
Besta platan
- Episodes
- 291
- Released
- every two weeks
- Latest episode
- Nov 6, 2026
About the podcast
Þáttur þar sem bestu plötur hljómsveita og tónlistarfólks eru ræddar. Snæbjörn Ragnarsson og dr. Arnar Eggert Thoroddsen höfðu umsjón með þáttum #0001 - #0100. Haukur Viðar Alfreðsson og dr. Arnar hafa haft umsjón frá og með þætti #0101. Baldur Ragnarsson stýrir þættinum.
Episodes 291
#0304 Testament - Practice What You Preach
Fimmta „stóra“ þrassbandið? Um það má deila en í öllu falli kann kálhorníska hljómsveitin sína list upp á tíu - og gott betur. Ferill hinnar máttugu Testament fer hér undir smásjá BP og ýmislegt fróðlegt var …
Show notes
Fimmta „stóra“ þrassbandið? Um það má deila en í öllu falli kann kálhorníska hljómsveitin sína list upp á tíu - og gott betur. Ferill hinnar máttugu Testament fer hér undir smásjá BP og ýmislegt fróðlegt var þar að finna.
Fylgið Bestu plötunni á öllum helstu hlaðvarpsveitum og takið þátt í umræðunni á Besta platan – Umræðuhópur
Viltu heyra meira? Kíktu á okkur inni á Patreon.#0302 Neil Young - After The Gold Rush
Það er gaman og gott að ganga á hólm við risana endrum og eins og hér er einn slíkur, maður sem slær hvergi af eftir meira en sextíu ár í bransanum. Neil Young er sólkerfi út af fyrir sig og að mörgu að huga …
Show notes
Það er gaman og gott að ganga á hólm við risana endrum og eins og hér er einn slíkur, maður sem slær hvergi af eftir meira en sextíu ár í bransanum. Neil Young er sólkerfi út af fyrir sig og að mörgu að huga eins og heyra má…
Fylgið Bestu plötunni á öllum helstu hlaðvarpsveitum og takið þátt í umræðunni á Besta platan – Umræðuhópur
Viltu heyra meira? Kíktu á okkur inni á Patreon.#0300 BP300: Yanni
Alveg frá upphafi hefur bókstaflega RIGNT inn fyrirspurnum um það hvenær við ætlum eiginlega að taka fyrir gríska hjartaknúsarann Yanni. Nú er komið að því! Ef þið fáið ekki nóg af Bestu plötunni, verið þá með …
Show notes
Alveg frá upphafi hefur bókstaflega RIGNT inn fyrirspurnum um það hvenær við ætlum eiginlega að taka fyrir gríska hjartaknúsarann Yanni. Nú er komið að því!
Ef þið fáið ekki nóg af Bestu plötunni, verið þá með okkur á Patreon og fáið þátt í hverri viku!#0298 Bonnie Tyler - Faster Than The Speed Of Night
Bonnie heitin Tyler aflaði mikilla vinsælda á sinni tíð sökum kraftmikillar, rámrar raddar, sem þótti minna á sjálfan Rod Stewart. BP-teymið vottar þessari gegnheilu dívu virðingu sína í vönduðum þætti sem …
Show notes
Bonnie heitin Tyler aflaði mikilla vinsælda á sinni tíð sökum kraftmikillar, rámrar raddar, sem þótti minna á sjálfan Rod Stewart. BP-teymið vottar þessari gegnheilu dívu virðingu sína í vönduðum þætti sem skæðasti sólmyrkvi gæti ekki unnið á.
Fylgið Bestu plötunni á öllum helstu hlaðvarpsveitum og takið þátt í umræðunni á Besta platan – Umræðuhópur
Viltu heyra meira? Kíktu á okkur inni á Patreon.#0296 Todmobile – Todmobile
Todmobile er með allra merkilegustu poppsveitum Íslandssögunnar, bræðingur sveitarinnar á straumum og stefnum sem á pappír áttu ekki að geta átt samleið gerðu það samt í meðförum þessa framsýna þríeykið. Toppi …
Show notes
Todmobile er með allra merkilegustu poppsveitum Íslandssögunnar, bræðingur sveitarinnar á straumum og stefnum sem á pappír áttu ekki að geta átt samleið gerðu það samt í meðförum þessa framsýna þríeykið. Toppi var náð á plötu númer tvö, samnefndri sveitinni. Eða hvað?
