Skip to content
Karfan

Karfan

NewAukasendingin: Leikmannamarkaðurinn hitnar, stór vika hjá stelpunum og Airwaves-draumaliðiðNovember 9, 2026 · 1 h 20 min
Episodes
693
Released
weekly
Latest episode
Nov 9, 2026

About the podcast

Á podcast rás Körfunnar er að finna margar ólíkar upptökur sem allar eiga það sameiginlegt að vera tengdar íslenskum körfuknattleik. Rásin hefur verið til síðan árið 2017.

Episodes 693

  1. Aukasendingin: Leikmannamarkaðurinn hitnar, stór vika hjá stelpunum og Airwaves-draumaliðið

    1 h 20 minSeason 10 · Episode 15

    Nýr þáttur af Aukasendingunni er kominn í loftið! Að þessu sinni mæta þeir JónFrí, Snekkjupopparinn og Strikerinn Árni Jó til Davíðs Elds og fara yfir víðan völl í körfuboltanum og menningarlífinu.Farið er yfir …

    Show notes

    Nýr þáttur af Aukasendingunni er kominn í loftið! Að þessu sinni mæta þeir JónFrí, Snekkjupopparinn og Strikerinn Árni Jó til Davíðs Elds og fara yfir víðan völl í körfuboltanum og menningarlífinu.

    Farið er yfir helstu fréttir vikunnar og síðustu umferð í Bónusdeild karla. Þar ber hæst að Ólafur Björn Gunnlaugsson hefur yfirgefið Keflavík og er að öllum líkindum á leið í Breiðholtið til ÍR. Þá er staðan á KR krufin eftir sigur þeirra í Forsetahöllinni, ásamt því að rýnt er í frammistöðu liða í Bónusdeildinni í fyrstu fimm umferðunum miðað við hversu erfiða leikjadagskrá þau hafa mætt hingað til.

    Fram undan er stórt landsliðsverkefni hjá A-landsliði kvenna sem leikur þrjá leiki á næstu tveimur vikum. Liðið hefur leik á miðvikudag gegn Írlandi ytra áður en kemur að tveimur heimaleikjum í Laugardalshöll gegn Sviss og Aserbaídsjan.

    Félagarnir kíkja einnig yfir í Bæjarins besta deild karla og taka fyrir fimm leikmenn sem hafa farið sérstaklega vel af stað inn í nýtt tímabil.

    Að lokum er slegið á léttari strengi, en JónFrí var að spila á Iceland Airwaves um helgina. Í tilefni þess stilltu sérfræðingarnir upp hinu fullkomna byrjunarliði skipuðu tónlistarmönnum sem komu fram á hátíðinni í ár.

    Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að ofan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum hlaðvarpsveitum.

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



  2. Aukasendingin: Slagsmál í Síkinu, sviptingar á styrkleikalistanum og brottrekstrarvofan

    1 h 51 minSeason 10 · Episode 14

    Nýr þáttur af Aukasendingunni er kominn í loftið! Að þessu sinni mæta Höggið Heiðar Snær og Strikerinn Árni Jó í settið til Davíðs Elds og fara yfir allan heitasta hitann í íslenska körfuboltanum.Farið er …

    Show notes

    Nýr þáttur af Aukasendingunni er kominn í loftið!

    Að þessu sinni mæta Höggið Heiðar Snær og Strikerinn Árni Jó í settið til Davíðs Elds og fara yfir allan heitasta hitann í íslenska körfuboltanum.


    Farið er ítarlega yfir stöðu liðanna í Bónusdeild karla eftir síðustu umferð og rýnt í hverjir áttu góða viku og hverjir áttu slæma viku. Þá er komin ný uppfærsla á styrkleikalista þáttarins yfir bestu bandarísku leikmenn deildarinnar, þar sem nýtt nafn hefur tekið yfir toppsætið. Umræðan um erlendu leikmennina stoppar þó ekki þar, því félagarnir taka einnig fyrir þá leikmenn sem þurfa nauðsynlega að fara að stíga upp áður en þeir missa vinnuna.


    Að lokum er gerð góð yfirferð yfir 1. deild karla þar sem farið er yfir hvaða lið eiga raunhæfan séns á að fara beint upp í Bónusdeildina og hverjir þurfa að treysta á umspilið í úrslitakeppninni.


    Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að ofan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum hlaðvarpsveitum.

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



  3. Aukasendingin: Grindvíkingar að vakna, of góðir fyrir 1. deildina og bestu liðin á hálfum velli

    1 h 35 minSeason 10 · Episode 13

    Nýr þáttur af Aukasendingunni er kominn í loftið! Að þessu sinni mæta þeir Jón Frí og Mummi Jones í settið til Davíðs Elds og taka stöðuna eftir enn eina viðburðaríka viku.Farið er ítarlega yfir leiki síðustu …

    Show notes

    Nýr þáttur af Aukasendingunni er kominn í loftið! Að þessu sinni mæta þeir Jón Frí og Mummi Jones í settið til Davíðs Elds og taka stöðuna eftir enn eina viðburðaríka viku.

    Farið er ítarlega yfir leiki síðustu umferðar í Bónusdeild karla og heitustu fréttir vikunnar reifaðar. Sérstök rýni er lögð á sóknarleik liðanna á hálfum velli (half-court offense) – hvaða lið eru að keyra kerfin sín af bestu nákvæmninni og hver eru í vandræðum þegar hraðaupphlaupin eru tekin í burtu. Þá beina félagarnir sjónum sínum að 1. deild karla og stilla upp lista yfir þá leikmenn sem hafa sýnt það mikil gæði að þeir gætu vel spilað í Bónusdeildinni og eiga skilið að fá tækifæri á stóra sviðinu.

    Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að ofan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum hlaðvarpsveitum.

