
Rokkland
- Episodes
- 124
- Format
- Series – listen from the start
- Latest episode
- Nov 8, 2026
About the podcast
Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi. Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson
Episodes 124
3toOne - Agent Fresco á Airwaves - Kevin Cole og Manowar
Það er tutti frutti í Rokklandi vikunnar! Brynjólfur Þór Guðmundsson frétta&þungarokksmaður spjallar við Joey DeMaio stofnanda og bassaleikara bandarísku þungarokksveitarinnar MANOWAR sem spilar á Íslandi í …
Show notes
Það er tutti frutti í Rokklandi vikunnar! Brynjólfur Þór Guðmundsson frétta&þungarokksmaður spjallar við Joey DeMaio stofnanda og bassaleikara bandarísku þungarokksveitarinnar MANOWAR sem spilar á Íslandi í desember. Við heyrum spjall við hljómsveitina 3ToOne sem byrjaði á plötu fyrir 30 árum sem var að koma út núna. 3toOne er súpergrúppa: Sigurður Gröndal, Ingólfur Guðjónsson sem voru í Rikshaw og Pláhnetunni á sínum tíma, og Egill Olafsson. Súpergrúppa sem spilaði meðal annars á UXA 1995 og tók síðan upp þessa plötu. Við heyrum smá pistil frá London – Hulda G. Geirsdóttir sá Manic Street Preachers og Suede í London á föstudaginn og sendir póstkort. Rokkland var á Agent Fresco á Iceland Airwaves á föstudagskvöld og ræddi við þá Tóta og Arnór Dan eftir tónleikana í ráðhúskjallaranum. Og svo er það bandaríski útvarpsmaðurinn Kevin Cole sem er búinn að koma á Airwaves frá 2009 með félögum sínum á útvapsstöðinni KEXP sem hefur tekið upp meira en 300 hljómsveitir/listamenn á hátíðinni – mest á KEX hostel – og 150 milljónir hafa horft á það á Youtube. Í gær var frumsýnd í Bíó Paradís heimildarmynd um Kevin sem heitir Radioheart: The Drive and Times of DJ Kevin Cole. Kevin var viðstaddur og Rokkland ræddi við vin hans Benedikt Reynisson sem hefur verið einskonar hægri hönd Kevins á Íslandi öll árin.3toOne - Agent Fresco á Airwaves - Kevin Cole og Manowar
Það er tutti frutti í Rokklandi vikunnar! Brynjólfur Þór Guðmundsson frétta&þungarokksmaður spjallar við Joey DeMaio stofnanda og bassaleikara bandarísku þungarokksveitarinnar MANOWAR sem spilar á Íslandi í …
Show notes
Það er tutti frutti í Rokklandi vikunnar! Brynjólfur Þór Guðmundsson frétta&þungarokksmaður spjallar við Joey DeMaio stofnanda og bassaleikara bandarísku þungarokksveitarinnar MANOWAR sem spilar á Íslandi í desember. Við heyrum spjall við hljómsveitina 3ToOne sem byrjaði á plötu fyrir 30 árum sem var að koma út núna. 3toOne er súpergrúppa: Sigurður Gröndal, Ingólfur Guðjónsson sem voru í Rikshaw og Pláhnetunni á sínum tíma, og Egill Olafsson. Súpergrúppa sem spilaði meðal annars á UXA 1995 og tók síðan upp þessa plötu. Við heyrum smá pistil frá London – Hulda G. Geirsdóttir sá Manic Street Preachers og Suede í London á föstudaginn og sendir póstkort. Rokkland var á Agent Fresco á Iceland Airwaves á föstudagskvöld og ræddi við þá Tóta og Arnór Dan eftir tónleikana í ráðhúskjallaranum. Og svo er það bandaríski útvarpsmaðurinn Kevin Cole sem er búinn að koma á Airwaves frá 2009 með félögum sínum á útvapsstöðinni KEXP sem hefur tekið upp meira en 300 hljómsveitir/listamenn á hátíðinni – mest á KEX hostel – og 150 milljónir hafa horft á það á Youtube. Í gær var frumsýnd í Bíó Paradís heimildarmynd um Kevin sem heitir Radioheart: The Drive and Times of DJ Kevin Cole. Kevin var viðstaddur og Rokkland ræddi við vin hans Benedikt Reynisson sem hefur verið einskonar hægri hönd Kevins á Íslandi öll árin.Iceland Airwaves 1999-2026
