkt sem Linda Pé, gestur þáttarins. Linda vakti fyrst athygli þegar hún vann titilinn Miss World árið 1988, en í þættinum fer …

    Show notes
    Í nýjasta þætti Íslenska Draumurinn er engin önnur en Linda Pétursdóttir, betur þekkt sem Linda Pé, gestur þáttarins. Linda vakti fyrst athygli þegar hún vann titilinn Miss World árið 1988, en í þættinum fer hún yfir hvernig það breytti lífi hennar og opnaði dyr að tækifærum um allan heim. Linda segir frá uppruna sínum, hvernig hún endaði í fegurðarsamkeppni og hvernig það leiddi hana í óvænta átt í lífinu. …
  24. 29. Davíð Örn Símonarson - Smitten

    2 h

    Í nýjasta þætti Íslenski draumurinn er gesturinn Davíð Örn Símonarson, frumkvöðull og framkvæmdastjóri stefnumótaappsins Smitten. Davíð er einn af fremstu frumkvöðlum landsins og hefur unnið að snjallforritum í …

    Show notes

    Í nýjasta þætti Íslenski draumurinn er gesturinn Davíð Örn Símonarson, frumkvöðull og framkvæmdastjóri stefnumótaappsins Smitten. Davíð er einn af fremstu frumkvöðlum landsins og hefur unnið að snjallforritum í um 12 ár. Í þættinum fer hann yfir feril sinn, áskoranirnar sem hann hefur staðið frammi fyrir og hvernig hann hefur byggt sig upp í gegnum ótrúleg verkefni.

    Lestu meira um Davíð og skráðu þig á póstlistann okkar á islenskidraumurinn.is

  25. 28. Jón Óli Ómarsson - Go Car Rental

    1 h 17 min

    Í nýjasta þætti Íslenski draumurinn segir Jón Óli Ómarsson, stofnandi og eigandi Go Car Rental, frá því hvernig hann byggði upp eitt stærsta bílaleigufyrirtæki landsins frá grunni. Saga Jóns er frábært dæmi um …

    Show notes

    Í nýjasta þætti Íslenski draumurinn segir Jón Óli Ómarsson, stofnandi og eigandi Go Car Rental, frá því hvernig hann byggði upp eitt stærsta bílaleigufyrirtæki landsins frá grunni. Saga Jóns er frábært dæmi um hvernig dugnaður, útsjónarsemi og vilji til að læra á öllum sviðum rekstrar geta leitt til stórkostlegs árangurs.

  26. 27. Valgeir Magnússon - Pipar/TBWA

    1 h 28 min

    Í nýjasta þættinum af Íslenski draumurinn ræðir Valgeir Magnússon, betur þekktur sem Valli Sport, við Sigurð um feril sinn sem frumkvöðull og auglýsingamaður. Valgeir hefur verið í auglýsingabransanum í yfir 30 …

    Show notes
    Í nýjasta þættinum af Íslenski draumurinn ræðir Valgeir Magnússon, betur þekktur sem Valli Sport, við Sigurð um feril sinn sem frumkvöðull og auglýsingamaður. Valgeir hefur verið í auglýsingabransanum í yfir 30 ár og er einn stofnenda og eigenda auglýsingastofunnar Pipar/TBWA, sem í dag hefur um 100 starfsmenn og starfstöðvar í Reykjavík, Osló, Kaupmannahöfn og Helsinki. …
  27. 26. Arnar Freyr Magnússon - Wodbúð & REIN

    1 h 9 min

    Í nýjasta þættinum af Íslenski draumurinn segir Arnar Freyr Magnússon, eigandi Wodbúðar og REIN, frá því hvernig hann hóf feril sinn sem frumkvöðull og byggði upp fyrirtæki frá grunni með takmörkuðum fjármunum …

    Show notes

    Í nýjasta þættinum af Íslenski draumurinn segir Arnar Freyr Magnússon, eigandi Wodbúðar og REIN, frá því hvernig hann hóf feril sinn sem frumkvöðull og byggði upp fyrirtæki frá grunni með takmörkuðum fjármunum en mikilli vinnusemi. Þátturinn gefur innsýn í hvernig hugmynd varð að raunveruleika og hvernig Arnar hefur tekist á við áskoranir á leiðinni.