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



  4. The Uncoachables: I Don't Watch The News (or Read It)

    1 h 3 minSeason 10 · Episode 12

    Helgi and David are back in Rabbrýmið after the first few rounds on either side. Our power rankings (not predictions) are compared to how the table is right now and we talk about teams looking a little raw and …

    Show notes

    Helgi and David are back in Rabbrýmið after the first few rounds on either side. Our power rankings (not predictions) are compared to how the table is right now and we talk about teams looking a little raw and unprepared. Stjarnan and Grindavík on the men's side are talked down as they have been doing poorly and Haukar and Keflavík on the women's side get no love from us to start the season. Helgi and David have missed some news stories which comes up in a funny fashion during the recording and explains the title of this pod. Enjoy!

    Hosts: Helgi Hrafn Ólafsson and David Patchell

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



  5. Aukasendingin: Bestu kanarnir, fimm ljósir punktar og uppgjör á síðustu umferð

    1 h 28 minSeason 10 · Episode 11

    Nýr þáttur af Aukasendingunni er kominn í loftið! Að þessu sinni mæta þeir JónFrí og Strikerinn Árni Jó í stúdíóið til Davíðs Elds og fara yfir allan heitasta hitann í boltanum.Farið er ítarlega yfir fréttir …

    Show notes

    Nýr þáttur af Aukasendingunni er kominn í loftið! Að þessu sinni mæta þeir JónFrí og Strikerinn Árni Jó í stúdíóið til Davíðs Elds og fara yfir allan heitasta hitann í boltanum.

    Farið er ítarlega yfir fréttir vikunnar og leiki nýliðinnar umferðar í Bónusdeild karla. Sérfræðingar þáttarins taka fyrir bestu bandarísku leikmenn deildarinnar til þessa, stilla upp lista yfir fimm helstu ljósu punktana á upphafsvikum tímabilsins, rýna í bikarkeppnina og velta upp ýmsum brennandi spurningum. úr boltanum.

    Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að ofan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum hlaðvarpsveitum.

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



  6. Aukasendingin: Ofsaviðbrögð eftir fyrstu umferð, er Kane ennþá týndur og hrun Stjörnunnar?

    1 h 13 minSeason 10 · Episode 10

    Nýr þáttur af Aukasendingunni er mættur í loftið eftir fjöruga opnunarumferð í Bónusdeild karla. Mummi Jones og Óli Dós mæta að þessu sinni til leiks og rýna í allt það helsta úr fyrstu leikjum tímabilsins …

    Show notes

    Nýr þáttur af Aukasendingunni er mættur í loftið eftir fjöruga opnunarumferð í Bónusdeild karla. Mummi Jones og Óli Dós mæta að þessu sinni til leiks og rýna í allt það helsta úr fyrstu leikjum tímabilsins ásamt Davíð Eldi.

    Farið er yfir tíu atriði sem fyrsta umferðin kenndi okkur og velt upp spurningum um stöðu mála í deildinni: hversu slök var Stjarnan á sínum fyrsta leikdegi, geta Keflvíkingar í raun orðið virkilega góðir í vetur og eru Njarðvíkingar í vandræðum?

    Þá er rætt um atvinnumannamál og byrjunarerfiðleika hjá bæði KR og Grindavík, auk þess sem rýnt er í fimm liða fallpakkann á botninum. Á hinum endanum er farið yfir flotta frammistöðu Vals og stórleik leikmanna eins og Atla Freys. Einnig taka félagarnir fyrir bestu íþróttahús og hallir landsins, svara spurningum frá hlustendum og fara yfir ýmislegt fleira.

    Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að ofan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum hlaðvarpsveitum.

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



  7. Aukasendingin: Óvæntustu félagaskiptin, KR Meistari meistaranna og liðin sem reyndu að kaupa titilinn

    1 h 41 minSeason 10 · Episode 9

    Nýr þáttur af Aukasendingunni er kominn í loftið. Davíð Eldur stýrir umræðunni að þessu sinni og fær JónFrí til sín, auk þess sem fleiri sérfræðingar leggja orð í belg.Í þættinum er farið yfir komandi tímabil í …

    Show notes

    Nýr þáttur af Aukasendingunni er kominn í loftið. Davíð Eldur stýrir umræðunni að þessu sinni og fær JónFrí til sín, auk þess sem fleiri sérfræðingar leggja orð í belg.

    Í þættinum er farið yfir komandi tímabil í Bónusdeild karla og leikinn um Meistara meistaranna. Þá er rýnt í félagaskiptagluggann og hvaða hreyfingar komu mest á óvart fyrir veturinn. Einnig er tekinn léttur topp fimm listi yfir þau lið í gegnum tíðina sem reyndu að kaupa titilinn án árangurs, ásamt ýmsu öðru sem bar á góma í lengri kantinum.

    Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að ofan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum hlaðvarpsveitum.

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



  8. Aukasendingin: Bónusdeildin komin af stað, DeAndre Kane ekki týndur og pressan á Arnari Guðjóns

    59 minSeason 10 · Episode 8

    Nýjasti þáttur Aukasendingarinnar er lentur og fer körfuboltaveturinn af stað af fullum þunga. Gestir og sérfræðingar þáttarins að þessu sinni voru þeir Mummi Jones og Strikerinn Árni Jó sem fóru yfir allt það …

    Show notes

    Nýjasti þáttur Aukasendingarinnar er lentur og fer körfuboltaveturinn af stað af fullum þunga. Gestir og sérfræðingar þáttarins að þessu sinni voru þeir Mummi Jones og Strikerinn Árni Jó sem fóru yfir allt það helsta.