Rokkland vikunnar er einskonar upphitun fyrir Iceland Airwaves 2026 – og upprifjun. Rokkland hefur verið á Airwaves á hverju ári frá árinu 2000 og við rifjum upp eitt og annað. Meðal þeirra sem koma við sögu …
Show notes
Rokkland vikunnar er einskonar upphitun fyrir Iceland Airwaves 2026 – og upprifjun. Rokkland hefur verið á Airwaves á hverju ári frá árinu 2000 og við rifjum upp eitt og annað. Meðal þeirra sem koma við sögu eru Árni Matthíasson, Grímur Atlason, Sinéad O'Connor, Of Monsters and Men, Kevin Cole, John Lydon, Dhani Harrison, Thorunn Antonia Magnusdottir, Hilmar Örn Agnarsson, Magnus Thor, Dóri Braga, Magnus Stephensen ofl.Drottningin af Færeyjum - þungarokk og Metallica
Rokkland vikunnar er tvískipt. Í Fyrri hlutanum er Eivør í aðalhlutverki, en hún sem var að senda frá sér plötunaTungl sem er plata númer 11 hélt útgafutónleika í Eldborg á föstudagskvöldið fyrir fullu húsi. Á …
Show notes
Rokkland vikunnar er tvískipt. Í Fyrri hlutanum er Eivør í aðalhlutverki, en hún sem var að senda frá sér plötunaTungl sem er plata númer 11 hélt útgafutónleika í Eldborg á föstudagskvöldið fyrir fullu húsi. Á föstudagsamorguninn heimsótti hún Rokkland í std. 12 í útvarpshúsið – sagði frá nýju plötunni sem hún segir að sé einskonar afturhvarf til Færeyja, og svo spilaði hún 2 lög af plötunni á kassagítar og eitt eldra. Rokkland var á tónleikunum og við tölum um þá líka, en Eivør er á samningi hjá plötuútgáfunni Nuclear Blast sem einbeitir sér að þungarokki og Eivør sem er nýlega flutt heim til Færeyja eftir að hafa búð lengi í Kaupmannahöfn kemur reglulega fram á metal-hátíðum víða um heim. Í seinni hlutanum er einmitt smá þungarokk þar sem við sögu koma Sólstafir – Led Zeppelin – Sólför Dimma – Deep Purple – Rainbow og Metallica, en daninn Flemming Rassmusen sem tók upp þrjár af bestu (að margra mati) plötum Metallica á níunda áratugnum er að koma til landsins og halda fyrirlestur um samstarfið við Metallica 5. Nóvember nk. Allt tengist.Drottningin af Færeyjum - þungarokk og Metallica
Rokkland vikunnar er tvískipt. Í Fyrri hlutanum er Eivør í aðalhlutverki, en hún sem var að senda frá sér plötunaTungl sem er plata númer 11 hélt útgafutónleika í Eldborg á föstudagskvöldið fyrir fullu húsi. Á …
Show notes
Rokkland vikunnar er tvískipt. Í Fyrri hlutanum er Eivør í aðalhlutverki, en hún sem var að senda frá sér plötunaTungl sem er plata númer 11 hélt útgafutónleika í Eldborg á föstudagskvöldið fyrir fullu húsi. Á föstudagsamorguninn heimsótti hún Rokkland í std. 12 í útvarpshúsið – sagði frá nýju plötunni sem hún segir að sé einskonar afturhvarf til Færeyja, og svo spilaði hún 2 lög af plötunni á kassagítar og eitt eldra. Rokkland var á tónleikunum og við tölum um þá líka, en Eivør er á samningi hjá plötuútgáfunni Nuclear Blast sem einbeitir sér að þungarokki og Eivør sem er nýlega flutt heim til Færeyja eftir að hafa búð lengi í Kaupmannahöfn kemur reglulega fram á metal-hátíðum víða um heim. Í seinni hlutanum er einmitt smá þungarokk þar sem við sögu koma Sólstafir – Led Zeppelin – Sólför Dimma – Deep Purple – Rainbow og Metallica, en daninn Flemming Rassmusen sem tók upp þrjár af bestu (að margra mati) plötum Metallica á níunda áratugnum er að koma til landsins og halda fyrirlestur um samstarfið við Metallica 5. Nóvember nk. Allt tengist.Færeyjar - Hafnarfjörður - Akranes
