Skip to content
Fílalag

Fílalag

NewThese Days – Smurstöð sexunnarMay 29, 2026 · 1 h 8 min
Episodes
371
Released
every two weeks
Latest episode
May 29, 2026

About the podcast

Fílalag er hlaðvarp um tónlist. Á hverjum föstudegi senda þeir Snorri Helgason og Bergur Ebbi frá sér nýjan þátt þar sem dægurlag er tekið fyrir og fílað í ræmur. Í fíluninni felst að greina menningarleg fyrirbæri sem eru kynnt í laginu, tískustrauma í hljómi og tíðaranda í framsetningu. Farið er um víðan völl og fjallar þátturinn um poppmenningu í stærra samhengi. Um málið er ekkert meira að segja. Fílið þetta bara og fokk svo off.

Episodes 371

  1. These Days – Smurstöð sexunnar

    1 h 8 min

    Nico – These Days Bleiki pardusinn settur í hrærivél og stappaður niður í bleikt vax sem bráðnar í lavalampa sem varpar bjarma á kríthvít kinnbein sem tróna á stalli rúllukragabolskraga sem er svartari en …

    Show notes
    Nico – These Days Bleiki pardusinn settur í hrærivél og stappaður niður í bleikt vax sem bráðnar í lavalampa sem varpar bjarma á kríthvít kinnbein sem tróna á stalli rúllukragabolskraga sem er svartari en gljáandi gítarnöglin í hendi unglingsins sem svífur í gegnum móðuna með sama andvara og fleytti Ódysseifi að hjara veraldar og til […]
  2. Ljósvíkingurinn – Hann er útilegumaðurinn

    1 h 15 min

    Mugison – Ljósvíkingur KFC-sokkin augu horfa á þig úr Mount Rushmore Almannagjáar. Þú gengur ekki einn. Fjallageit jarmar yfir heiðarlönd. Þú hlýðir ekki einn. Skynfæri spennt, kroppurinn kaldur. Upp úr dalnum …

    Show notes
    Mugison – Ljósvíkingur KFC-sokkin augu horfa á þig úr Mount Rushmore Almannagjáar. Þú gengur ekki einn. Fjallageit jarmar yfir heiðarlönd. Þú hlýðir ekki einn. Skynfæri spennt, kroppurinn kaldur. Upp úr dalnum líður reykur. Þú gengur ekki einn. Ljósið. Eldsneytið. Krafturinn.
  3. DARE – Stafrænt camouflage

    1 h 7 min

    Gorillaz ft. Shaun Ryder – DARE Alþjóðavæðing. Nótt. Flókið. Casio hljómborð. Þreyttur um kvöld. Teikna. Heimurinn er án hjarta en það má spartsla upp í holur hér og þar. Það má glærlakka yfir óskapnaðinn og …

    Show notes
    Gorillaz ft. Shaun Ryder – DARE Alþjóðavæðing. Nótt. Flókið. Casio hljómborð. Þreyttur um kvöld. Teikna. Heimurinn er án hjarta en það má spartsla upp í holur hér og þar. Það má glærlakka yfir óskapnaðinn og gefa stílleysinu hjúp kúls. Það eru bara til þrír til fjórir persónuleikar. Við höldum að við séum allskonar en þegar […]
  4. Betri tíð – Listin að lifa í stuði

    1 h 6 min

    Stuðmenn – Betri tíð Kýrnar leika við kvurn sinn fíngur. Ananas-hlunkum sturtað niður úr flugvél sem stýrt er af flugkappa í terlin-buxum. Laugardalslaug fyllt lakkrís-konfekti. Í stúkunni hvítir komma-kroppar …