    Farið var yfir fréttir vikunnar og boltann sem er þegar byrjaður að rúlla í Bónusdeild kvenna, þar sem sérstaklega var rýnt í sigurleik KR gegn Stjörnunni. Þá beindust sjónirnar að Meistarakeppni KKÍ um helgina þar sem Grindavík og KR mætast í Meistara meistaranna í karlaflokki, auk þess sem hitað var rækilega upp fyrir fyrstu umferð Bónusdeildar karla sem fer af stað í næstu viku. Til að toppa umræðuna stilltu félagarnir upp yfirliti yfir þá þjálfara og leikmenn sem bera hvað þyngstu pressuna á sínum herðum fyrir komandi leiktíð.

    Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að ofan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum hlaðvarpsveitum.

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



  9. Aukasendingin: Lagaskipting deildarinnar og fimm bestu Keflvíkingarnir

    1 h 7 minSeason 10 · Episode 7

    Nýjasti þáttur Aukasendingarinnar er lentur. Gestir og sérfræðingar þáttarins að þessu sinni eru þeir Jón Frí og Strikerinn Árni Jó, sem mættu vel gíraðir til að greina stöðuna fyrir komandi átök í Bónusdeild …

    Show notes

    Nýjasti þáttur Aukasendingarinnar er lentur. Gestir og sérfræðingar þáttarins að þessu sinni eru þeir Jón Frí og Strikerinn Árni Jó, sem mættu vel gíraðir til að greina stöðuna fyrir komandi átök í Bónusdeild karla.

    Í þættinum er tekin söguleg yfirferð á gengi nýliða í efstu deild allt aftur til ársins 1996 og rýnt í hvernig nýliðum gengur almennt að fóta sig meðal þeirra bestu. Þá er farið ofan í saumana á lagaskiptingu deildarinnar fyrir komandi tímabil: Hvaða lið geta raunverulega orðið meistarar, hver geta blandað sér í þann hóp, hvaða lið sigla lygna sjó án mikillar hættu á falli en eiga lítið erindi í toppbaráttuna, og hvaða lið eru dæmd í harða fallbaráttu í vetur?

    Undir lokin er svo tekin skemmtileg vending út fyrir völlinn þar sem félagarnir stilltu upp fimm bestu Keflvíkingum allra tíma – fyrir utan körfuboltann.

    Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að neðan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum helstu hlaðvarpsveitum.

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



  10. Aukasendingin: Uppfærð spá, leikmenn á faraldsfæti og spútniklið síðustu 30 ára

    1 h 38 minSeason 10 · Episode 6

    Nýjasti þáttur Aukasendingarinnar er lentur í loftinu þar sem farið er yfir allt það heitasta í íslenska körfuboltanum. Gestir og sérfræðingar þáttarins að þessu sinni eru Heisi Högg og JónFrí.Spennan fyrir …

    Show notes

    Nýjasti þáttur Aukasendingarinnar er lentur í loftinu þar sem farið er yfir allt það heitasta í íslenska körfuboltanum. Gestir og sérfræðingar þáttarins að þessu sinni eru Heisi Högg og JónFrí.

    Spennan fyrir komandi tímabili í Bónusdeild karla heldur áfram að magnast og í þættinum birtir þríeykið uppfærða spá fyrir veturinn í ljósi nýjustu vendinga. Þá er rýnt í félagaskiptamarkaðinn og teknir fyrir fimm leikmenn sem þeir væru til í að sjá, og telja alls ekki ólíklegt, að færi sig um set á komandi leiktíð.

    Til að toppa umræðuna er svo tekin nostalgísk og skemmtileg yfirferð yfir sögu helstu spútnikliða í efstu deild karla síðustu 30 árin – liðanna sem komu öllum að óvörum, sprengdu allar spár og settu deildina á hliðina. Að sjálfsögðu er einnig farið yfir helstu fréttir vikunnar auk þess sem skór vikunnar eru á sínum stað í boði Wodbúðar.

    Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að neðan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum helstu hlaðvarpsveitum.

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



  11. The Uncoachables: I Call You An Idiot, But I Respect Your Opinion

    1 h 18 minSeason 10 · Episode 5

    Helgi and David are back after the summer (and a missed end-of-season podcast) in a new studio, Rabbrýmið. First, congratulations to Grindavík men's and Njarðvík women's for winning the championships …

    Show notes

    Helgi and David are back after the summer (and a missed end-of-season podcast) in a new studio, Rabbrýmið. First, congratulations to Grindavík men's and Njarðvík women's for winning the championships last season. Then we touch on the two NT men's games that were just played. We do our power rankings for the top divisions, we sometimes agree (sometimes not) and the median is found through mathematics (after the recording). Big moves are discussed and we're just glad to be back! Enjoy!

    Hosts: Helgi Hrafn Ólafsson and David Patchell

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



  12. Aukasendingin: Stærstu mómentin, pressan mikla og „þak og gólf“ allra liða

    1 h 40 minSeason 10 · Episode 4

    Nýjasti þáttur Aukasendingarinnar er kominn í loftið þar sem farið er yfir sviðið í íslenska boltanum. Í þetta skiptið mættu þeir Heisi Högg og Mummi Jones sem gestir þáttarins og fór þríeykið yfir víðan völl …

    Show notes

    Nýjasti þáttur Aukasendingarinnar er kominn í loftið þar sem farið er yfir sviðið í íslenska boltanum. Í þetta skiptið mættu þeir Heisi Högg og Mummi Jones sem gestir þáttarins og fór þríeykið yfir víðan völl fyrir komandi átök í Bónusdeild karla.

    Í þættinum er litið um öxl og stærstu móment síðasta tímabils gerð upp, áður en sjónum er beint að komandi leiktíð: Hvar er mesta pressan fyrir veturinn, hvaða félög/leikmenn/þjálfarar finna mest fyrir hitanum og hverjir mega alls ekki misstíga sig?

