
Mannlegi þátturinn
- Episodes
- 638
- Format
- Series – listen from the start
- Latest episode
- Nov 20, 2026
About the podcast
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Episodes 638
Ragnheiður Gröndal föstudagsgestur og dósamatur í matarspjallinu
Ragnheiður Gröndal tónlistarkona var föstudagsgesturinn okkar í dag. Hún er jólabarn, fædd 15. desember 1984, og er auðvitað söngkona, píanóleikari og laga- og textasmiður. Hún hóf ung tónlistarnám í …
Show notes
Ragnheiður Gröndal tónlistarkona var föstudagsgesturinn okkar í dag. Hún er jólabarn, fædd 15. desember 1984, og er auðvitað söngkona, píanóleikari og laga- og textasmiður. Hún hóf ung tónlistarnám í Tónlistarskóla Garðabæjar, fyrst á blokkflautu og svo á píanó. Hún lauk 7 stigum í klassískum píanóleik og eftir það lá leiðin í Tónlistarskóla FÍH þar sem hún hóf nám í jazzsöng og lauk burtfararprófi vorið 2005. Samhliða söngnáminu tók hún 7 stig í jazzpíanóleik. Ragnheiður hefur síðan verið virkur þátttakandi í íslensku tónlistarlífi og sent frá sér allavega 10 sólóplötur. Við fórum um víðan völl með Ragnheiði í dag og fengum svo að heyra lifandi flutning þar sem eiginmaður hennar Guðmundur Pétursson kom og spilaði á gítar í beinni. Svo var það auðvitað matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Í dag var spjallið á almannavarnanótum í kjölfarið á átaki Almannavarna og Rauða krossins, 3dagar.is og spáðum aðeins í dósamatinn sem okkur er ráðlagt að hafa í viðlagakassanum góða. Hvaða dósamatur verður fyrir valinu? Tónlist í þættinum: Ástarorð / Ragnheiður Gröndal (Ragnheiður Gröndal) Alveg sama hvað / Ragnheiður Gröndal (Ragnheiður Gröndal) Er líða fer að jólum / Ragnheiður Gröndal og Guðmundur Pétursson lifandi flutningur í hljóðveri nr. 6 (Gunnar Þórðarson, texti Ómar Ragnarsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIRRagnheiður Gröndal föstudagsgestur og dósamatur í matarspjallinu
Ragnheiður Gröndal tónlistarkona var föstudagsgesturinn okkar í dag. Hún er jólabarn, fædd 15. desember 1984, og er auðvitað söngkona, píanóleikari og laga- og textasmiður. Hún hóf ung tónlistarnám í …
Show notes
Ragnheiður Gröndal tónlistarkona var föstudagsgesturinn okkar í dag. Hún er jólabarn, fædd 15. desember 1984, og er auðvitað söngkona, píanóleikari og laga- og textasmiður. Hún hóf ung tónlistarnám í Tónlistarskóla Garðabæjar, fyrst á blokkflautu og svo á píanó. Hún lauk 7 stigum í klassískum píanóleik og eftir það lá leiðin í Tónlistarskóla FÍH þar sem hún hóf nám í jazzsöng og lauk burtfararprófi vorið 2005. Samhliða söngnáminu tók hún 7 stig í jazzpíanóleik. Ragnheiður hefur síðan verið virkur þátttakandi í íslensku tónlistarlífi og sent frá sér allavega 10 sólóplötur. Við fórum um víðan völl með Ragnheiði í dag og fengum svo að heyra lifandi flutning þar sem eiginmaður hennar Guðmundur Pétursson kom og spilaði á gítar í beinni. Svo var það auðvitað matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Í dag var spjallið á almannavarnanótum í kjölfarið á átaki Almannavarna og Rauða krossins, 3dagar.is og spáðum aðeins í dósamatinn sem okkur er ráðlagt að hafa í viðlagakassanum góða. Hvaða dósamatur verður fyrir valinu? Tónlist í þættinum: Ástarorð / Ragnheiður Gröndal (Ragnheiður Gröndal) Alveg sama hvað / Ragnheiður Gröndal (Ragnheiður Gröndal) Er líða fer að jólum / Ragnheiður Gröndal og Guðmundur Pétursson lifandi flutningur í hljóðveri nr. 6 (Gunnar Þórðarson, texti Ómar Ragnarsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIROpni leikskólinn Memmm, lausn til að undirbúa læknistímann og Jónatan um Ingibjörgu Þorbergs
Opni leikskóli Memmm hlaut hvatningarverðlaun Íslensku menntaverðlaunanna 2026 við hátíðlega athöfn á Bessastöðum nú á dögunum. Opni leikskóli Memmm var stofnaður árið 2021 og býður barnafjölskyldum upp á …
Show notes
Opni leikskóli Memmm hlaut hvatningarverðlaun Íslensku menntaverðlaunanna 2026 við hátíðlega athöfn á Bessastöðum nú á dögunum. Opni leikskóli Memmm var stofnaður árið 2021 og býður barnafjölskyldum upp á gjaldfrjálsan og opinn vettvang þar sem börn fá tækifæri til að leika, læra og þroskast í öruggu og örvandi umhverfi. Á sama tíma gefst foreldrum tækifæri til að mynda félagsleg tengsl, deila reynslu og fá stuðning í uppeldishlutverkinu. Starfsemin fer fram í bókasöfnum og samfélagshúsum í Reykjavík og Hafnarfirði og hefur vaxið jafnt og þétt. Í dag eru heimsóknir barna og fullorðinna um 10.000 á ári. Helga Hreiðarsdóttir og Kristín Stefánsdóttir komu og sögðu betur frá Memmm. Kannastu við að ganga út frá lækninum og muna þá fyrst eftir því sem þú