    Show notes
    Stuðmenn – Betri tíð Kýrnar leika við kvurn sinn fíngur. Ananas-hlunkum sturtað niður úr flugvél sem stýrt er af flugkappa í terlin-buxum. Laugardalslaug fyllt lakkrís-konfekti. Í stúkunni hvítir komma-kroppar. Í kvöld förum við á fílum til Skatmandú. Nepjan. Norpið. Puðið. Stuðið. Hor í nös, allar bragðtegundir regnbogans. Fuglinn sýngur. Sumarið er komið. Svona á það […]
  5. Movin’ on Up – Öskur úr iðrum jarðar

    54 min

    Primal Scream – Movin’ on Up Það er gott í vændum á nýju ári. Seiðkarlinn hrærir í potti og dregur upp lukkulegan spádóm handa þér væni minn. Þú munt stækka á nýju ári, vaxa um eitt númer, komast á næsta borð …

    Show notes
    Primal Scream – Movin’ on Up Það er gott í vændum á nýju ári. Seiðkarlinn hrærir í potti og dregur upp lukkulegan spádóm handa þér væni minn. Þú munt stækka á nýju ári, vaxa um eitt númer, komast á næsta borð tölvuleiksins. Heill sé þér himnafaðir og allir jarðálfar púkalands því þessi stÆKKUN er mannkyni […]
  6. Ef ég nenni – Ávöxtur í augnhæð

    1 h 12 min

    Helgi Björns – Ef ég nenni Slyddugremjan, rokið í hausnum, myrkrið í sálinni. Bless á þetta allt. Sýrustigið í maganum, slátturinn í brjóstinu, munnangrið. Verið þið sæl. Stundum þarf bara að taka stærstu …

    Show notes
    Helgi Björns – Ef ég nenni Slyddugremjan, rokið í hausnum, myrkrið í sálinni. Bless á þetta allt. Sýrustigið í maganum, slátturinn í brjóstinu, munnangrið. Verið þið sæl. Stundum þarf bara að taka stærstu gangstéttarhelluna og keyra hana í gegnum kjallaragluggann til að opna fyrir flæðið, andrýmið og orkuna. Helg eru jól, heilög sé sól, sú […]
  7. Come On, Let’s Go – Kommon. Letsgó.

    50 min

    Ritchie Valens – Come On, Let’s Go Hér fer fram hugmyndafræðileg fílun á andkvíðalyfinu sem gengið hefur undir nafninu rokk og ról. Farið er í frumfílun á fyrsta útgefna lagi Ritchie Valens sem hann samdi og …

    Show notes
    Ritchie Valens – Come On, Let’s Go Hér fer fram hugmyndafræðileg fílun á andkvíðalyfinu sem gengið hefur undir nafninu rokk og ról. Farið er í frumfílun á fyrsta útgefna lagi Ritchie Valens sem hann samdi og tók upp þegar hann var sextán ára gamall og hefur hinn mergjaða titil: “Come On, Let’s Go”. “Öllu er […]
  8. Brown Eyed Girl – Frum-fenið

    1 h 14 min

    Van Morrison – Brown Eyed Girl George W. Bush í baði. Þröstur á grein. Fáviti að spóla úti á Granda. Dalalæða og derringur. Og þú brúneyga stúlkan mín. Hlaupa og hlæja og detta. Leiddu mig í lundinn …

    Show notes
    Van Morrison – Brown Eyed Girl George W. Bush í baði. Þröstur á grein. Fáviti að spóla úti á Granda. Dalalæða og derringur. Og þú brúneyga stúlkan mín. Hlaupa og hlæja og detta. Leiddu mig í lundinn. Morgunroði, dögg. Dick Cheney klippir táneglur. Mín liljan fríð.
  9. Brimful of Asha – Barmur plús harmur deilt með takmarkaleysi

    1 h 9 min

    Cornershop og Norman Cook – Brimful of Asha Rómúlus og Remus totta spena. Fjörutíu og fimm snúningar á mínútu. Níl flæðir yfir bakka sína. Villigöltur hleypur í skjól. Hlöður fyllast. Sósan flæðir. Tuttugu og …