    Aðalumræðuefni þáttarins er hins vegar ítarleg yfirferð á „þaki og gólfi“ hvers einasta liðs í Bónusdeildinni. Rýnt er í hvaða væntingar áhangendur geta raunhæft gert til sinna manna – hversu hátt getur liðið flogið ef allar stjörnur stillast upp og allt gengur upp, og hversu djúpt getur það sokkið ef allt fer á versta veg og lukkan snýr baki við hópnum?

    Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum helstu hlaðvarpsveitum.

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



  13. Aukasendingin: Þungur róður Íslands, ungt blóð í Bónusdeildinni og erfiðasta leikjaplanið

    1 h 16 minSeason 10 · Episode 3

    Nýjasti þáttur Aukasendingarinnar er mættur í loftið þar sem farið er yfir allt það helsta í íslenskum körfubolta. Rýnt er í stórleiki karlalandsliðsins í undankeppni HM sem fram fóru á dögunum gegn Serbíu og …

    Show notes

    Nýjasti þáttur Aukasendingarinnar er mættur í loftið þar sem farið er yfir allt það helsta í íslenskum körfubolta. Rýnt er í stórleiki karlalandsliðsins í undankeppni HM sem fram fóru á dögunum gegn Serbíu og Tyrklandi.

    Aðaláhersla þáttarins liggur þó í Bónusdeild karla. Rýnt í hvaða lið standa frammi fyrir erfiðustu byrjuninni í fyrstu umferðunum og tekin góð umræða um efnilega, unga leikmenn sem búast má við að fái tækifæri á gólfinu í vetur.

    Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að neðan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum helstu hlaðvarpsveitum.

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



  14. Aukasendingin: Risaleikir hjá landsliðinu, slúður og uppfærð spá fyrir Bónusdeildina

    1 h 18 minSeason 10 · Episode 2

    Nýjasti þáttur Aukasendingarinnar er kominn í loftið þar sem farið er yfir allt það helsta í íslenskum körfubolta. Rýnt er í stórleiki karlalandsliðsins í undankeppni HM, en fram undan eru gríðarlega sterkir …

    Show notes

    Nýjasti þáttur Aukasendingarinnar er kominn í loftið þar sem farið er yfir allt það helsta í íslenskum körfubolta. Rýnt er í stórleiki karlalandsliðsins í undankeppni HM, en fram undan eru gríðarlega sterkir andstæðingar þar sem liðið mætir Serbíu í Belgrad á föstudag og tekur svo á móti Tyrklandi á mánudag, auk þess sem stuttlega er litið yfir nýafstaðinn æfingaleik gegn Finnlandi.

    Aðaláhersla þáttarins liggur þó í Bónusdeild karla þar sem birt er uppfærð spá fyrir komandi leiktíð. Litlar breytingar eru á toppnum en miklar sveiflur og vendingar eiga sér stað um miðja deildina. Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að neðan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum helstu hlaðvarpsveitum.


    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



  15. Aukasendingin: Snemmbúin spá fyrir Bónus deild karla 2026-27

    1 h 12 minSeason 10 · Episode 1

    Eftir kærkomið sumarfrí er Aukasendingin loksins mætt aftur í tækin og klár í slaginn fyrir nýtt körfuboltatímabil. Í þessum fyrsta þætti eftir pásuna er farið yfir helstu fréttir og hræringar síðustu vikna, en …

    Show notes

    Eftir kærkomið sumarfrí er Aukasendingin loksins mætt aftur í tækin og klár í slaginn fyrir nýtt körfuboltatímabil. Í þessum fyrsta þætti eftir pásuna er farið yfir helstu fréttir og hræringar síðustu vikna, en það er af nógu að taka eftir mánuð í dvala. Strákarnir hita rækilega upp fyrir tímabilið 2026-27 og kafa djúpt í leikmannamarkaðinn þar sem rýnt er í hverjir eru komnir, hverjir eru farnir og hvernig styrkleikahlutföllin á milli liðanna hafa breyst.

    Stærsti hlutinn er þó tileinkaður veglegri og snemmbúinni spá fyrir Bónusdeild karla þar sem farið er yfir hvert einasta lið og möguleika þeirra á komandi vetri. Það er óhætt að segja að spáin sé djörf og muni vafalaust kveikja hressilegar umræður á kaffistofunum á næstunni.

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



  16. Sjötti maðurinn: Uppgjör, verðlaunahátíð og rýnt í sumarmarkaðinn

    1 h 3 minSeason 9 · Episode 65

    Nýjasti þáttur hlaðvarpsins Sjötti maðurinn er nú kominn í loftið. Í þættinum setjast þeir Ögmundur Árni, Mikael Máni og Gunnar Bjartur niður og gera upp nýafstaðið tímabil í körfuboltanum af sinni alkunnu …

    Show notes

    Nýjasti þáttur hlaðvarpsins Sjötti maðurinn er nú kominn í loftið. Í þættinum setjast þeir Ögmundur Árni, Mikael Máni og Gunnar Bjartur niður og gera upp nýafstaðið tímabil í körfuboltanum af sinni alkunnu snilld. Farið er yfir helstu hápunkta og dramatíkina sem einkenndi veturinn, auk þess sem strákarnir veita sín eigin verðlaun fyrir tímabilið og rýna í það sem stóð upp úr hjá liðunum.

    Auk þess að horfa til baka hleypa þeir hlustendum í ferðalag fram í tímann og spá í spilin fyrir næsta vetur. Mikil eftirvænting ríkir fyrir sumrinu og ræða þeir ítarlega hvernig leikmannamarkaðurinn muni þróast á næstu mánuðum, hvaða hræringar séu líklegar og hvaða lið gætu styrkt sig mest fyrir komandi átök.