ætlaðir helst að spyrja um? Hilda Hrönn Guðmundsdóttir, sérnámslæknir í heimilislækningum, vinnur að lausn sem á að hjálpa fólki að undirbúa læknistímann. Hugmyndin er sú að fólk geti undirbúið sig í ró og næði heima, svarað spurningum um heilsufarsvandann, hvað valdi þeim áhyggjum og hverju það vilji koma á framfæri. Þannig fá bæði læknir og sjúklingur betri yfirsýn og geta einbeitt sér að því sem skiptir mestu máli í viðtalinu. Við ræddum við Hildu um þetta í dag. Jónatan Garðarsson kom svo til okkar og hélt áfram að fræða okkur um íslenskt tónlistarfólk. Í dag var komið að Ingibjörgu Þorbergs en hún er eitt af stóru nöfnunum í íslenskri tónlistarsögu, hún söng og samdi fjölda þekktra laga og texta sem komið hafa út á ótal plötum, hún átti einnig þátt í að móta íslenskt útvarp með tilliti til barnaefnis og ekki hvað síst í að varða leið kvenna í íslenskri tónlist með framlagi sínu. Jónatan fræddi okkur um feril Ingibjargar í dag. Tónlist í þættinum: Breytir borg um svip / Kristín Lillendahl (Kristín Lillendahl) Tunglið, tunglið taktu mig / Ljósin í bænum (Stefán S. Stefánsson, texti Theódóra Thoroddsen) Á morgun / Alfreð Clausen og Ingibjörg Þorbergs (Ingibjörg Þorbergs) Hin fyrstu jól / Ingibjörg Þorbergs (Ingibjörg Þorbergs, texti Kristján frá Djúpalæk) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIRGefur út bækur um ósýnilegu börnin, rannsókn um 65 ára og eldri á vinnumarkaði og vísindaspjallið með Eddu
Ingibjörg Guðlaug Jónsdóttir stofnaði nýlega bókaútgáfuna Mannkennd á Siglufirði sem sérhæfir sig í barnabókum um fötlunarfjölbreytileika. Hugmyndin kviknaði þegar dóttir hennar, sem er einhverf og langveik og …
Show notes
Ingibjörg Guðlaug Jónsdóttir stofnaði nýlega bókaútgáfuna Mannkennd á Siglufirði sem sérhæfir sig í barnabókum um fötlunarfjölbreytileika. Hugmyndin kviknaði þegar dóttir hennar, sem er einhverf og langveik og mikill lestrarhestur, fór að spyrja um bækur um börn eins og hana og þær var erfitt að finna. Því tók hún ráðin í eigin hendur. Ingibjörg kom í þáttinn í dag og sagði okkur betur frá bókaútgáfunni, en von er á fyrstu bókinni, Lísa og Líó, í byrjun desember en hún er unnin í samstarfi við Einhverfusamtökin. Við fræddumst svo um rannsókn um upplifun háskólamenntaðra sérfræðinga sem eru 65 ára og eldri og eru enn á vinnumarkaði. Fólk sem nálgast hefðbundinn eftirlaunaaldur hefur verið talsvert rannsakað, en minna er vitað um hvernig fólk á aldrinum 65-85 ára upplifir áframhaldandi þáttöku á vinnumarkaði. Hvaða þættir hvetja það og móta vilja og möguleika þeirra til að halda áfram að vinna. Erla Sólveig Kristjánsdóttir, prófessor við Viðskiptafræðideild HÍ og Árelía Eydís Guðmundsdóttir, dósent við sömu deild unnu þessa rannsókn og sögðu okkur betur frá henni og fyrstu niðurstöðum hennar í þætti dagsins. Svo kom Edda Olgudóttir til okkar í Vísindaspjallið. Í dag sagði hún okkur nýjar fréttir sem lofa góðu þegar kemur að því að sigrast á sýklalyfjaónæmum bakteríum. Þar koma svokallaðir fagar til sögunnar, en Edda útskýrði þetta að vanda betur fyrir okkur í spjalli dagsins. Tónlist í þættinum: Verum í sambandi / Sprengjuhöllin (Snorri Helgason, Sprengjuhöllin, Bergur Ebbi) Undir dalanna sól / Karlakór Reykjavíkur ásamt Óskari og Pétri Péturssonum (Björgvin Þ Valdimarsson, texti Hallgrímur Jónsson frá Ljárskógum) Joshua Fit the Battle of Jericho / Golden Gate kvartettinn (höf.óþekktur) Eina nótt / Snorri Helgason (Kris Kristofferson, texti Jónas Friðrik Guðnason) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIRAri Ólafsson og söngurinn og efni málþingsins Lyfjasúpu
Við töluðum við Ara Ólafssyni söngvara, sem keppti fyrir Íslands hönd í Eurovision árið 2018, en hann fór til í London haustið eftir keppnina. Þar lærði hann fyrst klassískan söng, færði sig svo í kjölfar Covid …
Show notes
Við töluðum við Ara Ólafssyni söngvara, sem keppti fyrir Íslands hönd í Eurovision árið 2018, en hann fór til í London haustið eftir keppnina. Þar lærði hann fyrst klassískan söng, færði sig svo í kjölfar Covid yfir í söngleikjanám og hefur síðustu tvö ár verið á sýningarferðalagi um heiminn með Phantom of the Opera, einni þekktustu og umfangsmestu söngleikjasýningu heims, þar sem hann meðal annars lék óperudrauginn sjálfan. Við fórum með Ara yfir söngferilinn hingað til, frá náminu í London, ferðasögur með óperudrauginn og margt fleira með Ara og einnig sagði hann okkur frá Hátíðartónleikum hans og Dísellu Lárusdóttur sem verða í Norðurljósasal Hörpu 13. desember. Frá 1. október var lyfjafræðingum sem lokið hafa tilskilinni endurmenntun heimilt að bólusetja