
Japp
- Episodes
- 22
- Released
- weekly
- Latest episode
- Nov 9, 2026
About the podcast
Katrín Aagestad og Hildur Scheving jappa á léttu nótunum um allt sem er merkilegt og ómerkilegt.
Episodes 22
#22 Áhugamál
Hvað telst eiginlega áhugamál? Er það rautt flagg að eiga engin áhugamál? Og myndirðu fá ick ef kærastinn þinn væri atvinnumaður í hobby horsing? Í þessum þætti jöppum við um allt frá frímerkjasöfnun …
Show notes
Hvað telst eiginlega áhugamál? Er það rautt flagg að eiga engin áhugamál? Og myndirðu fá ick ef kærastinn þinn væri atvinnumaður í hobby horsing? Í þessum þætti jöppum við um allt frá frímerkjasöfnun, brimbrettum og heklun yfir í fuglaskoðun, skrítin áhugamál og þá eilífu freistingu að kaupa allan búnaðinn fyrir eitthvað sem maður ætlar að prófa.
Þátturinn er í boði IDE House of Brands, Hydrate Cocowater og Indó.
#21 Arnar Freyr og tölvuleikir
Arnar Freyr frá tölvuleikjahlaðvarpinu Checkpoint Podcast mætir í Japp og við förum um víðan völl í heimi tölvuleikjanna.
#20 Spúkí
Allt sem er spúkí og örlítið yfirnáttúrulegt 🎃 Íslenskar draugasögur, nornaveiðar, galdrabrennur og hryllingsmyndir sem hafa haldið fyrir okkur vöku. Nóg af hrolli, hjátrú og hlátri í þessum þætti 🕷️Jappið er í …
Show notes
Allt sem er spúkí og örlítið yfirnáttúrulegt 🎃 Íslenskar draugasögur, nornaveiðar, galdrabrennur og hryllingsmyndir sem hafa haldið fyrir okkur vöku. Nóg af hrolli, hjátrú og hlátri í þessum þætti 🕷️
Jappið er í samstarfi við IDE House of brands 🤝
#19 Nostalgía
Nostalgíuferð aftur í gamla góða daga! Rifjum upp Juicy gallana, Spice Girls, sveitaböllin og dramatíkina í The O.C. Við ræðum tískuslysin, tónlistina, fyrstu skotin og allt það sem mótaði æsku okkar.
#18 Árný Fjóla og sveitin
Í þessum þætti fáum við okkar fyrsta gest, hana Árnýju Fjólu! Við förum í sveitina og spjöllum um allt milli súrheisturna og traktora!
#17 Fegrunaraðgerðir
Japp um útlit, fegurðarstaðla og allt sem við gerum til að líta aðeins betur út. Við rifjum upp hinn stórkostlega klikkaða raunveruleikaþátt The Swan, skoðum fegurðartrend í gegnum tíðina og veltum fyrir okkur …
Show notes
Japp um útlit, fegurðarstaðla og allt sem við gerum til að líta aðeins betur út. Við rifjum upp hinn stórkostlega klikkaða raunveruleikaþátt The Swan, skoðum fegurðartrend í gegnum tíðina og veltum fyrir okkur hversu langt við erum tilbúin að ganga í leitinni að „fullkomna“ útlitinu.
#16 Auglýsingar
Auglýsingar sem við munum ennþá, slagorð sem sitja föst í hausnum og markaðsbrellur sem virka aðeins of vel. Af hverju munum við sumt í áratugi og hvað fær okkur eiginlega til að kaupa?
#15 Sjórinn (sjávarfang og sæhestar)
Í þessum þætti jöppum við um sjóinn 🌊 Allt frá hafmeyjum og sjósundi yfir í Keikó og furðulegar staðreyndir úr djúpinu.
#14 Afmæli eða sköpunardagar?
Í þessum þætti jöppum við um allt sem tengist afmælum 🎂 Afmælishefðir, afmælisstress, bestu og verstu afmælin, gjafir, veislur og allt sem fylgir því að eiga fæðingardag🎈
#13 Skvísu stærðfræði (e. girl math)
Hvenær verða peningar ókeypis og hver er raunverulegur máttur ókeypis heimsendingar? Sokkinn skvísukostnaður og skvísa rað. Allt þetta og meira til í nýjasta Jappinu!
#12 Topp3 listar
Í þessum þætti er allt sett í topp 3. Allt frá því augljósa yfir í það sem enginn bað um að væri sett á lista.
#11 Haustið og kósý maxxxing
Endalaust japp um allt sem einkennir haustið, rútínu álag, súpur og pumpkin spice.
#10 Já eða nei (EKKI UM ESB)
Ef þú vilt pásu frá Jágúst og Neigúst þá er þetta þáttur fyrir þig. Kjósum já eða nei um allt nema ESB.
#9 Týpur
Japp um allar þær týpur sem umkringja okkur. Skinkan, baby goons, týpan okkar og hvað kemur eftir millenial green?
#8 Atvinna og fyrri störf
Hér jöppum við um undarleg störf, draumastörfin, önnur störf sem eru ekki endilega mjög spennandi og allt þar á milli.
#6 Ein stór samsæriskenning!
Jappað um hinar ýmsu kenningar og samsæri. Hvernig voru píramídarnir eiginlega byggðir, hvað varð um Avril Lavigne og er Monopoly karlinn með einglyrni eða ekki?
#5 Gamla internetið, ADSL & GG
Japp um gamla internetið og yfir í það nýja, söknuður betra.net tímanna og hvar er word bréfaklemman í dag?!?
#4 Sólviskubit og íslenska sumarkonan
Hvað gera íslendingar þegar sumarið kemur? Allt undir miðnætursólinni er rætt í þessum þætti.
#3 Frægir íslendingar
Frægir og ekki frægir og smá frægir. Við jöppum um frægð á íslandi og góða íslandsvini.
#2 Gellusjónarhornið: Fótbolti og go sports!
Okkar persónulega og gellulega sjónarhorn á fótbolta og aðra eins íþróttaiðkun.
#1 Myndirnar sem mótuðu okkur
Hið fyrsta japp, meðal annars um kvikmyndir með toxísk skilaboð til ungra kvenna sem við marineruðumst í sem unglingar.
Similar podcasts
More Society & Culture podcastsIs this your podcast?
Confirm it with an entry in your feed: you get a code here, add it as podcast:txt to the channel of your feed, and we check it. Your podcast is then shown as “verified” on SoundNode.