Fylgið Bestu plötunni á öllum helstu hlaðvarpsveitum og takið þátt í umræðunni á Besta platan – Umræðuhópur
Viltu heyra meira? Kíktu á okkur inni á Patreon.#0294 Violent Femmes – Violent Femmes
Eru til skemmtilegri, hressari, meira lífsfyllandi, brjálaðri, pönkaðri, hamingjusamari, hræðilegri, melódískari og hreint og beint sturlaðri frumburðir en fyrsta plata bandarísku þjóðlagapönksveitarinnar …
Show notes
Eru til skemmtilegri, hressari, meira lífsfyllandi, brjálaðri, pönkaðri, hamingjusamari, hræðilegri, melódískari og hreint og beint sturlaðri frumburðir en fyrsta plata bandarísku þjóðlagapönksveitarinnar Violent Femmes? Varla…
Fylgið Bestu plötunni á öllum helstu hlaðvarpsveitum og takið þátt í umræðunni á Besta platan – Umræðuhópur
Viltu heyra meira? Kíktu á okkur inni á Patreon.#0292 Gunnar Þórðarson (1945–2026)
Fótspor, handbragð og hugsun meistara Gunnars Þórðarssonar liggur bókstaflega út um allt er kemur að íslenskri tónlistarmenningu. Við BP-liðar vottum honum hér virðingu okkar. Fylgið Bestu plötunni á öllum …
Show notes
Fótspor, handbragð og hugsun meistara Gunnars Þórðarssonar liggur bókstaflega út um allt er kemur að íslenskri tónlistarmenningu. Við BP-liðar vottum honum hér virðingu okkar. Fylgið Bestu plötunni á öllum helstu hlaðvarpsveitum og takið þátt í umræðunni á Besta platan – Umræðuhópur
Viltu heyra meira? Kíktu á okkur inni á Patreon.#0290 The Doors – Strange Days
Fáar rokksveitir í sögunni hafa verið jafn áhrifaríkar, dýrkaðar og umdeildar og The Doors. Þar hélt Jim Morrison nokkur um hljóðnema og lak kynþokkinn af hverri sellu hans og það strítt. Besta plata …
Show notes
Fáar rokksveitir í sögunni hafa verið jafn áhrifaríkar, dýrkaðar og umdeildar og The Doors. Þar hélt Jim Morrison nokkur um hljóðnema og lak kynþokkinn af hverri sellu hans og það strítt. Besta plata sveitarinnar er plata tvö, Strange Days, og er það doktorinn sem fer fram með það val og er það ekki nema sæmilega umdeilt.
#0288 Ariana Grande – Dangerous Woman
Gleymið Adele, Sam Smith og Rihönnu. Þegar kemur að hreinræktuðum sönghæfileikum eru þessar poppstjörnur eins og kófdrukknir, trallandi fjósamenn á sveitaballi í samanburði við Ariönu Grande. Nei, þeir eru ekki …
Show notes
Gleymið Adele, Sam Smith og Rihönnu. Þegar kemur að hreinræktuðum sönghæfileikum eru þessar poppstjörnur eins og kófdrukknir, trallandi fjósamenn á sveitaballi í samanburði við Ariönu Grande. Nei, þeir eru ekki margir poppararnir sem skáka henni á söngsviðinu. En hvernig er músíkin?
#0286 Van Halen – Van Halen
Van Halen gerði út frá Kálfatjörníu og er ein algerasta rokksveit sögunnar. Það er allt þarna mætti segja, hæðir, lægðir, partístand, vitleysisgangur, linnulaus ranaímokstur og svo að sjálfsögðu trukkandi rokk …
Show notes
Van Halen gerði út frá Kálfatjörníu og er ein algerasta rokksveit sögunnar. Það er allt þarna mætti segja, hæðir, lægðir, partístand, vitleysisgangur, linnulaus ranaímokstur og svo að sjálfsögðu trukkandi rokk og ról sem á fáa sína líka …
#0284 Avril Lavigne – Let Go
Popppönkprinsessan Avril Lavigne toppaði sig tónlistarlega strax á fyrstu breiðskífunni, Let Go (2002). Áhrif hennar sem poppmenningaríkons eru mikil og farið verður í saumana á því öllu saman í brimafullum þætti…
#0282 Nýdönsk – Himnasending
Popptónlist 9. áratugarins var af mörgum talin yfirborðskennd, einnota og vélræn. Það var því sannkölluð „himnasending“ að fá Nýdönsk fram á sjónarsviðið undir lok eitísins. Tónlistin var vönduð, listræn og …
Show notes
Popptónlist 9. áratugarins var af mörgum talin yfirborðskennd, einnota og vélræn. Það var því sannkölluð „himnasending“ að fá Nýdönsk fram á sjónarsviðið undir lok eitísins. Tónlistin var vönduð, listræn og leitandi. Grípandi án þess að vera eitthvað blöðrupopp. Fullorðna fólkið var mætt í partíið.
