Skip to content
Ráðhúsið
PodcastNewsPoliticsIS

Ráðhúsið

New33. Netöryggi sveitarfélaga - Björgvin SigurðssonOctober 29, 2026 · 37 min
Episodes
33
Released
every two weeks
Latest episode
Oct 29, 2026

About the podcast

Hlaðvarp um sveitarstjórnarmál.

Episodes 33

  1. 33. Netöryggi sveitarfélaga - Björgvin Sigurðsson

    37 minEpisode 33

    Í þessum þætti er rætt við Björgvin Sigurðsson, verkefnisstjóra stafrænnar þjónustu hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um net- og upplýsingaöryggi sveitarfélaga. Farið er yfir ógnir, viðbragð og ábyrgð.

  2. 32. Börn með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn - Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir

    27 minEpisode 32

    Í Ráðhúsi dagsins er rætt við Halldóru Fríðu Þorvaldsdóttur bæjarfulltrúa Reykjanesbæjar um reynslu sveitarfélagsins af því að taka á móti og þjónusta börn með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn …

    Show notes

    Í Ráðhúsi dagsins er rætt við Halldóru Fríðu Þorvaldsdóttur bæjarfulltrúa Reykjanesbæjar um reynslu sveitarfélagsins af því að taka á móti og þjónusta börn með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn. Halldóra starfar einnig hjá Reykjanesbæ í þessum málaflokki og deilir með okkur dýrmætum fróðleik sem nýst gæti öðrum sveitarfélögum.

  3. 31. Föruneyti barna - Líf Lárusdóttir

    25 minEpisode 29

    Í Ráðhúsi dagsins ræðir Finnur við Líf Lárusdóttur, bæjarfulltrúa Akraneskaupstaðar, um innleiðingu þeirra á Föruneyti barna. Farið er yfir árangur, áskoranir og tækifæri fyrir önnur sveitarfélög sem felast í …

    Show notes

    Í Ráðhúsi dagsins ræðir Finnur við Líf Lárusdóttur, bæjarfulltrúa Akraneskaupstaðar, um innleiðingu þeirra á Föruneyti barna. Farið er yfir árangur, áskoranir og tækifæri fyrir önnur sveitarfélög sem felast í innleiðingu þessa mikilvæga verkefnis sem stuðlar að aukinni vellíðan barna með betri samskiptum og áherslu á leik.

  4. 30. Í beinni frá Akureyri: Hvað er í gangi á Landsþingi 2026?

    22 minEpisode 31

    Í þessum óhefðbundna Ráðhússþætti erum við í beinni frá Landsþingi Sambandsins 2026 á Akureyri. Rætt er við Hjördísi Ýr Johnson, Skúla Helgason, Braga Bjarnason og Róbert Ragnarsson sem stýrðu umræðum í …

    Show notes

    Í þessum óhefðbundna Ráðhússþætti erum við í beinni frá Landsþingi Sambandsins 2026 á Akureyri. Rætt er við Hjördísi Ýr Johnson, Skúla Helgason, Braga Bjarnason og Róbert Ragnarsson sem stýrðu umræðum í mismunandi hópum stefnumörkunarvinnu sveitarstjórnarstigsins fyrir árin 2026-2030.

  5. 29. Litið um öxl - Jón Björn Hákonarson

    32 minEpisode 30

    Í Ráðhúsinu að þessu sinni ræðir Finnur við Jón Björn Hákonarson, fráfarandi fomann Sambandsins, um árangur og áskoranir sveitarstjórnarstigsins á liðnu kjörtímabili. Farið er um víðan völl og gerir Jón Björn …

    Show notes

    Í Ráðhúsinu að þessu sinni ræðir Finnur við Jón Björn Hákonarson, fráfarandi fomann Sambandsins, um árangur og áskoranir sveitarstjórnarstigsins á liðnu kjörtímabili. Farið er um víðan völl og gerir Jón Björn m.a. grein fyrir sinni framtíðarsýn fyrir sveitarstjórnarstigið og veitir nýjum formanni, nýrri stjórn og nýkjörnum sveitarstjórnarfulltrúum góð ráð.