Í Rokklandi vikunnar verður komið við í Færeyjum - Hafnarfirði og Akranesi. Við byrjum á að spjalla við færeysku tónlistarkonuna Gudrid Hansdottur frá Færeyjum. Hún bjó um tíma á Íslandi, hefur oft spilað á …
Show notes
Í Rokklandi vikunnar verður komið við í Færeyjum - Hafnarfirði og Akranesi. Við byrjum á að spjalla við færeysku tónlistarkonuna Gudrid Hansdottur frá Færeyjum. Hún bjó um tíma á Íslandi, hefur oft spilað á Iceland Airwaves, var að senda frá sér nýja plötu sem heitir Sýrublað (Hundasúra) og hún ætlar að spila á 9 tónleikum hringinn í kringum Íslandi dagana 20. - 29. október. Við förum Þaðan til Hafnarfjarðar á gítarveislu Bjössa Thor sem fór fram í Ægi 220 helgina 2. og 3. október sl. Með Bjössa spiluðu t.d. Óskar Logi, Brynhildur Oddsdóttir, Krummi Björgvins ofl auk Guðmundur Péturssonar sem skreyttur var með GULLNÖGLINNI sem veitt er árlega gítarleikara sem hefur sett mark sitt á íslenskt tónlistarlíf. Þriðji viðkomustaðurinn er svo Akranes, en Jónas Björgvinsson er fæddur og alinn upp á Akranesi en býr á Langholstveginum í Reykjavík þar sem hann rekur hljodver.is í bílskúrnum sínum. Jónas fór til Danmerkur og tók upp plötu þegar hann var rétt rúmlega tvítugur fyrir nokkuð mörgum árum, en svo gerði hann plötu númer 2 árið 2022. Nú er þriðja platan komin, platan Lífsins bók og það eru útgáfutónleikar í Tónabíó 22. október.Færeyjar - Hafnarfjörður - Akranes
Í Rokklandi vikunnar verður komið við í Færeyjum - Hafnarfirði og Akranesi. Við byrjum á að spjalla við færeysku tónlistarkonuna Gudrid Hansdottur frá Færeyjum. Hún bjó um tíma á Íslandi, hefur oft spilað á …
Show notes
Í Rokklandi vikunnar verður komið við í Færeyjum - Hafnarfirði og Akranesi. Við byrjum á að spjalla við færeysku tónlistarkonuna Gudrid Hansdottur frá Færeyjum. Hún bjó um tíma á Íslandi, hefur oft spilað á Iceland Airwaves, var að senda frá sér nýja plötu sem heitir Sýrublað (Hundasúra) og hún ætlar að spila á 9 tónleikum hringinn í kringum Íslandi dagana 20. - 29. október. Við förum Þaðan til Hafnarfjarðar á gítarveislu Bjössa Thor sem fór fram í Ægi 220 helgina 2. og 3. október sl. Með Bjössa spiluðu t.d. Óskar Logi, Brynhildur Oddsdóttir, Krummi Björgvins ofl auk Guðmundur Péturssonar sem skreyttur var með GULLNÖGLINNI sem veitt er árlega gítarleikara sem hefur sett mark sitt á íslenskt tónlistarlíf. Þriðji viðkomustaðurinn er svo Akranes, en Jónas Björgvinsson er fæddur og alinn upp á Akranesi en býr á Langholstveginum í Reykjavík þar sem hann rekur hljodver.is í bílskúrnum sínum. Jónas fór til Danmerkur og tók upp plötu þegar hann var rétt rúmlega tvítugur fyrir nokkuð mörgum árum, en svo gerði hann plötu númer 2 árið 2022. Nú er þriðja platan komin, platan Lífsins bók og það eru útgáfutónleikar í Tónabíó 22. október.Stríð og friður
Það er friðarvika í Reykjavík þessa dagana – 40 ár frá fundi Reagan og Gorbachov í Reykjavík - Friðarsúlan í Viðey var tendruð á föstudaginn á afmælisdegi Lennons og stríð og friður er rauði þráðurinn í þessum …
Show notes
