
Víðsjá
- Episódios
- 639
- Formato
- Série – ouça desde o começo
- Último episódio
- 12 nov 2026
Sobre o podcast
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána. Umsjón: Halla Harðardóttir, Tómas Ævar Ólafsson og Pétur Eggertsson.
Episódios 639
Ítalskir bíódagar, Brothætt og Þegar Trölli stal jólunum/rýni.
Ítalskir bíódagar verða í Bíó Paradís 12-14. nóvember þar sem boðið eru upp á úrval ítalskra kvikmynda, gamlar perlur í bland við nýjar raddir. Ása Baldursdóttir, dagsrkárstjóri Bíó Paradís segir frá …
Notas do episódio
Ítalskir bíódagar verða í Bíó Paradís 12-14. nóvember þar sem boðið eru upp á úrval ítalskra kvikmynda, gamlar perlur í bland við nýjar raddir. Ása Baldursdóttir, dagsrkárstjóri Bíó Paradís segir frá fjölbreyttri dagskrá helgarinnar í Víðsjá dagsins, sem lituð er ítölskum tónum. Þriðji og síðasti ritúalinn í verkaseríu Steinunnar Knúts, Brothætt fer fram í Dómkirkjunni í kvöld. Ritúalinn nefnist Fyrirgefningin og er settur saman úr nafnlausum játningum frá almenningi sem verða fluttar af hinsegin kórnum og hljómsveitinni Evu í formi víxlsöngs. Víðsjá hitti Steinunni og Völu Höskuldsdóttur tónskáld í kirkjunni sem segja frá þeim heilandi mætti sem felst í því að játa brot sín og fyrirgefa sér og öðrum. Þá fáum við leikhúsrýni, Sjöfn Asare skellti sér í Borgarleikhúsið, á nýja uppfærsu sígildrar jólasögu Dr. Seuss, Þegar Trölli stal jólunum. Sjöfn lýsir sinni upplifun á græna sérvitringnum sem þolir illa jólin og ráðabruggi hans í þætti dagsins.Ítalskir bíódagar, Brothætt og Þegar Trölli stal jólunum/rýni.
Ítalskir bíódagar verða í Bíó Paradís 12-14. nóvember þar sem boðið eru upp á úrval ítalskra kvikmynda, gamlar perlur í bland við nýjar raddir. Ása Baldursdóttir, dagsrkárstjóri Bíó Paradís segir frá …
Notas do episódio
Ítalskir bíódagar verða í Bíó Paradís 12-14. nóvember þar sem boðið eru upp á úrval ítalskra kvikmynda, gamlar perlur í bland við nýjar raddir. Ása Baldursdóttir, dagsrkárstjóri Bíó Paradís segir frá fjölbreyttri dagskrá helgarinnar í Víðsjá dagsins, sem lituð er ítölskum tónum. Þriðji og síðasti ritúalinn í verkaseríu Steinunnar Knúts, Brothætt fer fram í Dómkirkjunni í kvöld. Ritúalinn nefnist Fyrirgefningin og er settur saman úr nafnlausum játningum frá almenningi sem verða fluttar af hinsegin kórnum og hljómsveitinni Evu í formi víxlsöngs. Víðsjá hitti Steinunni og Völu Höskuldsdóttur tónskáld í kirkjunni sem segja frá þeim heilandi mætti sem felst í því að játa brot sín og fyrirgefa sér og öðrum. Þá fáum við leikhúsrýni, Sjöfn Asare skellti sér í Borgarleikhúsið, á nýja uppfærsu sígildrar jólasögu Dr. Seuss, Þegar Trölli stal jólunum. Sjöfn lýsir sinni upplifun á græna sérvitringnum sem þolir illa jólin og ráðabruggi hans í þætti dagsins.Guðmundur Lúðvík hönnuður / Svipmynd
Í Víðsjá dagsins munum við tala um stól. Hvað gerir góðan stól, hvernig hannar maður stól og hvernig fer hann í framleiðslu? „ Stóllinn þarf að vera hæglátur og hógvær, og bara virka.Hann má ekki öskra; hér er …
Notas do episódio
Í Víðsjá dagsins munum við tala um stól. Hvað gerir góðan stól, hvernig hannar maður stól og hvernig fer hann í framleiðslu? „ Stóllinn þarf að vera hæglátur og hógvær, og bara virka.Hann má ekki öskra; hér er ég og sjáið mig. Því ef það standa hundrað stólar í rými og allir eru að öskra og æpa þá verða svo mikil læti.“ Þetta segir Guðmundur Lúðvík sem var á dögunum tilnefndur til Hönnunarverðlauna íslands fyrir Backflip stólinn sem hann hannaði í samstarfi við danska hönnunarfyrirtækið HAY. Og það má segja að hér lýsi hann hinni skandinavísku fagurfræði sem hófst dönsku módernistunum þar sem notagildi, einfaldleiki og efnisval skiptir öllu máli. Guðmundur Lúðvík hefur búið og starfað í Danmörku frá aldamótum, þar sem hann lærði hönnun við konunglegu akademínuna. Áður hafði hann lært smíði og myndlist hér heima. Guðmundur Lúðvík er gestur Víðsjár í Svipmynd og segir frá áhuga sínum á fellistólum sem hófst þegar hann var í vinnunni með mömmu sinni tíu ára gamall. Við ræðum einnig menntunina sem var allskonar, fyrirmyndir úr fjölskyldunni, danskan hönnunarheim og lífið í Vejle.Guðmundur Lúðvík hönnuður / Svipmynd
Í Víðsjá dagsins munum við tala um stól. Hvað gerir góðan stól, hvernig hannar maður stól og hvernig fer hann í framleiðslu? „ Stóllinn þarf að vera hæglátur og hógvær, og bara virka.Hann má ekki öskra; hér er …
Notas do episódio
Í Víðsjá dagsins munum við tala um stól. Hvað gerir góðan stól, hvernig hannar maður stól og hvernig fer hann í framleiðslu? „ Stóllinn þarf að vera hæglátur og hógvær, og bara virka.Hann má ekki öskra; hér er ég og sjáið mig. Því ef það standa hundrað stólar í rými og allir eru að öskra og æpa þá verða svo mikil læti.“ Þetta segir Guðmundur Lúðvík sem var á dögunum tilnefndur til Hönnunarverðlauna íslands fyrir Backflip stólinn sem hann hannaði í samstarfi við danska hönnunarfyrirtækið HAY. Og það má segja að hér lýsi hann hinni skandinavísku fagurfræði sem hófst dönsku módernistunum þar sem notagildi, einfaldleiki og efnisval skiptir öllu máli. Guðmundur Lúðvík hefur búið og starfað í Danmörku frá aldamótum, þar sem hann lærði hönnun við konunglegu akademínuna. Áður hafði hann lært smíði og myndlist hér heima. Guðmundur Lúðvík er gestur Víðsjár í Svipmynd og segir frá áhuga sínum á fellistólum sem hófst þegar hann var í vinnunni með mömmu sinni tíu ára gamall. Við ræðum einnig menntunina sem var allskonar, fyrirmyndir úr fjölskyldunni, danskan hönnunarheim og lífið í Vejle.Jón Kalmann og gotneska.
