Skip to content
EKKI AUMINGI

EKKI AUMINGI

Episode 1S1E1 - Lóan er komin að segja mér að vera ekki aumingiMay 5, 2026 · 1 h 15 min
Episodes
12
Format
Series – listen from the start
Latest episode
Jul 30, 2026

About the podcast

Eva Matta endurrammar umræðuna um endurhæfingu og kulnun. Af hverju er svona erfitt að hægja á, án þess að líða eins og aumingja?

Episodes 12

  1. S1E12 - Hvenær er endurhæfingin búin?!

    1 h 15 minEpisode 12

    Lokaþáttur fyrstu seríu gott fólk! Ég fer yfir allskonar skemmtileg atriði í þessum þætti og vildi óska þess að þið væruð bara öll með mér í stúdíóinu. Hlakka til að heyra frá ykkur. Þangað til næst, þú ert …

    Show notes

    Lokaþáttur fyrstu seríu gott fólk! Ég fer yfir allskonar skemmtileg atriði í þessum þætti og vildi óska þess að þið væruð bara öll með mér í stúdíóinu. Hlakka til að heyra frá ykkur. Þangað til næst, þú ert ekki aumingi. 😎

    Þátturinn er í boði Lyfju, Nordaid, Bati.app og San Pellegrino - TAKK

  2. S1E11 - "Ef ég get hjálpað fólki í gegnum erfiðleika, þá er ég ALL IN" - Ellen Helga

    1 h 19 minSeason 1 · Episode 11

    Ellen Helga vinkona mín komst í gegnum brjóstakrabbamein og uppskar reynslu sem er auðvitað ljúfsár, en fyrir vikið getur hún sett sig í spor fólks og barna sem eru á erfiðum stað í lífinu, ekki síst þar sem …

    Show notes

    Ellen Helga vinkona mín komst í gegnum brjóstakrabbamein og uppskar reynslu sem er auðvitað ljúfsár, en fyrir vikið getur hún sett sig í spor fólks og barna sem eru á erfiðum stað í lífinu, ekki síst þar sem hún starfar sem hjúkrunarfræðingur á Barnaspítala Hringsins. Ellen er fáránlega góð í að hvetja, með fallega sýn á lífið og eitt mesta bein í nefinu sem ég hef kynnst. Sannkallaður demantur sem vert er að hlusta á ❤️

    Þátturinn er í boði Lyfju, Nordaid, San Pellegrino og Bati.app - TAKK

  3. S1E10 - "Fjárhagslega fullorðin" - Björn Berg fjármálaráðgjafi

    1 h 15 minEpisode 10

    Þegar lífið tekur óvænta u-beygju fylgir oft fjárhagslegt óöryggi. Mörg upplifa skömm, ótta og vanmátt gagnvart eigin fjármálum og mér fannst tilvalið að fá Björn í þáttinn, vegna þess að hann talar um …

    Show notes

    Þegar lífið tekur óvænta u-beygju fylgir oft fjárhagslegt óöryggi.

    Mörg upplifa skömm, ótta og vanmátt gagnvart eigin fjármálum og mér fannst tilvalið að fá Björn í þáttinn, vegna þess að hann talar um fjármálahlið lífsins á mannlegan og yfirvegaðan hátt. Hvernig getum við undirbúið okkur betur? Hvaða mistök eru algeng? Hvernig getum við rætt um peninga af meiri ró og minni skömm?

    Þátturinn er í boði Lyfju, Nordaid, San Pellegrino og Bati.app - TAKK

  4. S1E9 - Taugakerfið mitt er komið með nóg af mér

    59 minSeason 1 · Episode 9

    Einn extra hrár hér á ferð... endurhæfingin gefur og endurhæfingin tekur (: Þátturinn er í boði Lyfju, Nordaid, San Pellegrino og Bati.app - TAKK

  5. S1E8 - "Kvenheilsa í forgang" - Thera Studio

    1 h 5 minSeason 1 · Episode 8

    Systurnar Hera og Thelma eru að stofna heilsusamfélagið Thera Studio með áherslu á kvenheilsu. JÁ TAKK. Þær eru meðal annars að flytja inn fyrsta meðgöngu- sjúkraþjálfunarbekk landsins sem allar mæður fyrr og …

    Show notes

    Systurnar Hera og Thelma eru að stofna heilsusamfélagið Thera Studio með áherslu á kvenheilsu. JÁ TAKK. Þær eru meðal annars að flytja inn fyrsta meðgöngu- sjúkraþjálfunarbekk landsins sem allar mæður fyrr og síðar hafa beðið eftir. Við áttum virkilega gott spjall um kvenheilsu, mæður, mikilvægi þess að við mætum okkur á þeim stað sem við erum, og svo margt annað!

