Skip to content
Gullkastið

Gullkastið

NewGullkastið - Önnur lota að bakiNovember 11, 2026 · 1 h 3 min
Episodes
417
Released
weekly
Latest episode
Nov 11, 2026

About the podcast

Gullkastið er hlaðvarpsþáttur Kop.is sem hóf göngu sína í maí árið 2011.

Episodes 417

  1. Gullkastið - Önnur lota að baki

    1 h 3 minSeason 2025 · Episode 591

    Landsleikjahlé framundan og 10.umferðir búnar af mótinu. Tókum stöðuna á toppliðunum almennt, vesen á Manchester liðunum, jafn skemmtilegt Brighton lið og Arsenal liðið er leiðinlegt. Sigurleikur hjá Liverpool …

    Show notes

    Landsleikjahlé framundan og 10.umferðir búnar af mótinu. Tókum stöðuna á toppliðunum almennt, vesen á Manchester liðunum, jafn skemmtilegt Brighton lið og Arsenal liðið er leiðinlegt. Sigurleikur hjá Liverpool gegn Palace og vont tap í Tyrklandi. Ögurverkliðið var á sínum stað þar sem Trent sótti um vinnu.

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn

    Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:

    Verdi Travel - Minnum á Kop.is ferðina Palace leikinn 15. - 18.janúar. GB Hús / Sólpalur.is - Bjóðum þessa fagmenn velkomna leik leiks.

    Ögurverk ehf - Langbestu jarðvinnuverktakar landsins

    Gull áfengislaus - Okkar Bjór

  2. Gullkastið - Atletico Arsenal

    1 h 9 minSeason 2026 · Episode 590

    Liverpool voru bókstaflega flautaðir úr leik á Anfield gegn svari Englands við Atletico Madrid. Hroðaleg úrslit og ákaflega pirrandi leikur en frammistaða Liverpool ekki alslæm og liðið ennþá í mótun. Áhugaverð …

    Show notes

    Liverpool voru bókstaflega flautaðir úr leik á Anfield gegn svari Englands við Atletico Madrid. Hroðaleg úrslit og ákaflega pirrandi leikur en frammistaða Liverpool ekki alslæm og liðið ennþá í mótun.

    Áhugaverð úrslit í öðrum leikjum í deildinni og tími á uppfært PowerRank. Er Liverpool ennþá hvað helst í baráttu við Man Utd eins og við töldum fyrir mót?

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi

    Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:

    Verdi Travel - Minnum á Kop.is ferðina Palace leikinn 15. - 18.janúar. GB Hús / Sólpalur.is - Bjóðum þessa fagmenn velkomna leik leiks.

    Ögurverk ehf - Langbestu jarðvinnuverktakar landsins

    Gull áfengislaus - Okkar Bjór

  3. Gullkastið - Handbragð Iraola

    1 h 4 minSeason 2026 · Episode 589

    Handbragð Iraola er smátt og smátt farið að sjást á Liverpool liðinu og miklu betri liðsheild farin að myndast en við sáum oft síðasta vetur. Frábær sigur gegn Brighton um helgina og í gærkvöldi skoraði Joe …

    Show notes

    Handbragð Iraola er smátt og smátt farið að sjást á Liverpool liðinu og miklu betri liðsheild farin að myndast en við sáum oft síðasta vetur. Frábær sigur gegn Brighton um helgina og í gærkvöldi skoraði Joe Gomez sigurmarkið!

    Spáðum í deildinni almennt með áherslu á stórskemmtilegt United lið Michael Carrick, nýtt Ögurverk lið er farið af stað og framundan er risaslagur gegn Arsenal á Anfield.

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn

    Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:

    Verdi Travel - Minnum á Kop.is ferðina Palace leikinn 15. - 18.janúar. GB Hús / Sólpalur.is - Bjóðum þessa fagmenn velkomna leik leiks.

    Ögurverk ehf - Langbestu jarðvinnuverktakar landsins

    Gull áfengislaus - Okkar Bjór

  4. Gullkastið - Pennahittingur

    1 h 14 minSeason 2026 · Episode 588

    Það er hittingur hjá Kop.is samsteypunni og við hentum í Gullkast af því tilefni. Staðan á liðinu í dag, leikir vikunnar og alvöru Ögurverk lið. Stjórnandi: Maggi Viðmælendur: Daníel, Óli Haukur, Hannes …

    Show notes

    Það er hittingur hjá Kop.is samsteypunni og við hentum í Gullkast af því tilefni.

    Staðan á liðinu í dag, leikir vikunnar og alvöru Ögurverk lið.

    Stjórnandi: Maggi Viðmælendur: Daníel, Óli Haukur, Hannes, Ingimar og Ívar Örn

    Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:

    Verdi Travel - Minnum á Kop.is ferðina Palace leikinn 15. - 18.janúar. GB Hús / Sólpalur.is - Bjóðum þessa fagmenn velkomna leik leiks.