Vakir þú? nefnist ný skáldsaga úr smiðju Jóns Kalmans Stefánssonar. Þetta er verk sem gerist í samtímanum en líka við upphaf tímatals okkar. Sagan segir frá manni sem er að koma sér fyrir í íbúð á …
Notas do episódio
Vakir þú? nefnist ný skáldsaga úr smiðju Jóns Kalmans Stefánssonar. Þetta er verk sem gerist í samtímanum en líka við upphaf tímatals okkar. Sagan segir frá manni sem er að koma sér fyrir í íbúð á Bræðraborgarstíg og bíður þar eftir komu pípara til að setja upp nýtt klósett en hún grípur líka niður í ævisögu Jesú Krists á mótunarárum sínum, rétt áður en hann gengur nánast fullskapaður inn á svið Guðspjallanna. Við ræðum við Jón Kalmann í þættinum. Haukur þorgeirsson, málfræðingur og sérfræðingur hjá Árnastofnun, flytur erindi um gotnesku í pistlaröð um forn tungumál og tengsl þeirra við okkar ylhýru íslensku.Jón Kalmann og gotneska.
Vakir þú? nefnist ný skáldsaga úr smiðju Jóns Kalmans Stefánssonar. Þetta er verk sem gerist í samtímanum en líka við upphaf tímatals okkar. Sagan segir frá manni sem er að koma sér fyrir í íbúð á …
Notas do episódio
Vakir þú? nefnist ný skáldsaga úr smiðju Jóns Kalmans Stefánssonar. Þetta er verk sem gerist í samtímanum en líka við upphaf tímatals okkar. Sagan segir frá manni sem er að koma sér fyrir í íbúð á Bræðraborgarstíg og bíður þar eftir komu pípara til að setja upp nýtt klósett en hún grípur líka niður í ævisögu Jesú Krists á mótunarárum sínum, rétt áður en hann gengur nánast fullskapaður inn á svið Guðspjallanna. Við ræðum við Jón Kalmann í þættinum. Haukur þorgeirsson, málfræðingur og sérfræðingur hjá Árnastofnun, flytur erindi um gotnesku í pistlaröð um forn tungumál og tengsl þeirra við okkar ylhýru íslensku.Vísur Svantes, Fullkomnun og Dagar löngunar
Höfundurinn Svante Svendsen er sköpunarverk danska rithöfundarins Benny Andersen en nú á dögunum kom út þýðing á geysivinsælli bók og plötu um skáldið sem nefnist Vísur Svantes, en þar er saga skáldsins sögð og …
Notas do episódio
Höfundurinn Svante Svendsen er sköpunarverk danska rithöfundarins Benny Andersen en nú á dögunum kom út þýðing á geysivinsælli bók og plötu um skáldið sem nefnist Vísur Svantes, en þar er saga skáldsins sögð og vísum hans gerð skil í riti og söng. Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, rithöfundur, tónlistarmaður og útgefandi þýðir, spilar og stendur að útgáfunni, hann verður gestur Víðsjár í dag. Fullkomnun eftir Vincenzo Latronico kom út á Ítaliu 2022 og hefur farið sigurför um heiminn. Í bókinni segir Latronico sögu ungs pars sem eyðir mikilli orku í að gera umhverfi sitt fallegt og deila þeirri fegurð á samfélagsmiðlum. Þau vinna á netinu og hafa komið sér fyrir í Berlín þar sem þau leita hamingjunnar í rótlausum heimi sem veltur fyrst og síðast á lögmálum markaðarins. Við hér í Víðsjá höfum verið með hugann við þessa bók og munum í næstu viku fjalla um hana með ítarlegum hætti. En Fullkomnun er óður til annarar skáldsögu sem kom út árið 1965 í Frakklandi: Hlutirnir eftir George Perec. Við kynnum okkur hana í þætti dagsins. Sölva Halldórsson rýnir að þessu sinni í bókina Dagar löngunar eftir hinn indverska Nirmal Verma í þýðingu Gyrðis Elíassonar.Vísur Svantes, Fullkomnun og Dagar löngunar
Höfundurinn Svante Svendsen er sköpunarverk danska rithöfundarins Benny Andersen en nú á dögunum kom út þýðing á geysivinsælli bók og plötu um skáldið sem nefnist Vísur Svantes, en þar er saga skáldsins sögð og …
Notas do episódio
Höfundurinn Svante Svendsen er sköpunarverk danska rithöfundarins Benny Andersen en nú á dögunum kom út þýðing á geysivinsælli bók og plötu um skáldið sem nefnist Vísur Svantes, en þar er saga skáldsins sögð og vísum hans gerð skil í riti og söng. Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, rithöfundur, tónlistarmaður og útgefandi þýðir, spilar og stendur að útgáfunni, hann verður gestur Víðsjár í dag. Fullkomnun eftir Vincenzo Latronico kom út á Ítaliu 2022 og hefur farið sigurför um heiminn. Í bókinni segir Latronico sögu ungs pars sem eyðir mikilli orku í að gera umhverfi sitt fallegt og deila þeirri fegurð á samfélagsmiðlum. Þau vinna á netinu og hafa komið sér fyrir í Berlín þar sem þau leita hamingjunnar í rótlausum heimi sem veltur fyrst og síðast á lögmálum markaðarins. Við hér í Víðsjá höfum verið með hugann við þessa bók og munum í næstu viku fjalla um hana með ítarlegum hætti. En Fullkomnun er óður til annarar skáldsögu sem kom út árið 1965 í Frakklandi: Hlutirnir eftir George Perec. Við kynnum okkur hana í þætti dagsins. Sölva Halldórsson rýnir að þessu sinni í bókina Dagar löngunar eftir hinn indverska Nirmal Verma í þýðingu Gyrðis Elíassonar.Bedroom Community 20 ára, Elías Rúni um Fyrsta skiptið, Míkadó/rýni, 27/rýni