í apótekum. Það er fyrsta skrefið í átt að því að auka aðgengi almennings að heilbrigðisþjónustu. Álag á heilbrigðiskerfi fara vaxandi víða um heim vegna hækkandi aldurs og aukinnar lyfjanotkunar og hafa Bretland og Kanada til dæmis brugðist við með því að nýta sérþekkingu lyfjafræðinga í auknum mæli. Við töluðum við Sigurbjörgu Sæunni Guðmundsdóttur formann Lyfjafræðingafélags Íslands og Sigríði Pálínu Arnardóttur lyfjafræðing og eiganda Reykjanesapóteks um þessi mál í þættinum í dag. Þær sögðu okkur einnig frá málþinginu Lyfjasúpu sem fram fór í síðustu viku um lyfjanotkun eldra fólks en í Reykjanesapóteki hefur verið boðið uppá þjónustu við að fara yfir lyfjanotkun og hvort lyf fari t.d. illa saman við inntöku ofl. Tónlist í þættinum: Ég er á leiðinni / Brunaliðið (Magnús Eiríksson) Heim / Ari Ólafsson (Þórunn Erna Clausen) Án þín - með þér / Sigríður Thorlacius og Heiðurspiltar (Jón Múli og Jónas Árnasynir) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIRRagnheiður Oddný um endómetríósu, gullmoli af safni RÚV frá 1949 og Ragnhildur Hjaltadóttir lesandi vikunnar
Endómetríósa er algengur en oft vangreindur sjúkdómur sem getur haft veruleg áhrif á lífsgæði, frjósemi og andlega líðan. Framundan er sérstakt námskeið fyrir heilbrigðisstarfsfólk þar sem farið verður yfir …
Show notes
Endómetríósa er algengur en oft vangreindur sjúkdómur sem getur haft veruleg áhrif á lífsgæði, frjósemi og andlega líðan. Framundan er sérstakt námskeið fyrir heilbrigðisstarfsfólk þar sem farið verður yfir einkenni, greiningu og meðferðarmöguleika og þverfaglega meðferð og einnig verður farið yfir þá þekkingu sem liggur fyrir á þessum flókna sjúkdómi. Konur með endómetríósu hafa oft talað um að vanþekking og jafnvel fordómar fyrirfinnist hjá heilbrigðisstarfsfólki en sem betur fer er farið að fjalla meira um þennan sjúkdóm. Við ræddum við Ragnheiði Oddnýju Árnadóttur sérfræðing í fæðinga og kvensjúkdómalækningum í þættinum í dag. Svo kom Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV til okkar með enn einn gullmolann af safni RÚV. Í þetta sinn var það innslag frá árinu 1949, metnaðarfullur barnatími þar sem Hildur Kalmann stjórnaði bílaleik í útvarpssal. Helga Lára útskýrði þetta betur fyrir okkur í dag og leyfði okkur að hlýða á innslagið, sem átti vel við í dag, því í gær var minningardagur um þá sem hafa látið lífið í umferðinni. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Ragnhildur Hjaltadóttir lögfræðingur. Hún sagði okkur frá því hvað hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Ragnhildur talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Höfundur verður til. Frá Guðmundi Magnússyni til Jóns Trausta. Ritstjórar Ásta Kristín Benediktsdóttir og Guðrún Nordal. Blái pardusinn e. Sigrúnu Pálsdóttur. Ljóð muna ferð - Úrval úr ljóðum Sigurðar Pálssonar, Kristján Þórður Hrafnsson valdi og ritar inngang, Ragnar Helgi Ólafsson ritar eftirmála. Duna - saga kvikmyndagerðarkonu, skráð af Guðrúnu Elsu Bragadóttur og Kristínu Svövu Tómasdóttur Vorblót e. Katrínu Jakobsdóttur Ævisaga Jórunnar Viðar e. Árna Heimi Ingólfsson Salka Valka e. Halldór Laxness Pollyanna e. Eleanor H. Porter Tónlist í þættinum: Áfram Jón / Stuðmenn (Jakob Frímann, texti Ragnhildur Gísladóttir) Vinarkveðja / Haukur Morthens (B. Hoyer, texti Theódór Einarsson) Bjössi á Hól / Sextett Ólafs Gauks (Gaunt, texti Plausor eða Jónas Mána Jónsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIRValur Freyr föstudagsgestur og meira með Helgu Sigurðar í matarspjallinu
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Valur Freyr Einarsson, leikari og leikstjóri. Hann lærði leiklist í Manchester í Bretlandi og hefur leikið í ótal leikritum, sjónvarpsþáttum og kvikmyndum …
Show notes
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Valur Freyr Einarsson, leikari og leikstjóri. Hann lærði leiklist í Manchester í Bretlandi og hefur leikið í ótal leikritum, sjónvarpsþáttum og kvikmyndum síðan hann útskrifaðist 1995. Hann hlaut tvenn Grímuverðlaun árið 2012 fyrir leik og sem leikskáld ársins fyrir sýninguna Tengdó. Um síðustu helgi var stórsýningin Þegar Trölli stal jólunum frumsýnd, en Valur Freyr leikstýrir sýningunni. Við fórum út um víðan völl og fram og aftur um tímann með honum í dag. Svo var það auðvitað matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Við hlusta á innslag frá árinu 1954 þar sem Helga Sigurðardóttir kemur með heilræði fyrir húsmæður landsins þegar kemur að því að frysta mat. Við fengum mikil viðbrögð við tveimur stuttum innslögum með Helgu sem við spiluðum á mánudaginn í þættinum. Við flettum einnig í einni af hennar þekktustu bókum, Matur og drykkur sem kom út árið 1947. Tónlist í þættinum: Öldueðli / Bubbi Morthens (Bubbi Morthens) You're A Mean One, Mr. Grinch / Thurl Ravenscroft & Boris Karloff (Albert Hague, Eugene Poddany & Theodor Seuss Geisel) You Can’t Always Get What You Want / Rolling Stones (Jagger & Richards) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIRSkotganga Ingu og Snorra, Glóð um jólin og Jónatan um Pétur Kristjánsson