    Ögurverk ehf - Langbestu jarðvinnuverktakar landsins

    Gull áfengislaus - Okkar Bjór

  5. Gullkastið - Framfarir frá síðasta tímabili

    55 minSeason 2026 · Episode 587

    Liverpool vann tvo útileiki í þessari viku og skoraði samtals átta mörk sem er einmitt það sem þurfti eftir þunga helgi þar á undan. Frábær útisigur gegn erfiðu liði Brentford í hörkuleik þrátt fyrir töluvert …

    Show notes

    Liverpool vann tvo útileiki í þessari viku og skoraði samtals átta mörk sem er einmitt það sem þurfti eftir þunga helgi þar á undan. Frábær útisigur gegn erfiðu liði Brentford í hörkuleik þrátt fyrir töluvert mótlæti og markaveisla í Austurríki gegn LASK.

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi

    Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:

    Verdi Travel - Minnum á Kop.is ferðina Palace leikinn 15. - 18.janúar. GB Hús / Sólpalur.is - Bjóðum þessa fagmenn velkomna leik leiks.

    Ögurverk ehf - Langbestu jarðvinnuverktakar landsins

    Gull áfengislaus - Okkar Bjór

  6. Gullkastið - Leiðinlegur Farsi

    59 minSeason 2026 · Episode 586

    Vörumerkið Enska Úrvalsdeildin er í vanda og verður það þar til búið er að afgreiða refsingu Man City. Leikurinn um helgina var sá fyrsti eftir að dómurinn fellur og skilur vægast sagt eftir óbragð í munni …

    Show notes

    Vörumerkið Enska Úrvalsdeildin er í vanda og verður það þar til búið er að afgreiða refsingu Man City. Leikurinn um helgina var sá fyrsti eftir að dómurinn fellur og skilur vægast sagt eftir óbragð í munni knattspyrnuáhugamanna. Svona getur þetta ekki gengið áfram, það er flestum ljóst.

    Liverpool missti þrjá lykilmenn í meiðsli í lengsta landsleikjahléi sögunnar sem hjálpaði ekkert til við undirbúning á leik gegn liði sem hefur komist upp með að svindla á áður óþekktum skala í 15 ár. Hrikalega óstöðugur dómari frá stór Manchester svæðinu hjálpaði alls ekki til og í raun kálaði annars sæmilegum leik. Það hjálpaði ekki til með óbragðið.

    Næst eru það útileikir gegn LASK Í Austurríki og Brentford í London og ljóst að Iraola þarf að fara ná að innleiða sína hugmyndafræði í liðið og ná betra flæði í leik liðsins.

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi

    Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:

    Verdi Travel - Minnum á Kop.is ferðina Palace leikinn 15. - 18.janúar. GB Hús / Sólpalur.is - Bjóðum þessa fagmenn velkomna leik leiks.

    Ögurverk ehf - Langbestu jarðvinnuverktakar landsins

    Gull áfengislaus - Okkar Bjór

  7. Gullkastið - Athyglin á Anfield

    59 minSeason 2026 · Episode 585

    Viðureign Liverpool og Man City var áhugaverð fyrir þetta landsleikjahlé en áhuginn á þeim leik hefur heldur betur margfaldast eftir að niðurstaða fékks loksins í 115 ákærur sem hangið hafa yfir Man City …

    Show notes

    Viðureign Liverpool og Man City var áhugaverð fyrir þetta landsleikjahlé en áhuginn á þeim leik hefur heldur betur margfaldast eftir að niðurstaða fékks loksins í 115 ákærur sem hangið hafa yfir Man City undanfarin ár.

    Spáum í þeim leik og stöðunni á þessu risa máli. Ögurverk liðið er á sínum stað og við spáum í leikjum helgarinnar.

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi

    Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:

    Verdi Travel - Minnum á Kop.is ferðina Palace leikinn 15. - 18.janúar. GB Hús / Sólpalur.is - Bjóðum þessa fagmenn velkomna leik leiks.

    Ögurverk ehf - Langbestu jarðvinnuverktakar landsins

    Gull áfengislaus - Okkar Bjór

  8. Ævintýralegt Svindl

    52 minSeason 2026 · Episode 584

    Átta árum eftir að Football Leaks síðan birti upplýsingar um ótrúlegt fjármálasvindl Man City er enska knattspyrnusambandið loksins búið að komast að því að þeir voru sekir. Þetta var öllum ljóst fyrir þennan …

    Show notes

    Átta árum eftir að Football Leaks síðan birti upplýsingar um ótrúlegt fjármálasvindl Man City er enska knattspyrnusambandið loksins búið að komast að því að þeir voru sekir. Þetta var öllum ljóst fyrir þennan stóra leka árið 2018 en hann girti svo rosalega niður um Man City að ekki var lengur hægt að horfa framhjá þessu. Samt hefur þetta tekið átta ár! Flest af þeim ár þar sem Liverpool var með frábært lið og ætti að skoðast í enn betra ljósi núna. Augljóst að þetta var stórt umræðuefni í annars daufu landsleikjahléi.