    Show notes
    Cornershop og Norman Cook – Brimful of Asha Rómúlus og Remus totta spena. Fjörutíu og fimm snúningar á mínútu. Níl flæðir yfir bakka sína. Villigöltur hleypur í skjól. Hlöður fyllast. Sósan flæðir. Tuttugu og níu ára grafískur hönnuður hálsbrýtur sig í stiga. Rjóminn flæðir. Varir brosa, mjaðmir dilla, froðu fleytt af glasabarmi. Spilakassar syngja. Smálán […]
  10. Sweet Jane – Kontrapunktur kúlsins

    1 h 15 min

    Velvet Underground – Sweet Jane Starfsmaður vegabréfaeftirlits á JFK-flugvelli horfir rannsakandi en kæruleysislegum augum þráðbeint framhjá þér. Í belti hans 9mm Glock, í vasa hans valdið, pakki með sex þurrum …

    Show notes
    Velvet Underground – Sweet Jane Starfsmaður vegabréfaeftirlits á JFK-flugvelli horfir rannsakandi en kæruleysislegum augum þráðbeint framhjá þér. Í belti hans 9mm Glock, í vasa hans valdið, pakki með sex þurrum Orbit-þiljum. Það má skera loftið með kauðalegum smjörhníf sem átta ára barn kom með heim úr smíðatíma. Það má skera loftið niður í þykkar lifrapylsusneiðar.  […]
  11. Moonlight Shadow – Miðilsfundur á Myrká

    1 h

    Mike Oldfield og Maggie Reilly – Moonlight Shadow Viðjulauf. Hvítir náttkjólar. Gólandi hundur. Skothvellur í fjarska og silkimjúkt myrkrið. Tonn hughrifa í eldspýtustokki. Heil veröld sem örbylgjumáltíð …

    Show notes
    Mike Oldfield og Maggie Reilly – Moonlight Shadow Viðjulauf. Hvítir náttkjólar. Gólandi hundur. Skothvellur í fjarska og silkimjúkt myrkrið. Tonn hughrifa í eldspýtustokki. Heil veröld sem örbylgjumáltíð. Hvísl, þyngsli, sorg, gall. Þú gengur inn í blómabúð í leit að samúðarkorti og það er farið með þig á bakvið og fyrr en varði ertu í seftjörn […]
  12. Fylgd – Áminning til labbakúta

    1 h 10 min

    Heimavarnarliðið – Fylgd Volkswagen bjöllur. Súld. Hagatorg. Gamla góða Keflavíkurgöngugreddan. Fegurð. Sveit í borg. Hólkvíðar skálmar undir heiðum himni. Bollasúpa. Breznev. Þjóðviljinn. Hermannajakkar …

    Show notes
    Heimavarnarliðið – Fylgd Volkswagen bjöllur. Súld. Hagatorg. Gamla góða Keflavíkurgöngugreddan. Fegurð. Sveit í borg. Hólkvíðar skálmar undir heiðum himni. Bollasúpa. Breznev. Þjóðviljinn. Hermannajakkar. Ljóðabækur. Mussur þvegnar í læk þar sem nú er Smáralind. Lektorar. Billiard. Bartar og brjóstahaldarabrennur. Mundu, að þetta er landið þitt.
  13. Serbinn – Segulsvið svitans

    57 min

    Bubbi – Serbinn Fjörutíu metrar á sekúndu. Ekki vindhviða heldur beinstíf leiðsla af flæðandi draugum inn í himinhvel hugans. Lax í dauðakippum. Eggjarauð kokteilsósa. Ok uxans. Minkafeldur suður slavneska …

    Show notes
    Bubbi – Serbinn Fjörutíu metrar á sekúndu. Ekki vindhviða heldur beinstíf leiðsla af flæðandi draugum inn í himinhvel hugans. Lax í dauðakippum. Eggjarauð kokteilsósa. Ok uxans. Minkafeldur suður slavneska herrans. Hringar Salómons. Framundan er bara vegurinn. Ekki Nebraska-vegurinn hans Steina heldur eitthvað miklu naprara og tærara. Slétta melrakka og vofunnar í hvilftinni. “Glitrar grund og […]
  14. Hotel California – Ernir. Síðari hluti. Vængir bráðna.