Það er friðarvika í Reykjavík þessa dagana – 40 ár frá fundi Reagan og Gorbachov í Reykjavík - Friðarsúlan í Viðey var tendruð á föstudaginn á afmælisdegi Lennons og stríð og friður er rauði þráðurinn í þessum þætti í dag. Séra Hildur Eir segir nokkur orð - Við minnumst leiðtogafundarins í Höfða 1986 Tölum um kjarnorkuvopn Ræðum við Höllu Tómasdóttur forseta Íslands í Viðey Yoko Ono talar ujm friðarsúluna og Ísland Jón Gnarr talar um Yoko Ono og frðarsúluna Vanessa O´Mara segir frá Power to the people festival í Maryland USA Tölum um Tom Morello sem stóð fyrir hátíðinni um síðustu helgi Sigurgeir Sigmundsson segir frá nýja laginu sínu sem hann kallar Kaos Og við heyrum hvað Hildur borgarstjóri sagði í Viðey við tendrum friðarsulunnar á föstudaginn. Þessi tónlist var leikin í þættinum: John Lennon / Imagine Strax / Moscow Moscow Sting / Russians Radiohead / 4 minute warning Yoko Ono / Walking on thin ice Yoko Ono Plastic Ono Band / Take me to the land of hell John Lennon / Love Plastic Ono Band í Háskólabíó / Give peace a chance John & Yoko / Happy Xmas war is over Plastic Ono Band / Power to the people Jack Sabbath / War pigs Foo Fighters / My hero Dave Matthews / Mercy mercy me Tom Morello / Power to the people Tom Morello / Soldier in the army of love Tom Morello / They can´t kill us all Sigurgeir Sigmundsson / Kaos Neil Young / Rockin in the freeworldStríð og friður
Það er friðarvika í Reykjavík þessa dagana – 40 ár frá fundi Reagan og Gorbachov í Reykjavík - Friðarsúlan í Viðey var tendruð á föstudaginn á afmælisdegi Lennons og stríð og friður er rauði þráðurinn í þessum …
Show notes
Það er friðarvika í Reykjavík þessa dagana – 40 ár frá fundi Reagan og Gorbachov í Reykjavík - Friðarsúlan í Viðey var tendruð á föstudaginn á afmælisdegi Lennons og stríð og friður er rauði þráðurinn í þessum þætti í dag. Séra Hildur Eir segir nokkur orð - Við minnumst leiðtogafundarins í Höfða 1986 Tölum um kjarnorkuvopn Ræðum við Höllu Tómasdóttur forseta Íslands í Viðey Yoko Ono talar ujm friðarsúluna og Ísland Jón Gnarr talar um Yoko Ono og frðarsúluna Vanessa O´Mara segir frá Power to the people festival í Maryland USA Tölum um Tom Morello sem stóð fyrir hátíðinni um síðustu helgi Sigurgeir Sigmundsson segir frá nýja laginu sínu sem hann kallar Kaos Og við heyrum hvað Hildur borgarstjóri sagði í Viðey við tendrum friðarsulunnar á föstudaginn. Þessi tónlist var leikin í þættinum: John Lennon / Imagine Strax / Moscow Moscow Sting / Russians Radiohead / 4 minute warning Yoko Ono / Walking on thin ice Yoko Ono Plastic Ono Band / Take me to the land of hell John Lennon / Love Plastic Ono Band í Háskólabíó / Give peace a chance John & Yoko / Happy Xmas war is over Plastic Ono Band / Power to the people Jack Sabbath / War pigs Foo Fighters / My hero Dave Matthews / Mercy mercy me Tom Morello / Power to the people Tom Morello / Soldier in the army of love Tom Morello / They can´t kill us all Sigurgeir Sigmundsson / Kaos Neil Young / Rockin in the freeworldÁ Móti Sól í 30 ár
Hljómsveitin Á Móti Sól á 30 ára afmæli um þessar mundir og tekur yfir Rokkland vikunnar. Hljómsveitin var upphaflega stofnuð af vinunum bassaleikaranum Þóri og hljóðborðsleikaranum Heimi og tilgangurinn var að …
Show notes
Hljómsveitin Á Móti Sól á 30 ára afmæli um þessar mundir og tekur yfir Rokkland vikunnar. Hljómsveitin var upphaflega stofnuð af vinunum bassaleikaranum Þóri og hljóðborðsleikaranum Heimi og tilgangurinn var að spila á böllum. Á Móti Sól hefur gefið út talsvert af sínum eigin lögum og spilað um allt land í 30 ár. Þeir komu í Rokkland í std. 12 í Útvarpshúsið - sögðu sögur og spiluðu vel valin lög.U2 50