Breiðholtið er kannski ekki fyrsti staðurinn sem fólki dettur í hug þegar hugað er að suðupotti íslenskrar tónlistar, en í Seljahverfi hefur um árabil verið rekið hljóðver, Gróðurhúsið, þar sem margir af …
Notas do episódio
Breiðholtið er kannski ekki fyrsti staðurinn sem fólki dettur í hug þegar hugað er að suðupotti íslenskrar tónlistar, en í Seljahverfi hefur um árabil verið rekið hljóðver, Gróðurhúsið, þar sem margir af fremstu tónlistarmönnum heims hafa komið og unnið að sinni tónlist, þar á meðal Björk, Sigur Rós, Damon Albarn, Brian Eno og Kanye West. Valgeir Sigurðsson, tónlistarmaður og upptökustjóri kom hljóðverinu á laggirnar í upphafi 21. aldar og út frá starfseminni spratt tónlistarútgáfan Bedroom Community. Útgáfan fagnar 20 ára starfsafmæli og Valgeir reifar sögu hennar í þætti dagsins. Elías Rúni hefur um árabil starfað sem teiknari og myndlýsir og hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir. Í sinni nýjustu bók, sjálfsævisögulegu myndasögunni Fyrsta skiptið, er hann á mun persónulegri nótum en áður. Þar segir Elías söguna af því að koma út sem trans og lýsir sorginni og gleðinni sem sú umbreyting felur í sér. Elías er gestur Víðsjár undir lok þáttar. Trausti Ólafsson rýnir í óperuna 27 og Gréta Sigríður Einarsdóttir rýnir í skáldsögu Gerðar Kristnýjar, Míkadó.Bedroom Community 20 ára, Elías Rúni um Fyrsta skiptið, Míkadó/rýni, 27/rýni
Breiðholtið er kannski ekki fyrsti staðurinn sem fólki dettur í hug þegar hugað er að suðupotti íslenskrar tónlistar, en í Seljahverfi hefur um árabil verið rekið hljóðver, Gróðurhúsið, þar sem margir af …
Notas do episódio
Breiðholtið er kannski ekki fyrsti staðurinn sem fólki dettur í hug þegar hugað er að suðupotti íslenskrar tónlistar, en í Seljahverfi hefur um árabil verið rekið hljóðver, Gróðurhúsið, þar sem margir af fremstu tónlistarmönnum heims hafa komið og unnið að sinni tónlist, þar á meðal Björk, Sigur Rós, Damon Albarn, Brian Eno og Kanye West. Valgeir Sigurðsson, tónlistarmaður og upptökustjóri kom hljóðverinu á laggirnar í upphafi 21. aldar og út frá starfseminni spratt tónlistarútgáfan Bedroom Community. Útgáfan fagnar 20 ára starfsafmæli og Valgeir reifar sögu hennar í þætti dagsins. Elías Rúni hefur um árabil starfað sem teiknari og myndlýsir og hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir. Í sinni nýjustu bók, sjálfsævisögulegu myndasögunni Fyrsta skiptið, er hann á mun persónulegri nótum en áður. Þar segir Elías söguna af því að koma út sem trans og lýsir sorginni og gleðinni sem sú umbreyting felur í sér. Elías er gestur Víðsjár undir lok þáttar. Trausti Ólafsson rýnir í óperuna 27 og Gréta Sigríður Einarsdóttir rýnir í skáldsögu Gerðar Kristnýjar, Míkadó.Guðjón Ketilsson, Högni Egilsson og Straumur
Á einkasýningu Guðjóns Ketilssonar, Spor, í Ásmundarsal mætast fjórir verkhlutar sem ekki hafa verið sýndir áður; teikningar, hversdagslegir fundnir hlutir, olíukrítarteikningar og stækkuð fingraför …
Notas do episódio
Á einkasýningu Guðjóns Ketilssonar, Spor, í Ásmundarsal mætast fjórir verkhlutar sem ekki hafa verið sýndir áður; teikningar, hversdagslegir fundnir hlutir, olíukrítarteikningar og stækkuð fingraför. Sameiginlegur kjarni verkanna felst í því hvernig hugsun, nærvera og skynjun taka á sig sýnilega og efnislega mynd og skilja eftir sig ummerki. Við hittum Guðjón í Ásmundarsal í þætti dagsins. Stórverkið ANOK eftir Högna Egilsson verður frumflutt í Hallgrímskirkju á föstudaginn. Verkið er samið fyrir kór, orgel og slagverk og sækir innblástur í apókrýf rit frumkristni, meðal annars textann Þrumuna: Fullkomnum hug og Tómasarguðspjall. Högni verður gestur okkar í hljóðstofu. Íslenski dansflokkurinn frumsýndi síðastliðinn föstudag verkið Straum, sem samanstendur af fjórum verkum eftir ólíka höfunda. Trausti Ólafsson rýnir í flutninginn.Guðjón Ketilsson, Högni Egilsson og Straumur