  6. 28. Þingmálaskrá 2026-2027 - Valgerður Rún Benediktsdóttir

    20 minEpisode 28

    Í þessum þætti af Ráðhúsinu ræðir Bryndís við Valgerði Rún Benediktsdóttur, yfirlögfræðing Sambandsins, um þingmálaskrá vetrarins 2026–2027. Hvaða mál skipta sveitarfélög mestu máli, hverju þarf að fylgjast …

    Show notes

    Í þessum þætti af Ráðhúsinu ræðir Bryndís við Valgerði Rún Benediktsdóttur, yfirlögfræðing Sambandsins, um þingmálaskrá vetrarins 2026–2027. Hvaða mál skipta sveitarfélög mestu máli, hverju þarf að fylgjast sérstaklega með og hvernig geta sveitarfélög haft áhrif á lagasetningu?

  7. 27. Húsnæði við hæfi

    31 minEpisode 27

    Í þessum þætti af Ráðhúsinu er gestur þáttarins Saga Guðmundsdóttir, aðalhagfræðingur Sambandsins og fjöllum við um nýbirta skýrslu sem ber nafnið Húsnæði við hæfi og er afrakstur starfshóps undir forystu …

    Show notes

    Í þessum þætti af Ráðhúsinu er gestur þáttarins Saga Guðmundsdóttir, aðalhagfræðingur Sambandsins og fjöllum við um nýbirta skýrslu sem ber nafnið Húsnæði við hæfi og er afrakstur starfshóps undir forystu félags- og húsnæðismálaráðuneytisins. Hópurinn lagði til breytingar á reglugerð um húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk og tillögur að aðgerðum sem hvoru tveggja hefur það markmið að uppfylla þörf fatlaðs fólks fyrir sértæk húsnæðisúrræði.

  8. 26. Gagnainnviðir: undirstaðan að gagnadrifnum ákvörunum.

    36 minEpisode 26

    Í þessum þætti af Ráðhúsinu fjöllum við um uppbygging á gagnainnviðum Sambandsins, þ.e. upplýsingaveitu Sambandsins og gagnalón og hvernig gögn geta nýst sveitarfélögum og Sambandinu í starfi og hagsmunagæslu …

    Show notes

    Í þessum þætti af Ráðhúsinu fjöllum við um uppbygging á gagnainnviðum Sambandsins, þ.e. upplýsingaveitu Sambandsins og gagnalón og hvernig gögn geta nýst sveitarfélögum og Sambandinu í starfi og hagsmunagæslu. Gestir þáttarins eru Sólveig Ástudóttir Daðadóttir, starfsmaður Sambandsins, og Óttar Guðmundsson frá Gangverk, sem er samstarfsaðili Sambandsins í þessari vinnu.

  9. 25. Orkuskipti sveitarfélaga: Grípum tækifærin! - Ottó Elíasson

    30 minEpisode 25

    Ottó Elíasson, framkvæmdastjóri Eims, er gestur Ráðhússins í þessari viku þar sem hann segir okkur frá stóru samstarfsverkefni um orkuskipti á Norðurlandi Eystra og Vestfjörðum (RECET). Við ræðum meðal annars …

    Show notes

    Ottó Elíasson, framkvæmdastjóri Eims, er gestur Ráðhússins í þessari viku þar sem hann segir okkur frá stóru samstarfsverkefni um orkuskipti á Norðurlandi Eystra og Vestfjörðum (RECET). Við ræðum meðal annars hvernig orkuskipti líta út í samhengi sveitarfélaga, hver ávinningurinn er af orkuskiptum og hvaða afurðir úr RECET verkefninu geta nýst sveitarfélögum um allt land í að stíga sín næstu skref í orkuskiptum og orkunýtni.

