Pular para o conteúdo
HLAÐLIST.
PodcastArtesDesignIS

HLAÐLIST.

Novo27. Hjörtur Sigurðsson - Gervigreind á teikniborðinu9 de novembro de 2026 · 1 h 5 min
Episódios
27
Publicação
semanal
Último episódio
9 nov 2026

Sobre o podcast

Hlaðvarp um arkitektúr, skipulag og byggingargeirann. Einar og Óskar munu taka viðtöl við fólk sem hefur ólíka aðkomu að byggingargreinunum, s.s. arkitekta, verkfræðinga, verktaka, stjórnmálamenn og fleirri. Einnig munu þeir rýna í bækur og fræðigreinar tengd arkitekúr, auk vettvangsferða og heimsóknir í áhugaverð fyrirtæki og til fólks. Einar Hlér rekur arkitektastofuna Sei Studio, ásamt konunni sinni Shruthi Basappa. Óskar Örn er með doktorsgráðu í arkitektasögu frá Columbia háskóla í New York og starfar um þessar mundir hjá skipulagi Reykjavíkurborgar.

Episódios 27

  1. 27. Hjörtur Sigurðsson - Gervigreind á teikniborðinu

    1 h 5 minTemporada 1 · Episódio 27

    Gestur þáttarins er Hjörtur Sigurðsson hjá Mynstra. Mynstra er ráðgjafarfyrirtæki í gervigreind og stafrænni umbreytingu fyrir byggingariðnaðinn og vinnur meðal annars með BIM, VDC og sjálfvirknivæðingu.Óskar …

    Notas do episódio

    Gestur þáttarins er Hjörtur Sigurðsson hjá Mynstra. Mynstra er ráðgjafarfyrirtæki í gervigreind og stafrænni umbreytingu fyrir byggingariðnaðinn og vinnur meðal annars með BIM, VDC og sjálfvirknivæðingu.

    Óskar Örn Arnórsson og Einar Hlér Einarsson ræða við Hjört um gervigreind í byggingariðnaðinum. Þeir ræða hvar hún er notuð í dag og hvaða verk í hönnunarferlinu er hægt að gera sjálfvirk. Þeir ræða líka hvað hún gæti þýtt fyrir arkitekta og hvernig hönnunar- og byggingarferlið gæti litið út á næstu árum.

  2. 26. Ólöf og Atli - Borgarlínan

    58 minTemporada 1 · Episódio 26

    Ólöf Kristjánsdóttir og Atli Björn Levy gegna lykilhlutverkum í þróun Borgarlínu. Þau eru bæði samgönguverkfræðingar, Ólöf starfar hjá COWI áður Mannvit og Atli Björn er forstöðumaður verkefnastofu Borgarlínu …

    Notas do episódio

    Ólöf Kristjánsdóttir og Atli Björn Levy gegna lykilhlutverkum í þróun Borgarlínu. Þau eru bæði samgönguverkfræðingar, Ólöf starfar hjá COWI áður Mannvit og Atli Björn er forstöðumaður verkefnastofu Borgarlínu. Þau sögðu okkur frá stöðu verkefnisins, áskorunum og næstu skrefum.

  3. 25. Albína Thordarson - Sigvaldi Thordarson, arkitekt

    59 minTemporada 1 · Episódio 25

    Gestur þáttarins er Albína Thordarson arkitekt. Hún var formaður Arkitektafélags Íslands 2005–2007 og hlaut heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands árið 2025. Meðal verka hennar eru leikskólar, orlofshús og …

    Notas do episódio

    Gestur þáttarins er Albína Thordarson arkitekt. Hún var formaður Arkitektafélags Íslands 2005–2007 og hlaut heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands árið 2025. Meðal verka hennar eru leikskólar, orlofshús og Stjórnsýsluhúsið á Ísafirði, sem hún teiknaði með systur sinni, Guðfinnu Thordarson.

    Albína er dóttir Sigvalda Thordarson arkitekts (1911–1964), sem teiknaði 200–300 hús á rúmlega tveimur áratugum. Nýlega kom út bókin Sigvaldi Thordarson arkitekt eftir Albínu og Pétur H. Ármannsson hjá Hinu íslenska bókmenntafélagi.

    Óskar Örn Arnórsson og Einar Hlér Einarsson ræða við Albínu um bókina, ævi Sigvalda og mörg verka hans. Þau ræða líka Sigvaldalitina, sem setja svip á hús hans.

