
Pant vera blár!
- Episodes
- 101
- Released
- monthly
- Latest episode
- Nov 19, 2026
About the podcast
Pant vera blár! er íslenska borðspilapodcastið. Stjórnendur þáttarins eru Davíð Baldursson, Kristleifur Guðjónsson, Styrmir Hafliðason og Þorvaldur Guðjónsson ræða spil og spilatengd málefni ásamt því að segja öðru hverju brandara sem falla misvel í kramið hjá öðrum meðstjórnendum.
Episodes 101
101. Borðspilasigling
YARRR YE SCURVY BOARD GAME LOVERS!Welcome aboard the finest board game podcast to ever sail the seven seas! Join our crew of dice-rollin’, card-slingin’, treasure-huntin’ scallywags as we navigate the …
Show notes
YARRR YE SCURVY BOARD GAME LOVERS!
Welcome aboard the finest board game podcast to ever sail the seven seas!
Join our crew of dice-rollin’, card-slingin’, treasure-huntin’ scallywags as we navigate the treacherous waters of board games!
We'll be plunderin' the latest releases, battlin' over legendary classics, and arguin' like drunken pirates over who cheated at Feudum!
So grab yer grog, sharpen yer cutlass, and prepare to play! YARRR!
Enn Valdi og Styrmir skelltu sér í borðspilasiglinguna Spiel@Sea og tóku upp þátt af því tilefni. Allt sem þú vilt vita um siglinguna og ævintýri strákanna í fyrsta þættinum í 10 mánuði!
100. Live Úr Spilavinum
VIÐ ERUM 100 ÁRA ! Pælið í því! 100 ár!! Sem eru 3650 dagar og 876.000 klukkutímar! Ok við erum kannski ekki 100 ára enn við erum búnir að gefa út 100 þætti! Við gerðum okkur góðan dag og tókum upp live þátt í …
Show notes
VIÐ ERUM 100 ÁRA ! Pælið í því! 100 ár!! Sem eru 3650 dagar og 876.000 klukkutímar!
Ok við erum kannski ekki 100 ára enn við erum búnir að gefa út 100 þætti! Við gerðum okkur góðan dag og tókum upp live þátt í spilavinum með góðu fólki.
Við viljum einnig nýta tækifærið og þakka hlustendum fyrir að nenna hlusta á okkur röfla um daglegt líf og þetta skemmtilega áhugamál, sem spil eru.
Áfram borðspil!
99. The essence of Essen
Það voru nokkrir meðlimir Pant Vera Blár sem kíktu til Essen í Þýskalandi í ár. Við förum aðeins yfir þeirra upplifun af spilaráðstefnunni í ár og hvað stóð upp úr.
98. JólaBóla - hvað skal versla? Jólaspilin 2025
Þar sem landsmenn eru sveittir á efrivörinni þessa dagana að ákveða hvað skal setja í Jólapakkann þá hefur PVB ákvað að smala saman fullmönnuðum þætti og ræða ítarlega hvað skal kaupa fyrir jólin 2025. Aldrei …
Show notes
Þar sem landsmenn eru sveittir á efrivörinni þessa dagana að ákveða hvað skal setja í Jólapakkann þá hefur PVB ákvað að smala saman fullmönnuðum þætti og ræða ítarlega hvað skal kaupa fyrir jólin 2025.
Aldrei að vita nema við hendum í brandarasprell í leiðinni
97. Essen Upphitun
Linda og Þorri úr Spilavinum eru komin aftur til þess að fara yfir skemmtilega og mikilvæga þætti sem snúa að borðspilahátíðinni SPIEL í Essen, en þau hafa farið árlega síða 2007.Í þættinum verður farið yfir þá …
Show notes
Linda og Þorri úr Spilavinum eru komin aftur til þess að fara yfir skemmtilega og mikilvæga þætti sem snúa að borðspilahátíðinni SPIEL í Essen, en þau hafa farið árlega síða 2007.