  10. 24. Eftir kosningar: Þátttaka og næstu skref

    26 minEpisode 24

    Í Ráðhúsi vikunnar ræðum við kosningaþátttöku, hvernig persónukjör og nýliðun móta nýtt landslag og fáum nokkrar góðar ráðleggingar frá Bryndísi Gunnlaugsdóttur, lögfræðings hjá Sambandinu, um fyrstu skref …

    Show notes

    Í Ráðhúsi vikunnar ræðum við kosningaþátttöku, hvernig persónukjör og nýliðun móta nýtt landslag og fáum nokkrar góðar ráðleggingar frá Bryndísi Gunnlaugsdóttur, lögfræðings hjá Sambandinu, um fyrstu skref eftir að nýr meirihluti hefur verið myndaður.

  11. 23. Kosningatips fyrir kjósendur og kjörstjórnir - Ástríður Jóhannesdóttir

    28 minEpisode 23

    Ástríður Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Landskjörstjórnar, er gestur Ráðhússins í þessari viku þar sem hún fer yfir helstu atriði komandi sveitarstjórnarkosninga. Við ræðum meðal annars framkvæmd kosninganna …

    Show notes

    Ástríður Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Landskjörstjórnar, er gestur Ráðhússins í þessari viku þar sem hún fer yfir helstu atriði komandi sveitarstjórnarkosninga. Við ræðum meðal annars framkvæmd kosninganna, hvað kjósendur þurfa að hafa í huga og hlutverk og ábyrgðir kjörstjórna.

  12. 22. Stafræn ráðstefna sveitarfélaga 2026 - Sólveig Ástudóttir Daðadóttir

    14 minEpisode 22

    Stafræn ráðstefna sveitarfélaga árið 2026 verður haldin þann 25. mars n.k. í Grósku. Í þætti dagsins fáum við Sólveigu Ástudóttur Daðadóttur til að segja okkur frá því helsta sem verður á boðstólnum á …

    Show notes

    Stafræn ráðstefna sveitarfélaga árið 2026 verður haldin þann 25. mars n.k. í Grósku. Í þætti dagsins fáum við Sólveigu Ástudóttur Daðadóttur til að segja okkur frá því helsta sem verður á boðstólnum á ráðstefnunni. Skráningu lýkur föstudaginn 20. mars. https://www.samband.is/vidburdir/stafraen-radstefna

  13. 21. Hvað þurfa framboð að hafa klárt fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 16. maí?

    29 minEpisode 21

    Í þessum þætti fræðir Ástríður Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Landskjörstjórnar, okkur um framboðsfrest, meðmælalista og hlutverk kjörstjórna við yfirferð framboða. Við komum líka inn á listabókstaf …

    Show notes

    Í þessum þætti fræðir Ástríður Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Landskjörstjórnar, okkur um framboðsfrest, meðmælalista og hlutverk kjörstjórna við yfirferð framboða. Við komum líka inn á listabókstaf, persónukjör og listakjör - og hvað gerist ef aðeins einn listi býður sig fram.

  14. 20. Hvað felst í Kveikjum neistann—og hvaða lærdóm geta önnur sveitarfélög dregið af reynslu Vestmannaeyja?

    32 minEpisode 20

    Hvað felst í Kveikjum neistann—og hvaða lærdóm geta önnur sveitarfélög dregið af reynslu Vestmannaeyja? Í þessum þætti ræðir Bryndís við Írisi Róbertsdóttur, bæjarstjóra Vestmannaeyja, og í lokin deilir Íris …

    Show notes

    Hvað felst í Kveikjum neistann—og hvaða lærdóm geta önnur sveitarfélög dregið af reynslu Vestmannaeyja? Í þessum þætti ræðir Bryndís við Írisi Róbertsdóttur, bæjarstjóra Vestmannaeyja, og í lokin deilir Íris hagnýtum ráðum til þeirra sem vilja kveikja svipaðan neista heima hjá sér. Hlustaðu núna—og deildu þættinum með einhverjum sem hefur áhuga á skóla- og sveitarstjórnarmálum.

  15. 19. Brúum bilið - greining á stöðunni!

