Skip to content
Joe Grimson: Saga af svikum
PodcastArtsIS

Joe Grimson: Saga af svikum

Episode 1StiklaDecember 16, 2022 · 1 min
Episodes
7
Format
Series – listen from the start
Latest episode
Apr 11, 2023

About the podcast

Jósafat Arngrímsson var mikilsvirtur athafnamaður á Suðurnesjum, vonarstjarna í Sjálfstæðisflokknum og í miklum metum hjá bandarískum herforingjum þegar upp komst um stórfelld fjársvik hans og hann hlaut dóm í Hæstarétti. Í þessari fjögurra þátta röð, úr smiðju feðginanna Snærósar Sindradóttur og Sindra Freyssonar, er ævintýralegur og hreint ótrúlegur ferill Jósafats rakinn frá upphafsárum hans í svindli á vellinum í Keflavík og þar til fjársvikin fóru að hlaupa á milljörðum á alþjóðasviðinu í Bretlandi og Írlandi - en þá hafði Jósafat fyrir löngu sagt skilið við nafnið sem honum var gefið í bernsku og farinn að kalla sig Grimson, Joe Grimson. Umsjón: Snærós Sindradóttir og Sindri Freysson.

Episodes 7

  1. Myrtu þeir Eggert? - Seinni þáttur: Krufningarskýrslan

    54 minEpisode 7

    Líf fjölskyldu Eggerts J Jónssonar kollsteyptist einn blíðan sumardag árið 1962 þegar heimilisfaðirinn varð bráðkvaddur. Afkomendur hans, börn og barnabörn, leita enn svara um andlátið sextíu árum síðar. Ný …

    Show notes
    Líf fjölskyldu Eggerts J Jónssonar kollsteyptist einn blíðan sumardag árið 1962 þegar heimilisfaðirinn varð bráðkvaddur. Afkomendur hans, börn og barnabörn, leita enn svara um andlátið sextíu árum síðar. Ný gögn í málinu hafa varpað ljósi á glæpsamlega vanrækslu þegar kom að rannsókn fráfallsins, en spurningin sem liggur í loftinu er sú sama og verið hefur um aldir alda: Hver hagnast á glæpnum? Umsjón: Snærós Sindradóttir og Sindri Freysson.
  2. Myrtu þeir Eggert? - Fyrri þáttur

    49 minEpisode 6

    Valdatafl, vanefndir og pólitískar hrókeringar Keflavík var bæjarfélag í örum vexti þegar ungur og frambærilegur Sjálfstæðismaður, Eggert J Jónsson, var ráðinn sem bæjarstjóri og flutti með konu sinni og þremur …

    Show notes
    Valdatafl, vanefndir og pólitískar hrókeringar Keflavík var bæjarfélag í örum vexti þegar ungur og frambærilegur Sjálfstæðismaður, Eggert J Jónsson, var ráðinn sem bæjarstjóri og flutti með konu sinni og þremur börnum suður með sjó að hefja nýtt líf. Hann naut vinsælda í bænum en pólitísk undanbrögð áttu eftir að valda því að hann tók við embætti bæjarfógeta og hóf að sækja til saka menn, og sekta fólk sem áður hafði mátt eiga von á því að sleppa auðveldlega frá löngum armi laganna. Sá aðdragandi að andláti Eggerts kann að skipta sköpum um eftirleikinn.
  3. Myrtu þeir Eggert? - Stikla

    1 minEpisode 6

    Líf fjölskyldu Eggerts J Jónssonar kollsteyptist einn blíðan sumardag árið 1962 þegar heimilisfaðirinn varð bráðkvaddur. Afkomendur hans, börn og barnabörn, leita enn svara um andlátið sextíu árum síðar. Ný …

    Show notes
    Líf fjölskyldu Eggerts J Jónssonar kollsteyptist einn blíðan sumardag árið 1962 þegar heimilisfaðirinn varð bráðkvaddur. Afkomendur hans, börn og barnabörn, leita enn svara um andlátið sextíu árum síðar. Ný gögn í málinu hafa varpað ljósi á glæpsamlega vanrækslu þegar kom að rannsókn fráfallsins, en spurningin sem liggur í loftinu er sú sama og verið hefur um aldir alda: Hver hagnast á glæpnum?
  4. Joe Grimson: 4. þáttur - Frá Súrínam til Írlands

    40 minEpisode 5

    Á tíunda áratugnum réðst írska lögreglan í gríðarlega umfangsmikla rannsókn á fyrirhuguðum fíkniefnainnflutningi og ákærði í fyrsta sinn fyrir samsæri um slíkan innflutning. Það kemur ef til vill á óvart að það …