Á einkasýningu Guðjóns Ketilssonar, Spor, í Ásmundarsal mætast fjórir verkhlutar sem ekki hafa verið sýndir áður; teikningar, hversdagslegir fundnir hlutir, olíukrítarteikningar og stækkuð fingraför …
Notas do episódio
Á einkasýningu Guðjóns Ketilssonar, Spor, í Ásmundarsal mætast fjórir verkhlutar sem ekki hafa verið sýndir áður; teikningar, hversdagslegir fundnir hlutir, olíukrítarteikningar og stækkuð fingraför. Sameiginlegur kjarni verkanna felst í því hvernig hugsun, nærvera og skynjun taka á sig sýnilega og efnislega mynd og skilja eftir sig ummerki. Við hittum Guðjón í Ásmundarsal í þætti dagsins. Stórverkið ANOK eftir Högna Egilsson verður frumflutt í Hallgrímskirkju á föstudaginn. Verkið er samið fyrir kór, orgel og slagverk og sækir innblástur í apókrýf rit frumkristni, meðal annars textann Þrumuna: Fullkomnum hug og Tómasarguðspjall. Högni verður gestur okkar í hljóðstofu. Íslenski dansflokkurinn frumsýndi síðastliðinn föstudag verkið Straum, sem samanstendur af fjórum verkum eftir ólíka höfunda. Trausti Ólafsson rýnir í flutninginn.Dauðadæmd, Natasha S., Varkár/rýni
„Mig langaði til að sýna fram á þá seiglu sem konur bjuggu yfir. Að elta draumana og tilfinningarnar. Láta ekki berja sig niður, þrátt fyrir allt,“ segir Guðný Hallgrímsdóttir sagnfræðingur sem gaf nýverið út …
Notas do episódio
„Mig langaði til að sýna fram á þá seiglu sem konur bjuggu yfir. Að elta draumana og tilfinningarnar. Láta ekki berja sig niður, þrátt fyrir allt,“ segir Guðný Hallgrímsdóttir sagnfræðingur sem gaf nýverið út bókina Dauðadæmd. Í bókinni rekur Guðný sögu Oddnýjar Jónsdóttur, vinnukonu úr Skagafirði sem var 1775 dæmd fyrir dulsmál. Refsingin var að hún skyldi hálshöggvast og höfuðið sett á stjaka. „Þegar ég opnaði dómabækurnar og dró upp allan þennan vitnisburð og mynd af sveitinni, þá varð þetta bara svo mögnuð saga, og þetta var svo magnað óréttlæti.“ Guðný verður gestur okkar í Víðsjá dagsins. Og við heyrum fleiri kvennasögur því Natasha S. fjallar um þungbæra reynslu sína af heilbrigðiskerfinu hér á landi. Það var ekki fyrr en hún ferðaðist aftur til landsins sem hún flúði, Rússlands, sem á hana var hlustað og áralangir verkir hurfu. Og að lokum fjallar Gréta Sigríður Einarsdóttir um fyrstu skáldsögu Margrétar Bjarnadóttur, Varkár, sem byggir á reynslu höfundar af sárri þrá eftir barni.Dauðadæmd, Natasha S., Varkár/rýni
„Mig langaði til að sýna fram á þá seiglu sem konur bjuggu yfir. Að elta draumana og tilfinningarnar. Láta ekki berja sig niður, þrátt fyrir allt,“ segir Guðný Hallgrímsdóttir sagnfræðingur sem gaf nýverið út …
Notas do episódio
„Mig langaði til að sýna fram á þá seiglu sem konur bjuggu yfir. Að elta draumana og tilfinningarnar. Láta ekki berja sig niður, þrátt fyrir allt,“ segir Guðný Hallgrímsdóttir sagnfræðingur sem gaf nýverið út bókina Dauðadæmd. Í bókinni rekur Guðný sögu Oddnýjar Jónsdóttur, vinnukonu úr Skagafirði sem var 1775 dæmd fyrir dulsmál. Refsingin var að hún skyldi hálshöggvast og höfuðið sett á stjaka. „Þegar ég opnaði dómabækurnar og dró upp allan þennan vitnisburð og mynd af sveitinni, þá varð þetta bara svo mögnuð saga, og þetta var svo magnað óréttlæti.“ Guðný verður gestur okkar í Víðsjá dagsins. Og við heyrum fleiri kvennasögur því Natasha S. fjallar um þungbæra reynslu sína af heilbrigðiskerfinu hér á landi. Það var ekki fyrr en hún ferðaðist aftur til landsins sem hún flúði, Rússlands, sem á hana var hlustað og áralangir verkir hurfu. Og að lokum fjallar Gréta Sigríður Einarsdóttir um fyrstu skáldsögu Margrétar Bjarnadóttur, Varkár, sem byggir á reynslu höfundar af sárri þrá eftir barni.Gerður Kristný, Páll Ragnar og Tui Hirv og Púðlusafnið
Hjónin Páll Ragnar Pálsson og Tui Hirv hafa lagt margt á vogaskálar íslensks tónlistarlífs í getnum tíðina en hafa ekki áður gert heila plötu í sameiningu. Skífan Layers, sem inniheldur blöndu af eistneskum …
Notas do episódio