    32 minEpisode 19

    Í desember 2025 kom út skýrslan "Brúum umönnunarbilið - Skýrsla og tillögur aðgerðarhóps" en aðgerðarhópurinn var skipaður af forsætisráðuneytinu í framhaldi af undirritun kjarasamninga á almennum vinnumarkaði …

    Show notes

    Í desember 2025 kom út skýrslan "Brúum umönnunarbilið - Skýrsla og tillögur aðgerðarhóps" en aðgerðarhópurinn var skipaður af forsætisráðuneytinu í framhaldi af undirritun kjarasamninga á almennum vinnumarkaði. Helga María Pálsdóttir sviðstjóri stjórnsýslusviðs hjá Sambandinu kom að vinnu aðgerðarhópsins og fjallar um helstu tillögur.

  16. 18. Sögustund með Sögu Guðmundsdóttur: Árið 2025 gert upp

    31 minEpisode 18

    Í þessum fyrsta þætti ársins er árið 2025 gert upp í hagfræðilegum skilningi út frá sjónarhorni sveitarfélaganna Meðal þess sem er rýnt í eru tölur um fólksfjölgun, skattekjur, innviðafjárfestingar …

    Show notes

    Í þessum fyrsta þætti ársins er árið 2025 gert upp í hagfræðilegum skilningi út frá sjónarhorni sveitarfélaganna Meðal þess sem er rýnt í eru tölur um fólksfjölgun, skattekjur, innviðafjárfestingar, atvinnuleysi, veltu atvinnugreina og gjaldskrárhækkanir.

  17. 17. Virk ungmennaráð eða formsatriði? - Ingimar Guðmundsson

    25 minEpisode 17

    Virk ungmennaráð eða formsatriði? Í þætti vikunnar er rætt við Ingimar Guðmundsson, verkefnastjóra hjá Sambandinu, um stöðu ungmennaráða og ráðstefnu ungmennaráða sveitarfélaga sem fór fram í byrjun desember.

  18. 16. Sögustund með Sögu Guðmundsdóttur: Hvers vegna er 34 milljarða halli á grunnskólarekstri?

    18 minEpisode 16

    30 ár eru frá því að sveitarfélögin tóku við rekstri grunnskólanna frá ríkinu og í þætti vikunnar ræðum við söguna, hvers vegna grunnskólar landsins eru reknir með stöðugum halla og hvaða lausnir standa til boða.

  19. 15. Hvernig standa sveitarfélögin sig í loftslagsmálum? - Finnur Ricart Andrason

    19 minEpisode 15

    Í þætti vikunnar er spurt: Hver er staða sveitarfélaga í loftslagsmálum? Finnur Ricart Andrason, sérfræðingur í umhverfis- og loftslagsmálum hjá Sambandinu fer yfir niðurstöður nýrrar skýrslu um stöðu …

    Show notes

    Í þætti vikunnar er spurt: Hver er staða sveitarfélaga í loftslagsmálum? Finnur Ricart Andrason, sérfræðingur í umhverfis- og loftslagsmálum hjá Sambandinu fer yfir niðurstöður nýrrar skýrslu um stöðu sveitarfélaga í loftslagsmálum.

  20. 14. Sögustund með Sögu Guðmundsdóttur - Er ekki vitlaust gefið?

    23 minEpisode 14

    Gestur Ráðhússins er Saga Guðmundsdóttir aðalhagfræðingur Sambands íslenskra sveitarfélaga en hún hefur vakið mikla athygli fyrir skemmtilega pistla undir nafninu Sögustund. Í nýjasta pistli Sögu var fjallað um …

    Show notes

    Gestur Ráðhússins er Saga Guðmundsdóttir aðalhagfræðingur Sambands íslenskra sveitarfélaga en hún hefur vakið mikla athygli fyrir skemmtilega pistla undir nafninu Sögustund. Í nýjasta pistli Sögu var fjallað um rekstur sveitarfélaga og að hann sé að jafnaði erfiður og gangi verr en í flestum samanburðarlöndum.