#0280 Faith No More – Angel Dust
Ein merkasta jaðarþungarokkssveit allra tíma, Faith No More, er á borði Bestu plötunnar þessa vikuna. Sitt sýnist hverjum um uppsöfnuð afrek hennar og voru umræðurnar fróðlegar svo ekki sé meira sagt!
#0278 Angine de Poitrine – Vol. II
Doppóttu míkrótónal-gosarnir í Angine de Poitrine voru óþekkt stærð í upphafi árs. Rúmum mánuði síðar voru þeir á allra vörum — og hæpið stendur enn yfir. En er eitthvað í þessu? Taktu þátt í umræðunni á Besta …
Show notes
Doppóttu míkrótónal-gosarnir í Angine de Poitrine voru óþekkt stærð í upphafi árs. Rúmum mánuði síðar voru þeir á allra vörum — og hæpið stendur enn yfir. En er eitthvað í þessu?
Taktu þátt í umræðunni á Besta platan - Umræðuhópur.
Styddu við Bestu plötuna, komdu í áskrift á Patreon og fáðu tvöfalt fleiri þætti.#0277 Frímínútur – Björgvin Halldórsson (1951–2026)
Í þessum þætti heiðrum við minningu hins eina sanna Björgvins Halldórssonar sem varð bráðkvaddur á heimili sínu í Hafnarfirði þann 9. apríl síðastliðinn. Blessuð sé minning þessa risa íslenskrar dægurtónlistar.
#0276 Nick Drake – Pink Moon
Nick Drake lést langt fyrir aldur fram, hafandi ekki hugmynd um þau áhrif sem stuttur tónlistarferill hans myndi hafa á fjölmargar kynslóðir á eftir honum. Þriðja og síðasta platan hans, Pink Moon frá 1972, er …
Show notes
Nick Drake lést langt fyrir aldur fram, hafandi ekki hugmynd um þau áhrif sem stuttur tónlistarferill hans myndi hafa á fjölmargar kynslóðir á eftir honum. Þriðja og síðasta platan hans, Pink Moon frá 1972, er sú besta.
Athugið að í þessum þætti er fjallað um sjálfsvíg. Ef einstaklingar glíma við sjálfsvígshugsanir er bent á hjálparsíma Rauða krossins 1717 og netspjall Rauða krossins á 1717.is.#0275 Killing Joke – Night Time
Killing Joke er ein ógurlegasta síðpönksveit sögunnar, algerlega einstök mætti segja, og áhrifarík fyrir allan peninginn. Að velja hina poppuðu „Night Time“ sem bestu plötuna mun strjúka einhverjum öfugt en …
Show notes
Killing Joke er ein ógurlegasta síðpönksveit sögunnar, algerlega einstök mætti segja, og áhrifarík fyrir allan peninginn. Að velja hina poppuðu „Night Time“ sem bestu plötuna mun strjúka einhverjum öfugt en gefum BP-liðum færi á að útskýra sitt mál (doktornum aðallega).#0274 Frímínútur – Tónleikatryllingur
Það er hægt að hjakka endalaust í einhverjum plötum, en að þessu sinni ákváðu þáttastjórnendur að rifja upp bestu tónleika sem þeir hafa sótt. Þrír topp-5 listar og ekkert rugl. Gleðilega páska!
#0273 Lenny Kravitz – Mama Said
Lenny Kravitz er ekki bara tónlistarmaður, hann er einslags fyrirbæri, menningarlegt skurðgoð, rokkið holdið klætt og bætið endilega við lýsingum eftir smekk. Hann toppaði hljóðversplötulega séð á annarri plötu …
Show notes
Lenny Kravitz er ekki bara tónlistarmaður, hann er einslags fyrirbæri, menningarlegt skurðgoð, rokkið holdið klætt og bætið endilega við lýsingum eftir smekk. Hann toppaði hljóðversplötulega séð á annarri plötu sinni, Mama Said, en það má sosum deila um það val og það er nákvæmlega það sem við erum að fara að gera.
#0272 Phil Collins – No Jacket Required
Platan No Jacket Required frá 1985 átti stóran þátt í því að gera Phil Collins að einni allra holdugustu poppskepnu 10. áratugarins. Hún er jafnframt sú besta frá Phil.
#0271 Frímínútur – „Animal“ Andy
Í þættinum um Wham!/George Michael bærðust vangaveltur um það hvort að eina sólóplata hins helmings dúettsins, Andrew Ridgeley (Son of Albert, 1990), væri mögulega það besta sem hafi komið frá Wham! meðlimi í …
Show notes
Í þættinum um Wham!/George Michael bærðust vangaveltur um það hvort að eina sólóplata hins helmings dúettsins, Andrew Ridgeley (Son of Albert, 1990), væri mögulega það besta sem hafi komið frá Wham! meðlimi í sólóefnum. Ákveðið var, þá og þar, að gera rannsókn á málinu og hún skilaði sér í þessum þætti. Varúð: Farið inn á eigin ábyrgð.