  4. 24. Henny Hafsteins og Sigga Maack - Teiknað af konum

    47 minTemporada 1 · Episódio 24

    Gestir þáttarins eru Sigríður Maack arkitekt og Henný Hafsteinsdóttir, minjavörður Reykjavíkur og nágrennis hjá Minjastofnun Íslands. Saman standa þær að Teiknað af konum, gagnasafni um íslenskar konur í …

    Notas do episódio

    Gestir þáttarins eru Sigríður Maack arkitekt og Henný Hafsteinsdóttir, minjavörður Reykjavíkur og nágrennis hjá Minjastofnun Íslands. Saman standa þær að Teiknað af konum, gagnasafni um íslenskar konur í arkitektúr.

    Fyrsti hluti verkefnisins er sýningin Brautryðjendur, sem var á HönnunarMars 2026 og stendur enn í Arctic Space á Óðinsgötu 7. Hún fjallar um þær 28 íslensku konur sem luku námi í arkitektúr fram til ársins 1980.

    Óskar Örn Arnórsson og Einar Hlér Einarsson ræða við þær um verkefnið, brautryðjendurna og verk þeirra.

  5. 23. Guðrún Harðardóttir - Íðorð í arkitektúr

    1 h 1 minTemporada 1 · Episódio 23

    Guðrún Harðardóttir er arkitekt sem vinnur nú m.a. að því að taka saman myndskreytta orðabók um arkitektúr á íslensku. Guðrún starfaði lengi fyrir ARGOS en hefur nýlega gangsett sína eigin arkitektastofu …

    Notas do episódio

    Guðrún Harðardóttir er arkitekt sem vinnur nú m.a. að því að taka saman myndskreytta orðabók um arkitektúr á íslensku. Guðrún starfaði lengi fyrir ARGOS en hefur nýlega gangsett sína eigin arkitektastofu, g.HARKitekt. Orðaforði í arkitektúr er langt frá því að vera fullnægjandi, mikið er um ensku- og dönskusléttur í fagmálinu og við ræðum hvernig Guðrún er að nálgast þetta verkefni frá ólíkum hliðum.

  6. 22. Roger Mullin - Prototypes for a Landscape

    52 minTemporada 1 · Episódio 22

    Roger Mullin is an architect and educator at the School of Architecture at Dalhousie University in Halifax, Nova Scotia. His work uses drawing and design-build to explore landscape, coastal communities and the …

    Notas do episódio

    Roger Mullin is an architect and educator at the School of Architecture at Dalhousie University in Halifax, Nova Scotia. His work uses drawing and design-build to explore landscape, coastal communities and the materials of industry. Between 2015 and 2018 he brought four groups of architecture students to Iceland for 12-day field trips. In 2024 he was a visiting professor at the Iceland University of the Arts.

    Óskar Örn Arnórsson and Einar Hlér Einarsson talk with Roger about his exhibition Prototypes for a Landscape at Slökkvistöðin in Gufunes. The conversation covers drawing on site in conté and ink, building at full scale, the Forest Cave at Mógilsá, and learning to read a landscape that is never neutral.

    This episode is in English.

  7. 21. Sigríður Sigþórsdóttir og Hrólfur Cela, Basalt - Baðmenning og Feneyjar 2027

    1 h 1 minTemporada 1 · Episódio 21

    Sigríður Sigþórsdóttir og Hrólfur Karl Cela reka arkitektastofuna Basalt ásamt fleirrum. Basalt er ein allra öflugasta arkitektastofa landsins með langa reynslu af ýmsum tegundum verkefna. Stofan er þekktust …

    Notas do episódio

    Sigríður Sigþórsdóttir og Hrólfur Karl Cela reka arkitektastofuna Basalt ásamt fleirrum. Basalt er ein allra öflugasta arkitektastofa landsins með langa reynslu af ýmsum tegundum verkefna. Stofan er þekktust fyrir sérkunnáttu sína í hönnun baðstaða og Sigga og Hrólfur segja okkur frá sínum verkefnum, þeirra þátttöku í Feneyjarstvíeyringnum á næsta ári og margt fleirra.