Í þættinum verður farið yfir þá hluti sem við erum spenntust fyrir ásamt góðum ráðum fyrir fólk sem er að fara í fyrsta skiptið eða vill læra eitthvað nýtt. Við fáum líka smá innsýn í það hvernig þau sem eigendur spilabúðar nálgast þennan magnaða viðburð96. Spilavinir
Linda og Þorri úr Spilavinum komu í heimsókn til að tala um allskonar sem tengist spilum, því að eiga spilabúð og alls konar. Þau fá hina klassísku PVB yfirheyrslu sem er tækluð á einstaklega heimspekilegan …
Show notes
Linda og Þorri úr Spilavinum komu í heimsókn til að tala um allskonar sem tengist spilum, því að eiga spilabúð og alls konar. Þau fá hina klassísku PVB yfirheyrslu sem er tækluð á einstaklega heimspekilegan máta af hjónunum úr Spilavinum.
94. ValdaStyrmisÞema
Já HæGÆ! Við heitum Valdi og Styrmir og í dag ætlum við að ferðast til Berlín að borða Berlínarbollur og láta ræna okkur þar sem maður kemur að okkur og segir við okkur nokkrum sinnum.... ef þú hendir ekki einu …
Show notes
Já HæGÆ! Við heitum Valdi og Styrmir og í dag ætlum við að ferðast til Berlín að borða Berlínarbollur og láta ræna okkur þar sem maður kemur að okkur og segir við okkur nokkrum sinnum.... ef þú hendir ekki einu af þessum tveimur spilum þá er mér að mæta!
93. Iacta Alea Est
Ef einhver er góður í tengingaleikjum þá er það Valdi. Valdi eeeeelskar allt sem er með teninga, sérstaklega þegar hann þarf að kasta mörgum teningum í einu. Þar sem Valdi elskar teningaspil svo mikið er hann …
Show notes
Ef einhver er góður í tengingaleikjum þá er það Valdi. Valdi eeeeelskar allt sem er með teninga, sérstaklega þegar hann þarf að kasta mörgum teningum í einu. Þar sem Valdi elskar teningaspil svo mikið er hann búinn að þrýsta á hópinn að taka saman smá lista yfir bestu spil sem innihalda teningakast. Valdi heimtaði að fá að kasta tening og fékk töluna 5. Við tökum smá snúning á topp5 tengingaspilum.
92. Er partíið búið?
Erum við að sjá breytingu á borðspilaiðnaðinum í ljósi tolla og gjaldþrota fyrirtækja i iðnaði. Við rennum yfir málefni borðaspila og hvað áhrif hins appelsínugula á áhugamálin okkar.
91. Hvernig á að undirbúa spilakvöld
Að undirbúa spilakvöld getur verið vinna... svona eins og í vinnunni þegar þú þarft að ráða inn nýja starfsmenn.Þetta er ferli - hvað skal spila, hverjum skal bjóða, hvernig skal haga sér, hvað á að bjóða upp á …
Show notes
Að undirbúa spilakvöld getur verið vinna... svona eins og í vinnunni þegar þú þarft að ráða inn nýja starfsmenn.
Þetta er ferli - hvað skal spila, hverjum skal bjóða, hvernig skal haga sér, hvað á að bjóða upp á o.s.frv.
Við förum einnig yfir það hvernig er best að tilkynna fyrir fólki að það hafi verið ráðið í vinnu......
90. Spilavin
Það er fátt skemmtilegra en að henda sér í spilaveislu yfir heila helgi.... Hey! Það er einmitt það sem við erum að fara fjalla um hérna. Við fáum til okkar góðan gest og rennum yfir Spilavin sem haldið verður …
Show notes
Það er fátt skemmtilegra en að henda sér í spilaveislu yfir heila helgi.... Hey! Það er einmitt það sem við erum að fara fjalla um hérna. Við fáum til okkar góðan gest og rennum yfir Spilavin sem haldið verður á Hvolsvelli í apríl.
88 – Spilaárið 2024
Árið 2025 er gengið í garð. Tunglið er í sjöunda húsi vatnsberans á sama tíma og Satúrnus, Júpíter og Neptúnus eru í beinni línu við jörðina. Þetta þýðir bara eitt. Styrmir, Valdi, Leifur OG Davíð komust allir …
Show notes
Árið 2025 er gengið í garð. Tunglið er í sjöunda húsi vatnsberans á sama tíma og Satúrnus, Júpíter og Neptúnus eru í beinni línu við jörðina. Þetta þýðir bara eitt. Styrmir, Valdi, Leifur OG Davíð komust allir til þess að taka upp þátt.
