
Joe Grimson: 1. þáttur - Ævintýri á Vellinum
Show notes
Jósafat Arngrímsson var mikilsvirtur athafnamaður á Suðurnesjum, vonarstjarna í Sjálfstæðisflokknum og í miklum metum hjá bandarískum herforingjum þegar upp komst um stórfelld fjársvik hans og hann hlaut dóm í Hæstarétti. Í þessum fyrsta þætti er farið yfir upphaf ferils Jósafats, gríðarlegan uppgang í Keflavík sem Jósafat tók þátt í af krafti, og loks fyrsta sakamálið gegn honum, en Jósafat var dæmdur fyrir umfangsmikið ávísanasvindl. Umsjón: Snærós Sindradóttir og Sindri Freysson. Aðstoð við samsetningu og frágang: Guðni Tómasson Viðmælendur í þessum þætti: Valtýr Sigurðsson, Ragnar Áki Jónsson, Friðþór Eydal, Árni Samúelsson, Lesarar í þessum þætti: Oddur Þórðarson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir, Ingvar Þór Björnsson, Sindri Freysson, Sigrún Hermannsdóttir, Viktoría Hermannsdóttirog Einar Kárason