  8. 20. Ásta Logadóttir - Birta í byggingum

    1 h 7 minTemporada 1 · Episódio 20

    Ásta Logadóttir starfar sem lýsingarhönnuður hjá verkfræðistofunni Lotu og hefur tekið virkan þátt í stefnumótun og starfi tengt lýsingu á opinberum vettvangi. Ásta fer með okkur í gegnum yfir alla þætti er …

    Notas do episódio

    Ásta Logadóttir starfar sem lýsingarhönnuður hjá verkfræðistofunni Lotu og hefur tekið virkan þátt í stefnumótun og starfi tengt lýsingu á opinberum vettvangi. Ásta fer með okkur í gegnum yfir alla þætti er varða lýsingu og reglugerðir, samanburð við hin Norðurlöndin og margt fleirra.

  9. 19. Gunnar Kristjánsson - Þegar hús brenna

    1 h 7 minTemporada 1 · Episódio 19

    Grunnar Kristjánsson rekur Brunahönnun slf. og hefur verið stórtækur á sviði brunahönnunar í 30 ár. Við ræddum helstu bruna síðustu ára á Íslandi og afleiðingar þeirra, en komum einnig aðeins inn á Grenfell …

    Notas do episódio

    Grunnar Kristjánsson rekur Brunahönnun slf. og hefur verið stórtækur á sviði brunahönnunar í 30 ár. Við ræddum helstu bruna síðustu ára á Íslandi og afleiðingar þeirra, en komum einnig aðeins inn á Grenfell brunann í London, þróun innan fagsins og margt fleirra.

  10. 18. Páll Ársæll og Áróra Árnadóttir, HMS - Lífsferilsgreiningar

    49 minTemporada 1 · Episódio 18

    Í þættinum komu Páll og Áróra til okkar til þess að tala um innleiðingu lífsferilsgreininga og aðra þætti tengda umhverfismálum í byggingariðnaðinum. Páll og Áróra eru hluti af sjálfbærniteymi HMS og höfðu bæði …

    Notas do episódio

    Í þættinum komu Páll og Áróra til okkar til þess að tala um innleiðingu lífsferilsgreininga og aðra þætti tengda umhverfismálum í byggingariðnaðinum. Páll og Áróra eru hluti af sjálfbærniteymi HMS og höfðu bæði mikla reynslu í þeim geira áður en þau gengu til liðs við HMS.

  11. 17. Snædís Traustadóttir - Fornverk

    59 minTemporada 1 · Episódio 17

    Snædís Traustadóttir er lærður smiður með sérþekkingu á fornu handverki. Hún hefur fengist við ýmis verkefni, m.a. endurnýjun á þaki Landakotskirkju en hún kennir einnig námskeið í fornverki um allt land …

    Notas do episódio

    Snædís Traustadóttir er lærður smiður með sérþekkingu á fornu handverki. Hún hefur fengist við ýmis verkefni, m.a. endurnýjun á þaki Landakotskirkju en hún kennir einnig námskeið í fornverki um allt land. Snædís er um þessar mundir einnig í meistaranámi í Noregi, hún kom og sagði okkur frá því og fræddi okkur um ýmislegt er varðar gömlu aðferðirnar.

  12. 16. Ásta Birna og Stefanía, ARKIBYGG - Frá Seyðisfirði til Bíldudals

    54 minTemporada 1 · Episódio 16

    Ástíður Birna Árnadóttir og Stefanía Helga Pálmarsdóttir reka saman arkitektastofuna ARKIBYGG, sem stofnuð var árið 2020. Stofan hefur unnið til fjölda verðlauna, þrátt fyrir ungan aldur, en þær hafa einnig …

    Notas do episódio

    Ástíður Birna Árnadóttir og Stefanía Helga Pálmarsdóttir reka saman arkitektastofuna ARKIBYGG, sem stofnuð var árið 2020. Stofan hefur unnið til fjölda verðlauna, þrátt fyrir ungan aldur, en þær hafa einnig verið að vinna mikið í verkefnum á Seyðisfirði og Bíldudal og annars staðar á landinu.

  13. 15. Páll Hjaltason - Skipulag Reykjavíkur 2040

    53 minTemporada 1 · Episódio 15

    Páll Hjaltason er einn eiganda +Arkitekta og hefur komið víða við á löngum ferli. Árið 2010 var hann í 7. sæti á lista Besta flokksins og varð í kjölfarið borgarfulltrúi og formaður Skipulagsráð.Páll segir …

    Notas do episódio

    Páll Hjaltason er einn eiganda +Arkitekta og hefur komið víða við á löngum ferli. Árið 2010 var hann í 7. sæti á lista Besta flokksins og varð í kjölfarið borgarfulltrúi og formaður Skipulagsráð.