Skotganga er ferðaþjónustufyrirtæki í Skotlandi og fyrirtækið reka þau hjónin Inga Geirsdóttir og Snorri Guðmundsson. Fyrirtækið var stofnað 2008 og eins og nafnið gefur til kynna var í fyrstu boðið upp á …
Show notes
Skotganga er ferðaþjónustufyrirtæki í Skotlandi og fyrirtækið reka þau hjónin Inga Geirsdóttir og Snorri Guðmundsson. Fyrirtækið var stofnað 2008 og eins og nafnið gefur til kynna var í fyrstu boðið upp á gönguferðir í Skotlandi. Í dag eru í boði gönguferðir víða um Evrópu og sérstakar kvennaferðir svo eitthvað sé nefnt. Það stóð til að vera einungis 9 mánuði í Skotlandi en árin eru orðin 24 og þau hjónin segja gott að búa þar. Við spjölluðum við Snorra og Ingu í dag, en þau eru stödd á landinu bláa í nokkra daga. Við heyrðum svo af verkefninu Glóð um jólin til styrktar Konukoti. Þetta er fjórða árið sem Erling Jóhannesson gullsmiður býr til nýjan kertastjaka, en hann hefur nú gert þann fjórða, þeir verða að lokum sex. Við fengum þær Ilmi Kristjánsdóttur leikkonu sem hefur verið með í verkefninu frá upphafi og Halldóru R. Guðmundsdóttur framkvæmdastjóra Konukots til að segja okkur betur frá verkefninu og starfsemi Konukots. Svo kom Jónatan Garðarsson til okkar og hélt áfram að segja okkur frá íslensku tónlistarfólki. Í þetta sinn var komið að Pétri Kristjánssyni. Hann setti auðvitað sterkan svip á íslenska dægurtónlist, með Pops, Pelican og Paradís, svo einhverjar hljómsveitir séu nefndar, en þær voru fleiri og byrjuðu ekki allar á Pé. Jónatan fór með okkur yfir feril Péturs í dag og við heyrðum auðvitað tvö lög sem hann söng. Tónlist í þættinum: Fönn, fönn, fönn / Stuðmenn (Egill Ólafsson, Þórður Árnason og Jakob Frímann Magnússon) These Boots are Made for Walkin’ / Nancy Sinatra (Lee Hazlewood) Seinna meir / Start (Jóhann Helgason) Jenny Darling / Pelican (Magnús Eiríksson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIRAðgengi að íslenskukennslu, Vísnavinir fimmtugir og vísindaspjall um augun
Í aðdraganda að degi íslenskrar tungu verður haldið málþing um aðgengi heilbrigðisstarfsfólks að kennslu í íslensku sem öðru máli. Tilefnið er áform stjórnvalda um að leggja skólagjöld á háskólanema frá löndum …
Show notes
Í aðdraganda að degi íslenskrar tungu verður haldið málþing um aðgengi heilbrigðisstarfsfólks að kennslu í íslensku sem öðru máli. Tilefnið er áform stjórnvalda um að leggja skólagjöld á háskólanema frá löndum utan EES sem búa og starfa her á landi með tímabundið dvalarleyfi, sem er svo forsenda ótímabundins dvalarleyfi. Líklegt þykir að gjöldin muni í reynd girða fyrir að stórir hópar fólks sem gegnir samfélagslega mikilvægum störfum og greiðir skatta og skyldur hér á landi geti sótt sér kennslu í íslensku sem öðru máli við Háskólann. Védís Ragnheiðardóttir, námsleiðarformaður Hagnýts náms í íslensku sem annað mál og Eygló Ingadóttir, hjúkrunarfræðingur á skrifstofu hjúkrunar á Landspítala sögðu okkur betur frá þessu í þættinum í dag. Vísnavinir voru stofnaðir haustið 1976 og eiga því 50 ára afmæli um þessar mundir. Félagið var stofnað að norrænni fyrirmynd og er uppruni slíkra félaga í Svíþjóð og kölluðust þau Visans vänner. Norrænu vísnafélögin mynduðu með sér samband og voru Vísnavinir aðili að því. Vísnavinir héldu í nokkur ár úti mánaðarlegum vísnakvöldum á Hótel Borg og í Þjóðleikhúskjallaranum og þar kom fram tónlistarfólk eins og Bubbi Morthens, Bergþóra Árnadóttir, Eyjólfur Kristjánsson ofl. Við heyrðum í dag í þeim Hjalta Jóni Sveinssyni og Gísla Helgasyni sem voru meðal stofnmeðlima. Edda Olgudóttir kom svo til okkar í vísindaspjallið og í dag sagði hún okkur frá rannsóknum þar sem sýnd er fram á tengingu augna við sogæðakerfið, hreinsunarkerfi líkamans. Tónlist í þættinum: Torfi á orfi / Snorri Helgason (Snorri Helgason) Áframhald / Gísli Helgason (Gísli Helgason) Gott áttu veröld / Bergþóra Árnadóttir og Hálft í hvoru (Bergþóra Árnadóttir, ljóð Tómas Guðmundsson) Augun þín blá / Uppáhellingarnir (Jón Múli Árnason, texti Jónas Árnason) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIRSkýrsla vinnuhóps Landlæknis um ME, nýtt bókasafn í Smáralind og veðurspjall frá Kenýa