    Sjötti maðurinn er í boði Bónus, Tactica, Lengjunnar, Kristalls og Lykils


    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



  17. Aukasendingin: Nýjasta orðið á götunni og verðlaunahafar tímabilsins opinberaðir

    1 h 19 minSeason 9 · Episode 64

    Aukasendingin fékk góða gesti í hlaðvarpið þegar Strikerinn og Jónfrí mættu til að ræða málin. Í þættinum var farið yfir allt það helsta og rýnt í nýjasta slúðrið um leikmanna- og þjálfarabreytingar í Bónus og …

    Show notes

    Aukasendingin fékk góða gesti í hlaðvarpið þegar Strikerinn og Jónfrí mættu til að ræða málin. Í þættinum var farið yfir allt það helsta og rýnt í nýjasta slúðrið um leikmanna- og þjálfarabreytingar í Bónus og fyrstu deildunum á Íslandi.

    Auk þess að kryfja félagaskiptamarkaðinn fóru gestir og stjórnendur í árlega verðlaunaafhendingu þáttarins, þar sem meðal annars voru veitt verðlaun fyrir besta formanninn, besta leikmanninn, versta erlenda leikmanninn og senu ársins, ásamt því að verðlauna bestu stuðningsmennina, fjölmiðlamann ársins og hlaðvarp ársins. Áhugasamir geta nálgast þáttinn á öllum helstu hlaðvarpsveitum undir nafni Körfunnar.

    Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.


    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



  18. Aukasendingin: Grindavík og Njarðvík fagna, Pargo sturlaður og Baldur í Forsetahöllina

    1 h 13 minSeason 9 · Episode 63

    Nýjasti þáttur Aukasendingarinnar er mættur í loftið og er óhætt að segja að nóg sé um að vera. Stjórnandi þáttarins Davíð Eldur fékk góða gesti í stúdíóið að þessu sinni, þá Jónfrí og Strikerinn Árna Jó …

    Show notes

    Nýjasti þáttur Aukasendingarinnar er mættur í loftið og er óhætt að segja að nóg sé um að vera. Stjórnandi þáttarins Davíð Eldur fékk góða gesti í stúdíóið að þessu sinni, þá Jónfrí og Strikerinn Árna Jó. Helstu umræðuefni þáttarins eru nýkrýndir Íslandsmeistaratitlar Njarðvíkur og Grindavíkur, ásamt því að farið er yfir helstu fréttir vikunnar og rýnt í önnur hlaðvörp sem tengjast íþróttinni. Þá var einnig vikið að sveitastjórnarkosningunum og áhrifum þeirra, sem og ráðningu Baldurs sem nýs þjálfara á Álftanesi, sem hefur vakið mikla athygli. Þá er einnig spáð í spilin með hver muni taka við af honum sem þjálfari Stjörnunnar.

    Sérstök athygli er vakin á sturlaðri frammistöðu Jeremy Pargo fyrir Grindavík, en leikmaðurinn hefur verið stórkostlegur að undanförnu og heillað alla upp úr skónum. Gestirnir létu sig heldur ekki vanta í að kryfja nýjasta slúðrið úr boltanum og margt fleira sem er að gerast á bak við tjöldin.

    Aukasendingin er aðgengileg á rás Körfunnar á öllum hlaðvarpsveitum.


    Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



  19. Aukasendingin: Kane, slúður, vanstilling og Grindavík í þremur

    1 h 30 minSeason 9 · Episode 62

    Í nýjasta þætti Aukasendingarinnar, hlaðvarps Körfunnar, kafa þeir Jónfrí og Strikerinn Árni Jó ofan í sviðsmyndina sem gæti blasið við í úrslitakeppni Bónus deildarinnar strax í kvöld og á morgun. Spennan er á …

    Show notes

    Í nýjasta þætti Aukasendingarinnar, hlaðvarps Körfunnar, kafa þeir Jónfrí og Strikerinn Árni Jó ofan í sviðsmyndina sem gæti blasið við í úrslitakeppni Bónus deildarinnar strax í kvöld og á morgun. Spennan er á suðupunkti þar sem tímabilið gæti hreinlega klárast ef Njarðvík nær að knésetja Hauka og Grindavík fylgir því eftir með sigri á Tindastól á morgun.

    Sérstök athygli er vakin á ótrúlegu gengi Grindavíkur og rýnt í það hvaða lykilþættir liggja að baki frammistöðu þeirra, ásamt því að farið er yfir þau mál sem mikið hefur verið rætt um í eftirmálum síðasta leiks liðsins í Síkinu.

    Umræðan er ítarleg og hreinskilin eins og þeim Jónfrí og Strikernum er einum lagið, þar sem ekkert er dregið undan þegar kemur að greiningu á stærstu augnablikum tímabilsins fram að þessu.

    Aukasendingin er aðgengileg á öllum hlaðvarpsveitum undir nafni Körfunnar.

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



  20. Sjötti maðurinn: Oddaleikir, úrslitaeinvígið og góð vika / slæm vika

    48 minSeason 9 · Episode 61

    Í þessum síðasta þætti af Sjötta manninum er farið yfir oddaleiki í úrslitakeppni Bónus deildar karla. Grindavík tryggði sér sæti í úrslitum eftir mikla baráttu og Tindastóll fylgdi þeim eftir með sigri á …

    Show notes

    Í þessum síðasta þætti af Sjötta manninum er farið yfir oddaleiki í úrslitakeppni Bónus deildar karla. Grindavík tryggði sér sæti í úrslitum eftir mikla baráttu og Tindastóll fylgdi þeim eftir með sigri á Stjörnunni. Nú er stóra stundin runnin upp og hitað er rækilega upp fyrir sjálft úrslitaeinvígið milli Tindastóls og Grindavíkur sem er að hefja göngu sína, en búast má við mikilli spennu og troðfullum húsum í þeirri rimmu.

