Aller au contenu
Sögur úr raunveruleikanum

Sögur úr raunveruleikanum

NouveauÞorpararnir sem umkringdu ráðhúsið22 septembre 2026 · 55 min
Épisodes
16
Parution
toutes les deux semaines
Dernier épisode
22 Sep 2026

À propos du podcast

Í safnvarpinu Sögur úr raunveruleikanum leita dagskrárgerðarmenn uppi sannar sögur úr íslenskum samtíma.

Framleiðsla: Rás 1

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Épisodes 16

  1. Þorpararnir sem umkringdu ráðhúsið

    55 min

    Við erum mætt til Akureyrar til þess að elta uppi pólitíska öskubuskusögu blikkara úr Þorpinu.Manns sem þótti ekki nógu fínn fyrir Framsóknarflokkinn, en stofnaði í staðinn stjórnmálaflokk sem varð ekki bara …

    Notes de l’épisode

    Við erum mætt til Akureyrar til þess að elta uppi pólitíska öskubuskusögu blikkara úr Þorpinu.


    Manns sem þótti ekki nógu fínn fyrir Framsóknarflokkinn, en stofnaði í staðinn stjórnmálaflokk sem varð ekki bara ráðandi afl í bænum heldur er hann nú þriðja elsta stjórnmálaafl á Íslandi og hefur í bráðum tvo áratugi verið í meirihluta.


    Við reynum að fá að vita hvort árangur L-listans sýni að það sé hvorki nauðsynlegt né árangursríkt að eiga stóran, sterkan frænda í Reykjavík, sem sækja þurfi til samþykki eða aðstoð.


    Umsjón: Helgi Seljan

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  2. Mannshvörfin í Himalaja

    50 min

    Tveir færustu fjallamenn landsins lögðu í örlagaríkan leiðangur á einn hæsta tind heims í Himalajafjöllunum í Nepal árið 1988. Í leiðangrinum gerðust atburðir sem aldrei hafa verið upplýstir að fullu. Röð …

    Notes de l’épisode

    Tveir færustu fjallamenn landsins lögðu í örlagaríkan leiðangur á einn hæsta tind heims í Himalajafjöllunum í Nepal árið 1988. Í leiðangrinum gerðust atburðir sem aldrei hafa verið upplýstir að fullu. Röð tilviljana gerði það svo að verkum að þetta gamla mál kom aftur upp á yfirborðið fyrir nokkrum árum.


    Viðmælendur: Rúnar Guðbjartsson, Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir, Kristinn Steinar Kristinsson, Hafdís Guðjónsdóttir, Jón Geirsson, Leifur Örn Svavarsson og Steve Aisthorpe.


    Dagskrárgerð: Þóra Tómasdóttir og Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  3. Álögin á Vatnsenda 3.þáttur

    50 min

    Í þessum þætti færum við okkur inn í nútímann og skoðum hvað tvær yngstu kynslóðir Vatnsendaerfingja hafa þurft að glíma við. Því það er eins og það verði sífellt erfiðara að bera ábyrgð á þessu verðmæta landi …

    Notes de l’épisode

    Í þessum þætti færum við okkur inn í nútímann og skoðum hvað tvær yngstu kynslóðir Vatnsendaerfingja hafa þurft að glíma við. Því það er eins og það verði sífellt erfiðara að bera ábyrgð á þessu verðmæta landi. Kvaðirnar og málaferlin hafa stundum yfirskyggt kostina við arfinn.


    Hinn 23 ára gamli Magnús Pétur er nú orðinn þungamiðja í flóknum málaferlum og þarf að stunda búskap í miðri byggð í Kópavogi til að missa ekki jörðina frá sér.


    Við sögu koma Þórður Bragason vinur Þorsteins Hjaltested, Vilborg Hjaltested systir Þorsteins, Víðir Smári Petersen prófessor í eignarrétti, Guðjón Ármannsson fyrrum lögmaður Kópavogsbæjar, Pálmi Þór Másson bæjarritari Kópavogs og Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri.