    Julian Ward er tekinn við DoF stöðunni og það stefnir í meiðslavandræði í sóknarlínunni hjá Liverpool eftir þessa bölvuðu landsleiki.

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi

    Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:

    Verdi Travel - Minnum á Kop.is Hópferðina á leikinn gegn Crystal Palace helgina 15. - 18.janúar. GB Hús / Sólpalur.is - Bjóðum þessa fagmenn velkomna leik leiks, þetta er símtalið ef ykkur vantar smiði

    Ögurverk ehf - Langbestu jarðvinnuverktakar landsins

    Gull áfengislaus - Okkar Bjór

  9. Gullkastið - Fyrsti Kafli

    56 minSeason 2026 · Episode 583

    Litla örmótið fram að fyrsta landsleikjahléi er á enda og smá mynd komin á mótið. Fórum yfir stöðuna hjá toppliðunum og byrjunina á mótinu. Liverpool náði í þrjú góð stig gegn Bournemouth um helgina og var …

    Show notes

    Litla örmótið fram að fyrsta landsleikjahléi er á enda og smá mynd komin á mótið. Fórum yfir stöðuna hjá toppliðunum og byrjunina á mótinu. Liverpool náði í þrjú góð stig gegn Bournemouth um helgina og var fyrsta liðið til að fara með öll þrjú stigin þaðan síðan í janúar.

    Minnum á Kop.is Hópferðir í vetur með Verdi Travel. Leeds helgina 11.- 14. desember (Örfá sæti laus) Crystal Palace helgina 15. - 18.janúar. Sjá nánar á heimasíðu Verdi Travel

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:

  10. Gullkastið - Work In Process

    50 minSeason 2026 · Episode 582

    Ungu strákarnir komu með orku í leikinn gegn Tottenham í deildarbikarnum sem sárlega vantaði í helstu lykilmenn Liverpool gegn Fulham. Hellingur eftir þessa viku fyrir Iraola að greina á meðan hann lærir inn á …

    Show notes

    Ungu strákarnir komu með orku í leikinn gegn Tottenham í deildarbikarnum sem sárlega vantaði í helstu lykilmenn Liverpool gegn Fulham. Hellingur eftir þessa viku fyrir Iraola að greina á meðan hann lærir inn á hópinn sem hann er með hjá Liverpool.

    Ögurverk liðið er á sínum stað, Gullstund(ir) vikunnar og framundan deildarleikur fyrir voðalega langt landsleikahlé

    Minnum á Kop.is Hópferðir í vetur með Verdi Travel. Leeds helgina 11.- 14. desember Crystal Palace helgina 15. - 18.janúar. Sjá nánar á heimasíðu Verdi Travel

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:

  11. Gullkastið - Framfarir

    49 minSeason 2026 · Episode 581

    Tveir sigurleikir í röð í þessari viku og Liverpool lið sem við þekkjum mun betur og líkar betur við. Það eru framfarir milli leikja þessa dagana og spennandi breytingar á leik liðsins sem enn á þó töluvert í …

    Show notes

    Tveir sigurleikir í röð í þessari viku og Liverpool lið sem við þekkjum mun betur og líkar betur við. Það eru framfarir milli leikja þessa dagana og spennandi breytingar á leik liðsins sem enn á þó töluvert í land.

    Spáum aðeins í leikmannaglugganum og tíma Richard Hughes hjá Liverpool

    Ögurverk liðið er á sínum stað og tveir leikir framundan í næstu viku líka.

    Minnum á Kop.is Hópferðir í vetur með Verdi Travel. Leeds helgina 11.- 14. desember Crystal Palace helgina 15. - 18.janúar. Sjá nánar á heimasíðu Verdi Travel

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:

  12. Gullkastið – Leikmannaglugganum Lokað

    46 minSeason 2026 · Episode 580

    Liverpool gekk loksins frá kaupum á Bradley Barcola frá PSG en létu bara þar við sitja á lokavikum leikmannagluggans, innkaup langt undir væntingum flestra stuðningsmanna félagsins. Spáum í glugganum hjá …

    Show notes

    Liverpool gekk loksins frá kaupum á Bradley Barcola frá PSG en létu bara þar við sitja á lokavikum leikmannagluggans, innkaup langt undir væntingum flestra stuðningsmanna félagsins. Spáum í glugganum hjá Liverpool sem og hinum toppliðunum í deildinni. Hverjir eru sáttir eftir sumarið og hverjir ekki.