Nýlega kom út skýrsla vinnuhóps Landlæknis um fyrirkomulag heilbrigðisþjónustu við sjúklinga sem glíma við ME, langvinnt COVID-19, POTS og umhverfisveikindi. Hópurinn var skipaður að beiðni heilbrigðisráðherra …
Show notes
Nýlega kom út skýrsla vinnuhóps Landlæknis um fyrirkomulag heilbrigðisþjónustu við sjúklinga sem glíma við ME, langvinnt COVID-19, POTS og umhverfisveikindi. Hópurinn var skipaður að beiðni heilbrigðisráðherra. Í skýrslunni kemur fram að sjúklingahóparnir sem um ræðir búa við eina allra þyngstu sjúkdómsbyrði sé miðað við sjúklinga með aðra alvarlega sjúkdóma, en að þjónustan við hópana sé í hrópandi ósamræmi við þá staðreynd og umönnunarbyrði aðstandenda sé mikil. Freyja Imsland var fulltrúi ME félagsins í vinnuhópnum og hefur sjálf glímt við ME frá 2011. Hún kom í þáttinn í dag ásamt Helgu Edwardsdóttur formanni ME félags Íslands. Bókasöfn hafa þróast úr hefðbundnum útlánastöðum í lifandi menningar- og samfélagsmiðstöðvar þar sem allir eru velkomnir, fyrir samveru, fræðslu, sköpun, lestur og menningarupplifun. Ný slík menningarmiðstöð sem verður 900 fermetrar er í smíðum í Smáralind og hugmyndin er að færa menningu og bókasafnsþjónustu nær fólkinu. Við ræddum við Elísabetu Sveinsdóttur, formann í menningar- og mannlífsnefnd Kópavogs og forseti bæjarstjórnar kom í þáttinn í dag til okkar hér á eftir. Í veðurspjallinu vorum við í beinu sambandi við Einar Sveinbjörnsson þar sem hann var staddur í Kenya. Hann talaði aðeins um veðrið í Austur-Afríku og regntímabilin þar. Svo voru það hlýindin sem hafa verið hér á landi undanfarið og hvort því tímabili sé lokið og svo í lokin skoðaði hann aðeins langtímaspárnar og hvað þær eru að segja okkur. Tónlist í þættinum: Röndótta mær / Jakob Frímann Magnússon (Jakob Frímann Magnússon) Tasko Tostada / Hljómar (Rúnar Júlíusson) Þín innsta þrá / B.G. og Ingibjörg (Granata & Verard, texti Jóhanna G. Erlingsson) Leaves still green / Thin Jim and the Castaways(Jökull Jörgensen) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIRÚtfararsjóður.is, Húsmæðraráð frá 1950 og Björg Jóna lesandi vikunnar
Stofnað hefur verið almannaheillafélag um útfararsjóð barna og unglinga og er markmið sjóðsins að standa straum af útfararkostnaði einstaklinga undir 18 ára aldri og tryggja að aðstandendur geti kvatt ástvini …
Show notes
Stofnað hefur verið almannaheillafélag um útfararsjóð barna og unglinga og er markmið sjóðsins að standa straum af útfararkostnaði einstaklinga undir 18 ára aldri og tryggja að aðstandendur geti kvatt ástvini sína með reisn, án þess að þurfa að hafa áhyggjur af reikningnum sem bíður þeirra að athöfn lokinni. Sindri Swan listamaður er stofnandi sjóðsins og hann segist vonast til að með tíð og tíma geti sjóðurinn staðið undir útfararkostnaði allra barna og unglinga hér á landi. við heyrðum í Sindra í þættinum. Við heyrðum svo reglulega skemmtilegt efni af safni RÚV, tvö innslög úr Húsmæðraþáttum sem voru í útvarpinu árið 1950. Þar gefur Helga Sigurðardóttir, sem var auðvitað landsfræg bæði fyrir matreiðslubækur sínar og svo var hún skólastjóri Húsmæðrakennaraskóla Íslands. Í þessum innslögum gefur hún góð ráð í sambandi við matseðil vikunnar og svo sunnudagsmáltíð. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Björg Jóna Birgisdóttir fyrrverandi námsstjóri í Listaháskólanum. Hún skrifaði jólasögu fyrir börn sem heitir Jólahúsið hennar Sonju, en bókin er nýkomin út. Hún sagði okkur frá bókinni og svo auðvitað frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Björg talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Saga Reykjavíkur í 1000 ár e. Guðjón Friðriksson, Eggert Þór Bernharðsson og Þorleifur Óskarsson. Laugavegur e. Önnu Dröfn Ágústsdóttur og Guðna Valberg Kristín Þorkelsdóttir e. Bryndísi Björgvinsdóttur og Birnu Geirfinnsdóttur Flórulykillinn e. Ágúst H. Bjarnason Sigurverkið e. Arnald Indriðason Vorblót e. Katrínu Jakobsdóttur Karítas án titils e. Kristínu Mörju Baldursdóttur Dimmalimm e. Mugg Kvennaklósettið e. Marilyn French Híbýli vindanna e. Böðvar Guðmundsson Bókin hans pabba (e. Birgi Ísleif Gunnarsson, kom aldrei út) Tónlist í þættinum: Bjartsýni / Ríó Tríó (Gunnar Þórðarsson, texti Jónas Friðrik Guðnason) Haustvísa / Anna Pálína Árnadóttir (Erna Tauro-Aðalsteinn Ásberg) Söngur Dimmalimmar / Gunnar Gunnarsson (Atli Heimir Sveinsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIRVilhelm Anton föstudagsgestur og matarspjall um heitt súkkulaði með Pálma Gunnars