    1 h 46 min

    Eagles – Hotel California Lagið sem er fílað í dag ætti með réttu að vera síðasta lag sem Fílalag tekur fyrir (engar áhyggjur, það er það ekki, við erum rétt að byrja nýja seríu). Ástæða þess að það ætti að …

    Show notes
    Eagles – Hotel California Lagið sem er fílað í dag ætti með réttu að vera síðasta lag sem Fílalag tekur fyrir (engar áhyggjur, það er það ekki, við erum rétt að byrja nýja seríu). Ástæða þess að það ætti að vera síðasta lagið sem við fílum er vegna þess að það er ósköp erfitt að […]
  15. Lyin’ eyes – Ernir. Fyrri hluti. Að þolmörkum

    1 h 46 min

    Eagles – Lyin’ Eyes Kjarnasamruni. Reykjanesbrautin. Daðrið í myrkrinu. Augun, köldu krumlurnar, kæfisvefnsgræjurnar. Skiptilyklar, kokteilar, seðlaveski, bros. Gardínur í vindinum. Marge Simpson með varalit …

    Show notes
    Eagles – Lyin’ Eyes Kjarnasamruni. Reykjanesbrautin. Daðrið í myrkrinu. Augun, köldu krumlurnar, kæfisvefnsgræjurnar. Skiptilyklar, kokteilar, seðlaveski, bros. Gardínur í vindinum. Marge Simpson með varalit. Perlurnar, tárin, orðin. Söngur hjartans. Magasár, móðurmjólk, úraníumstútur. Langdrægir kjarnaoddar, kók, dagblað, sófasett, hott hott á hesti. Út að þolmörkunum. Einu sinni enn. Hringdu bjöllunni, að hlið vítis, einu sinni enn. […]
  16. Geislinn í vatninu – Seiglan og lopinn

    1 h 6 min

    Hjálmar – Geislinn í vatninu Á borðið er lagður pottréttur, pottþéttur og piparlagður. Flúðasveppirnir löngu orðnir hluti af sósunni. Hvaðan kom þessi brögðótta en samt basic himnasending? Stundum er stöðum …

    Show notes
    Hjálmar – Geislinn í vatninu Á borðið er lagður pottréttur, pottþéttur og piparlagður. Flúðasveppirnir löngu orðnir hluti af sósunni. Hvaðan kom þessi brögðótta en samt basic himnasending? Stundum er stöðum líst þannig að Guð hafi yfirgefið þá. “God forsaken” nefnist þetta á ensku. Sama hvað má segja um Ísland væri líklega aldrei rétt að segja […]
  17. Wonderful Tonight – Dýrinu klappað

    1 h 18 min

    Eric Clapton – Wonderful Tonight Hápunktur. Lágpunktur. Stærðfræðilegur ómöguleiki. Mjótt mitti, lint typpi, í hjartanu nagandi ótti. Armani, Rolex, enginn náungakærleikur. Laxá í Ásum, kókómjólk og …

    Show notes
    Eric Clapton – Wonderful Tonight Hápunktur. Lágpunktur. Stærðfræðilegur ómöguleiki. Mjótt mitti, lint typpi, í hjartanu nagandi ótti. Armani, Rolex, enginn náungakærleikur. Laxá í Ásum, kókómjólk og happaþrenna, kláði. Ferrari, Stratocaster, Château Mouton Rothschild. Connor. Covid. Cocaine. Drukknun, sukk, ólukka. Peningar, klikkun, kynlíf, krossgötur. Mæða, æði, græðgi, blæðing. Depurð, fegurð, dökk og yfirgengileg. Himinn bólstraður leðri. […]
  18. Superman – Kaðlastigi úr kúlheimum