U2 er 50 ára – föstudaginn 25. september voru liðin 50 ár – HÁLF ÖLD síðan Larry Mullen 14 ára og nokkrir aðrir strákar – 15 og 16 ára í Mount Temple Comprehensive School í norður-Dublin hittust í eldhúsinu …
Show notes
U2 er 50 ára – föstudaginn 25. september voru liðin 50 ár – HÁLF ÖLD síðan Larry Mullen 14 ára og nokkrir aðrir strákar – 15 og 16 ára í Mount Temple Comprehensive School í norður-Dublin hittust í eldhúsinu heima hjá Larry og U2 varð til. Öllum þessum árum síðar eru sömu fjórir strákarnir í þessari hljómsveit. U2 er langlífasta hljómsveit heims með sömu liðsskipan. Það eitt er virðingavert. Það Þarf sérstaka og einstaka karaktera til að halda út svona „hjónaband“ með þremur öðrum í hálfa öld. Á föstudaginn sagði U2 að það væri ný plata (16. Hljóðversplatan) að koma í nóvember – Carnaval de luz (Karnival ljóssins) og nýtt lag (Silencio) frumflutt – bæði á streymiveitum – í írska Ríkisútvarpinu RTÉ og á tvennum óvæntum og fríum tónleikum heima í Dublin. U2 mætti nefnilega í gamla skólann sinn og spilaði þar - á nákvæmlega sama stað og þeir spiluðu síðast 1978 – í þetta skiptið fyrir 1000 manns – krakkana í skólanum og kennara. Síðar um daginn spiluðu þeir á svölum veitingahúss við Crafton street í miðborg Dublin fyrir þúsundir sem söfnuðust saman. Rokkland vikunnar er helgað U2.Hörður Torfason
Tónlistarmaðurinn - leikarinn og leikstjórinn Hörður Torfason er gestur Rokklands vikunnar. Hann mætti í std. 12 í vikunni sem leið - við spjölluðum saman og hann spilaði nokkur lög. Við ræðum í þættinum um …
Show notes
Tónlistarmaðurinn - leikarinn og leikstjórinn Hörður Torfason er gestur Rokklands vikunnar. Hann mætti í std. 12 í vikunni sem leið - við spjölluðum saman og hann spilaði nokkur lög. Við ræðum í þættinum um ástina - gamlar kærustur - búsáhaldabyltinguna - stofnun samtakanna 78 - foreldra og margt fleira. Hörður sem er fæddur árið 1945 hefur ekki mikið verið að halda tónleika undanfarið en brást vel við þegar við báðum hann um að koma og spila fyrir okkur - og spjalla.Rokkland mælir með / Deus kemur / Oasis í bíó
Rokkland mælir með: september 2026 Belgíska hljómsveitin Deus kemur til landsins og spilar í Austurbæ - rifjum upp viðtal við Tom Barman úr DEUS frá 2006 þegar sveitin kom síðast til Íslands. Oasis - tölum um …
Show notes
Rokkland mælir með: september 2026 Belgíska hljómsveitin Deus kemur til landsins og spilar í Austurbæ - rifjum upp viðtal við Tom Barman úr DEUS frá 2006 þegar sveitin kom síðast til Íslands. Oasis - tölum um myndina Don´t look back in anger sem er verið að sýna í bíó um allan heim þessa dagana - líka á Íslandi.Magnús Jóhann
Magnús Jóhann lenti í þriðja sæti í Músíktilraunum fyrir áratug og síðan hefur hann gert ansi margt. Hann er búinn að spila inn á ótal plötur með hinum og þessum – stjórna upptökum á plötum hjá Flóna og Bubba …
Show notes
Magnús Jóhann lenti í þriðja sæti í Músíktilraunum fyrir áratug og síðan hefur hann gert ansi margt. Hann er búinn að spila inn á ótal plötur með hinum og þessum – stjórna upptökum á plötum hjá Flóna og Bubba Morthens - spila oftar en 30 sinnum í Gísla Marteini með allskonar fólki – gefa út margar plötur – þar af tvær með GDRN – spila með Stuðmönnum og Moses Hightower - gera tónleika með Sinfóníuhljómsveit Íslands og nú eru framundan stórónleikar í Háskólabíó á afmælisdaginn þegar hann verður 30 ára. Magnús Jóhann er gestur Rokklands í dag. Tónlist frá útsendingarlogg 2026-09-07 SCRITTI POLITTI - The word girl.Magnús Jóhann