Í þessum þætti verður spilaárið 2024 gert upp með topplistum yfir bestu spilin sem voru spiluð í fyrsta skiptið á þessu ári ásamt greiningu á spilatölfræði út BGStats. Svo er aldrei að vita nema það verði hnoðað í einn eða tvo orðabrandara.87 - Digital, megabæt, internet
Fegurð borðspilanna felst að miklu leyti í samveru og snertingu við falleg spil og fallega íhluti þeirra (eða ljót spil eins og Hansa Teutonica). En hvernig notum við internetið í borðspilasamfélaginu og er það …
Show notes
Fegurð borðspilanna felst að miklu leyti í samveru og snertingu við falleg spil og fallega íhluti þeirra (eða ljót spil eins og Hansa Teutonica). En hvernig notum við internetið í borðspilasamfélaginu og er það af hinu góða? Íris frá Doktor Spil spjallar um tækifæri tækninnar þegar kemur að borðspilum.
86 - Jólaspilin 2024
Nú styttist í jólin og fer fólk að velta fyrir sér hvaða spil hentar vel í jólapakkann …eða möndlugjöfina. Pant vera blár ásamt Doktor Spil eru með svörin fyrir ykkur – hvort sem um er að ræða vana spilara …
Show notes
Nú styttist í jólin og fer fólk að velta fyrir sér hvaða spil hentar vel í jólapakkann …eða möndlugjöfina. Pant vera blár ásamt Doktor Spil eru með svörin fyrir ykkur – hvort sem um er að ræða vana spilara, nýgræðinga, börn eða fjölskyldur.
85 – Kosningaspil
Í dystópískum heimi eru meðlimir Pant vera blár að fara að halda röð spilakvölda fyrir stjórnmálaflokkana. Hvaða spil væri best að bjóða hverjum flokki fyrir sig upp á?
84. Essen SPIEL 2024
SPIEL er stærsta borðspilaráðstefna Evrópu og er hún haldin árlega í Essen. Styrmir var fulltrúi Pant vera blár á ráðstefnunni í ár og fer hann yfir hvað bar hæst ásamt góðum gestum.
83 - Spilavinir
Svanhildur og Addó frá Spilavinum kíkja í heimsókn til að ræða spil, Spilavini, áhugamálið og allt milli himins og jarðar.
82 – Bestu Spiel des jahres spilin
Spiel des Jahres verðlaunin eru líklega virtustu borðspilaverðlaunin í heiminum. Í þessum þætti koma Íris og Auður frá Doktor Spil aftur í heimsókn og velja í (drafta) 5 spila lista af þeim sem okkur þykja vera …
Show notes
Spiel des Jahres verðlaunin eru líklega virtustu borðspilaverðlaunin í heiminum.
Í þessum þætti koma Íris og Auður frá Doktor Spil aftur í heimsókn og velja í (drafta) 5 spila lista af þeim sem okkur þykja vera bestu spilin sem hafa hlotið þessi virtu verðlaun.
Hlustendur fá svo tækifæri til þess að kjósa besta listann á facebook síðu Pant vera blár og á @doktor_spil á instagram.81 – Doctor Spil
Valdi og Styrmir eru spilasjúkir og þá er ekkert í stöðunni annað en að fá Doktor Spil til að kíkja í heimsókn. Doktor Spil (@doktor_spil) er instagram reikningur sem er tileinkaður borðspilum og í þessum þætti …
Show notes
Valdi og Styrmir eru spilasjúkir og þá er ekkert í stöðunni annað en að fá Doktor Spil til að kíkja í heimsókn. Doktor Spil (@doktor_spil) er instagram reikningur sem er tileinkaður borðspilum og í þessum þætti fáum við innsýn í þetta fyrirbæri, tilkomu þess og kvennanna sem standa á bakvið verkefnið.
80. Slagur! Slagur! Slagur!
VIð höfum ákveðið að breyta Pant Vera Blár í FightClub! HIttum þennan ágæta mann sem heitir Tylor Durden og hann sannfærði okkur um að betra væri að slást enn að spila
79. Hljómsveitir spila líka
HELP! I NEED SOMEBODY HELP! Þetta er jú frægur texti úr lagi með Bítlinum enn það vita það ekki margir að John Lennon hrópaði þetta yfir hópinn þegar hann vakti drekann í hinu sígilda spili CLANK! Paul …
Show notes
HELP! I NEED SOMEBODY HELP!