    Dagskrárgerð: Þóra Tómasdóttir

    Hljóðblöndun: Kormákur Marðarson

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  4. Álögin á Vatnsenda 2.þáttur

    52 min

    Fyrir síðustu aldamót fóru bæði Kópavogur og Reykjavík að ásælast Vatnsendajörðina. Erfingjar jarðarinnar urðu þá óvænt lykilviðsemjendur stjórnmálamanna sem vildu reisa þar fjölmenna byggð. 90 ára gömul …

    Notes de l’épisode

    Fyrir síðustu aldamót fóru bæði Kópavogur og Reykjavík að ásælast Vatnsendajörðina. Erfingjar jarðarinnar urðu þá óvænt lykilviðsemjendur stjórnmálamanna sem vildu reisa þar fjölmenna byggð. 90 ára gömul erfðaskrá kom hins vegar í veg fyrir að hægt væri að selja jörðina. 

    Gunnar Birgisson, þáverandi bæjarstjóri í Kópavogi, ákvað að höggva á hnútinn með umdeildum samningi við Vatnsendaerfingjann. 

    Í þessum þætti er fjallað um tímabilið sem fjölmenn byggð reis á Vatnsenda og átökin sem urðu á bæjarskrifstofum Kópavogs, í Hjaltested-ættinni og dómsölum landsins. 


    Við sögu koma meðal annars Guðjón Ármannsson, Víðir Smári Petersen, Guðríður Eldey Arnardóttir, Ármann Kr. Ólafsson, Gunnar Birgisson, Ásgeir Þór Davíðsson, Magnús Hjaltested, Þorsteinn Hjaltested, Magnús Pétur Hjaltested og Kristrún Ólöf Jónsdóttir.


    Dagskrárgerð: Þóra Tómasdóttir

    Tónlist: Atli Örvarsson (Úr kvikmyndinni Hrútum)

    Hljóðblöndun: Markús Hjaltason

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  5. Álögin á Vatnsenda 1.þáttur

    38 min

    Áratugum saman hefur Hjaltested-ættin tekist á um hver eigi og megi búa á hinni flennistóru Vatnsendajörð sem umlykur Elliðaárvatn í Kópavogi. Hatrammar deilur hafa sprottið upp vegna umdeildrar erfðaskrár sem …

    Notes de l’épisode

    Áratugum saman hefur Hjaltested-ættin tekist á um hver eigi og megi búa á hinni flennistóru Vatnsendajörð sem umlykur Elliðaárvatn í Kópavogi. Hatrammar deilur hafa sprottið upp vegna umdeildrar erfðaskrár sem eigandi jarðarinnar gerði 1938. Erfðaskráin færði útvöldum ómæld auðæfi en lagði líka á þá kvaðir sem verður sífellt erfiðara að framfylgja.

    Enn í dag ræður 90 ára erfðaskrá för á framtíðar byggingarlandi höfuðborgarsvæðisins og þvingar rúmlega tvítugan erfingja til að stunda búskap inni í byggð. Dagskrárgerð: Þóra Tómasdóttir


    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  6. Hilmar Veigar um Elon Musk og Demis Hassibis

    52 min

    Þegar Elon Musk skrifaði á samfélagsmiðilinn X að hann ætti í viðræðum við skapara Eve Online um samvinnu að gervigreindartölvuleik, þá óskaði RÚV eftir viðtali við Hilmar Veigar Pétursson, einn stofnenda …

    Notes de l’épisode

    Þegar Elon Musk skrifaði á samfélagsmiðilinn X að hann ætti í viðræðum við skapara Eve Online um samvinnu að gervigreindartölvuleik, þá óskaði RÚV eftir viðtali við Hilmar Veigar Pétursson, einn stofnenda leiksins. Þegar Hilmar var loks tilbúinn í viðtal kom hann með allt aðra og óvænta sögu. 


    Í þessum þætti segir Hilmar Veigar frá því sem gerðist bak við tjöldin áður en fyrirtækið sem hann stýrir var selt fyrir 15 milljarða króna. Hann segir frá óvenjulegum samskiptum sínum við Elon Musk, en líka við aðra og ekki síður lítríka einstaklinga úr hópi fremstu tæknifrömuða heims. Meðal annars, nóbelsverðlaunahafa í efnafræði, Demis Hassabis. 