    Show notes
    Á tíunda áratugnum réðst írska lögreglan í gríðarlega umfangsmikla rannsókn á fyrirhuguðum fíkniefnainnflutningi og ákærði í fyrsta sinn fyrir samsæri um slíkan innflutning. Það kemur ef til vill á óvart að það var Íslendingur sem fyrstur manna var ákærður fyrir téð lagaákvæði, Sigurður Arngrímsson. Málið teygir sig yfir hálfan hnöttinn og er ein stærsta ráðgátan á ævintýralegum ferli Jósafats Arngrímssonar. Umsjón: Snærós Sindradóttir og Sindri Freysson. Aðstoð við samsetningu og frágang: Guðni Tómasson Viðmælendur í þessum þætti: Svanhildur Konráðsdóttir, Alfreð Sturla Böðvarsson og Einar Kárason. Lesarar í þessum þætti: Oddur Þórðarson, Úlfur Grönvöld og Sindri Freysson.
  5. Joe Grimson: 3. þáttur - Nígeríumálið

    40 minEpisode 4

    Við höldum nú áfram að rekja ævintýrilegan ferill Jósafats Arngrímssonar. Hann settist að á Írlandi, breytti nafni sínu í Joseph Grimson, yfirleitt nefndur Joe Grimson, og tók til óspilltra málanna. Með nýtt …

    Show notes
    Við höldum nú áfram að rekja ævintýrilegan ferill Jósafats Arngrímssonar. Hann settist að á Írlandi, breytti nafni sínu í Joseph Grimson, yfirleitt nefndur Joe Grimson, og tók til óspilltra málanna. Með nýtt nafn, nýja fjölskyldu og nýjan leikvöll þar sem enginn í fjármálalífinu þekkti hann, var framtíðin einsog óskrifað blað, já eða óútfylltur víxill. Í þættinum er rakið umfangsmikið sakamál sem snerist um sölu á skreið til Nígeríu frá norskum smábæ og við sögu koma írskir gangsterar, þyrluflug, herragarður, og sýndarfyrirtæki í kvikmyndabransanum. Umsjón: Snærós Sindradóttir og Sindri Freysson. Aðstoð við samsetningu og frágang: Guðni Tómasson Lesarar í þessum þætti: Oddur Þórðarson, Silja Beite Løken, Finnbogi Hvammdal Lárusson, Atli Már Steinarsson og Sindri Freysson
  6. Þriðji þáttur: Nígeríumálið

    40 minEpisode 4

    Við höldum nú áfram að rekja ævintýrilegan ferill Jósafats Arngrímssonar. Hann settist að á Írlandi, breytti nafni sínu í Joseph Grimson, yfirleitt nefndur Joe Grimson, og tók til óspilltra málanna. Með nýtt …

    Show notes
    Við höldum nú áfram að rekja ævintýrilegan ferill Jósafats Arngrímssonar. Hann settist að á Írlandi, breytti nafni sínu í Joseph Grimson, yfirleitt nefndur Joe Grimson, og tók til óspilltra málanna. Með nýtt nafn, nýja fjölskyldu og nýjan leikvöll þar sem enginn í fjármálalífinu þekkti hann, var framtíðin einsog óskrifað blað, já eða óútfylltur víxill. Í þættinum er rakið umfangsmikið sakamál sem snerist um sölu á skreið til Nígeríu frá norskum smábæ og við sögu koma írskir gangsterar, þyrluflug, herragarður, og sýndarfyrirtæki í kvikmyndabransanum. Umsjón: Snærós Sindradóttir og Sindri Freysson. Aðstoð við samsetningu og frágang: Guðni Tómasson Lesarar í þessum þætti: Oddur Þórðarson, Silja Beite Løken, Finnbogi Hvammdal Lárusson, Atli Már Steinarsson og Sindri Freysson
  7. Joe Grimson: 2. þáttur - Rannsóknarblaðamaðurinn

    40 minEpisode 3

    Á áttunda áratugnum var ágeng rannsóknarblaðamennska að fá byr undir báða vængi erlendis. Komin var fram ný kynslóð fréttamanna sem hikaði ekki við að svipta hulunni af spillingu og misgjörðum valdhafa og …