    52 min

    Trabant – Superman Tuttugu hestar hníga niður í miðri Ártúnsbrekku og leysast upp í grárri malbiks-súldinni í krampakenndum íslenska-dansflokks-hnykkjum. Gallajakka er rennt gegnum pre-reykingabanns íslenskt …

    Show notes
    Trabant – Superman Tuttugu hestar hníga niður í miðri Ártúnsbrekku og leysast upp í grárri malbiks-súldinni í krampakenndum íslenska-dansflokks-hnykkjum. Gallajakka er rennt gegnum pre-reykingabanns íslenskt djamm-sumar og grafinn undir krossi að hausti. Neó-rómantísk tár falla og springa á köldum marmara eins og kristalskúlur í sjónvarpsmynd eftir Egil Eðvarðsson. Gult suð í höfði, veggur sem krefst […]
  19. Don’t Know Much – Sölufuglinn

    1 h

    Linda Ronstadt og Aaron Neville – Don’t Know Much Linda Ronstadt er svalan sem syngur fyrir Bandaríkin. Að vísu hefur hún misst röddina nú því hún þjáist af taugasjúkdómi sem veldur skjálfta í líkamanum – en …

    Show notes
    Linda Ronstadt og Aaron Neville – Don’t Know Much Linda Ronstadt er svalan sem syngur fyrir Bandaríkin. Að vísu hefur hún misst röddina nú því hún þjáist af taugasjúkdómi sem veldur skjálfta í líkamanum – en hott hott á hesti hvað hún hefur skilað inn drjúgu ævistarfi. Hún hefur líka sungið allt mögulegt: rokk, kántrí, […]
  20. Það er puð að vera strákur – Puðið og tuðið

    1 h 4 min

    Bjartmar Guðlaugsson – Það er puð að vera strákur Núna geta allir loksins sofnað rótt. Hvort sem þið eruð langt leidd af klámfíkn, fransk-rennilása-læst í gamer-stól eða að klára mastersgráðu í þróuðu …

    Show notes
    Bjartmar Guðlaugsson – Það er puð að vera strákur Núna geta allir loksins sofnað rótt. Hvort sem þið eruð langt leidd af klámfíkn, fransk-rennilása-læst í gamer-stól eða að klára mastersgráðu í þróuðu hugvísindanámi þá verða hér leidd fyrir ykkur sönnunargögn af safaríkara taginu. Um er að ræða titilag af plötu með Bjartmari frá 1989, en […]
  21. More Than Words – Hegningarlagabrot

    52 min

    Extreme – More Than Words Everly Brothers sönnuðu það á sínum tíma að það er hægt að bora ansi mikið inn í kvikuna með einföldu gítarspili og tveimur röddum – og ef það er gert rétt, þá virkar sama formúlan ár …

    Show notes
    Extreme – More Than Words Everly Brothers sönnuðu það á sínum tíma að það er hægt að bora ansi mikið inn í kvikuna með einföldu gítarspili og tveimur röddum – og ef það er gert rétt, þá virkar sama formúlan ár eftir ár. Metal-hljómsveitin Extreme gaf út sitt frægasta lag á kraftbölluðuárinu mikla 1991 en […]
  22. Masters of War – Mölétin mennskan

    1 h 29 min

    Bob Dylan – Masters of War Hamstur í örbylgjuofni. Óður maður á eplakassa. Skraufþurr heysáta. Vítisvélar á himni. Reikningur greiddur. Thank you ma’am. Rop og skyggðar rúður. Regn fellur á svörð. Þungamálmar …