    Umsjón: Þóra Tómasdóttir.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  7. Kveikur: „Plain“ konur eins og ég

    28 min

    Í dag heyrum við frásögn konu sem tók þá afdrifaríku en sjálfstæðu ákvörðun að selja aðgang að líkama sínum. Um 20 ár eru liðin. Þó tími hennar í vændi hafi aðeins varað um sex mánaða skeið hefur hann markað …

    Notes de l’épisode
    Í dag heyrum við frásögn konu sem tók þá afdrifaríku en sjálfstæðu ákvörðun að selja aðgang að líkama sínum. Um 20 ár eru liðin. Þó tími hennar í vændi hafi aðeins varað um sex mánaða skeið hefur hann markað líf hennar allar götur síðan.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  8. Fjölskyldan á Edition-hótelinu

    37 min

    Þrítug kona og karlmaður á sextugsaldri fundust látin á Edition-hótelinu í Reykjavík í júní 2025. Móðir konunnar og eiginkona mannsins sagði lögreglu að fjölskyldan hafi komið til Íslands gagngert til þess að …

    Notes de l’épisode

    Þrítug kona og karlmaður á sextugsaldri fundust látin á Edition-hótelinu í Reykjavík í júní 2025. Móðir konunnar og eiginkona mannsins sagði lögreglu að fjölskyldan hafi komið til Íslands gagngert til þess að svipta sig lífi.

    Þóra Tómasdóttir rekur atburðarásina og sögu fjölskyldunnar.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  9. Að deyja í einsemd

    41 min

    Þegar fólk deyr í heimahúsi eða bara einhvers staðar annars staðar en á sjúkrahúsi þá er tæknideild lögreglunnar kölluð á vettvang. Tæknideildin kannar hvort andlátið hafi borið að með náttúrulegum hætti …

    Notes de l’épisode

    Þegar fólk deyr í heimahúsi eða bara einhvers staðar annars staðar en á sjúkrahúsi þá er tæknideild lögreglunnar kölluð á vettvang. Tæknideildin kannar hvort andlátið hafi borið að með náttúrulegum hætti.


    Einstaka sinnum gerist það að tæknideildin mætir á vettvang þar sem lík hefur legið lengi. Slíkt gerist sem betur fer sjaldan en árið 2025 fannst lögreglumönnum eins og það væri einhver breyting þar á. Þeir töldu sig koma að fleiri einstæðingum en áður.


    Rætt er við lögreglumennina Guðmund Þ. Tómasson og Ragnar Jónsson. Við heimsækjum Ingvar Stefánsson og Helenu Björk Magnúsdóttur hjá Kirkjugörðum Reykjavíkur og Emilíu Jónsdóttur félagsráðgjafa hjá Útfararstofu kirkjugarðanna.


    Umsjón: Þóra Tómasdóttir

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  10. Krossfest: Föstudagurinn langi

    51 min

    Á föstudaginn langa 2025 ferðaðist Sigyn Blöndal til San Fernando á Filippseyjum. Bærinn er þekktastur fyrir það að á föstudaginn langa ganga hundruðir manna um götur bæjarins í húðstrýkingum en þar hefur …

    Notes de l’épisode

    Á föstudaginn langa 2025 ferðaðist Sigyn Blöndal til San Fernando á Filippseyjum. Bærinn er þekktastur fyrir það að á föstudaginn langa ganga hundruðir manna um götur bæjarins í húðstrýkingum en þar hefur einnig Ruben Enaje látið krossfesta sig síðan 1986. Hann er á leiðinni á krossinn í 36. sinn og Sigyn fær tækifæri til að hanga með þeim krossfesta - ekki á krossinum heldur spjölluðu þau saman undir skugga mangótrjáa, innan um Maríulíkneski og krossinn sjálfan. Við ferðumst saman á staðinn, heyrum af upplifun þeirra sem voru á staðnum og reynum að fá svar við spurningunni, af hverju?