Hjónin Páll Ragnar Pálsson og Tui Hirv hafa lagt margt á vogaskálar íslensks tónlistarlífs í getnum tíðina en hafa ekki áður gert heila plötu í sameiningu. Skífan Layers, sem inniheldur blöndu af eistneskum, íslenskum, skandinavískum og enskum þjóðlögum, kom út á dögunum og Páll og Tui mættu í hljóðstofu til að segja frá samstarfinu, ferlinu og hvernig rætur þeirra úr pönki og kórastarfi birtast í tónlistinni. "Líf mitt var eins og að spila míkadó þar sem hver prjónninn var veiddur á fætur öðrum án þess að hrúgan hryndi." Stendur aftan á skáldsögunni Míkadó sem rithöfundurinn Gerður Kristný var að senda frá sér en í verkinu fáum við að kynnast fjölskyldu á erfiðum tímamótum í gegnum sjónarhorn 11 ára stúlku. Gerður Kristný kemur í hljóðstofu og segir frá bókinni. Púðlusafnið er nýtt sviðsverk sem sýnt er á fjölum Tjarnarbíós. Verkið er samið og flutt af systrunum Olgu Sonju og Salóme Sól, og er það innblásið af bókinni Night Bitch eftir Rachel Yoder. Sjöfn Asare gerði sér ferð á Púðlusafnið og segir frá í þættinum.Loftur Guðmundsson í Bíóteki, Þunnt skæni á logandi vök, Veisla þrjú/rýni
Þunnt skæni á logandi vök, ný kammerópera eftir þær Hildigunni Rúnarsdóttur og Magneu J. Matthíasdóttur verður flutt í Norðurljósum Hörpu á laugardag á Óperudögum. Óperan byggir á þeim eldsumbrotum sem við …
Notas do episódio
Þunnt skæni á logandi vök, ný kammerópera eftir þær Hildigunni Rúnarsdóttur og Magneu J. Matthíasdóttur verður flutt í Norðurljósum Hörpu á laugardag á Óperudögum. Óperan byggir á þeim eldsumbrotum sem við höfum lifað við undanfarin ár og er samin í samtali við Magneu en ljóð hennar fjallar um eldinn í iðrum jarðar en einnig eldinn umhverfis okkur, tortýmingaraflið sem fylgir honum en einnig sköpunarkraftinn. Við heyrum í þeim Hildigunni og Magneu í þætti dagsins. Við kynnum okkur einnig einn af frumkvöðlum íslenskrar kvikmyndagerðar, Loft Guðmundsson, með Gunnar Tómasi Kristóferssyni, sérfræðingi hjá Kvikmyndasafni Íslands, en verk Lofts verða sýnd í Bíótekinu í Bíó Paradís um helgina. Og Sölvi Halldórssson rýnir í nýjustu skáldsögu Steinunnar Sigurðardóttur, Veislu þrjú.Loftur Guðmundsson í Bíóteki, Þunnt skæni á logandi vök, Veisla þrjú/rýni
Þunnt skæni á logandi vök, ný kammerópera eftir þær Hildigunni Rúnarsdóttur og Magneu J. Matthíasdóttur verður flutt í Norðurljósum Hörpu á laugardag á Óperudögum. Óperan byggir á þeim eldsumbrotum sem við …
Notas do episódio
Þunnt skæni á logandi vök, ný kammerópera eftir þær Hildigunni Rúnarsdóttur og Magneu J. Matthíasdóttur verður flutt í Norðurljósum Hörpu á laugardag á Óperudögum. Óperan byggir á þeim eldsumbrotum sem við höfum lifað við undanfarin ár og er samin í samtali við Magneu en ljóð hennar fjallar um eldinn í iðrum jarðar en einnig eldinn umhverfis okkur, tortýmingaraflið sem fylgir honum en einnig sköpunarkraftinn. Við heyrum í þeim Hildigunni og Magneu í þætti dagsins. Við kynnum okkur einnig einn af frumkvöðlum íslenskrar kvikmyndagerðar, Loft Guðmundsson, með Gunnar Tómasi Kristóferssyni, sérfræðingi hjá Kvikmyndasafni Íslands, en verk Lofts verða sýnd í Bíótekinu í Bíó Paradís um helgina. Og Sölvi Halldórssson rýnir í nýjustu skáldsögu Steinunnar Sigurðardóttur, Veislu þrjú.Aldrei las ég Laxness / Íslandsklukkan II
Í Víðsjá dagsins klárum við yfirferð okkar á Íslandsklukkunni í bókaklúbbnum Aldrei las ég Laxness. En í síðustu viku hófum við yfirferðina með leikkonunni og skemmtikraftinum Söndru Barilli. Íslandsklukkan kom …
Notas do episódio
Í Víðsjá dagsins klárum við yfirferð okkar á Íslandsklukkunni í bókaklúbbnum Aldrei las ég Laxness. En í síðustu viku hófum við yfirferðina með leikkonunni og skemmtikraftinum Söndru Barilli. Íslandsklukkan kom út í þremur bindum árin 1943-1946 og segir hrakfallasögu Jóns Hreggviðssonar, rekur pólitískt tilhugalíf Snæfríðar Íslandssólar en fer einnig ofan í saumana á handritasöfnun Arnasar Arneusar.Kristín Ómarsdóttir, hinÓperan 27, Bíddu bara þetta reddast/rýni
„Ég fór að finna það mjög snemma eftir að ég ákvað að verða óperusöngkona að óperurnar sem er verið að flytja um allan heim á þessum stóru sviðum eru oft mjög einsleitar. Og ég fór að spyrja mig hvort að ég …
Notas do episódio