Magnús Jóhann lenti í þriðja sæti í Músíktilraunum fyrir áratug og síðan hefur hann gert ansi margt. Hann er búinn að spila inn á ótal plötur með hinum og þessum – stjórna upptökum á plötum hjá Flóna og Bubba …
Show notes
Magnús Jóhann lenti í þriðja sæti í Músíktilraunum fyrir áratug og síðan hefur hann gert ansi margt. Hann er búinn að spila inn á ótal plötur með hinum og þessum – stjórna upptökum á plötum hjá Flóna og Bubba Morthens - spila oftar en 30 sinnum í Gísla Marteini með allskonar fólki – gefa út margar plötur – þar af tvær með GDRN – spila með Stuðmönnum og Moses Hightower - gera tónleika með Sinfóníuhljómsveit Íslands og nú eru framundan stórónleikar í Háskólabíó á afmælisdaginn þegar hann verður 30 ára. Magnús Jóhann er gestur Rokklands í dag. Tónlist frá útsendingarlogg 2026-09-07 SCRITTI POLITTI - The word girl.Download 2010
Rokkland dagsins er endurfluttur þáttur frá 20. Júní 2010 og hann stendur undir nafni í dag vegna þess að í dag er Rokklandið tileinkað Rokk-hátíð með stóru R-i – nefnilega Download þungarokkshátíðinni 2010 …
Show notes
Rokkland dagsins er endurfluttur þáttur frá 20. Júní 2010 og hann stendur undir nafni í dag vegna þess að í dag er Rokklandið tileinkað Rokk-hátíð með stóru R-i – nefnilega Download þungarokkshátíðinni 2010. Þar komu fram margar af stærstu rokksveitum sögunnar - AC/DC – Rage Against The Machine - Motörhead, Megadeth og Aerosmith - Lamb Of God - Stone Temple Pilots - Stone Sour - Bullet For My Valentine - Saxon, Slash og Billy Idol t.d. Rokkland var á Download.Sálin hans Jóns míns
Rokkland dagsins er endurfluttur þáttur frá 14. desember 2008 og gestir þáttarins eru þeir Stebbiog Gummi úr Sálinni hans Jóns Míns. Þegar þátturinn var frumfluttur var Sálin að fagna 20 ára starfsafmæli og af …
Show notes
Rokkland dagsins er endurfluttur þáttur frá 14. desember 2008 og gestir þáttarins eru þeir Stebbiog Gummi úr Sálinni hans Jóns Míns. Þegar þátturinn var frumfluttur var Sálin að fagna 20 ára starfsafmæli og af þvi tilefni gaf útgáfufyrirtæki þeirra - Sena frá sér þrjár afurðir sem allar bera heitið “Hvar er draumurinn”. Sálin kom fram í fyrsta skipti í mörg ár á 60 ára afmælistónleikum Stebba í Eldborg í Hörpu um síðustu helgi.Bubbi og við
Bubbi Morthens er maður dagsins í Rokklandi en hann ætlar ekki að segja margt sjálfur í dag. Við eigum öll okkar uppáhalds Bubba – hann er búinn að vera yfir og allt um kring síðan við vorum börn svo mörg …
Show notes
Bubbi Morthens er maður dagsins í Rokklandi en hann ætlar ekki að segja margt sjálfur í dag. Við eigum öll okkar uppáhalds Bubba – hann er búinn að vera yfir og allt um kring síðan við vorum börn svo mörg – hann er alltaf þarna- eins og Esjan. Stundum finnst okkur hann frábær og stundum kannski ekki - en við höfum alltaf skoðun á honum – alveg eins og hann hefur skoðun á öllu. Eiríkur Örn Norðdahl skrifaði skemmtilegan pistil á Facebook í gær: "Tónlistina þarf ekkert að ræða. Hún er fyrir löngu handan þess að vera góð eða slæm – við debaterum ekki klassíkina –hún er einsog norðanáttin og sumarsólin, óaðskiljanlegur hluti af tilverunni hér". Rokkland vikunnar er þannig að samferðafólk Bubba – gamlir samstarfsfélagar og nýjir, og vinir eins og Guðmundur Pétursson, Jakob Smári Magnússon, Jón Óskar, Elín Hall, Ragga Gröndal, Ólafur Egill og Esther Talía, Þorleifur Guðjónsson, Stefán Jón Hafstein, Sigrún Stefánsdóttir, Halldór Gunnar Pálsson, Inga Sólveig, Silja Aðalsteinsdóttir og Halla Tómasdóttir forseti íslands segja okkur frá sínum Bubba – Bubbi og ég - Bubbi og við.Miðstöðin Grafarvogi - Ívar Klausen - Sonny Rollins RIP