    Notthingham Forest fór þriðja tímabilið í röð með eitthvað frá Anfield í leik helgarinnar sem er óþolandi trend og leikurinn um helgina eftir því. Næst er það svo Ipswich á föstudagskvöldið á Portmann Road.

    Minnum á Kop.is Hópferðir í vetur með Verdi Travel. Leeds helgina 11.- 14. desember Crystal Palace helgina 15. – 18.janúar. Sjá nánar á heimasíðu Verdi Travel

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Óli Haukur

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:

    Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf

  13. Gullkastið - Stór vika

    1 h 4 minSeason 2026 · Episode 579

    Tímabilið er farið af stað og eitt stig á endanum niðurstaðan í Newcastle með flautumarki annað árið í röð. Spáum í spilamennsku Liverpool og umferðina í heild. Þetta er jafnframt síðasta vika leikmannagluggans …

    Show notes

    Tímabilið er farið af stað og eitt stig á endanum niðurstaðan í Newcastle með flautumarki annað árið í röð. Spáum í spilamennsku Liverpool og umferðina í heild.

    Þetta er jafnframt síðasta vika leikmannagluggans og sjaldan sem Liverpool á svona mikið eftir að gera á leikmannamarkaðnum. Það verður því fróðlegt að sjá hvernig hópurinn breytist áður en við fáum Nottingham Forest í heimsókn næstu helgi.

    Bendum einnig sérstaklega á Kop.is Hópferðir í vetur með Verdi Travel. Annarsvegar á leikinn gegn Leeds helgina 11.- 14. desember og svo Crystal Palace helgina 15. – 18.janúar. Þetta er t.d. tilvalin jólagjöf. Sjá nánar á heimasíðu Verdi Travel

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:

  14. Gullkastið – Er Liverpool tilbúið í Tímabilið?

    1 h 2 minSeason 2026 · Episode 578

    Æfingaleikir að baki og nýtt tímabil byrjar um helgina á útivelli gegn Newcastle. Er Liverpool liðið tilbúið í mótið og fáum við fleiri leikmenn áður en glugganum lokar? Bendum einnig sérstaklega á Kop.is …

    Show notes

    Æfingaleikir að baki og nýtt tímabil byrjar um helgina á útivelli gegn Newcastle. Er Liverpool liðið tilbúið í mótið og fáum við fleiri leikmenn áður en glugganum lokar?

    Bendum einnig sérstaklega á Kop.is Hópferðir í vetur með Verdi Travel. Annarsvegar á leikinn gegn Leeds helgina 11.- 14. desember og svo Crystal Palace helgina 15. – 18.janúar. Þetta er t.d. tilvalin jólagjöf. Sjá nánar á heimasíðu Verdi Travel

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:

  15. Gullkastið – Araujo mættur til æfinga

    51 minSeason 2026 · Episode 577

    Liverpool bætti Araujo miðverði frá Barceolna við leikmannahópinn í vikunni og kom það nokkuð óvænt upp. Hann hefur átt erfitt uppdráttar eftir að Hansi Flick tók við liðinu en var lykilmaður hjá Xavi og hefur …

    Show notes

    Liverpool bætti Araujo miðverði frá Barceolna við leikmannahópinn í vikunni og kom það nokkuð óvænt upp. Hann hefur átt erfitt uppdráttar eftir að Hansi Flick tók við liðinu en var lykilmaður hjá Xavi og hefur verið í fyrirliðahópi Barcelona. Þetta er strákur frá Úruvgæ sem kom til Barcelona árið 2018. Spáum í honum og slúðri af leikmannamarkaðnum.

    Liverpool spilaði æfingaleik um helgina sem var mjög svipaður leikjum gegn Leeds í Bandaríkjunum, gríðarlega kaflaskiptur og mikið hrun í leik liðsins þegar lykilmenn fóru að fara af velli. Iraola var ekki sáttur við hlaupagetu hópsins eftir leik sem klárlega er verið að vinna í á æfingasvæðinu og vonandi leikmannamarkaðnum líka.

    Héldum áfram með Power Rank á deildina, Ögurverk liðið o.fl.

    Bendum einnig sérstaklega á Kop.is Hópferðir í vetur með Verdi Travel. Annarsvegar á leikinn gegn Leeds helgina 11.- 14. desember og svo Crystal Palace helgina 15. – 18.janúar. Þetta er t.d. tilvalin jólagjöf. Sjá nánar á heimasíðu Verdi Travel

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:

    Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf

  16. Gullkastið – Lífsmark á Leikmannamarkaðnum?

    1 h 17 minSeason 2026 · Episode 576

    Æfingaferðin til Bandaríkjanna er afstaðin og Iraola búinn að endurheimta alla núverandi leikmenn Liverpool til æfinga eftir HM. Spáum í hvað við lærðum af ferðinni til Ameríku. Leikmannamarkaðurinn er farinn …