„Ég fór að finna það mjög snemma eftir að ég ákvað að verða óperusöngkona að óperurnar sem er verið að flytja um allan heim á þessum stóru sviðum eru oft mjög einsleitar. Og ég fór að spyrja mig hvort að ég ætti heima í óperuheiminum sem hinsegin söngkona,“ segir Íris Björk Gunnarsdóttir söngkona og framleiðandi hjá hinÓpera, nýs óperukompanís sem hefur það að markmiði að skapa óperulist sem endurspeglar samfélagið eins og það er. Hópurinn frumsýnir óperuna 27 í Borgarleikhúsinu á föstudag en hún segir ástarsögu eins frægasta bóhemapars 20. aldarinnar: Gertrude Stein og Alice B Toklas. Íris Björk, Herdís Anna Jónasdóttir og Matthildur Anna Gísladóttir eru gestir Víðsjár í dag, þar sem þær segja frá verkinu og syngja einn ástardúett. Einnig verður rætt við Kristínu Ómarsdóttur um Móðurást: Lausnargjaldið og Sjöfn Asare rýnir í sýninguna Bíddu bara; þetta reddast sem sýnd er í Bæjarbíói.Kristín Ómarsdóttir, hinÓperan 27, Bíddu bara þetta reddast/rýni
„Ég fór að finna það mjög snemma eftir að ég ákvað að verða óperusöngkona að óperurnar sem er verið að flytja um allan heim á þessum stóru sviðum eru oft mjög einsleitar. Og ég fór að spyrja mig hvort að ég …
Notas do episódio
„Ég fór að finna það mjög snemma eftir að ég ákvað að verða óperusöngkona að óperurnar sem er verið að flytja um allan heim á þessum stóru sviðum eru oft mjög einsleitar. Og ég fór að spyrja mig hvort að ég ætti heima í óperuheiminum sem hinsegin söngkona,“ segir Íris Björk Gunnarsdóttir söngkona og framleiðandi hjá hinÓpera, nýs óperukompanís sem hefur það að markmiði að skapa óperulist sem endurspeglar samfélagið eins og það er. Hópurinn frumsýnir óperuna 27 í Borgarleikhúsinu á föstudag en hún segir ástarsögu eins frægasta bóhemapars 20. aldarinnar: Gertrude Stein og Alice B Toklas. Íris Björk, Herdís Anna Jónasdóttir og Matthildur Anna Gísladóttir eru gestir Víðsjár í dag, þar sem þær segja frá verkinu og syngja einn ástardúett. Einnig verður rætt við Kristínu Ómarsdóttur um Móðurást: Lausnargjaldið og Sjöfn Asare rýnir í sýninguna Bíddu bara; þetta reddast sem sýnd er í Bæjarbíói.Hrund Atla á Mokka, persnesk mál, Atómstöðin, Högg
Á sýningunni Allt í klessu á Mokka, sýnir Hrund Atla 28 verk unnin með olíupastel litum á flauelispappír. Hrund hefur lengi starfað á mörkum myndlistar og kvikmyndagerðar en eftir að hafa unnið lengi framan við …
Notas do episódio
Á sýningunni Allt í klessu á Mokka, sýnir Hrund Atla 28 verk unnin með olíupastel litum á flauelispappír. Hrund hefur lengi starfað á mörkum myndlistar og kvikmyndagerðar en eftir að hafa unnið lengi framan við tölvuna segist hún finna frelsi í því að leggja aðeins tækninni og sofa ein í tjaldi uppi á hálendi með skissubók. Við mælum okkur mót við Hrund yfir kaffibolla á Mokka. Haukur Þorgeirsson málfræðingur og pistlahöfundur, heldur áfram að ræða frænkur íslenskunnar. Að þessu sinni skoðar hann persnesk tungumál en á ferðalagi sínu mun hann einnig gaumgæfa boðskap Saraþústra spámanns. Næsta skáldsaga í bókaklúbbnum Aldrei las ég Laxness verður hin umdeilda Atómstöð. Við gröfum upp gamlan hugleiðingarpistil Margrétar Björnsdóttur frá Neistastöðumum um Atómstöðina í þættinum. Karl Ágúst Þorbergsson, leikhúsrýnir, segir frá sýningunni Högg eftir James Graham sem sýnd er um þessar mundir í Þjóðleikhúsinu.Úkraínskir íkonar, nýjar plötuútgáfur, Undir sömu stjörnu/rýni
Listasafn Íslands opnaði um liðna helgi sýninguna Þar sem ljósið lifir: Úkraínskar helgimyndir í aldanna rás. Þar gefur að líta fjölda íkona frá 12 og fram á 19 öld, úr safneign Listasafns Úkraínu í Kænugarði …
Notas do episódio
Listasafn Íslands opnaði um liðna helgi sýninguna Þar sem ljósið lifir: Úkraínskar helgimyndir í aldanna rás. Þar gefur að líta fjölda íkona frá 12 og fram á 19 öld, úr safneign Listasafns Úkraínu í Kænugarði. Þetta er í fyrsta sinn sem þessi einstöku listaverk eru sýnd utan heimalandsins. Við heyrum í Ingibjörgu Jóhannsdóttur safnstjóra í þætti dagsins Nýstofnuð þjóðarópera hóf formlega göngu sína á dögunum í Hofi á Akureyri og heldur tónlega víðsvegar um landið á næstu vikum. Trausti Ólafsson, leikhúsrýnir Víðsjár var staddur fyrir norðan um liðna helgi og mætti á þennan merkisviðburð Það er heilmikil vinna sem fellst í því að vekja athygli á sér sem tónlistarmaður í umhverfi sem gerir miklar kröfur til markaðs og kynningarmála, þar sem pönkarar jafnt og popparar þurfa að tileinka sér tungumál viðskiptaheimsins. Hugsjónin er ávallt drifkraftur tónlistarútgáfu en það getur verið gagnlegt að hafa ákveðinn merkimiða - eða label – sem sameinar stefnur, hópa, eða tíðaranda. Tvær nýjar plötuútgáfur skutu upp kollinum í sumar, plata og blaðran. Víðsjá kynnir sér starfsemi þeirra í þættinum.Aldrei las ég Laxness / Íslandsklukkan I