#0270 Mastodon – Leviathan
Atlanta-sveitin Mastodon þvertekur fyrir það að vera kölluð þungarokkssveit, en er þrátt fyrir það eftirlæti margra er kenna sig við metalinn. Við förum í saumana á þessu ferlíki í þætti vikunnar.
#0269 Spice Girls – Spice
Trúir því einhver að einungis Bítlarnir skáka Spice Girls hvað ýmsan árangur í vinældalistaklifri varðar? Eftir miðjan tíunda áratuginn kom þessi stúlknasveit inn í poppheima sem stormsveipur og næstu ár voru …
Show notes
Trúir því einhver að einungis Bítlarnir skáka Spice Girls hvað ýmsan árangur í vinældalistaklifri varðar? Eftir miðjan tíunda áratuginn kom þessi stúlknasveit inn í poppheima sem stormsveipur og næstu ár voru undirlögð af æði sem aldrei hafði áður sést - nema kannski í tilfelli Bítlaæðisins. Hér verður farið yfir þessa hluti alla auk þess sem doktorinn stillir frumburði Kryddpíanna fram sem þeirra besta árangri á breiðskífusviðinu.
#0268 Pet Shop Boys – Behaviour
Rafdúettinn Pet Shop Boys hefur selt meira en 100 milljón plötur á heimsvísu, en þeirra gjöfulasta tímabil var níundi áratugurinn. Þar var hins vegar ekki fyrr en árið 1990 sem þeir sendu frá sér sína bestu …
Show notes
Rafdúettinn Pet Shop Boys hefur selt meira en 100 milljón plötur á heimsvísu, en þeirra gjöfulasta tímabil var níundi áratugurinn. Þar var hins vegar ekki fyrr en árið 1990 sem þeir sendu frá sér sína bestu plötu, hina angurværu Behaviour.
#0267 Aerosmith – Toys in the Attic
Aerosmith er ein algerasta rokksveit sem heimurinn hefur séð. Sukkið, melódíurnar, riffin, fötin, frægðarflug, niðurbrot og upprisa, þetta er allt þarna. Doktorinn telur bandið hafa toppað á þriðju plötu sinni …
Show notes
Aerosmith er ein algerasta rokksveit sem heimurinn hefur séð. Sukkið, melódíurnar, riffin, fötin, frægðarflug, niðurbrot og upprisa, þetta er allt þarna. Doktorinn telur bandið hafa toppað á þriðju plötu sinni, Toys in the Attic (1975), en félagar hans tóku þeirri niðurstöðu ekki þegjandi.
#0266 Frímínútur – Besta Besta platan II: Hlustendaval
Í beinu framhaldi af síðustu Frímínútum, þá leyfðum við hlustendum að velja bestu plötuna af öllum þeim sem við höfum fjallað um í gegnum tíðina. Í þessum þætti gerum við þetta upp.
#0265 Frímínútur – Besta Besta platan
Frá því að fyrsti þátturinn fór í loftið haustið 2019 hafa um 220 plötur hlotið titilinn „Besta platan“. En hver af þessum plötum er raunverulega best?
#0264 Wham!/George Michael – Faith
George Michael var eitt mesta poppstirni heims, satt og sannað og það með löggildum pappírum. Í þættinum gerum við úttekt á mögnuðum ferli þessa mikla meistara og kippum poppbrjálæðinu Wham! einnig um borð …
Show notes
George Michael var eitt mesta poppstirni heims, satt og sannað og það með löggildum pappírum. Í þættinum gerum við úttekt á mögnuðum ferli þessa mikla meistara og kippum poppbrjálæðinu Wham! einnig um borð þegar við metum hámarksárangur meistarans á plötugerðarsviðinu.
#0263 Devo – Oh, No! It's Devo
Artí og ögrandi? Kjánalegt grall? Undur með einn smell? Undir hvaða hatt er best að setja Devo?
#0262 Robbie Williams – I've Been Expecting You
Robbie Williams er vægast sagt skrautlegur náungi. En er eitthvað varið í þessa músík?
These are the latest 40 of 291 episodes. You’ll find older episodes in the podcast’s feed.
Similar podcasts
More Music podcastsIs this your podcast?
Confirm it with an entry in your feed: you get a code here, add it as podcast:txt to the channel of your feed, and we check it. Your podcast is then shown as “verified” on SoundNode.