    Show notes

    Æfingaferðin til Bandaríkjanna er afstaðin og Iraola búinn að endurheimta alla núverandi leikmenn Liverpool til æfinga eftir HM. Spáum í hvað við lærðum af ferðinni til Ameríku. Leikmannamarkaðurinn er farinn að sýna eitthvað smá lífsmark en þó ekkert mikið meira en það eins og er. Vonandi spennandi vika og vikur framundan þar. Létt Power Rank á liðin í deildinni eins og staðan er í dag

    Bendum einnig sérstaklega á Kop.is Hópferðir í vetur með Verdi Travel. Annarsvegar á leikinn gegn Leeds helgina 11.- 14. desember og svo Crystal Palace helgina 15. – 18.janúar. Þetta er t.d. tilvalin jólagjöf. Sjá nánar á heimasíðu Verdi Travel

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:

    Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf

  17. Gullkastið – Barcola og Æfingaleikir

    48 minSeason 2026 · Episode 575

    Liverpool verður ekki sakað um að spila leiðinlega fótbolta í fyrsta æfingaleik undirbúningstímabilsins þó varhugavert sé að lesa of mikið í slíka leiki. Fjölmargir ungir leikmenn fengu tækifæri inná vellinum …

    Show notes

    Liverpool verður ekki sakað um að spila leiðinlega fótbolta í fyrsta æfingaleik undirbúningstímabilsins þó varhugavert sé að lesa of mikið í slíka leiki. Fjölmargir ungir leikmenn fengu tækifæri inná vellinum að sýna sig fyrir Iraola og verður fróðlegt að sjá hvernig hann metur þær frammistöður. Fréttir þess efnis að barcola sé á leiðinni til Liverpool eru farnar að hitna töluvert í þessari viku og klárlega það langheitasta tengd leikmannaslúðri Liverpool þessa dagana. Framundan er svo leikur gegn Wrexham í New York rétt fyrir miðnætti annað kvöld.

    Bendum einnig sérstaklega á Kop.is Hópferðir í vetur með Verdi Travel. Annarsvegar á leikinn gegn Leeds helgina 11.- 14. desember og svo Crystal Palace helgina 15. – 18.janúar. Þetta er t.d. tilvalin jólagjöf. Sjá nánar á heimasíðu Verdi Travel

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:

    Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf

  18. Gullkastið – HM búið

    1 h 24 minSeason 2026 · Episode 574

    Liverpool er farið með 31 manna leikmannahóp til Bandaríkjanna í æfingaferð og spilar fyrsta æfingaleik í þessari viku. HM er loksins búið og því hægt að snúa sér aftur af alvöru fótbolta sem skiptir máli …

    Show notes

    Liverpool er farið með 31 manna leikmannahóp til Bandaríkjanna í æfingaferð og spilar fyrsta æfingaleik í þessari viku. HM er loksins búið og því hægt að snúa sér aftur af alvöru fótbolta sem skiptir máli. Örlítið uppgjör á HM og eins skoðum við auðvitað stöðuna á leikmannamarkaðnum og hópnum hjá Liverpool.

    Bendum einnig sérstaklega á Kop.is Hópferðir í vetur með Verdi Travel. Annarsvegar á leikinn gegn Leeds helgina 11.- 14. desember og svo Crystal Palace helgina 15. – 18.janúar. Þetta er t.d. tilvalin jólagjöf. Sjá nánar á heimasíðu Verdi Travel

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Óli Haukur

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:

  19. Gullkastið – Iraola mættur til starfa

    1 h 11 minSeason 2026 · Episode 573

    Leikmann Liverpool sem ekki voru uppteknir með landsliðum sínum í sumar eru mættir aftur til æfinga og Iraola því formlega mættur til starfa og hélt blaðamannafund í morgun. Ofsalega lítið að frétta af …

    Show notes

    Leikmann Liverpool sem ekki voru uppteknir með landsliðum sínum í sumar eru mættir aftur til æfinga og Iraola því formlega mættur til starfa og hélt blaðamannafund í morgun. Ofsalega lítið að frétta af leikmannamarkaðnum hjá Liverpool enn sem komið er en öllu meira hjá hinum toppliðunum. Skoðum aðeins helstu breytingar í deildinni og helstu fréttir tengdar Liverpool.