Í Víðsjá dagsins höldum við áfram með bókaklúbbinn okkar; Aldrei las ég Laxness. Skáldsaga dagsins er stórvirkið Íslandsklukkan sem kom út í þremur bindum árin 1943-1946 og segir hrakfallasögu Jóns …
Notas do episódio
Í Víðsjá dagsins höldum við áfram með bókaklúbbinn okkar; Aldrei las ég Laxness. Skáldsaga dagsins er stórvirkið Íslandsklukkan sem kom út í þremur bindum árin 1943-1946 og segir hrakfallasögu Jóns Hreggviðssonar, rekur pólitískt tilhugalíf Snæfríðar Íslandssólar en fer einnig ofan í saumana á handritasöfnun Arnasar Arneusar. Gestur Aldrei las ég Laxness að þessu sinni er Sandra Barilli, leikkona og skemmtikraftur. Grafík: Silvía Sif ÓlafsdóttirKarólína Rós um Lífskán, Brotnar línur/rýni, Djöflar/rýni
Lífskán nefnist ljóðsaga úr smiðju Karólínu Rósar Ólafsdóttur en hún fjallar um líkamann, tungumálið og manneskjuna andspænis heilbrigðiskerfinu. Sjúkdómsgreind kona, kaldur læknir og hömlulaus þýðandi eiga þar …
Notas do episódio
Lífskán nefnist ljóðsaga úr smiðju Karólínu Rósar Ólafsdóttur en hún fjallar um líkamann, tungumálið og manneskjuna andspænis heilbrigðiskerfinu. Sjúkdómsgreind kona, kaldur læknir og hömlulaus þýðandi eiga þar stórleik þar sem þau reyna að greiða úr þéttum vef tungumála og tákna mismunandi kerfa. Karólína verður gestur okkar í þætti dagsins. Sölvi Halldórsson rýnir í Brotnar línur eftir Védísi Evu Guðmundsdóttur. Karl Ágúst Þorbergsson rýnir í Djöfla eftir Lars Norén í Borgarleikhúsinu.Brynhildur Þorgeirsdóttir, Natasha S./pistill, Fasteignamartröðin/rýni
„ Sko. Þegar maður er orðin 71 árs fyrirvinnulaus myndhöggvari, sem fær tæpar 39 þúsund krónur frá lífeyrissjóðnum á mánuði og á fullt að listaverkum á lager, þá þarf að grípa til einhverra ráða,“ segir …
Notas do episódio
„ Sko. Þegar maður er orðin 71 árs fyrirvinnulaus myndhöggvari, sem fær tæpar 39 þúsund krónur frá lífeyrissjóðnum á mánuði og á fullt að listaverkum á lager, þá þarf að grípa til einhverra ráða,“ segir Brynhildur Þorgeirsdóttir myndhöggvari en hún opnaði sýningu á Korpúlfsstöðum um liðna helgi. Þar gefur að líta að líta höggmyndir frá löngum ferli en Brynhildur sýnir ekki eingöngu verk því hún hefur í raun fært alla vinnustofuna sína inná Korpúlfsstaði. Og þetta er ekki bara heimildasýning sem veitir innsýn í ævistarf Brynhildar heldur er þetta einnig sölusýning, þar sem Brynhildur kynnir til leiks nýja viðskiptahugmynd: “Buy my art before I die”. Meira um það í Víðsjá dagsins. Natasha S. flytur fyrsta pistil í seríu um endurtekningu og Sjöfn Asare rýnir í Fasteignamartröðina sem Leikfélag Akureyrar sýnir um þessar mundir.Sally Rooney, Hugvekja um söfn og samfélag, Ókunnugt fólk/rýni
Ætti Þjóðminjasafnið að kaupa úlpu sem Ágústa Johnson reynir að selja á facebook? Af hverju gengur illa að varðveita torfbæi? Eru söfn í nægu samtali við samtímann? Þetta eru nokkrar þeirra fjölmörgu spurninga …
Notas do episódio
Ætti Þjóðminjasafnið að kaupa úlpu sem Ágústa Johnson reynir að selja á facebook? Af hverju gengur illa að varðveita torfbæi? Eru söfn í nægu samtali við samtímann? Þetta eru nokkrar þeirra fjölmörgu spurninga sem dúkka upp við lestur bókarinnar Hugvekjur um söfn og samfélag eftir Sigurjón Baldur Hafsteinsson, prófessor í safnafræði. Þar tekur hann saman skrif frá þrjátíu ára ferli, en í bókinni eru ekki eingöngu fræðilegar pælingar heldur einnig persónuleg afstaða þar sem höfundur teflir fram gagnrýnum viðhorfum sem fara um víðan völl. Greinarnar snerta á menntun, eignarhaldi, inngildingu, ferðaþjónustu og sjálfbærni svo eitthvað sé nefnt. Við ræðum við Sigurjón Baldur i þætti dagsins. Við kynnum okkur einnig mál írska rithöfundarins Sally Rooney, en bækur hennar hafa verið teknar úr sölu í Bretlandi vegna stuðnings hennar við Palestine Action. Og Gauti Kristmannsson rýnir í Ókunnugt fólk eftir Björn Halldórsson.Konur í ljósmyndun, Halldór Eldjárn og kliðharpa, Húsið hlýskeið/rýni