    Viðmælendur:

    Ruben Enaje

    Prófessor Xiao Chua

    Pétur Guðmann Guðmannsson

    Hugo Goodson

    Michael Magee


    Lestur:

    Ruben Enaje: Björn Þór Sigbjörnsson

    Xiao Chua: Hafsteinn Vilhelmsson

    Hugo Goodson: Jóhannes Ólafsson

    Michael Magee: Atli Már Steinarsson


    Dagskrárgerð, framleiðsla og hljóðvinnsla: Sigyn Blöndal

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  11. Krossfest: Skírdagur

    49 min

    Það kannast flestir Íslendingar við árlegu fréttina á föstudaginn langa um krossfestingar á Filippseyjum. Við horfum og afgreiðum sem galið, sem klikkað - eitthvað sem við myndum aldrei gera. En hvað býr að …

    Notes de l’épisode

    Það kannast flestir Íslendingar við árlegu fréttina á föstudaginn langa um krossfestingar á Filippseyjum. Við horfum og afgreiðum sem galið, sem klikkað - eitthvað sem við myndum aldrei gera. En hvað býr að baki? Hvað gerist þegar við spyrjum af hverju? Hvernig gerist það að karlmenn á Filippseyjum ganga um götur í húðstrýkingum og láta jafnvel krossfesta sig á föstudaginn langa. 

    Sigyn Blöndal var á Filippseyjum um páskana 2025 og kynnti sér málið sem er hægt að skoða frá mörgum hliðum. 

    Í þessum fyrri þætti ferðumst við um götur Manila á skírdag 2025 og hittum bæjarbúa sem syngja um píslargöngu krists og fylgjumst með krossfestingaræfingu. 


    Viðmælendur: 

    Prófessor Xiao Chua 

    Marj Einarsson

    Ruben Enaje 


    Lestur: 

    Xiao Chua: Hafsteinn Vilhelmsson

    Marj Einarsson: Ástrós Signýjardóttir 


    Dagskrárgerð, framleiðsla og hljóðvinnsla: Sigyn Blöndal 

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  12. Eftir að allt varð svart

    44 min

    Þrír létust þegar lítil flugvél brotlenti við Sauðahnjúka á Austurlandi sumarið 2023. Um borð í vélinni voru náttúruvísindamennirnir Skarphéðinn Þórisson og Fríða Jóhannesdóttir auk flugmannsins Kristjáns Orra …

    Notes de l’épisode

    Þrír létust þegar lítil flugvél brotlenti við Sauðahnjúka á Austurlandi sumarið 2023. Um borð í vélinni voru náttúruvísindamennirnir Skarphéðinn Þórisson og Fríða Jóhannesdóttir auk flugmannsins Kristjáns Orra Magnússonar.

    Í þættinum er athyglinni beint að þeirri einstöku þekkingu á hreindýrum og náttúru sem fórst með flugvélinni. Þóra Tómasdóttir og Gígja Hólmgeirsdóttir ræddu við samferðafólk vísindamannanna ári eftir flugslysið.


    Tónlist: Johan Söderqvist og Shingeru Umbayashi

    Dagskrárgerð: Þóra Tómasdóttir

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  13. Vítahringur Margrétar Löf - 2. þáttur

    48 min

    Langur aðdragandi var að því að Margrét Halla Hansdóttir Löf var dæmd fyrir að bana föður sínum í Súlunesi í apríl 2025. Við meðferð málsins fyrir Héraðsdómi Reykjaness teiknaðist upp djúpstæður fjölskylduvandi …

    Notes de l’épisode

    Langur aðdragandi var að því að Margrét Halla Hansdóttir Löf var dæmd fyrir að bana föður sínum í Súlunesi í apríl 2025. Við meðferð málsins fyrir Héraðsdómi Reykjaness teiknaðist upp djúpstæður fjölskylduvandi sem varð sífellt óviðráðanlegri. Vandi sem virtist hverfast um andlegt ástand Margrétar.

    Í þessum þætti segir hálfbróðir Margrétar Löf frá sinni upplifun af fjölskyldulífinu. Rætt er við lögmann Margrétar, Sigurð G. Guðjónsson, lögfræðiprófessorinn Hafstein Dan og hestamanninn Sigurbjörn Bárðarson.