Þetta er jú frægur texti úr lagi með Bítlinum enn það vita það ekki margir að John Lennon hrópaði þetta yfir hópinn þegar hann vakti drekann í hinu sígilda spili CLANK! Paul McCartney matreiddi þetta svo í skemmtilegt lag.
Hljómsveiti spila víst líka! Enn hvaða hljómsveitir passa við hvaða spil?78 - Top5 stór spil í litlum kassa
Lúmsku spilin. Hvaða spil sem koma í litlum umbúðum bjóða uppá mikið spil þrátt fyrir að lítið fari fyrir þeim í hillunni?
77. IP sem þurfa spil
Hvaða bækur, bíómyndir eða skáldskaparheimar þurfa spil …eða allavega betri spil?
76. 1+1+1 = 3 ára !
Að eiga afmæli er svo gaman,Við spilum allir saman,og tölum svo um þaðog allir hlusta vel!Við settum saman listaog fórum smá að flissaog töluðum svo umhvað okkur fannst best!
75. Spilaval
Að velja sér spil er góð skemmtun enn stundum þarf að vanda til verka. Það má líkja góðu spilavali við gott efnahvarf þar sem stemming myndast og hópurinn þéttist og er tilbúinn að spila meira.Spilin og …
Show notes
Að velja sér spil er góð skemmtun enn stundum þarf að vanda til verka. Það má líkja góðu spilavali við gott efnahvarf þar sem stemming myndast og hópurinn þéttist og er tilbúinn að spila meira.
Spilin og manneskjurnar sem valdar eru eru kölluð hvarfspil og hvarfvinir. Þegar samsetningin er góð myndast hópur sem kallast kjarnahópur.
Til að mynda góðan kjarnahóp er einnig gott að hafa bakvið eyrað að stundum er gott að blanda þurrefnum í jöfnuna (Snakk og gos).74. Bíómyndir og borðspil
Aaaaand ACTION! Þú átt að gera...Það eru ótrúlega mörg borðspil með áhugaverðu þema, sögum og leikmönnum þar sem borðspilarar sogast inn í áhugaverðan heim í stutta stund. Í þessum þætti förum við yfir hvaða …
Show notes
Aaaaand ACTION! Þú átt að gera...
Það eru ótrúlega mörg borðspil með áhugaverðu þema, sögum og leikmönnum þar sem borðspilarar sogast inn í áhugaverðan heim í stutta stund.
Í þessum þætti förum við yfir hvaða borðspil eru með góðan grunn af þema sem gæti orðið að bíómynd eða áhugaverðum þáttaseríum.73. 2023 Uppgjör
Spilaárið 2023 gert upp í tölum ogtölfræði með hjálp BGStats. Strákranir fara yfir bestu spilun sem þeir spiluðu í fyrsta skiptið á árinu og ræða hluti sem koma borðspilum ekkert við
72. Double Trouble
Hafið þið séð myndina Tango and Cash með Sylvester Stallone og Kurt Russell? Hvað með Bad Boys, Men and Black, Double Team, Sherlock Holmes, Starsky & Hutch?Það eru jú til margar góðar sögur af tveimur hetjum …
Show notes
Hafið þið séð myndina Tango and Cash með Sylvester Stallone og Kurt Russell? Hvað með Bad Boys, Men and Black, Double Team, Sherlock Holmes, Starsky & Hutch?
Það eru jú til margar góðar sögur af tveimur hetjum sem þurfti að sigrast á ómögulegum verkefnum. Í þessum þætti kynnum til leiks nýtt teymi sem fær til sín góða gesti og má líkja best við 3CPO og R2D2
These are the latest 40 of 101 episodes. You’ll find older episodes in the podcast’s feed.
Similar podcasts
More Leisure podcastsIs this your podcast?
Confirm it with an entry in your feed: you get a code here, add it as podcast:txt to the channel of your feed, and we check it. Your podcast is then shown as “verified” on SoundNode.