Vilhelm Anton Jónsson, tónlistar-, sjónvarpsmaður, rithöfundur og leikari var föstudagsgesturinn okkar í dag. Villi lauk B.A. prófi í heimspeki frá Háskóla Íslands og varð þekktur undir heitinu Villi naglbítur …
Show notes
Vilhelm Anton Jónsson, tónlistar-, sjónvarpsmaður, rithöfundur og leikari var föstudagsgesturinn okkar í dag. Villi lauk B.A. prófi í heimspeki frá Háskóla Íslands og varð þekktur undir heitinu Villi naglbítur eftir hljómsveitinni 200.000 naglbítar. Einnig hefur hann verið kallaður Vísinda Villi en hann hefur skrifað barnabækur um vísindi. Vilhelm hefur einnig leikið í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum og var um nokkurra ára skeið spurningahöfundur og dómari í spurningakeppninni Gettu betur. …Umönnun aldraðra samhliða starfi, Verum viðbúin og Jónatan um Jón Múla og Jónas
Öldrun þjóðarinnar og vaxandi ummönnunarþörf aldraðra auka líkur á að starfsfólk þurfi að samræma vinnu og umönnun aldraðra foreldra. Slík ábyrgð getur haft áhrif á líðan, streitu og atvinnuþáttöku. Vala Rún …
Show notes
Öldrun þjóðarinnar og vaxandi ummönnunarþörf aldraðra auka líkur á að starfsfólk þurfi að samræma vinnu og umönnun aldraðra foreldra. Slík ábyrgð getur haft áhrif á líðan, streitu og atvinnuþáttöku. Vala Rún Magnúsdóttir nýútskrifaður meistaranemi í mannauðsstjórnun fjallaði einmitt um þetta í rannsókn í meistaraverkefni sínu. Markmið hennar var að kanna meðal annars hvaða úrræði íslensk fyrirtæki og stofnanir hafa til að styðja við starfsfólk sem annast aldraða foreldra. …Ráðgjöf við samfélagsmiðlanotkun, konur og kýr og vísindaspjall um tedrykkju
Samverustundir fara fram á Borgarbókasafninu Grófinni alla miðvikudaga milli kl. 16:00 – 18:00 í dag verður yfirskriftin Mjúkt net, þar sem allir geta komið sem vilja með símann sinn, spurningar, reynslu og …
Show notes
Samverustundir fara fram á Borgarbókasafninu Grófinni alla miðvikudaga milli kl. 16:00 – 18:00 í dag verður yfirskriftin Mjúkt net, þar sem allir geta komið sem vilja með símann sinn, spurningar, reynslu og jafnvel gremju. Þátttakendur miðla eigin þekkingu og reynslu, en einnig sérfræðingar í öryggi farsíma og í dag mun Anna Laufey Stefánsdóttir frá Stafrænni velferð, veita gestum ráðgjöf varðandi t.d. örugga símanotkun, persónuverndarstillingar, aðgangsheimildir forrita og fleira. …Nægjusamur nóvember, Evolytes stærðfræðikennsla og söfnun Bergs fyrir Ljósið
Nú er nýhafin Nægjusamur nóvember, sem Landvernd stendur fyrir í fimmta sinn. Átakið hvetur fólk til að njóta meira með því að neyta minna og er mótsvar við neysluhyggju, ekki síst nú þegar alls konar …
Show notes
Nú er nýhafin Nægjusamur nóvember, sem Landvernd stendur fyrir í fimmta sinn. Átakið hvetur fólk til að njóta meira með því að neyta minna og er mótsvar við neysluhyggju, ekki síst nú þegar alls konar tilboðsherferðir og dagar eins og t.d. Svartur föstudagur og fleiri eru fram undan. En hvað felst eiginlega í nægjusemi og hvernig getum við fundið meiri ánægju í því sem við eigum og gerum nú þegar? Í ár er áhersla lögð á þátttöku almennings með vikulegum hugmyndum og áskorunum. …Að kunna að hrósa, Sweeney Todd í Salnum og Lára V. Júlíusd. lesandi vikunnar
Við ræddum um hrós í daglegu lífi í þættinum í dag. Hvers vegna erum við ekki duglegri við að hrósa öðrum? Margrét Reynisdóttir hefur í 20 ár unnið með fyrirtækjum að þjónustu og samskiptum og hún að það sé …
Show notes
Við ræddum um hrós í daglegu lífi í þættinum í dag. Hvers vegna erum við ekki duglegri við að hrósa öðrum? Margrét Reynisdóttir hefur í 20 ár unnið með fyrirtækjum að þjónustu og samskiptum og hún að það sé talsvert algengt að fólk sem hefur unnið mjög lengi á sama vinnustað án þess að hafa nokkurn tíma heyrt eitt einasta orð um hvernig þau stæðu sig, hvað þá hrós. Svo er ekki sama hvernig við hrósum. Við ræddum við Margréti í þættinum í dag. …Birgitta Haukdal föstudagsgestur og kálbögglar og blöðrukál í matarspjallinu
Birgitta Haukdal söngkona og rithöfundur er ein af skærustu stjörnum íslenskrar tónlistar síðustu áratugi. Það má segja að símtal frá Gunnari Þórðarsyni hafi breytt lífi hennar, þegar hann bauð henni að taka …
Show notes
Birgitta Haukdal söngkona og rithöfundur er ein af skærustu stjörnum íslenskrar tónlistar síðustu áratugi. Það má segja að símtal frá Gunnari Þórðarsyni hafi breytt lífi hennar, þegar hann bauð henni að taka þátt í ABBA-sýningu á Hótel Íslandi þegar hún var aðeins 17 ára. Sýningin varð gríðarlega vinsæl og gekk lengi. Í framhaldi af því flutti hún til Reykjavíkur, en hún er fædd og uppalin á Húsavík. …Þrjátíu ára upptökur fundust á Þjóðskjalasafninu, alþjóðlegi slagdagurinn og Jónatan um Jóhann G.