    Lestu meira um Arnar og þáttinn í heild sinni hér á íslenskidraumurinn.is

  28. 25. Kristján Berg Ásgeirsson - Fiskikóngurinn & Heitirpottar.is

    1 h 28 min

    Í nýjasta þættinum af hlaðvarpinu Íslenski draumurinn segir Kristján Berg Ásgeirsson, oft kallaður Fiskikóngurinn eða Konungur heitu pottanna, frá ótrúlegri vegferð sinni í viðskiptalífinu. Frá því að byrja …

    Show notes
    Í nýjasta þættinum af hlaðvarpinu Íslenski draumurinn segir Kristján Berg Ásgeirsson, oft kallaður Fiskikóngurinn eða Konungur heitu pottanna, frá ótrúlegri vegferð sinni í viðskiptalífinu. Frá því að byrja ungur að bera út dagblöð, til þess að stofna sína fyrstu fiskbúð 18 ára gamall og verða síðar alþjóðlegur dealer of the year hjá Arctic Spa, hefur Kristján sannað að hörð vinna og þrautseigja skila sér. Lestu meira um Kristján og þáttinn í heild sinni hér á íslenskidraumurinn.is
  29. 24. Svavar Jóhannsson - Fitness Sport

    1 h 5 min

    Í þessum þætti af Íslenska draumnum er viðmælandinn Svavar Jóhannsson stofnandi og eigandi Fitness Sport. Fitness Sport selur fæðubótarefni og er líka heildsala sem dreifir vörum í helstu búðir. Svavar stofnaði …

    Show notes

    Í þessum þætti af Íslenska draumnum er viðmælandinn Svavar Jóhannsson stofnandi og eigandi Fitness Sport. Fitness Sport selur fæðubótarefni og er líka heildsala sem dreifir vörum í helstu búðir. Svavar stofnaði Fitness Sport árið 1998 og til að byrja með var hann með lagerinn í bílskúrnum hjá ömmu sinni. Í þættinum fer hann vel yfir fyrstu skrefin á ferlinum og hvernig bransinn hefur þróast síðustu ár.

    Skráðu þig á póstlistann okkar & á islenskidraumurinn.is.

  30. 23. Jónas Hagan - Global Blue, WISE, Varða Capital, Adira, Nespresso & Dalur Luxury

    1 h 40 min

    Í þessum þætti af Íslenska draumnum er viðmælandinn Jónas Hagan Guðmundsson einn farsælasti frumkvöðull og fjárfestir Íslands. Þetta er í fyrsta sinn sem Jónas kemur fram í hlaðvarpi og deilir einstökum sögum …

    Show notes
    Í þessum þætti af Íslenska draumnum er viðmælandinn Jónas Hagan Guðmundsson einn farsælasti frumkvöðull og fjárfestir Íslands. Þetta er í fyrsta sinn sem Jónas kemur fram í hlaðvarpi og deilir einstökum sögum af viðskiptaferlinum ásamt því að segja frá sínum fyrstu skrefum sem frumkvöðull á unga aldri. Þátturinn er hlaðinn af innsýn í viðskiptalíf og innblæstri fyrir frumkvöðla. Jónas er fyrirmynd þeirra sem vilja nýta ástríðu sína til að skapa sér einstakan feril. …

These are the latest 40 of 53 episodes. You’ll find older episodes in the podcast’s feed.

Is this your podcast?

Confirm it with an entry in your feed: you get a code here, add it as podcast:txt to the channel of your feed, and we check it. Your podcast is then shown as “verified” on SoundNode.

Settings

Display

Language

Decides which stations you see first on the home page.

History

Recently played stations and episodes and your latest searches are only stored in this browser.

Notifications

A short notice when a podcast you follow has a new episode. Turn off single podcasts with the bell on their page.

Account

Save favorites – in the app and on the website.

Keyboard shortcuts

/
Open search
Space
Play or pause
← →
In the player: back 15 s, forward 30 s (episodes) · in a row: next tile
↑ ↓
In a row: target within the tile
Home / End
In a row: first or last tile
Esc
Close window or menu
?
This overview
Now playing

Go to station page

Play next

    Add episodes with “Play next” – they play after the current episode.