    Auk úrslitakeppninnar í efstu deild er rýnt í lokabaráttuna í fyrstu deild karla þar sem Sindri og Breiðablik berjast um laust sæti meðal þeirra bestu. Fastir liðir eru á sínum stað, þar á meðal fréttir vikunnar og góð vika / slæm vika þar sem málefni líðandi stundar eru sett í samhengi. Sjötti maðurinn er sem fyrr aðgengilegur undir nafni Körfunnar á öllum hlaðvarpsveitum.


    Sjötti maðurinn er í boði Bónus, Tactica, Lengjunnar, Kristalls og Lykils


    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



  21. Aukasendingin: Oddaleikjaspenna, hið fullkomna úrslitalið og er Baldur á leið úr Garðabænum?

    1 h 18 minSeason 9 · Episode 60

    Nýjasti þáttur Aukasendingarinnar er kominn út, en hann er hægt að nálgast hér fyrir ofan, sem og á öllum hlaðvarpsveitum undir nafni Körfunnar.Í þessum þætti Aukasendingarinnar er kafað djúpt í dramatíkina sem …

    Show notes

    Nýjasti þáttur Aukasendingarinnar er kominn út, en hann er hægt að nálgast hér fyrir ofan, sem og á öllum hlaðvarpsveitum undir nafni Körfunnar.

    Í þessum þætti Aukasendingarinnar er kafað djúpt í dramatíkina sem fylgdi oddaleikjum undanúrslitanna í Bónus deild karla. Mummi Jones og Jónfrí mæta í stúdíóið og fara yfir magnaðan sigur Tindastóls á Stjörnunni, ásamt því hvernig deildarmeistarar Grindavíkur lögðu Val að velli í oddaleik í HS Orku höllinni. Rýnt er í hvað fór úrskeiðis hjá tapliðunum, velt vöngum yfir framtíðarskipulagi Vals og Stjörnunnar eftir svekkjandi endalok og dregið fram það helsta sem gladdi augað í þessum ógleymanlegu seríum.

    Leiðin að titlinum er síðan skoðuð í þaula fyrir komandi úrslitaeinvígi Tindastóls og Grindavíkur. Sérfræðingar þáttarins spá í spilin fyrir leikina sem fram undan eru, ræða hvaða lykilatriði munu ráða úrslitum og setja saman sameiginlegt „besta byrjunarlið“ beggja úrslitaliða sem væri nánast óstöðvandi. Að lokum fer Aukasendingin yfir þá þætti sem fólk vill sjá í baráttunni um sjálfan Íslandsmeistaratitilinn.

    Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



  22. Aukasendingin: Allt logar í úrslitakeppninni – Oddaleikir, slagsmál og djúpfalsað efni

    1 h 53 minSeason 9 · Episode 59

    Nýjasti þáttur Aukasendingarinnar er kominn í loftið þar sem þeir Jónfrí og Strikerinn Árni Jó mæta til leiks í hljóðverið. Það er af nógu að taka enda úrslitakeppni Bónus-deildanna í hámarki. Farið er yfir …

    Show notes

    Nýjasti þáttur Aukasendingarinnar er kominn í loftið þar sem þeir Jónfrí og Strikerinn Árni Jó mæta til leiks í hljóðverið. Það er af nógu að taka enda úrslitakeppni Bónus-deildanna í hámarki. Farið er yfir ótrúlegan viðsnúning í undanúrslitum karla og kvenna þar sem Stjarnan og Grindavík hafa bæði misst niður 2-0 forystu í 2-2 gegn Tindastóli og Njarðvík. Mikil eftirvænting ríkir fyrir komandi oddaleiki, en þrír af fjórum undanúrslitum deildanna ráðast í hreinum úrslitaleikjum sem undirstrikar þá gífurlegu spennu sem ríkir þessa dagana.

    Auk ítarlegrar yfirferðar um gang mála á vellinum er rýnt í málin utan hans. Strákarnir gagnrýna aðgang blaðamanna að leikjum, taka góða dýfu í dómaraumræðuna og fara yfir skuggahliðar stemningsinnar, þar á meðal átök stuðningsmanna á bílastæðinu í Garðabæ. Þátturinn er þó ekki eingöngu helgaður íþróttum því sveitastjórnarkosningar ber á góma, Jónfrí kynnir nýja lagið sitt „Djúpfalsað efni“ og slúðurhornið er á sínum stað þar sem farið er yfir það sem er að gerast bak við tjöldin í boltanum.


    Aukasendingin er aðgengileg á öllum veitum undir nafni Körfunnar. Þátturinn er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.


    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



  23. Aukasendingin: Er Tindastóll á leið í sumarfrí og hvað er í gangi á Bónus-spjallinu?

    1 h 12 minSeason 9 · Episode 58

    Nýjasta Aukasendingin er nú komin út og þar er rætt um margt fleira stiklað er á hér, en brennidepillinn er að sjálfsögðu hin gríðarlega spenna í undanúrslitum Bónus deildar karla. Gestir þáttarins að þessu …

    Show notes

    Nýjasta Aukasendingin er nú komin út og þar er rætt um margt fleira stiklað er á hér, en brennidepillinn er að sjálfsögðu hin gríðarlega spenna í undanúrslitum Bónus deildar karla.

    Gestir þáttarins að þessu sinni eru Strikerinn Árni Jó og Jónfrí, sem fara yfir það hvernig Stjarnan hefur náð 0-2 forystu gegn Tindastóli og jafnræðið í einvígi Vals og Grindavíkur þar sem staðan er 1-1. Rýnt er í viðbrögð þjálfaranna og hitann á Bónus spjallinu og að sjálfsögðu skrefadóminn.