Í Rokklandi dagsins komum við við á þremur stöðum- Í seinni hlutanum kynnumst við starfsemi Miðstöðvarinnar í Grafarvogi, en Miðstöðin er einskonar school of rock Í Grafravogi. Skólameistari Miðstöðvarinnar er …
Show notes
Í Rokklandi dagsins komum við við á þremur stöðum- Í seinni hlutanum kynnumst við starfsemi Miðstöðvarinnar í Grafarvogi, en Miðstöðin er einskonar school of rock Í Grafravogi. Skólameistari Miðstöðvarinnar er Ólafur Elíasson píanóleikari og kennari en hann hefur innréttað iðnaðarhúsnæði sem er í senn ævingahúsnæði fyrir hljómsveitir – hljóðver – tónlistarskóli og félagsmiðstöð fyrir ungt fólk sem ætlar sér að vera í músík og vera í hljómsveit. Miðstöðin hefur alið af sér hljómsveitir eins og White Signal – Karma Brigade – 5K sem spilar meðal annars á Kaleo tónleikunum á Þingvöllum – og Dóraog Döðlurnar. Rokkland heimsótti Miðstöðina í vikunni. Saxófónleikarinn Sonny Rollins lést í vikunni sem leið og Sigurður Flosason segir okkur aðeins frá Sonny Rollins sem var einn af þeim allra bestu og mikilvægustu – við höfum öll heyra hann spila án þess kannski að hafa pælt í því. En byrjum á Ívari Klausen (Ívar Andri Klausen) sem var að senda frá sér sína fyrstu sólóplötu um daginn. Ívar er að austan – tók þátt í Músíktilraunum á sínum tíma með hljómsveitinni Dopamine Machine, er að spila með hinum og þessum og er búinn að vera bassaleikari í MÚR árum saman.Miðstöðin Grafarvogi - Ívar Klausen - Sonny Rollins RIP
Í Rokklandi dagsins komum við við á þremur stöðum- Í seinni hlutanum kynnumst við starfsemi Miðstöðvarinnar í Grafarvogi, en Miðstöðin er einskonar school of rock Í Grafravogi. Skólameistari Miðstöðvarinnar er …
Show notes
Í Rokklandi dagsins komum við við á þremur stöðum- Í seinni hlutanum kynnumst við starfsemi Miðstöðvarinnar í Grafarvogi, en Miðstöðin er einskonar school of rock Í Grafravogi. Skólameistari Miðstöðvarinnar er Ólafur Elíasson píanóleikari og kennari en hann hefur innréttað iðnaðarhúsnæði sem er í senn ævingahúsnæði fyrir hljómsveitir – hljóðver – tónlistarskóli og félagsmiðstöð fyrir ungt fólk sem ætlar sér að vera í músík og vera í hljómsveit. Miðstöðin hefur alið af sér hljómsveitir eins og White Signal – Karma Brigade – 5K sem spilar meðal annars á Kaleo tónleikunum á Þingvöllum – og Dóraog Döðlurnar. Rokkland heimsótti Miðstöðina í vikunni. Saxófónleikarinn Sonny Rollins lést í vikunni sem leið og Sigurður Flosason segir okkur aðeins frá Sonny Rollins sem var einn af þeim allra bestu og mikilvægustu – við höfum öll heyra hann spila án þess kannski að hafa pælt í því. En byrjum á Ívari Klausen (Ívar Andri Klausen) sem var að senda frá sér sína fyrstu sólóplötu um daginn. Ívar er að austan – tók þátt í Músíktilraunum á sínum tíma með hljómsveitinni Dopamine Machine, er að spila með hinum og þessum og er búinn að vera bassaleikari í MÚR árum saman.Bob Dylan í 85 ár - Hver er þessi maður eiginlega?