    Umsjón: Þóra Tómasdóttir

    Tæknimaður: Markús Hjaltason

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  14. Vítahringur Margrétar Löf - 1. þáttur

    56 min

    Langur aðdragandi var að því að Margrét Halla Hansdóttir Löf var dæmd fyrir að bana föður sínum í Súlunesi í apríl 2025. Við meðferð málsins fyrir Héraðsdómi Reykjaness teiknaðist upp djúpstæður fjölskylduvandi …

    Notes de l’épisode

    Langur aðdragandi var að því að Margrét Halla Hansdóttir Löf var dæmd fyrir að bana föður sínum í Súlunesi í apríl 2025. Við meðferð málsins fyrir Héraðsdómi Reykjaness teiknaðist upp djúpstæður fjölskylduvandi sem varð sífellt óviðráðanlegri. Vandi sem virtist hverfast um andlegt ástand Margrétar. Í þáttunum er rætt við Margréti, samferðafólk hennar og verjanda. 


    Umsjón: Þóra Tómasdóttir

    Tæknimaður: Mark Eldred

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  15. Kveikur: Börnin í Bakkakoti

    54 min

    Samhliða umfjöllun Kveiks um bæinn Bakkakot fyrir tveimur vikum síðan, stigu níu menn fram sem kröfðust rannsóknar á ofbeldi sem þeir segjast hafa verið beittir þar sem börn. Í dag hefur tala þeirra meira en …

    Notes de l’épisode

    Samhliða umfjöllun Kveiks um bæinn Bakkakot fyrir tveimur vikum síðan, stigu níu menn fram sem kröfðust rannsóknar á ofbeldi sem þeir segjast hafa verið beittir þar sem börn. Í dag hefur tala þeirra meira en tvöfaldast.


    Í aðdraganda annars þáttar Kveiks um málið heyrum við viðbrögð eins viðmælanda þeirra við umfjölluninni, heyrum sögu manns sem var sóttur í Bakkakot af móður sinni eftir skamma en yfirþyrmandi dvöl, og ræðum við Jóhann Bjarna Kolbeinsson, fréttamann Kveiks, um dagskrárgerðina.


    Dagskrárgerð: Anna Marsibil Clausen

    Tæknimaður: Jón Þór Helgason

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  16. Ráðgátan um horfna fiðluleikarann

    43 min

    Írski fiðluleikarinn Sean Bradley hvarf sporlaust frá Íslandi 2018. Leit að honum hefur enn engan árangur borið. Þóra Tómasdóttir rekur atburðarásina og grunsemdir lögreglunnar á Suðurlandi. Þátturinn var …

    Notes de l’épisode

    Írski fiðluleikarinn Sean Bradley hvarf sporlaust frá Íslandi 2018. Leit að honum hefur enn engan árangur borið. Þóra Tómasdóttir rekur atburðarásina og grunsemdir lögreglunnar á Suðurlandi.


    Þátturinn var upprunalega sendur út í nokkrum köflum í hlaðvarpinu Þetta helst.


    Umsjón: Þóra Tómasdóttir

    Tónlist: Philip Glass

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

C’est votre podcast ?

Confirmez-le avec une entrée dans votre flux : vous recevez ici un code, vous l’ajoutez comme podcast:txt dans le canal de votre flux, et nous le vérifions. Votre podcast apparaît ensuite comme « vérifié » sur SoundNode.

Paramètres

Affichage

Langue

Détermine les stations affichées en premier sur la page d’accueil.

Historique

Les stations et épisodes écoutés récemment et tes dernières recherches sont seulement enregistrés dans ce navigateur.

Notifications

Un court message quand un podcast que tu suis publie un nouvel épisode. Désactive un podcast précis avec la cloche sur sa page.

Compte

Enregistrez vos favoris – dans l’app et sur le site.

Raccourcis clavier

/
Ouvrir la recherche
Espace
Lecture ou pause
← →
Dans le lecteur : 15 s en arrière, 30 s en avant (épisodes) · dans une rangée : tuile suivante
↑ ↓
Dans une rangée : cible dans la tuile
Début / Fin
Dans une rangée : première ou dernière tuile
Esc
Fermer la fenêtre ou le menu
?
Cet aperçu
En cours de lecture

Voir la station

À suivre

    Ajoutez des épisodes avec « À suivre » – ils seront lus après l'épisode en cours.