    Auk þess að kryfja leikina sjálfa fara þeir Árni og Jónfrí víðar og ræða sitthvað sem tengist körfuboltasamfélaginu á óvæntan hátt. Teknar eru fyrir stóru fréttirnar úr Vesturbænum þar sem KR hefur gengið frá samningum við þá Linards og Jakob.

    Aukasendingin er aðgengileg á öllum veitum undir nafni Körfunnar. Þátturinn er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.


    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



  24. Aukasendingin: Eru Stólarnir óstöðvandi, Grindavík í gírnum og snýr Remy Martin aftur?

    1 h 12 minSeason 9 · Episode 57

    Í nýjasta þætti Aukasendingarinnar rýna Strikerinn og Jónfrí í spennandi undanúrslit Bónus deildarinnar þar sem nóg er um að vera. Helsta spurningin sem brennur á mönnum er hvort Stjörnumenn geti staðið af sér …

    Show notes

    Í nýjasta þætti Aukasendingarinnar rýna Strikerinn og Jónfrí í spennandi undanúrslit Bónus deildarinnar þar sem nóg er um að vera. Helsta spurningin sem brennur á mönnum er hvort Stjörnumenn geti staðið af sér storminn gegn firnasterku liði Tindastóls, sérstaklega þar sem þeir verða án lykilmannanna Ægis Þórs og Orra Gunnarssonar. Á sama tíma er velt upp hvort Valur mæti með aukna orku og sjálfstraust inn í einvígið gegn Grindavík eftir að hafa haft betur í krefjandi fimm leikja seríu gegn Keflavík, eða hvort þreytan fari að segja til sín gegn deildarmeisturunum.

    Umræðan snýst einnig að því hvort Grindavík geti haldið sínu striki og haldið áfram að vinna mikilvæga leiki eða hvort Stólarnir séu einfaldlega á þeim stað að þeir muni rúlla yfir alla mótstöðu á leið sinni að titlinum. Sérfræðingarnir fara yfir styrkleika Tindastóls sem virðist vera að toppa á réttum tíma en spá líka í spilin hjá þeim liðum sem eru komin í sumarfrí. Sérstök athygli er beind að Keflavík og hvaða breytingar þurfi að eiga sér stað í herbúðum þeirra í sumar til að liðið geti aftur blandað sér af alvöru í baráttuna um stóru titlana á næsta tímabili.

    Aukasendingin er aðgengileg á öllum veitum undir nafni Körfunnar. Þátturinn er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.


    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



  25. Aukasendingin: Stórveldið í sumarfrí, yfirburðir á Króknum og spenna á Hlíðarenda

    1 h 20 minSeason 9 · Episode 56

    Í nýjasta þætti Aukasendingarinnar fara þeir Árni Jó, betur þekktur sem Strikerinn, og Jónfrí yfir dramatíkina í 8-liða úrslitum Bónus deildar karla. Miðpunktur umræðunnar er svakalegur sigur Stjörnunnar gegn …

    Show notes

    Í nýjasta þætti Aukasendingarinnar fara þeir Árni Jó, betur þekktur sem Strikerinn, og Jónfrí yfir dramatíkina í 8-liða úrslitum Bónus deildar karla. Miðpunktur umræðunnar er svakalegur sigur Stjörnunnar gegn KR, sem sendi Vesturbæinga beint í sumarfrí ásamt liðum ÍR og Njarðvíkur. Farið er yfir hvernig Garðbæingar sýndu mikla seiglu á meðan vonbrigðin í Vesturbænum eru rædd í þaula.

    Sjónum er einnig beint að öðrum einvígum þar sem yfirburðir Tindastóls vöktu verðskuldaða athygli og lýst er yfir ákveðinni vantrú á gengi Grindvíkinga. Þá er spennan í hámarki fyrir oddaleik Vals og Keflavíkur, en gestirnir rýna í það hvað muni skilja á milli liðanna í lokaleiknum um sæti í undanúrslitum.

    Aukasendingin er aðgengileg á öllum veitum undir nafni Körfunnar. Þátturinn er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.


    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



  26. Sjötti maðurinn X Hlynur Bæringsson: Hitinn í úrslitakeppninni krufinn til mergjar

    60 minSeason 9 · Episode 55

    Nýjasti þátturinn af Sjötta manninum er kominn í loftið þar sem enginn annar en Hlynur Bæringsson, fyrrum landsliðsfyrirliði, mætir í settið. Það er af nógu að taka þegar farið er yfir dramatíkina í …

    Show notes

    Nýjasti þátturinn af Sjötta manninum er kominn í loftið þar sem enginn annar en Hlynur Bæringsson, fyrrum landsliðsfyrirliði, mætir í settið. Það er af nógu að taka þegar farið er yfir dramatíkina í úrslitakeppni Bónus deildarinnar.

    Í þættinum er farið yfir sigur Stjörnunnar gegn KR, vinnusemi Grindvíkinga og þau vonbrigði sem fylgdu falli Þórsara úr deildinni. Þá er rýnt í lætin í Skagafirði og spáð í framhaldið hjá þeim liðum sem eftir standa í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn þar sem spennan er á suðupunkti.

    Sjötti maðurinn er í boði Bónus, Tactica, Lengjunnar, Kristalls og Lykils


    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



  27. Aukasendingin: Töfrar Kára Jónssonar, Stólarnir í stuði og skipbrotið í Garðabæ

    1 h 1 minSeason 9 · Episode 54

    Aukasendingin mætir aftur til leiks þar sem Davíð fékk góðkunningja þáttarins Jónfrí í heimsókn. Í þættinum er kafað djúpt í nýjustu vendingar í úrslitakeppni Bónus deildarinnar, þar sem skipbrot KR í Garðabæ …

    Show notes

    Aukasendingin mætir aftur til leiks þar sem Davíð fékk góðkunningja þáttarins Jónfrí í heimsókn. Í þættinum er kafað djúpt í nýjustu vendingar í úrslitakeppni Bónus deildarinnar, þar sem skipbrot KR í Garðabæ er tekið fyrir og rýnt í hvað fór úrskeiðis hjá Vesturbæingum gegn Stjörnunni. Þá er farið yfir hvernig Tindastóll kláraði einvígið gegn ÍR og sendi Breiðhyltinga í snemmbúið sumarfrí með sannfærandi hætti.