Halldóri Eldjárn er margt til lista lagt og virðist vera forvitinn um allt, en kannski sérstaklega allt sem tengist hljóði og rafmagni. Þessi tvö áhugasvið hans sameinast í hljóðfærum sem hann hefur dundað sér …
Notas do episódio
Halldóri Eldjárn er margt til lista lagt og virðist vera forvitinn um allt, en kannski sérstaklega allt sem tengist hljóði og rafmagni. Þessi tvö áhugasvið hans sameinast í hljóðfærum sem hann hefur dundað sér við að smíða frá grunni upp á síðkastið, rafpípuorgeli og rafhörpu, og sem koma við sögu á tónleikasýningu í kvöld. VIð heimsækjum Halldór í þætti dagsins. Einnig er rætt við þær Æsu Sigurjónsdóttur og Sigrúnu Ölbu Sigurðardóttur um konur í ljósmyndun en út er komin bókin Striving for indipendence, Nordic Women Studio Photograpers 1860-1920. Sölvi Halldórsson rýnir í Húsið hlýskeið eftir Hjálmar Sveinsson.Jórunn Viðar og tónlist haustsins
Við hugum að haustlegri tónlist með tónlistarmanninum Pétri Ben og þá sérstaklega plötunni Time (The Revelator) sem bandarísku tónlistarmennirnir Gillian Welch og David Rawlings sendu frá sér árið 2001. Pétur …
Notas do episódio
Við hugum að haustlegri tónlist með tónlistarmanninum Pétri Ben og þá sérstaklega plötunni Time (The Revelator) sem bandarísku tónlistarmennirnir Gillian Welch og David Rawlings sendu frá sér árið 2001. Pétur Eggertsson ræðir við Árna Heimi um nýútkomna ævisögu Jórunnar Viðar, en Jórunn kom víða við á ferlinum og samdi margar helstu perlur íslenskra tónbókmennta - en ævi hennar hefur ekki áður verið gerð jafn ítarleg skil þrátt fyrir þau miklu áhrif sem hún hafði á tónlistarlífið.Jórunn Viðar og tónlist haustsins
Við hugum að haustlegri tónlist með tónlistarmanninum Pétri Ben og þá sérstaklega plötunni Time (The Revelator) sem bandarísku tónlistarmennirnir Gillian Welch og David Rawlings sendu frá sér árið 2001. Pétur …
Notas do episódio
Við hugum að haustlegri tónlist með tónlistarmanninum Pétri Ben og þá sérstaklega plötunni Time (The Revelator) sem bandarísku tónlistarmennirnir Gillian Welch og David Rawlings sendu frá sér árið 2001. Pétur Eggertsson ræðir við Árna Heimi um nýútkomna ævisögu Jórunnar Viðar, en Jórunn kom víða við á ferlinum og samdi margar helstu perlur íslenskra tónbókmennta - en ævi hennar hefur ekki áður verið gerð jafn ítarleg skil þrátt fyrir þau miklu áhrif sem hún hafði á tónlistarlífið.Svört orkídea, Sex ed, Öld ímyndunaraflsins og Fegursta blómið
Fegursta blómið er breiðskífa sem tónskáldið Helgi Rafn Ingvarsson sendir frá sér á næstunni. Á plötunni vefur hann tónlist sína saman við texta eftir rómantísk, módernísk og gleymd skáld. Í upphafsverkinu …
Notas do episódio
Fegursta blómið er breiðskífa sem tónskáldið Helgi Rafn Ingvarsson sendir frá sér á næstunni. Á plötunni vefur hann tónlist sína saman við texta eftir rómantísk, módernísk og gleymd skáld. Í upphafsverkinu Fegursta blómið fléttar hann til dæmis saman textabrotum úr skáldsögum Halldórs Laxness við kórflutning Schola Cantorum. Platan er væntanleg á streymisveitur á á vínyl. Bergur Ebbi gef nýverið frá sér bók sem kallast Öld ímyndunaraflsins, þar sem gervigreindin er meðal annars viðfangsefnið, en bókin er hugmyndaferðalag um nútímann, nýliðna sögu og framtíðina, eins og segir á bókakápu. Gréta Sigríður Einarsdóttir rýnir í verkið í þætti dagsins. Við heyrum einnig leikhúsrýni, en Sjöfn Asare Hauksdóttir fór á kynfræðslukarnivalið Sex Ed sem sýnt er í Borgarleikhúsinu. Ljóðabókin Svört Orkídea eftir hina færeysku Vónbjörtu Vang hlaut Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs í fyrra. Bókin er þriðja ljóðabók Vang, en áður hafa komið út Millumlendingar 2011, og Djúpini 2017. Það er vestfirska bókaútgáfan Skriða sem gefur út Svarta Orkídeu, og Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir sem þýddi. Rætt er við Móheiði í þættinum.
Aqui estão os 60 episódios mais recentes de 639. Os mais antigos estão no feed do podcast.
Podcasts parecidos
Mais podcasts de ArtesEste podcast é seu?
Confirme com uma entrada no seu feed: você recebe um código aqui, adiciona como podcast:txt no canal do seu feed e nós verificamos. Depois disso, seu podcast aparece como “verificado” no SoundNode.