    Show notes
    Á áttunda áratugnum var ágeng rannsóknarblaðamennska að fá byr undir báða vængi erlendis. Komin var fram ný kynslóð fréttamanna sem hikaði ekki við að svipta hulunni af spillingu og misgjörðum valdhafa og auðjöfra. Einn slíkur blaðamaður hér á landi var Vilmundur Gylfason, sem fjallaði um málefni Jósafats Arngrímssonar í óháðum fréttaþætti á RÚV og "dansaði línudans á meiðyrðalöggjöfinni" að eigin sögn. Umsjón: Snærós Sindradóttir og Sindri Freysson. Aðstoð við samsetningu og frágang: Guðni Tómasson Viðmælendur í þessum þætti: Jón Ólafsson, Valgerður Bjarnadóttir og Valtýr Sigurðsson. Lesarar í þessum þætti: Oddur Þórðarson, Freyr Rögnvaldsson, Björn Þór Sigurbjörnsson, Sindri Freysson, Karl Magnús Þórðarson, Guðni Tómasson, Andri Freyr Viðarsson og Rúnar Róbertsson
  8. Joe Grimson: 1. þáttur - Ævintýri á Vellinum

    41 minEpisode 2

    Jósafat Arngrímsson var mikilsvirtur athafnamaður á Suðurnesjum, vonarstjarna í Sjálfstæðisflokknum og í miklum metum hjá bandarískum herforingjum þegar upp komst um stórfelld fjársvik hans og hann hlaut dóm í …

    Show notes
    Jósafat Arngrímsson var mikilsvirtur athafnamaður á Suðurnesjum, vonarstjarna í Sjálfstæðisflokknum og í miklum metum hjá bandarískum herforingjum þegar upp komst um stórfelld fjársvik hans og hann hlaut dóm í Hæstarétti. Í þessum fyrsta þætti er farið yfir upphaf ferils Jósafats, gríðarlegan uppgang í Keflavík sem Jósafat tók þátt í af krafti, og loks fyrsta sakamálið gegn honum, en Jósafat var dæmdur fyrir umfangsmikið ávísanasvindl. Umsjón: Snærós Sindradóttir og Sindri Freysson. Aðstoð við samsetningu og frágang: Guðni Tómasson Viðmælendur í þessum þætti: Valtýr Sigurðsson, Ragnar Áki Jónsson, Friðþór Eydal, Árni Samúelsson, Lesarar í þessum þætti: Oddur Þórðarson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir, Ingvar Þór Björnsson, Sindri Freysson, Sigrún Hermannsdóttir, Viktoría Hermannsdóttirog Einar Kárason
  9. Stikla

    1 minEpisode 1

    Jósafat Arngrímsson var mikilsvirtur athafnamaður á Suðurnesjum, vonarstjarna í Sjálfstæðisflokknum og í miklum metum hjá bandarískum herforingjum þegar upp komst um stórfelld fjársvik hans og hann hlaut dóm í …

    Show notes
    Jósafat Arngrímsson var mikilsvirtur athafnamaður á Suðurnesjum, vonarstjarna í Sjálfstæðisflokknum og í miklum metum hjá bandarískum herforingjum þegar upp komst um stórfelld fjársvik hans og hann hlaut dóm í Hæstarétti. Í þessari fjögurra þátta röð, úr smiðju feðginanna Snærósar Sindradóttur og Sindra Freyssonar, er ævintýralegur og hreint ótrúlegur ferill Jósafats rakinn frá upphafsárum hans í svindli á vellinum í Keflavík og þar til fjársvikin fóru að skipta milljörðum á alþjóðasviðinu í Bretlandi og Írlandi - en þá hafði Jósafat fyrir löngu sagt skilið við nafnið sem honum var gefið í bernsku og farinn að kalla sig Grimson, Joe Grimson.

Similar podcasts

More Arts podcasts
Is this your podcast?

Confirm it with an entry in your feed: you get a code here, add it as podcast:txt to the channel of your feed, and we check it. Your podcast is then shown as “verified” on SoundNode.

Settings

Display

Language

Decides which stations you see first on the home page.

History

Recently played stations and episodes and your latest searches are only stored in this browser.

Notifications

A short notice when a podcast you follow has a new episode. Turn off single podcasts with the bell on their page.

Account

Save favorites – in the app and on the website.

Keyboard shortcuts

/
Open search
Space
Play or pause
← →
In the player: back 15 s, forward 30 s (episodes) · in a row: next tile
↑ ↓
In a row: target within the tile
Home / End
In a row: first or last tile
Esc
Close window or menu
?
This overview
Now playing

Go to station page

Play next

    Add episodes with “Play next” – they play after the current episode.