    Seiðkarlinn Kári Jónsson fær verðskuldað pláss í umræðunni eftir ótrúlega sigurkörfu sína fyrir Val, sem minnti á hvers vegna hann er besti leikmaður deildarinnar þegar mikið liggur við. Að lokum er staðan tekin á Njarðvík, en þríeykið veltir því fyrir sér hvort tímabilið sé hreinlega búið hjá þeim miðað við hvernig spilin hafa spilast að undanförnu.

    Þá er einnig farið yfir nokkur af skemmtilegustu augnablikum úrslitakeppninnar til þessa.

    Aukasendingin er aðgengileg á öllum veitum undir nafni Körfunnar. Þátturinn er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



  28. Aukasendingin: Óstöðvandi Stólar, villusæknir Stjörnumenn og og hin geggjaða Dinkins

    1 h 14 minSeason 9 · Episode 53

    Aukasendingin mætir aftur til leiks þar sem Davíð fær góðkunningjana Árna ,,Striker" Jó og Jónfrí í heimsókn. Farið er yfir sviðna jörð í átta liða úrslitum Bónus deildar karla þar sem rætt er um hve villusækið …

    Show notes

    Aukasendingin mætir aftur til leiks þar sem Davíð fær góðkunningjana Árna ,,Striker" Jó og Jónfrí í heimsókn.

    Farið er yfir sviðna jörð í átta liða úrslitum Bónus deildar karla þar sem rætt er um hve villusækið lið Stjörnunnar er og af hverju Tindastóll virkar líklegasta liðið til stórræða þessa stundina. Spennan í kvennaboltanum er sömuleiðis á borðinu, sérstaklega rosalegur endir á leik Njarðvíkur og Tindastóls þar sem Brittany Dinkins sýndi enn og aftur að hún er hreinlega geggjuð á vellinum.

    Þá velur þríeykið fimm bestu íslensku og fimm bestu erlendu leikmenn úrslitakeppninnar hingað til á tveimur ólíkum listum. Aukasendingin er aðgengileg á öllum veitum undir nafni Körfunnar.

    Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.


    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



  29. Aukasendingin: Milka-veisla, slagsmál í Grindavík, grófir Stjörnumenn og meira en bara Remy í Bítlabænum

    1 h 27 minSeason 9 · Episode 52

    Í nýjasta þætti Aukasendingarinnar mættu Strikerinn Árni Jó og tónlistarmaðurinn Jónfrí til að rýna í upphaf úrslitakeppni Bónus deildarinnar. Farið var yfir fyrstu leiki átta liða úrslitanna, tæknilegar …

    Show notes

    Í nýjasta þætti Aukasendingarinnar mættu Strikerinn Árni Jó og tónlistarmaðurinn Jónfrí til að rýna í upphaf úrslitakeppni Bónus deildarinnar. Farið var yfir fyrstu leiki átta liða úrslitanna, tæknilegar útfærslur og helsta slúðrið úr körfuboltaheiminum. Gestirnir deildu áhugaverðum innsýnum í taktíkina sem einkenndi byrjunina.

    Umræðan var ekki eingöngu bundin við tölfræði, því einnig var farið yfir skemmtilega vinkla á borð við hvaða leikmenn væru ógnvænlegastir í návígi. Blandan af léttri stemningu og ítarlegri greiningu gerir þennan þátt ómissandi fyrir alla þá sem fylgjast með íslenskum körfubolta.

    Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.


    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



  30. The Uncoachables: Humans Are Fallible

    1 h 2 minSeason 9 · Episode 51

    Helgi and David recorded this one on the floor of David's son's room. There's nothing we won't do to keep this biweekly streak going. We discuss the end of the season and our beginning of …

    Show notes

    Helgi and David recorded this one on the floor of David's son's room. There's nothing we won't do to keep this biweekly streak going. We discuss the end of the season and our beginning of the season predictions are brought up. Then we go over how the quarterfinals for the Bónus mens and womens leagues look as well as how KKÍ decides which games to postpone and why.

    The 1st divisions have also got their playoffs going and we talk about which teams could (or should) get promoted. Towards the end we shortly go over the end of season teams and outstanding players and coaches that were awarded last week. Enjoy!

    Hosts: Helgi Hrafn Ólafsson and David Patchell


    The Uncoachables is brought to you by Lykill, Tactica, Bónus, Kristall and Lengjan.


    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



These are the latest 40 of 693 episodes. You’ll find older episodes in the podcast’s feed.

Is this your podcast?

Confirm it with an entry in your feed: you get a code here, add it as podcast:txt to the channel of your feed, and we check it. Your podcast is then shown as “verified” on SoundNode.

Settings

Display

Language

Decides which stations you see first on the home page.

History

Recently played stations and episodes and your latest searches are only stored in this browser.

Notifications

A short notice when a podcast you follow has a new episode. Turn off single podcasts with the bell on their page.

Account

Save favorites – in the app and on the website.

Keyboard shortcuts

/
Open search
Space
Play or pause
← →
In the player: back 15 s, forward 30 s (episodes) · in a row: next tile
↑ ↓
In a row: target within the tile
Home / End
In a row: first or last tile
Esc
Close window or menu
?
This overview
Now playing

Go to station page

Play next

    Add episodes with “Play next” – they play after the current episode.