    Show notes
    Bob Dylan – Masters of War Hamstur í örbylgjuofni. Óður maður á eplakassa. Skraufþurr heysáta. Vítisvélar á himni. Reikningur greiddur. Thank you ma’am. Rop og skyggðar rúður. Regn fellur á svörð. Þungamálmar fluttir á teinum. Rafmynta-reikningur opnaður á Ermasundseyju. Kúlur steyptar í mót. Krumla hvítnar á stýri. Leikfimissalur opnast, skref húsvarðar bergmála á körfuboltaspjöldum. Veðmálið […]
  23. Make You Feel My Love – Knúið af kúlusúkk

    1 h 3 min

    Bob Dylan – Make You Feel My Love Það er erfitt að skilja Dylan. Djúpur? Já. Nóbelsverðlaunahafi? Já. En samt er hann líka bílastæða-maður. Gaur sem er mest í elementinu sínu í ljótri skyrtu innan um ómerkilega …

    Show notes
    Bob Dylan – Make You Feel My Love Það er erfitt að skilja Dylan. Djúpur? Já. Nóbelsverðlaunahafi? Já. En samt er hann líka bílastæða-maður. Gaur sem er mest í elementinu sínu í ljótri skyrtu innan um ómerkilega bíla. Samt er hann ekki basic. Það er alltaf eitthvað tvist, einhver súputeningur í vasanum. Fílalag heldur áfram […]
  24. Diamonds and Rust – Tíkallasími, tunglið og tíminn

    1 h 43 min

    Joan Baez – Diamonds and Rust Hún er Venus í skelinni, móðir og meyja, Kelti og frumbyggi, sigld, sveipuð silki. Joan Baez. Ósnertanleg keramik stytta. En þó líka mjúk sem deig. Í sínu frægasta lagi gefur hún …

    Show notes
    Joan Baez – Diamonds and Rust Hún er Venus í skelinni, móðir og meyja, Kelti og frumbyggi, sigld, sveipuð silki. Joan Baez. Ósnertanleg keramik stytta. En þó líka mjúk sem deig. Í sínu frægasta lagi gefur hún ekkert eftir í ísköldum víbrató flutningi, en ásetningurinn er heitari en kvika Merkúríusar. Hún sendir sneið á fyrrverandi […]
  25. Knockin’ On Heaven’s Door – Þurr steinn grætur

    1 h 8 min

    Bob Dylan – Knockin’ On Heaven’s Door Fyrsti í Dylan-svítu. Fógetinn er við dauðans dyr. Hann grefur byssur sínar. Útlagi í Ástralíu-frakka gengur framhjá Monaco á Laugavegi. Þunnur maður brotnar saman í …

    Show notes
    Bob Dylan – Knockin’ On Heaven’s Door Fyrsti í Dylan-svítu. Fógetinn er við dauðans dyr. Hann grefur byssur sínar. Útlagi í Ástralíu-frakka gengur framhjá Monaco á Laugavegi. Þunnur maður brotnar saman í Volkswagen Jetta bifreið. Það er brostið á með Dylan-regni og það mun lemja ykkur fast. Þið verðið löðrunguð eins og í baráttunni við […]
  26. White Christmas – “Let’s Go Have a Coca-Cola”

    1 h 32 min

    Bing Crosby – White Christmas Það gengur svo mikið á í lífi okkar að við þurfum stundum pásu, frið, hlé. Við þurfum þetta hlé einu sinni á ári. Jólin eru fyrst og fremst hlé frá veseninu, rifrildinu, stríðinu …

    Show notes
    Bing Crosby – White Christmas Það gengur svo mikið á í lífi okkar að við þurfum stundum pásu, frið, hlé. Við þurfum þetta hlé einu sinni á ári. Jólin eru fyrst og fremst hlé frá veseninu, rifrildinu, stríðinu og stritinu. Þess vegna elskum við hvít jól. Því snjórinn leggur hvíta mottu yfir allt, kallar fram […]
  27. 1979 – Goth báðu megin