    Hér er Thera Studio á instagram og heimasíðan þeirra er therastudio.is

    Þátturinn er í boði Nordaid, Lyfju, Bati.app og San Pellegrino - TAKK

  6. S1E7 - Hver á að setja þessi mörk? ER ÞAÐ ÉG?

    59 minSeason 1 · Episode 7

    Ræðum aðeins bókina When the body says No eftir Gabor Maté, námskeið sem Virk sendi mig á þar sem ég stórgræddi mikilvæga innsýn í lífið, Kaleo á Þingvöllum og smá vanmat hjá skvís. Þátturinn er í boði Lyfju …

    Show notes

    Ræðum aðeins bókina When the body says No eftir Gabor Maté, námskeið sem Virk sendi mig á þar sem ég stórgræddi mikilvæga innsýn í lífið, Kaleo á Þingvöllum og smá vanmat hjá skvís.

    Þátturinn er í boði Lyfju, Nordaid, San Pellegrino og Bati.app - TAKK

  7. S1E6 - "Þegar taugakerfin tengjast" - Guðbrandur Árni Ísberg sálfræðingur

    1 h 17 minSeason 1 · Episode 6

    Hvað hefur ástin með endurhæfingu að gera? Meira en maður myndi halda. Í þessum þætti sest ég niður með sálfræðingnum og rithöfundinum Guðbrandi Árna Ísberg, höfundi bókanna Skömmin, Í nándinni og nýju …

    Show notes

    Hvað hefur ástin með endurhæfingu að gera?

    Meira en maður myndi halda.

    Í þessum þætti sest ég niður með sálfræðingnum og rithöfundinum Guðbrandi Árna Ísberg, höfundi bókanna Skömmin, Í nándinni og nýju bókarinnar Í augum þínum verð ég til – um ástina. Guðbrandur hefur í áratugi unnið með fólki í leit að betri tengslum, meiri nánd og sterkari sjálfsvirðingu.

    Við ræðum ástina, sambönd, skömm og það sem gerist þegar lífið tekur óvænta beygju. Hvernig hefur sjálfsvirðið áhrif á samböndin okkar? Af hverju er svona erfitt að taka á móti hjálp þegar við þurfum mest á henni að halda? Og hvað gerist í ástarsambandi þegar annar aðilinn neyðist til að hægja á sér, fara í endurhæfingu eða sleppa tökunum á þeirri útgáfu af sér sem hann þekkti áður?

    Þessi þáttur er í boði Lyfju, Nordaid sprey vítamínanna, Bati.app og San Pellegrino - TAKK

  8. S1E5 - "Ég er ekki lengur með áfallastreituröskun" - Svava Brooks

    1 h 14 minSeason 1 · Episode 5

    Svava Brooks er er mögnuð kona, TRE® leiðbeinandi og ein af stofnendum samtakanna Blátt áfram. Hún hefur áratuga reynslu af því að styðja fólk á batavegi eftir áföll og erfiðleika. Ég er vægast sagt þakklát …

    Show notes

    Svava Brooks er er mögnuð kona, TRE® leiðbeinandi og ein af stofnendum samtakanna Blátt áfram. Hún hefur áratuga reynslu af því að styðja fólk á batavegi eftir áföll og erfiðleika.

    Ég er vægast sagt þakklát fyrir að hafa tekið þetta spjall við Svövu og þú verður eiginlega að heyra þetta. Í þættinum ræðum við meðal annars TRE® (Tension & Trauma Releasing Exercises), aðferð sem hjálpar líkamanum að losa um uppsafnaða spennu, streitu og áföll, og Svava deilir sinni innsýn í tengsl áfalla, taugakerfisins og bataferlisins, og hvernig hægt er að finna leiðina aftur til sín með mildi, öryggi og sjálfsást.