  21. 13. Samtal við formann Sambandsins: Milljarðar í stafrænu málin - Jón Björn Hákonarson

    28 minEpisode 13

    Gestur Ráðhússins er enginn annar en Jón Björn Hákonarson, formaður Sambandsins. Við tökum stöðuna á sveitarstjórnarstiginu almennt og verkefnum Sambandsins framundan en aðal umræðuefnið er ný skýrsla um …

    Show notes

    Gestur Ráðhússins er enginn annar en Jón Björn Hákonarson, formaður Sambandsins. Við tökum stöðuna á sveitarstjórnarstiginu almennt og verkefnum Sambandsins framundan en aðal umræðuefnið er ný skýrsla um fjárfestingar hins opinbera í stafrænum innviðum og stafrænni þjónustu. Meðal þeirra spurninga sem við reynum að svara eru: Hvers vegna stafrænir innviðir? Hversu mikið almannafé er að fara í stafrænu málin? Hvernig tala þessir innviðir saman milli ríkis og sveitarfélaga? Hver eru næstu skref?

  22. 12. Tekist á um málefni sveitarfélaga: Pallborð fulltrúa stjórnmálaflokka á Alþingi

    1 h 13 minEpisode 12

    Í þætti dagsins eru líflegar pallborðsumræður þar sem fulltrúar stjórnmálaflokka á þingi takast á um málefni sveitarfélaga. Pallborðsumræðurnar áttu sér stað á Fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna 2025 í síðustu …

    Show notes

    Í þætti dagsins eru líflegar pallborðsumræður þar sem fulltrúar stjórnmálaflokka á þingi takast á um málefni sveitarfélaga. Pallborðsumræðurnar áttu sér stað á Fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna 2025 í síðustu viku og vöktu þær mikla lukku meðal þeirra tæplega 500 gesta sem saman voru komnir á ráðstefnuna.

  23. 11. Sameiningarviðræður: Sameining samþykkt og hvað svo? - Ólafur Þór Ólafsson

    35 minEpisode 11

    Hvað gerist þegar sveitarfélög hafa samþykkt að sameinast? Ólafur Þór Ólafsson ræðir um sameiningarferlið en hann hefur tekið þátt tveimur sameiningum bæði sem kjörinn fulltrúi og sveitarstjóri.

  24. 10. Sameiningarviðræður: Hvað gerist þegar áhuginn kviknar? - Ólafur Þór Ólafsson

    37 minEpisode 10

    Hvað gerist þegar sveitarfélög hafa áhuga á að fara í sameiningarviðræður? Hvernig virkar ferlið? Ólafur Þór Ólafsson ræðir um sameiningaviðræður en hann hefur tekið þátt í slíkum viðræðum bæði sem kjörinn …

    Show notes

    Hvað gerist þegar sveitarfélög hafa áhuga á að fara í sameiningarviðræður? Hvernig virkar ferlið? Ólafur Þór Ólafsson ræðir um sameiningaviðræður en hann hefur tekið þátt í slíkum viðræðum bæði sem kjörinn fulltrúi og sveitarstjóri.

  25. 09. Úrgangsstjórnun sveitarfélaga 101 - Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson

    37 minEpisode 9

    Gestur ráðhússinns að þessu sinni er hann Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson, sérfræðingur í úrgangsmálum hjá Umhverfis- og orkustofnun. Umræðuefni þáttarins er nýuppfærð handbók um úrgangsstjórnun sveitarfélaga …

    Show notes

    Gestur ráðhússinns að þessu sinni er hann Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson, sérfræðingur í úrgangsmálum hjá Umhverfis- og orkustofnun. Umræðuefni þáttarins er nýuppfærð handbók um úrgangsstjórnun sveitarfélaga og er m.a. farið yfir helstu skyldur sveitarfélaga í úrgangsmálum, gjaldtöku sveitarfélaga vegna úrgangsþjónustu og hvernig má nýta ný útboðssniðmát.

  26. 08. Stafræna vegferðin: eru sveitarfélögin fær í framtíðina? - Björgvin Sigurðsson

    27 minEpisode 8

    Gestur Ráðhússins í þessum þætti er Björgvin Sigurðsson, sérfræðingur í stafræna teymi Sambandsins. Fjallað er um Stafræna samstarf sveitarfélaganna, mikilvægi þess að vera með stafrænu málin í lagi, árangurinn …

    Show notes

    Gestur Ráðhússins í þessum þætti er Björgvin Sigurðsson, sérfræðingur í stafræna teymi Sambandsins. Fjallað er um Stafræna samstarf sveitarfélaganna, mikilvægi þess að vera með stafrænu málin í lagi, árangurinn sem hefur náðst hingað til, gerfigreind og verkefnin framundan.

