Skip to content
Stjáni
PodcastHistoryIS

Stjáni

New10.þáttur - Á rúntinum með Stjána.November 13, 2026 · 59 min
Episodes
10
Released
every two weeks
Latest episode
Nov 13, 2026

About the podcast

Stjáni á Emmunni segir frá öllu milli himins og jarðar. Línan á að vera æviágrip í Vestmannaeyjum. En Stjáni á það til að fara allt aðrar leiðir en hann á að fara. Bæði í sögum og skoðunum. Ef þú ert viðkvæm manneskja fyrir gömlum karli sem er sama hvað öllum öðrum finnst. Mælum við með að fólk stilli yfir á Bylgjuna.

Episodes 10

  1. 10.þáttur - Á rúntinum með Stjána.

    59 min

    Fyrsti þátturinn sem er í mynd. Stjáni spjallar um bæinn sinn og hvað er búið að gerast. Í hvaða húsi hann fæddist og allt milli himins og jarðar.

  2. 9. þáttur - Þetta er vísindalega sannað!

    1 h 2 minSeason 1 · Episode 9

    Stjáni var að drekka sinn fjórða Collab þegar þátturinn var tekinn upp. Pínu víraður en í topp formi. Farið yfir húsasmíðina á Illugagötunni þar sem Stjáni byggði sér og fjölskyldunni hús. Pólitíkin og boðorðin …

    Show notes

    Stjáni var að drekka sinn fjórða Collab þegar þátturinn var tekinn upp. Pínu víraður en í topp formi.

    Farið yfir húsasmíðina á Illugagötunni þar sem Stjáni byggði sér og fjölskyldunni hús.

    Pólitíkin og boðorðin tvö sem hann bjó til sjálfur.

    11. Aldrei segja aldrei.

    12. Ekki treysta þingmönnum og ráðherrum.

    Veit ekki hvað Móses myndi segja við þessu en við fáum örugglega aldrei svar við þeirri spurningu.

  3. 8. þáttur - Sjanghæjaður Ríkharður Zóëga

    1 h 17 minSeason 1 · Episode 8

    Fyrsti gestur í Stjána í hliðarverkefninu sem við köllum “Inn fyrir landhelgi”. Það er fyrrum bóhemlistamaðurinn Ríkharður Zóëga kokkur sem við sjanghæjuðum í spjall. Hann fer yfir gamlar og nýjar sögur …

    Show notes

    Fyrsti gestur í Stjána í hliðarverkefninu sem við köllum “Inn fyrir landhelgi”.

    Það er fyrrum bóhemlistamaðurinn Ríkharður Zóëga kokkur sem við sjanghæjuðum í spjall. Hann fer yfir gamlar og nýjar sögur. Hvernig hann endaði á eyjunni og hvar þetta allt saman byrjaði.

    Allt upp á tíu í þessum þætti.

  4. 7. þáttur - Norskir brjóstdropar við kulnun?

    52 minSeason 1 · Episode 7

    Farið var um víðan veg. Báðir hálfslappir af flensu en látum það ekkert á okkur fá. Gott spjall þangað til við fórum í veiðileyfagjaldið. Þá náðum við púlsinum hjá Stjána heldur betur upp.

  5. 6. þáttur - Villi Túlípani og baðlón kynt með líkbrennslu

    55 minSeason 1 · Episode 6

    Stjáni fer yfir hugmyndir hvernig Vestmannaeyjar geta orðið frumkvöðlar í líkbrennslu. Hvernig gömlu skipstjórarnir vissu að staðsetningin á Landeyjahöfn var vitlaus frá upphafi og fullt af fróðleik eins og …

    Show notes

    Stjáni fer yfir hugmyndir hvernig Vestmannaeyjar geta orðið frumkvöðlar í líkbrennslu. Hvernig gömlu skipstjórarnir vissu að staðsetningin á Landeyjahöfn var vitlaus frá upphafi og fullt af fróðleik eins og gera má ráð fyrir.

    Ætluðum að fara í húsasmíðina á Illugagötu og hvernig hann náði í Emmu konuna sína. En töluðum of mikið og stefnum á það í næsta þætti.

  6. 5. þáttur - Kolagrill og tvær rúllur

    50 minSeason 1 · Episode 5

    Stjáni kemur á óvart og biður mig um að fara ekki í viðfangsefni þáttarins fyrr en í næsta þætti. Svo þessi er út um allt. Spurningar sem gleymdust og redding.

  7. 4. þáttur - Ris og sala útgerðarmannsins

    57 minSeason 1 · Episode 4

    Útgerðarsagan. Kvótakerfið. Baráttan við fiskvinnsluna. Eigin fiskvinnsla. Upphaf gámaútfluttnings og fróðleikur um lífið.

  8. 3. þáttur - Sjávarháski sunnan við Surtsey

    1 h 1 minSeason 1 · Episode 3

    Stjáni fer yfir fyrstu árin sem skipstjóri og byrjunina á útgerðinni. Hvað varð til þess að hann og pabbi hans töluðust ekki við í langan tíma og sjávarháska sem hann lenti í sem skipstjóri á Leó VE 400.

  9. 2. þáttur - Milli landa og laga

    1 h 3 minSeason 1 · Episode 2

    Stjáni fer yfir fyrstu sporin í sjómennskunni, siglingarnar, tónlistina og hvernig hægt er að drepa í sér sæðið í nokkra klukkutíma bara með heitu vatni.

  10. 1. þáttur - Bernskuspor

    49 minSeason 1 · Episode 1

    Stjáni fer yfir fyrsta hluta ævi sinnar. Frá fæðingarárinu 1946 að unglingsaldri. Einnig er erfitt að stoppa okkar mann þegar hann fer á flug svo það er farið um víðan völl.

Is this your podcast?

Confirm it with an entry in your feed: you get a code here, add it as podcast:txt to the channel of your feed, and we check it. Your podcast is then shown as “verified” on SoundNode.

Settings

Display

Language

Decides which stations you see first on the home page.

History

Recently played stations and episodes and your latest searches are only stored in this browser.

Notifications

A short notice when a podcast you follow has a new episode. Turn off single podcasts with the bell on their page.

Account

Save favorites – in the app and on the website.

Keyboard shortcuts

/
Open search
Space
Play or pause
← →
In the player: back 15 s, forward 30 s (episodes) · in a row: next tile
↑ ↓
In a row: target within the tile
Home / End
In a row: first or last tile
Esc
Close window or menu
?
This overview
Now playing

Go to station page

Play next

    Add episodes with “Play next” – they play after the current episode.