Bob Dylan á afmæli - hann er 85 ára í dag og þess vegna er Rokkland vikunnar helgað honum og hans músík. Bob Dylan er einn merkasti tónlistarmaður sögunnar og ég er búinn að vera aðdáandi síðan ég var 15 ára …
Show notes
Bob Dylan á afmæli - hann er 85 ára í dag og þess vegna er Rokkland vikunnar helgað honum og hans músík. Bob Dylan er einn merkasti tónlistarmaður sögunnar og ég er búinn að vera aðdáandi síðan ég var 15 ára eða þar um bil. Hann var hafinn upp til skýjanna af ungu fólki um allan heim þegar hann kom fram fyrst fyrir meira en 60 árum – rétt rúmlega tvítugur spámaður með gítar sem söng fyrst og fremst um óréttlæti heimsins og illsku mannanna. Hann olli mörgum miklum vonbrigðum þegar hann fór af þeirri braut nokkrum árum síðar og fór að spila einskonar Bítlarokk – syngja illskiljanlega texta – og líka um ástina. Síðan þá hefur margt gerst og Dylan hefur verið meira og minna á tónleikaferðalagi í næstum 40 ár – hann er t.d. að spila í allt suma í Bandaríkjunum. Plöturnar eru margar eins og raddirnar og karekterarnir sem hann hefur sýnt okkur gegnum tíðina. Hver er hann eiginlega þessi maður? Guðmundur Andri Thorsson er Dylan maður og hann er gestur Rokklands á morgun. Guðmundur þýddi sjálfsævisöguna Chronicles sem kom út fyrir nokkrum árum og þar er í bókarlok viðauki frá Guðmundi Andra – lagalisti sem hann setti saman. Við skoðum hann í Rokklandi og förum hingað og þangað.Baldvin Hlynsson - Bjössi Basti og The Hangmen - Angine de Poitrine og Iron Maiden
Í Rokklandi vikunnar kynnumst við rokkhljómsveitinni The Hangmen frá Los Angeles sem spilar á tónleikum í Tjarnarbíó næsta föstudagskvöld ásamt Dr. Gunna (Hljómsveitin Dr. Gunni – hOFFMAN og Bleiku Böstunum …
Show notes
Í Rokklandi vikunnar kynnumst við rokkhljómsveitinni The Hangmen frá Los Angeles sem spilar á tónleikum í Tjarnarbíó næsta föstudagskvöld ásamt Dr. Gunna (Hljómsveitin Dr. Gunni – hOFFMAN og Bleiku Böstunum. Bjössi Basti (Bjorn Helgi Baldvinsson sem t.d. stofnaði X-ið á sínum tíma og er söngvari Bleiku Bastanna stendur að tónleikunum og segir okkur frá The Hangmen. Við skoðum aðeins kanadísku hljómsveitina Angine De Poitrine sem hefur vakið mikla athygli undanfarið fyrir skemmtilegt stærfræði-jazz-proggrokk – feluleik og áhugaverða búninga. Svo er það Baldvin Hlynsson sem er hljómsveitarstjóri í Ormstungu í Þjóðleikhúsinu – upptökustjóri – lagasmiður og hljómborðsleikari í 70 ára afmælisbandi Bubba Morthens þar sem Halldór Gunnar Pálsson Fjallabróðir er hljómsveitarstjóri. Við kynnumst Baldvin en það er margt í gangi hjá honum alla daga. Svo kemur Iron Maiden aðeins við sögu en splunkunýrri heimildarmynd um Iron Maiden sem var frumsýnd síðasta föstudag.Björgvin Halldórsson kvaddur
Rokkland dagsins er dálítið sérstakt vegna þess að þar verður útvarpað styttri útgáfu af útför Björgvin Halldórssonar sem var mikil tónlistarveisla eins og við var að búast. Björgvin (Bo Halldorson var lagður …
Show notes
Rokkland dagsins er dálítið sérstakt vegna þess að þar verður útvarpað styttri útgáfu af útför Björgvin Halldórssonar sem var mikil tónlistarveisla eins og við var að búast. Björgvin (Bo Halldorson var lagður til hinstu hvílu á þriðjudaginn síðasta og mörg hundruð manns fylgdu honum síðustu metrana í Hallgrímskirkju. SÝN sá um beina útsendingu frá útförinni á Visi og við á Rás 2 fengum leyfi hjá Sýn og fjölskyldu Björgvins til að útvarpa hluta af útöförinni í Rokklandi í dag. Þau sem sungu í útförinni voru landslið og vinir Börgvins: Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Páll Rósinkranz, mugison, Daníel Ágúst, Ragnheiður Gröndal og Sigríður Thorlacius– Fóstbræður og svo börnin hans 2 af þremur – Krummi Bjorgvinsson og Svala Björgvins. Andrea Ingvarsdottir söng með þeim. Óskar Einarsson spilaði á píanó og var tónlistarstjóri og Guðmundur Pétursson spilaði á gítar. Jakob Frímann talar og líka Ari Eldjárn. Prestur var Guðni Már Harðarsonsem stjórnaði öllu saman. Í lok þáttar eru svo brot frá nokkrum heimsóknum Björgvins í Rokkland gegnum tíðina ❤ 🎵
These are the latest 60 of 124 episodes. You’ll find older episodes in the podcast’s feed.
Similar podcasts
More Music podcastsIs this your podcast?
Confirm it with an entry in your feed: you get a code here, add it as podcast:txt to the channel of your feed, and we check it. Your podcast is then shown as “verified” on SoundNode.