    Bendum einnig sérstaklega á Kop.is Hópferðir í vetur með Verdi Travel. Annarsvegar á leikinn gegn Leeds helgina 11.- 14. desember og svo Crystal Palace helgina 15. – 18.janúar. Þetta er t.d. tilvalin jólagjöf. Sjá nánar á heimasíðu Verdi Travel

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:

    Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf

  20. Gullkastið - Hvaða Kaupir Liverpool fyrir Iraola

    1 h 9 minSeason 2026 · Episode 572

    Liverpool náði ekki að sannfæra hinn 19 ára Yan Diomande sem var helsta skotmark sumarsins í stöðuna hans Mo Salah á hægri vængnum og því áfram töluverð óvissa hvernig brottför hans verður leyst. Þetta er síður …

    Show notes

    Liverpool náði ekki að sannfæra hinn 19 ára Yan Diomande sem var helsta skotmark sumarsins í stöðuna hans Mo Salah á hægri vængnum og því áfram töluverð óvissa hvernig brottför hans verður leyst. Þetta er síður en svo það eina sem Liverpool þarf að gera á leikmannamarkaðnum í sumar. Skoðum aðeins hvað bíður Iraola hjá Liverpool og hvernig leikmannamarkaðurinn er í þeim stöðum sem Liverpool þarf að styrkja.

    Nýtt leikjaplan er komið út og Kop.is. ferðir á leið í sölu.

    HM er svo auðvitað í fullum gangi og átta leikmenn Liverpool ennþá á mótinu núna þegar 32.liða úrslit eru hafin.

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:

    Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf

  21. Gullkastið – Arne Slot Rekinn

    55 minSeason 2026 · Episode 571

    Liverpool hélt spilunum þétt að sér varðandi framtíð Arne Slot voru voru flestir farnir að búa sig undir hann áfram sem stóra liðsins þrátt fyrir að hans staða væri orðin allt að því vonlaus. Það lá því ekkert …

    Show notes

    Liverpool hélt spilunum þétt að sér varðandi framtíð Arne Slot voru voru flestir farnir að búa sig undir hann áfram sem stóra liðsins þrátt fyrir að hans staða væri orðin allt að því vonlaus. Það lá því ekkert í loftinu að fréttin Arne Slot rekinn væri yfirvofandi þó það sé ekki hægt að segja að hún komu á óvart.

    Andoni Iraola yfirburða langlíklegastur til að taka við. Hann hefur gert frábæra hluti með Bournemouth og var auðvitað ráðin þangað af Richard Hughes.

    Liverpool hefur ekki skipt oft um stjóra í sögulegu samhengi og þegar það gerist er jafnan tilefni fyrir Neyðarþátt.

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:

    Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf

  22. Gullkastið – Tölum Aldrei Um Þetta Aftur

    1 h 10 minSeason 2026 · Episode 570

    Liverpool spilar í Meistaradeild Evrópu næsta vetur þannig að það er óhætt að nota gamla góða Men In Black pennann á þetta tímabil og gleyma því. Tímabilið 2025-26 gerðist ekki. Skoðuðum lokaumferðina, stöðuna …

    Show notes

    Liverpool spilar í Meistaradeild Evrópu næsta vetur þannig að það er óhætt að nota gamla góða Men In Black pennann á þetta tímabil og gleyma því. Tímabilið 2025-26 gerðist ekki.

    Skoðuðum lokaumferðina, stöðuna á toppliðunum í upphafi leikmannagluggans og hentum í létt uppgjör á tímabilinu

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:

    Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf

  23. Gullkastið – Lokavikan

    1 h 13 minSeason 2026 · Episode 569

    Blessunarlega er þetta síðasta vika tímabilsins og Meistaradeildarsæti á næsta tímabili ekki enn í höfn. Liverpool er ennþá með þetta í sínum höndum og getur tryggt sæti í Meistardeild á erfiðum heimavelli …

    Show notes

    Blessunarlega er þetta síðasta vika tímabilsins og Meistaradeildarsæti á næsta tímabili ekki enn í höfn. Liverpool er ennþá með þetta í sínum höndum og getur tryggt sæti í Meistardeild á erfiðum heimavelli sínum Anfield Road á sunnudaginn. Ekki tókst það á föstudaginn á Villa Park, alls ekki.

    Salah baunaði félagið og hefur umræða vikunnar heldur betur snúist um hans yfirlýsingi og ekki síst viðbrögð leikmanna Liverpool við henni, það er augljóslega ekki allt með felldu innan herbúða félagsins.

    Spáðum einnig í helstu fréttum vikunnar.

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:

    Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf

  24. Gullkastið – Erfiður Heimavöllur?

    58 minSeason 2026 · Episode 568

    Anfield Road í vetur hefur verið völlurinn þar sem lið í frjálsu falli geta mætt og fengið sjálfstraust á ný. Amorim vann sem stjóri United, Totenham og Chelsea voru búin að tapa sex leikjum í röð áður en þau …

    Show notes

    Anfield Road í vetur hefur verið völlurinn þar sem lið í frjálsu falli geta mætt og fengið sjálfstraust á ný. Amorim vann sem stjóri United, Totenham og Chelsea voru búin að tapa sex leikjum í röð áður en þau mættu á Anfield, Sean Dyche náði í 3-0 sigur áður en hann var rekinn og ekkert af nýliðunum hefur tapað á Anfield. Frammistaðan og leikurnn gegn Chelsea var alveg á pari við þessa verslu leiki og stuðningsmenn á Anfield orðnir það langþreyttir að baulað var hraustlega á liðið, það er ekki eðlilegt ástand á Anfield.