    Páll segir okkur frá tímanum í Reykjavík og m.a. frá gerð aðalskipulags Reykjavíkur 2040, sem nú er í gildi.

  14. 14. Auður Hreiðarsdóttir, ESJA - Hófleg þétting og ferðamannastaðir

    50 minTemporada 1 · Episódio 14

    Auður Hreiðarsdóttir rekur arkitektastofuna ESJA. Stofan er tiltölulega ný og var stofnuð í Danmörku í byrjun áratugarins. ESJA hefur fengist við rannsóknarverkefni, haft sigur í samkeppnum og fengist við …

    Notas do episódio

    Auður Hreiðarsdóttir rekur arkitektastofuna ESJA. Stofan er tiltölulega ný og var stofnuð í Danmörku í byrjun áratugarins. ESJA hefur fengist við rannsóknarverkefni, haft sigur í samkeppnum og fengist við ferðamannaverkefni. Við töluðum um allt þetta og margt fleirra með Auði.

  15. 13. Anna María Bogadóttir - Niðurrif

    1 h 5 minTemporada 1 · Episódio 13

    Anna María Bogadóttir er prófessor í arkitektúr við Listaháskóla Íslands. Hún rekur einnig stofuna Úrbanistan og hefur komið að útgáfu margra bóka um arkitektúr á íslensku. Við töluðum við Önnu Maríu um …

    Notas do episódio

    Anna María Bogadóttir er prófessor í arkitektúr við Listaháskóla Íslands. Hún rekur einnig stofuna Úrbanistan og hefur komið að útgáfu margra bóka um arkitektúr á íslensku. Við töluðum við Önnu Maríu um niðurrif bygginga og tengist það helst bók hennar, Jarðsetning, sem kom einnig út sem kvikmynd árið 2021.

  16. 12. Hildigunnur Sverrisdóttir - Samfella og rákun

    1 h 6 minTemporada 1 · Episódio 12

    Hildigunnur Sverrisdóttir, arkitekt og fyrrum deildarforseti arkitektúrdeildar Listaháskóla Íslands, hefur sinnt kennslu, rannsóknum og ráðgjöf í tengslum við félagspólitískt samhengi manngerðs umhverfis, m.a …

    Notas do episódio

    Hildigunnur Sverrisdóttir, arkitekt og fyrrum deildarforseti arkitektúrdeildar Listaháskóla Íslands, hefur sinnt kennslu, rannsóknum og ráðgjöf í tengslum við félagspólitískt samhengi manngerðs umhverfis, m.a. sem gestaprófessor við Yale. Í þættinum notar Hildigunnur hugmyndir Deleuze og Guattari sem linsu á íslenskt landslag, borgarskipulag og samspil markaðs- og lýðræðis. Einnig ræðir hún kennslu, rannsóknaverkefnið Turfiction og fleiri atriði.

  17. 11. Þorsteinn Gunnarsson - Kirkjur Íslands

    1 h 3 minTemporada 1 · Episódio 11

    Þorsteinn Gunnarsson, arkitekt og leikari, hefur um áratuga skeið verið í fararbroddi í rannsóknum og varðveislu íslenskra menningarminja. Hann var fyrstur Íslendinga til að sérhæfa sig í endurgerð eldri …

    Notas do episódio

    Þorsteinn Gunnarsson, arkitekt og leikari, hefur um áratuga skeið verið í fararbroddi í rannsóknum og varðveislu íslenskra menningarminja. Hann var fyrstur Íslendinga til að sérhæfa sig í endurgerð eldri bygginga og hefur m.a. komið að endurreisn Viðeyjarstofu, Nesstofu, Bessastaðastofu, Alþingishússins og Hóladómkirkju. Þorsteinn hefur verið ritstjóri ritraðarinnar Kirkjur Íslands frá upphafi, en um er að ræða 31 bindi um friðaðar kirkjur landsins. Í þættinum fer Þorsteinn yfir íslenska kirkjubyggingarsögu, allt frá torf- og timburkirkjum til steinhlaðinna og steinsteyptra kirkna.

  18. 10. Lilja Pálmadóttir - Andinn og efnið

    40 minTemporada 1 · Episódio 10

    Lilja Pálmadóttir er athafnakona og hrossabóndi á Hofi. Sem myndlistakona hefur hún einnig næmt auga fyrir byggingarlist og hefur átt frumkvæðið af því að láta reisa eða gera upp margar ólíkar byggingar, allar …

    Notas do episódio

    Lilja Pálmadóttir er athafnakona og hrossabóndi á Hofi. Sem myndlistakona hefur hún einnig næmt auga fyrir byggingarlist og hefur átt frumkvæðið af því að láta reisa eða gera upp margar ólíkar byggingar, allar í hæsta gæðaflokki. Hún kom og sagði okkur frá þessum byggingum, samstarfi sínu við arkitekta ásamt mörgu fleirru.