3toOne tilraunaverkefnið hófst árið 1995 og því rétt um 30 ár liðin frá því þeir Egill Ólafsson, Sigurður Gröndal og Ingólfur Guðjónsson sömdu lög og spiluðu og tóku upp í tveimur sumarbústöðum. Tilefnið var …
Show notes
3toOne tilraunaverkefnið hófst árið 1995 og því rétt um 30 ár liðin frá því þeir Egill Ólafsson, Sigurður Gröndal og Ingólfur Guðjónsson sömdu lög og spiluðu og tóku upp í tveimur sumarbústöðum. Tilefnið var löngun til að skapa tónlist sem sigldi aðeins utan við meginstrauma þess tíma. …Fjármál og ADHD, Stefán og ættfræðigrúsk og vísindaspjall um svefn kóngulóa
Hvert fóru peningarnir? Þessi spurning er yfirskrift erindis sem Valdís Hrönn Berg fjárhagsmarkþjálfi heldur á málþingi ADHD samtakanna á föstudaginn. Þar talar hún um margvíslegar áskoranir þess að vera með …
Show notes
Hvert fóru peningarnir? Þessi spurning er yfirskrift erindis sem Valdís Hrönn Berg fjárhagsmarkþjálfi heldur á málþingi ADHD samtakanna á föstudaginn. Þar talar hún um margvíslegar áskoranir þess að vera með ADHD og hvernig það hefur áhrif á það hvernig við notum peninga og líður í kringum þá. Þar getur hvatvísi, gleymska, forðun og óöryggi spilað stórt hlutverk. Valdís kom í þáttinn í dag og sagði okkur betur frá þessu. Hverra manna ert þú? …Steinunn um Hallgrím og Guðríði, Ísaksskóli 100 ára og veðurspjall með Einari
Það er 40 ára vígsluafmæli Hallgrímskirkju og það er dánardægur Hallgríms Péturssonar í dag. Við heyrðum um ævi Hallgríms, ástir og átök og einnig um mikilvægi Hallgrímskirkju í dag. Steinunn Jóhannesdóttir …
Show notes
Það er 40 ára vígsluafmæli Hallgrímskirkju og það er dánardægur Hallgríms Péturssonar í dag. Við heyrðum um ævi Hallgríms, ástir og átök og einnig um mikilvægi Hallgrímskirkju í dag. Steinunn Jóhannesdóttir leikkona og rithöfundur kom í þáttnn í dag og talaði um Hallgrím og minntist líka á Guðríði, konu Hallgríms en á næsta ári verða 400 ár liðin frá Tyrkjaráninu en nú hefur bók Steinunnar „Reisubók Guðríðar“ verið þýdd yfir á ensku. …Steinunn um Hallgrím og Guðríði, Ísaksskóli 100 ára og veðurspjall með Einari
Það er 40 ára vígsluafmæli Hallgrímskirkju og það er dánardægur Hallgríms Péturssonar í dag. Við heyrðum um ævi Hallgríms, ástir og átök og einnig um mikilvægi Hallgrímskirkju í dag. Steinunn Jóhannesdóttir …
Show notes
Það er 40 ára vígsluafmæli Hallgrímskirkju og það er dánardægur Hallgríms Péturssonar í dag. Við heyrðum um ævi Hallgríms, ástir og átök og einnig um mikilvægi Hallgrímskirkju í dag. Steinunn Jóhannesdóttir leikkona og rithöfundur kom í þáttnn í dag og talaði um Hallgrím og minntist líka á Guðríði, konu Hallgríms en á næsta ári verða 400 ár liðin frá Tyrkjaráninu en nú hefur bók Steinunnar „Reisubók Guðríðar“ verið þýdd yfir á ensku. …Vala og Tyrkland, Jónas Árnason frá 1947 og Árni Friðriksson lesandi vikunnar
Vala Þórsdóttir leikkona og höfundur kom til okkar í dag, en það eru ekki margir sem vita af því að verk eftir hana hafa verið talsvert oft sett á svið í Tyrklandi alveg frá árinu 2002 þegar einleikur hennar …
Show notes
Vala Þórsdóttir leikkona og höfundur kom til okkar í dag, en það eru ekki margir sem vita af því að verk eftir hana hafa verið talsvert oft sett á svið í Tyrklandi alveg frá árinu 2002 þegar einleikur hennar Háaloft var frumsýndur í Izmir, en Háaloft hefur verið sett upp nánast árlega í Tyrklandi og er nú leikið af mjög þekktri leikkonu. …Guðmundur Andri föstudagsgestur og búðarferðanostalgía í matarspjallinu
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur. Hann hefur reynslu á mörgum sviðum, er fyrrverandi alþingismaður, var blaðamaður, ritstjóri og þáttagerðarmaður í …
Show notes
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur. Hann hefur reynslu á mörgum sviðum, er fyrrverandi alþingismaður, var blaðamaður, ritstjóri og þáttagerðarmaður í útvarpi auk þess að vera söngvari og gítarleikari í hljómsveitinni Spaðar. Við fengum hann til að fara með okkur fram og aftur í tíma, í ræturnar í Vogunum og svo á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag og fengum hann til að segja okkur frá því hvað hann er að bralla þessa dagana. …Stella í orlofi fertug, Bleikur jazz og Jónatan um Henna Rasmus
Í næsta mánuði verður blásið til afmælisveislu í Salnum í Kópavogi í tilefni þess að fjörutíu ár eru frá því kvikmyndin Stella í orlofi var frumsýnd. Stella er fertug! Þessi bráfyndna mynd hefur fylgt þjóðinni …
Show notes
Í næsta mánuði verður blásið til afmælisveislu í Salnum í Kópavogi í tilefni þess að fjörutíu ár eru frá því kvikmyndin Stella í orlofi var frumsýnd. Stella er fertug! Þessi bráfyndna mynd hefur fylgt þjóðinni í fjóra áratugi og ósjaldan er gripið í óborganlegar setningar úr myndinni eins og „ Boðið er búið, Bára er komin í bleyti og majónesan er orðin gul“, Lionsklúbburinn Kiddi með berjatýnurnar til sölu og „Fru Stella, veskan min er horfin“ og margar fleiri. …Húmanískar útfarir, Virk í starfi og vísindaspjallið um aukaverkanir þyngdarstjórnunarlyfja