    Meistaradeildarsæti á næsta tímabili er ekki staðfest ennþá en Liverpool fær gott tækifæri á Villa Park á föstudaginn. Sigurvegari í þeim leik verður í Meistaradeildinni á næsta tímabili.

    Staða Arne Slot hefur töluvert mikið verið til umræðu þessa vikuna

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Óli Haukur

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:

    Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf

  25. Gullkastið – Stórleikur um helgina

    1 h 9 minSeason 2026 · Episode 567

    Liverpool fer næst á Old Trafford og getur með sigri náð djöflunum að stigum sem væri hressandi eftir allt sem á undan er gengið í vetur. Risaslagur að vanda en Meistaradeildarsætið að ári er orðið ansi líklegt …

    Show notes

    Liverpool fer næst á Old Trafford og getur með sigri náð djöflunum að stigum sem væri hressandi eftir allt sem á undan er gengið í vetur. Risaslagur að vanda en Meistaradeildarsætið að ári er orðið ansi líklegt eftir annan góðan sigur í deildinni gegn Crystal Palace.

    Drógum svo m.a. tvo heppna í Bræðsluleiknum okkar en þeir fá sitthvora tvo miðana á Bræðsluna á Borgarfirði Eystri í sumar.

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:

    Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf

  26. Gullkastið – Leiðtogarnir Afgreiddu Everton

    1 h 20 minSeason 2026 · Episode 566

    Trölla sigurmark fyrirliðans gegn Everton á 100.mínútu er nokkuð auðveldlega besta moment þessa tímabils og tryggði í leiðinni ákaflega mikilvæg þrjú stig og 100% árangur Liverpool á þessum nýja heimavelli …

    Show notes

    Trölla sigurmark fyrirliðans gegn Everton á 100.mínútu er nokkuð auðveldlega besta moment þessa tímabils og tryggði í leiðinni ákaflega mikilvæg þrjú stig og 100% árangur Liverpool á þessum nýja heimavelli Everton. Borgin er svo sannarlega rauð eftir sem áður. Meistaradeildarsæti er því enn meira innan seilingar eftir helgina.

    Það er hinsvegar ekki nóg að komast í Meistaradeildina það þarf spila eins og menn þar líka, Liverpool gerði það vissulega öllu betur á Anfield heldur en í París um daginn en niðurstaðan varð sú sama, 0-2 tap og samanlagt 0-4 gegn PSG sem er bara alls ekkert ásættanlegt hjá Liverpool. Tvö vonbrigðatímabil í röð í Meistaradeildinni og klárlega eitthvað sem félagið þarf að stefna á að laga strax í sumar.

    Allar fréttir frá klúbbnum eru líka á þá leið að félagið þurfi að láta taka til sín á leikmannamarkaðnum enda stór skörð sem þarf að fylla og ljóst í vetur að stórar holur eru í hópnum fyrir. Skoðum aðeins þann markað líka.

    Bræðslan 2026 – Gjafaleikur Við framlengjum gjafaleikinn okkar með Bræðslunni í nokkra daga. Bræðslan er ríkishátíð Kop.is og gefum tveimur heppnum tvo miða á Bræðsluna í ár. Það er koluppselt á hátíðina og því um að gera að freista gæfunnar að vinna miða. Eina sem þarf til að vera með er að skilja eftir ummæli við þessa færslu á Facebook síðu Kop.is

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og SSteinn

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:

    Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf

  27. Gullkastið – Er Ennþá Séns?

    1 h 10 minSeason 2026 · Episode 565

    Einvígið gegn PSG er í brennidepli og ljóst að Liverpool er í gríðarlegri brekku núna þegar einvígið er hálfnað eftir vond úrslit og enn verri frammistöðu í París. Ef það er eitt lið sögulega sem getur snúið …

    Show notes

    Einvígið gegn PSG er í brennidepli og ljóst að Liverpool er í gríðarlegri brekku núna þegar einvígið er hálfnað eftir vond úrslit og enn verri frammistöðu í París. Ef það er eitt lið sögulega sem getur snúið svona stöðu þá er það að sjálfsögðu Liverpool þannig að höldum ennþá aðeins í vonina.

    Meistaradeildarsæti á næsta tímabili er hinsvegar ennþá möguleiki eftir nokkuð góða helgi í ensku deildinni. Chelsea og Aston Villa töpuðu stigum á meðan Liverpool vann góðan sigur á Fulham. Spáum aðeins í stöðuna í deildinni almennt enda áhugaverð staða á flestum vígsstöðvum.