  19. 9. Gylfi Ólafsson - Ísafjörður og Vestfirðir

    49 minTemporada 1 · Episódio 9

    Gylfi Ólafsson var áður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða og er nú varaþingmaður Viðreisnar og oddviti Í-listans á Ísafirði, en listinn hefur verið í meirihluta þar síðan 2022. Gylfi fræðir okkur um …

    Notas do episódio

    Gylfi Ólafsson var áður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða og er nú varaþingmaður Viðreisnar og oddviti Í-listans á Ísafirði, en listinn hefur verið í meirihluta þar síðan 2022. Gylfi fræðir okkur um ástandið á innviðum í sveitarfélaginu og þróun síðustu ára, ásamt því að fara yfir sögu nokkurra af helstu byggingum bæjarins.

    Nokkrir tenglar á umfjöllun um Ísafjarðarkirkju:

    https://timarit.is/page/7360713#page/n5/mode/2up

    https://timarit.is/page/6548129#page/n17/mode/2up

    https://timarit.is/page/7346132

  20. 8. Vigfús Þór Hróbjartsson - Selfoss og skipulag

    46 minTemporada 1 · Episódio 8

    Vigfús Þór er skipulagsfulltrúi Árborgar, en hefur einnig sinnt starfi skipulagsfulltrúa á mörgum öðrum stöðum á Suðurlandi. Við förum í hlutverk skipulagsfulltrúa, miðbæ Selfossar og fleirri atriði í þættinum.

  21. 7. Magnús Skúlason - Þétting byggðar og fagurfræðin

    51 minTemporada 1 · Episódio 7

    Magnús Skúlason, arkitekt, á að baki langan og glæstan feril, bæði í einkageiranum og á opinbera sviðinu. Hann hefur starfað sem formaður byggingarnefndar Reykjavíkur, en er einnig einn af leiðtogunum í verndun …

    Notas do episódio

    Magnús Skúlason, arkitekt, á að baki langan og glæstan feril, bæði í einkageiranum og á opinbera sviðinu. Hann hefur starfað sem formaður byggingarnefndar Reykjavíkur, en er einnig einn af leiðtogunum í verndun eldri byggðar. Hann er vinsæll hjá fjölmiðlum þegar talað er um fréttir er tengjast byggingarmálum og Magnús fór yfir víðan völl í þættinum með okkur Óskari og Einari.

  22. 6. Ríkharður Kristjánsson - Verkfræði og bygginarrannsóknir

    1 h 13 minTemporada 1 · Episódio 6

    Ríkharður Kristjánsson, oft kallaður verkfræðingur Íslands, kom til okkar og fór yfir þætti úr sínum goðsagnakennda starfsferil. Við ræðum hlutverk verkfræðinga, ráðhúsið og Hörpu, selinn og sauðkindina.

  23. 5. Andri Snær Magnason - Jötunsteinn og ljótleiki

    1 h 1 minTemporada 1 · Episódio 5

    Andri Snær er þjóðþekktur rithöfundur sem gaf út bókina Jötunsteinn fyrir síðustu jól. Andri kom í spjall til okkar Óskars og sagði okkur frá þátttöku sinni í arkitektúr í gegnum tíðina, við ræddum bókina hans …

    Notas do episódio

    Andri Snær er þjóðþekktur rithöfundur sem gaf út bókina Jötunsteinn fyrir síðustu jól. Andri kom í spjall til okkar Óskars og sagði okkur frá þátttöku sinni í arkitektúr í gegnum tíðina, við ræddum bókina hans og aðra hluti sem tengjast kannski helst ljótleika í arkitektúr.

  24. 4. Hlökk Theodórsdóttir - Um Græna Gímaldið

    58 minTemporada 1 · Episódio 4

    Í þættinum segir Hlökk okkur frá grein sinni "„Græna gímaldið“ við Álfabakka– hvað segir það okkur um stjórnsýslu skipulagsmála á Íslandi?", sem birtist í tímaritinu Stjórnmál og Stjórnsýsla undir lok árs 2025 …

    Notas do episódio

    Í þættinum segir Hlökk okkur frá grein sinni "„Græna gímaldið“ við Álfabakka– hvað segir það okkur um stjórnsýslu skipulagsmála á Íslandi?", sem birtist í tímaritinu Stjórnmál og Stjórnsýsla undir lok árs 2025. Hlökk er meðal fremstu skipulagsfræðinga landsins og fer með okkur yfir sögu þessarar alræmdu byggingar ásamt öðrum málum.