    1 h 20 min

    The Smashing Pumpkins – 1979 Lífið er endalaust. Fyndinn 16 ára gaur djögglar snakkpokum inn í flúorljósum 10-11, tvær stelpur hlæja en meira að honum en með honum. Lífið er endalaust, orkan er endalaus …

    Show notes
    The Smashing Pumpkins – 1979 Lífið er endalaust. Fyndinn 16 ára gaur djögglar snakkpokum inn í flúorljósum 10-11, tvær stelpur hlæja en meira að honum en með honum. Lífið er endalaust, orkan er endalaus, hláturinn hættir aldrei. En dauðinn er nærri, dauðinn er inn í okkur og með okkur og það er daðrið við dauðann […]
  28. Only Time – Silkiþræðir Keltans

    57 min

    Enya – Only Time Hver þekkir vegi himinsins? Fuglinn. Hver veit hvert vindurinn mun blása? Fuglinn. Hver býr yfir grimmd grameðlu og sakleysi páskaungans? Aðeins fuglinn. Hver hratt af stað iðnbyltingunni? …

    Show notes
    Enya – Only Time Hver þekkir vegi himinsins? Fuglinn. Hver veit hvert vindurinn mun blása? Fuglinn. Hver býr yfir grimmd grameðlu og sakleysi páskaungans? Aðeins fuglinn. Hver hratt af stað iðnbyltingunni? Keltinn. Hvert er leynihráefnið í rokk og ról? Keltinn. Hver skynjar tímann sem leiftur? Aðeins keltinn. Peningar. Hollywood. Kastalar. Brún augu í þokunni, hrjóstrug […]
  29. Snertu, elskaðu og fljúgðu – You’ve Lost That Lovin’ Feelin’

    1 h 11 min

    The Righteous Brothers – You’ve Lost That Lovin’ Feelin’ Kærleikurinn. Geðveikin. Gnægðin. Háloftin. Hlið himins. F-18. 33C. Undir þér er motta. Lokaðu augunum, opnaðu hjartað, láttu þig falla.

  30. Undir regnboganum – Nanooq í Kringlunni

    1 h 7 min

    Hvalræði – Undir regnboganum Jökulblátt vatn. Orbit-tyggjó. Fljótandi ísjakar. Morgunsjónvarps stjarna hlær. Skutull skríður. Blóð fossast. Veðurbarinn maður með barta í Víetnam hermannajakka gefur vélinni …

    Show notes
    Hvalræði – Undir regnboganum Jökulblátt vatn. Orbit-tyggjó. Fljótandi ísjakar. Morgunsjónvarps stjarna hlær. Skutull skríður. Blóð fossast. Veðurbarinn maður með barta í Víetnam hermannajakka gefur vélinni meiri olíu. Það er hugmyndastríð á Norðurslóð, takmarkalaus þykistuleikur í búningi káboj og indjána.  Allsherjargoði og eilíft sumar, ostaslaufur, kókdós og jójó-æði. Norðrið, norpið, nístingurinn og Nanooq í Kringlunni.

These are the latest 40 of 371 episodes. You’ll find older episodes in the podcast’s feed.

Similar podcasts

More Music podcasts
Is this your podcast?

Confirm it with an entry in your feed: you get a code here, add it as podcast:txt to the channel of your feed, and we check it. Your podcast is then shown as “verified” on SoundNode.

Settings

Display

Language

Decides which stations you see first on the home page.

History

Recently played stations and episodes and your latest searches are only stored in this browser.

Notifications

A short notice when a podcast you follow has a new episode. Turn off single podcasts with the bell on their page.

Account

Save favorites – in the app and on the website.

Keyboard shortcuts

/
Open search
Space
Play or pause
← →
In the player: back 15 s, forward 30 s (episodes) · in a row: next tile
↑ ↓
In a row: target within the tile
Home / End
In a row: first or last tile
Esc
Close window or menu
?
This overview
Now playing

Go to station page

Play next

    Add episodes with “Play next” – they play after the current episode.