    Bræðslan 2026 – Gjafaleikur Áskell Heiðar Bræðslustjóri var með okkur að þessu sinni en þeir bræður eru einmitt að fara hefja sölu miða á Bræðsluna 2026 og kynntu byrjunarliðið á Bræðslunni í dag. Sjá nánar hér Bræðslan er ríkishátíð Kop.is og af þessu tilefni hlöðum við í gjafaleik og gefum tveimur heppnum tvo miða á Bræðsluna í ár.

    Eina sem þarf til að vera með er að skilja eftir ummæli við þessa færslu eða þessa færslu á Facebook síðu Kop.is og hafa netfang með.

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi og Áskell Heiðar

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:

    Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf

  28. Gullkastið – Allt Undir

    1 h 1 minSeason 2026 · Episode 564

    Frammistaða Liverpool um helgina var í beinu framhaldi af tímabilinu í heild og því lá við að skoða hvað væri raunverulega í boði á þjálfaramarkaðnum í sumar. Hvaða nöfn eru þetta sem eru efst hjá veðbönkum og …

    Show notes

    Frammistaða Liverpool um helgina var í beinu framhaldi af tímabilinu í heild og því lá við að skoða hvað væri raunverulega í boði á þjálfaramarkaðnum í sumar. Hvaða nöfn eru þetta sem eru efst hjá veðbönkum og er hægt að máta þá stjóra við Liverpool? Verkefni þessarar viku ráða svo líklega úrslitum um þetta tímabil og jafnvel næsta tímabil líka. Ef að Liverpool liðið ætlar að sýna eitthvað baráttuþrek og hjarta í vetur þá þetta tímapunkturinn til að byrja.

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:

    Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf

  29. Gullkastið – Sumarið Er Tíminn

    58 minSeason 2026 · Episode 563

    Hvað gerir Liverpool í sumar? Það þarf að fylla fleiri stór skörð en bara það sem Mo Salah skilur eftir sig til að koma Liverpool aftur á rétta braut. Landsleikjapásunni er lokið og komið er að stórleik á …

    Show notes

    Hvað gerir Liverpool í sumar? Það þarf að fylla fleiri stór skörð en bara það sem Mo Salah skilur eftir sig til að koma Liverpool aftur á rétta braut. Landsleikjapásunni er lokið og komið er að stórleik á útivelli í FA Cup.

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:

    Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf

  30. Gullkastið – Salah Kveður í Sumar

    1 h 13 minSeason 2026 · Episode 562

    Sprengja á meðan við vorum að taka upp, Egypski kóngurinn Mo Salah tilkynnti að hann ætlar að kveðja í sumar, við bregðumst við þeim fréttum þegar um 10 mínútur eru liðnar af þættinum. Brottför hans þurfum við …

    Show notes

    Sprengja á meðan við vorum að taka upp, Egypski kóngurinn Mo Salah tilkynnti að hann ætlar að kveðja í sumar, við bregðumst við þeim fréttum þegar um 10 mínútur eru liðnar af þættinum. Brottför hans þurfum við auðvitað að gera mun betri skil þegar líður á vorið enda Salah einn af þeim allra stærstu í sögu félagsins. Hér er t.d. dæmi um þá gleði sem hann hefur gefið okkur sem kannski sést ekki á metalistanum Including Man Utd players, Mohamed Salah is the eighth-highest PL scorer at Old Trafford in the 2020s

    Liverpool er annars í frjálsu falli í deildinni og Meistaradeildarsæti ólíklegt eins og liðið er að spila. Framundan eru fjórir leikir í þremur keppnum sem gætu haft töluvert að segja um framhaldið. Staða Arne Slot er vægast sagt ekki góð, skoðum aðeins hvaða nöfn við gætum verið að horfa sig í sumar (eða fyrr) geri Liverpool breytingar á toppnum sem verða að teljast ansi líklegar (nauðsynlegar) eins og staðan er núna. Skoðum leiki vikunnar, góðan sigur á Gala og ömurlegt tap í kjölfarið gegn Brighton.

    Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:

    Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf

These are the latest 40 of 417 episodes. You’ll find older episodes in the podcast’s feed.

Similar podcasts

More Sports podcasts
Is this your podcast?

Confirm it with an entry in your feed: you get a code here, add it as podcast:txt to the channel of your feed, and we check it. Your podcast is then shown as “verified” on SoundNode.

Settings

Display

Language

Decides which stations you see first on the home page.

History

Recently played stations and episodes and your latest searches are only stored in this browser.

Notifications

A short notice when a podcast you follow has a new episode. Turn off single podcasts with the bell on their page.

Account

Save favorites – in the app and on the website.

Keyboard shortcuts

/
Open search
Space
Play or pause
← →
In the player: back 15 s, forward 30 s (episodes) · in a row: next tile
↑ ↓
In a row: target within the tile
Home / End
In a row: first or last tile
Esc
Close window or menu
?
This overview
Now playing

Go to station page

Play next

    Add episodes with “Play next” – they play after the current episode.