    Hlekkur á greinina.

  25. 3. Arnhildur Pálmadóttir og Arnar Skarphéðinsson, S. AP - Framtíð í arkitektúr

    59 minTemporada 1 · Episódio 3

    Arnhildur Pálmadóttir og Arnar Skarphéðinsson eru uppistaðan í stofunni s. ap arkitektar. Þau hafa verið áberandi á sviði arkitektúrs síðustu ár, m.a. með verkefnið Lavaforming, sem var valið sem fulltrúi …

    Notas do episódio

    Arnhildur Pálmadóttir og Arnar Skarphéðinsson eru uppistaðan í stofunni s. ap arkitektar. Þau hafa verið áberandi á sviði arkitektúrs síðustu ár, m.a. með verkefnið Lavaforming, sem var valið sem fulltrúi Íslands á Feneyjartvíæringnum árið 2025. Einnig segja s.ap okkur frá tveimur verkefnum sem eru bæði við það að klárast, en í þeim verkefnum, Háteigsvegi 59 og Frakkastíg 1, hafa s.ap verið að ryðja brautina í því að lækka kolefnislosun bygginga.

  26. 2. Hjörleifur Stefánsson - Frá hvílíku torfi til tómrar steypu

    1 h 4 minTemporada 1 · Episódio 2

    Hjörleifur Stefánsson, arkitekt, hefur mikla reynslu af rannsóknum og skrifum um sögu bygginarlistar á Íslandi og hefur m.a. gefið út bækurnar Af jörðu og Hvílíkt torf - tóm steypa. Í þættinum leiðir Hjörleifur …

    Notas do episódio

    Hjörleifur Stefánsson, arkitekt, hefur mikla reynslu af rannsóknum og skrifum um sögu bygginarlistar á Íslandi og hefur m.a. gefið út bækurnar Af jörðu og Hvílíkt torf - tóm steypa. Í þættinum leiðir Hjörleifur okkur frá landnámi til nútímans og fer yfir öll tímabil byggingarlistarsögunnar, þ.m.t. timburhúsatímabilið.

  27. 1. Pétur Ármannsson - Gunnar Hansson og skipulag Reykjavíkur

    1 h 11 minTemporada 1 · Episódio 1

    Fyrsti þátturinn af hlaðvarpinu Hlaðlist. Óskar Örn og Einar Hlér byrja á að ræða við Pétur Ármannsson um ný útkomna bók um arkitektinn Gunnar Hansson. Einnig er talað um "skipulagsslys" í Reykjavík, ástandið á …

    Notas do episódio

    Fyrsti þátturinn af hlaðvarpinu Hlaðlist. Óskar Örn og Einar Hlér byrja á að ræða við Pétur Ármannsson um ný útkomna bók um arkitektinn Gunnar Hansson. Einnig er talað um "skipulagsslys" í Reykjavík, ástandið á bygginarmarkaði og margt fleirra.

Podcasts parecidos

Mais podcasts de Artes
Este podcast é seu?

Confirme com uma entrada no seu feed: você recebe um código aqui, adiciona como podcast:txt no canal do seu feed e nós verificamos. Depois disso, seu podcast aparece como “verificado” no SoundNode.

Configurações

Exibição

Idioma

Define quais estações você vê primeiro na página inicial.

Histórico

As rádios e episódios ouvidos recentemente e suas últimas buscas ficam só neste navegador.

Avisos

Um aviso rápido quando um podcast que você segue tem um episódio novo. Desative podcasts individuais pelo sino na página deles.

Conta

Salve favoritos – no app e no site.

Atalhos de teclado

/
Abrir busca
Espaço
Reproduzir ou pausar
← →
No player: voltar 15 s, avançar 30 s (episódios) · na fileira: próximo bloco
↑ ↓
Na fileira: alvo dentro do bloco
Home / End
Na fileira: primeiro ou último bloco
Esc
Fechar janela ou menu
?
Esta visão geral
Tocando agora

Ir para a estação

A seguir

    Adicione episódios com “A seguir” – eles tocam depois do episódio atual.