  9. S1E4 - Er baðið að sjóða þig lifandi?

    1 h 1 minSeason 1 · Episode 4

    Hvað einkenndi langlífustu konu heims? Skammar þú þig einhverntíman? Ertu að bíða eftir að einhver sjái þig? Hvað er temmilegt hitastig á baði? Þetta og margt fleira í þætti vikunnar. Þátturinn er í boði Lyfju …

    Show notes

    Hvað einkenndi langlífustu konu heims? Skammar þú þig einhverntíman? Ertu að bíða eftir að einhver sjái þig? Hvað er temmilegt hitastig á baði? Þetta og margt fleira í þætti vikunnar.

    Þátturinn er í boði Lyfju, Nordaid spreyvítamína, San Pellegrino og Bati.app - TAKK

  10. S1E3 - "Hvað er líkaminn að reyna að segja þér?" - Hólmfríður sjúkraþjálfari

    1 h 20 minSeason 1 · Episode 3

    Hólmfríður B. Þorsteinsdóttir eða Hófí eins og við þekkjum hana mörg, er sjúkraþjálfari sem ég fór til í minni endurhæfingu, og það breytti öllu. Hófí starfar hjá Verkjalausnum og er önnur stofnenda Stoðkerfis …

    Show notes

    Hólmfríður B. Þorsteinsdóttir eða Hófí eins og við þekkjum hana mörg, er sjúkraþjálfari sem ég fór til í minni endurhæfingu, og það breytti öllu. Hófí starfar hjá Verkjalausnum og er önnur stofnenda Stoðkerfis- og heilsuskóla Hólmfríðar og Þórhöllu, ásamt allskonar öðrum áhugaverðum úrræðum fyrir fólk í leit af lausnum fyrir líkamann. Þetta er fagkona sem þú vilt hlusta á.

    Þátturinn er í boði Lyfju, Nordaid spreyvítamína, Bati.app og San Pellegrino - TAKK

  11. S1E2 - "Ekki ganga yfir Vatnajökul einn" - Matti Osvald

    1 h 30 minSeason 1 · Episode 2

    Kæri hlustandi það er komið að fyrsta viðmælanda þessa ágæta hlaðvarps.. og fyrst ég er að vanda mig að halda taugakerfinu rólegu í endurhæfingunni þá var best að fá hann pabba minn bara með mér í fyrsta þátt …

    Show notes

    Kæri hlustandi það er komið að fyrsta viðmælanda þessa ágæta hlaðvarps.. og fyrst ég er að vanda mig að halda taugakerfinu rólegu í endurhæfingunni þá var best að fá hann pabba minn bara með mér í fyrsta þátt. Hann er engum líkur, fagmaður í því að koma fólki í gegnum krefjandi tímabil, Matti Osvald gjöriðisvovel!

  12. S1E1 - Lóan er komin að segja mér að vera ekki aumingi

    1 h 15 minSeason 1 · Episode 1

    Fyrsti þáttur í fyrstu seríu! Þetta podcast er tilraun Evu til þess að endurramma orðræðuna um hvíld, endurhæfingu og allt sem fylgir. Hún fer yfir hvers vegna í ósköpunum henni datt í hug að henda í þetta …

    Show notes

    Fyrsti þáttur í fyrstu seríu! Þetta podcast er tilraun Evu til þess að endurramma orðræðuna um hvíld, endurhæfingu og allt sem fylgir. Hún fer yfir hvers vegna í ósköpunum henni datt í hug að henda í þetta podcast og að sjálfsögðu þurfum við að ræða þessa aumingjahræðslu okkar...

    TAKK FYRIR AÐ VERA MEÐ: LYFJA, NORDAID, SAN PELLEGRINO & BATI.APP <3

Is this your podcast?

Confirm it with an entry in your feed: you get a code here, add it as podcast:txt to the channel of your feed, and we check it. Your podcast is then shown as “verified” on SoundNode.

Settings

Display

Language

Decides which stations you see first on the home page.

History

Recently played stations and episodes and your latest searches are only stored in this browser.

Notifications

A short notice when a podcast you follow has a new episode. Turn off single podcasts with the bell on their page.

Account

Save favorites – in the app and on the website.

Keyboard shortcuts

/
Open search
Space
Play or pause
← →
In the player: back 15 s, forward 30 s (episodes) · in a row: next tile
↑ ↓
In a row: target within the tile
Home / End
In a row: first or last tile
Esc
Close window or menu
?
This overview
Now playing

Go to station page

Play next

    Add episodes with “Play next” – they play after the current episode.