Við fræddumst í dag um húmanískar eða veraldlegar útfarir eins og þær eru kallaðar hjá Siðmennt. Inga Auðbjörg K. Straumland er athafnastjóri hjá Siðmennt, við fengum hana til að segja okkur frá því hvernig þær …
Show notes
Við fræddumst í dag um húmanískar eða veraldlegar útfarir eins og þær eru kallaðar hjá Siðmennt. Inga Auðbjörg K. Straumland er athafnastjóri hjá Siðmennt, við fengum hana til að segja okkur frá því hvernig þær ganga fyrir sig, hver er munurinn á þeim og kirkjulegum útförum í þættinum í dag. VIRK stendur fyrir ráðstefnu á næstunni um það hvernig við nýtum tækifærin í forvörnum og starfsendurhæfingu til að koma í veg fyrir brottfall af vinnumarkaði og auðvelda endurkomu til vinnu. …Ráðstefna um ME o.fl. og Samfélagsgarðar
Heimsþekktir sérfræðingar sækja Ísland heim í næstu viku til að tala á ráðstefnunni Brú milli heimsálfa. Þetta eru leiðandi, innlendir og erlendir, sérfræðingar á sviði ME, langvinns Covid, umhverfisveikinda og …
Show notes
Heimsþekktir sérfræðingar sækja Ísland heim í næstu viku til að tala á ráðstefnunni Brú milli heimsálfa. Þetta eru leiðandi, innlendir og erlendir, sérfræðingar á sviði ME, langvinns Covid, umhverfisveikinda og POTS sem þar munu koma saman og miðla nýjustu þekkingu úr rannsóknum og klínísku starfi. En áhugi á þessum sjúkdómum hefur aukist verulega á síðustu árum, ekki síst í kjölfar heimsfaraldursins. Kristín Sigurðardóttir slysa- og bráðalæknir kom ásamt Helgu F. …Sæunn Kjartansdóttir og gáfaða dýrið og Birgir Tjörvi lesandi vikunnar
Hvernig stendur á því að við erum það sem við erum og gerum það sem við gerum, oft þvert á alla skynsemi? Við töluðum í dag við Sæunni Kjartansdóttur hjúkrunarfræðing og sálgreini, en hún spyr einmitt þessara …
Show notes
Hvernig stendur á því að við erum það sem við erum og gerum það sem við gerum, oft þvert á alla skynsemi? Við töluðum í dag við Sæunni Kjartansdóttur hjúkrunarfræðing og sálgreini, en hún spyr einmitt þessara spurninga og leitast við að svara þeim á námskeiði sem hún er með hjá Endurmenntun HÍ, og hún fjallaði um í bók sinni, Gáfaða dýrið, þar sem hún hjálpar lesandanum að átta sig betur á sjálfum sér og öðru fólki, skilja samskipti og samfélagið og takast á við streitu, ótta og einmanaleika. …Selma Björns föstudagsgestur og matarspjall í beinni frá Róm
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var söngkonan, leikkonan, leikstjórinn og athafnastjórinn Selma Björnsdóttir. Hún hefur auðvitað sungið fyrir þjóðina á flestum sviðum landsins, náði í annað …
Show notes
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var söngkonan, leikkonan, leikstjórinn og athafnastjórinn Selma Björnsdóttir. Hún hefur auðvitað sungið fyrir þjóðina á flestum sviðum landsins, náði í annað sætið í Eurovision og nú síðast frumsýndi hún nýja gamansýningu þar sem hún, ásamt Björk Jakobsdóttur og Sölku Sól, þær kalla þetta sketsa og uppistandssýningu með frumsömdum lögum. Sýningin Bíddu bara - Þetta reddast! …100 ára afmæli Fríkirkjuorgelsins og Jónatan Garðars um Ingimar Eydal
Í maíbyrjun árið 1926 komu til landsins með Lagarfossi 42 kassar frá Þýskalandi. Farmurinn vó 11 tonn og innihélt nýtt orgel fyrir Fríkirkjuna í Reykjavík. Uppsett kostaði hljóðfærið 41.500 krónur, andvirði …
Show notes
Í maíbyrjun árið 1926 komu til landsins með Lagarfossi 42 kassar frá Þýskalandi. Farmurinn vó 11 tonn og innihélt nýtt orgel fyrir Fríkirkjuna í Reykjavík. Uppsett kostaði hljóðfærið 41.500 krónur, andvirði tveggja einbýlishúsa, og var langstærsta hljóðfæri landsins. Það var við hæfi enda Fríkirkjan stærsta samkomuhús á landinu á þeim tíma. …Vínlaus lífstíll, tónlist Kurt Weill og vísindaspjall um hreyfingu og svefngæði
Full af lífi - vínlaus lífsstíll er nafn á námskeiði sem Gunnar Hersveinn rithöfundur og heimspekingu og Margrét Leifsdóttir arkitekt og heilsumarkþjálfi, hafa staðið fyrir. Þar fara þau yfir ýmsar leiði til að …
Show notes
Full af lífi - vínlaus lífsstíll er nafn á námskeiði sem Gunnar Hersveinn rithöfundur og heimspekingu og Margrét Leifsdóttir arkitekt og heilsumarkþjálfi, hafa staðið fyrir. Þar fara þau yfir ýmsar leiði til að lifa án áfengis, eins og þau orða það þá miðla þau lyklum til að loka dyrum og opna aðrar til betri vegar. Lára G. Sigurðardóttir læknir er gestakennari á námskeiðinu þar fer hún yfir hvaða áhrif það hefur á líkamann að hætta að drekka áfengi í fimm vikur. …
These are the latest 60 of 638 episodes. You’ll find older episodes in the podcast’s feed.
Similar podcasts
More Society & Culture podcastsIs this your podcast?
Confirm it with an entry in your feed: you get a code here, add it as podcast:txt to the channel of your feed, and we check it. Your podcast is then shown as “verified” on SoundNode.