  27. 07. Farsældarráð: raunverulegt hreyfiafl eða bara blaður? - Hjördís Eva Þórðardóttir

    29 minEpisode 7

    Gestur Ráðhússins er Hjördís Eva Þórðardóttir verkefnastjóri farsældar barna hjá Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum. Í þættinum verður fjallað um stofnun og tilgang farsældarráða landshluta í þágu farsældar barna.

  28. 06. Viljandi villt: á að sleppa slættinum? - Jón Kristófer Arnarson

    33 minEpisode 6

    Gestur Ráðhússins er Jón Kristófer Arnarson, garðyrkjustjóri Múlaþings og er rætt við hann um verkefnið Viljandi villt sem gengur út á það að leyfa villtum gróðri að spretta á vel völdum grænum svæðum til að …

    Show notes

    Gestur Ráðhússins er Jón Kristófer Arnarson, garðyrkjustjóri Múlaþings og er rætt við hann um verkefnið Viljandi villt sem gengur út á það að leyfa villtum gróðri að spretta á vel völdum grænum svæðum til að styðja við líffræðilega fjölbreytni, draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og jafnvel spara pening.

  29. 05. Til hvers er vinnuskóli sveitarfélaga? - Ólafur Bergur Ólafsson

    21 minEpisode 5

    Gestur Ráðhússins er Ólafur Bergur Ólafsson, forstöðumaður vinnuskóla Reykjanesbæjar, þar sem fjallað er um þau miklu tækifæri er felast í þátttöku ungmenna í vinnuskólum.

  30. 04. Fasteignaskattur orkumannvirkja: hvers virði er virkjun? - Bryndís Gunnlaugsdóttir

    25 minEpisode 4

    Í þetta skiptið ræða Bryndís Gunnlaugsdóttir og Finnur Ricart Andrason eitt heitasta málið í samráðsgátt stjórnvalda um þessar mundir – áform um að afnema undanþágu rafveitna frá fasteignamati. Þetta hljómar …

    Show notes

    Í þetta skiptið ræða Bryndís Gunnlaugsdóttir og Finnur Ricart Andrason eitt heitasta málið í samráðsgátt stjórnvalda um þessar mundir – áform um að afnema undanþágu rafveitna frá fasteignamati. Þetta hljómar kannski frekar tæknilegt, en áhrifin gætu orðið veruleg fyrir sveitarfélög víða um land til aukinna tekna og eins og útfærslan er núna gæti þetta aukið tekjur allra sveitarfélaga. Spurningunum sem velt er upp í þættinum eru m.a. hvað liggur að baki þessu frumvarpi, hvaða áhrif gæti það haft á fjárhag sveitarfélaga og hvað ættu kjörnir fulltrúar og starfsfólk sveitarfélaga að skoða til að meta hagsmuni síns sveitarfélags?

Similar podcasts

More News podcasts

Flekaskil

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir og Dagur B. Eggertsson · 31 episodes

Is this your podcast?

Confirm it with an entry in your feed: you get a code here, add it as podcast:txt to the channel of your feed, and we check it. Your podcast is then shown as “verified” on SoundNode.

Settings

Display

Language

Decides which stations you see first on the home page.

History

Recently played stations and episodes and your latest searches are only stored in this browser.

Notifications

A short notice when a podcast you follow has a new episode. Turn off single podcasts with the bell on their page.

Account

Save favorites – in the app and on the website.

Keyboard shortcuts

/
Open search
Space
Play or pause
← →
In the player: back 15 s, forward 30 s (episodes) · in a row: next tile
↑ ↓
In a row: target within the tile
Home / End
In a row: first or last tile
Esc
Close window or menu
?
This overview
Now playing

Go to station page

Play next

    Add episodes with “Play next” – they play after the current episode.