Skip to content
Handkastið
PodcastSportsIS

Handkastið

NewVerður samstarfinu slitið fyrir norðan og einvígi landsliðsmarkmannannaNovember 13, 2026 · 1 h 12 min
Episodes
378
Released
several times a week
Latest episode
Nov 13, 2026

About the podcast

Podcast by Handkastið

Episodes 378

  1. Verður samstarfinu slitið fyrir norðan og einvígi landsliðsmarkmannanna

    1 h 12 min

    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Geiri Gunn mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins í kvöld og gerðu upp vikuna í handboltanum. Fyrsta skóflustunga var tekin af nýrri þjóðarhöll í dag. Enn einn Íslendingurinn er á …

    Show notes
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Geiri Gunn mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins í kvöld og gerðu upp vikuna í handboltanum. Fyrsta skóflustunga var tekin af nýrri þjóðarhöll í dag. Enn einn Íslendingurinn er á leið til Þýskalands. FH unnu stórleikinn við Val. Einvígi landsliðsmarkmannanna var á allra vörum eftir leik kvöldsins. Haukar orðnir deildarmeistarar? Munu KA/Þór einnig slíta samstarfinu í handboltanum á næstu leiktíð? ÍR lentu á Valsveggnum í síðari hálfleik. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastins.
  2. Gönguferð í Tallinn og hverjir ákveða búningana fyrir leiki?

    58 min

    Stymmi Klippari, Davíð Már og Björn Ingi mættu í Rapyd stúdíó-ið og gerðu upp helgina í handboltanum hér heima og erlendis. Þægilegur sigur landsliðsins í Tallinn. Bjarki Már var frábær í þessu verkefni. Reynir …

    Show notes
    Stymmi Klippari, Davíð Már og Björn Ingi mættu í Rapyd stúdíó-ið og gerðu upp helgina í handboltanum hér heima og erlendis. Þægilegur sigur landsliðsins í Tallinn. Bjarki Már var frábær í þessu verkefni. Reynir Þór að stimpla sig inn í landsliðið. Bjöggi kominn í 300 leiki. Kvennalið Hauka með stórsigur í Evrópu. "Nýliðar" Selfoss safna stigum í Olís deildinni. Olís deildin fer aftur af stað í vikunni. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastins.
  3. Nýtt vopn í Reyni Þór og þróun handboltans

    51 min

    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp landsins Íslands og Úkraínu á miðvikudaginn. Ísland setti markamet í Laugardagshöllinni. Ómar Ingi kominn í 400 marka …

    Show notes
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp landsins Íslands og Úkraínu á miðvikudaginn. Ísland setti markamet í Laugardagshöllinni. Ómar Ingi kominn í 400 marka klúbbinn. Reynir Þór með frábæra innkomu og gæti verið nýtt vopn fyrir Snorra Stein. Leikgleðin lak af Jóni Bjarna í hans fyrsta heimaleik með landsliðinu. Haukar eru á toppi Olís deildinnar og spila í Evrópu um helgina. Hvað hefur komið okkur mest á óvart í Olís deildunum, Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  4. Landsleikjavika og línur farnar að skýrast í Olís deildinni

    1 h 16 min

    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Gaupi mættu í Rapyd stúdíó Handkastins og gerðu upp handboltahelgina hér heima og erlendis. Strákarnir Okkar spila í vikunni í Laugardagshöllinni og eru örfáir miðar ennþá …

    Show notes
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Gaupi mættu í Rapyd stúdíó Handkastins og gerðu upp handboltahelgina hér heima og erlendis. Strákarnir Okkar spila í vikunni í Laugardagshöllinni og eru örfáir miðar ennþá til sölu. Arnar Pétursson vonast eftir að fá að halda vegferðinni áfram með kvenna landsliðið. Landsliðsstrákar orðaðir við hin og þessi félög í Evrópu. Haukar fóru illa með KA í toppslagnum. Fáliðaðir Eyjamenn unnu frábæran sigur á Stjörnunni. Vandræði Frammara halda áfram eftir tap gegn Víking. Eyjakonur unnu Gróttu án Birnu Berg. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  5. Arnar Pétursson ræðir EM hópinn - vegferðina og framtíð sína sem landsliðsþjálfari Íslands

    13 min

    Ítarlegt viðtal við Arnar Pétursson þjálfara íslenska kvennalandsliðsins en í hádeginu í dag kynnti hann 17 manna EM hóp sinn fyrir komandi stórmót. Arnar Pétursson tók við íslenska kvennalandsliðinu í ágúst …

    Show notes
    Ítarlegt viðtal við Arnar Pétursson þjálfara íslenska kvennalandsliðsins en í hádeginu í dag kynnti hann 17 manna EM hóp sinn fyrir komandi stórmót. Arnar Pétursson tók við íslenska kvennalandsliðinu í ágúst árið 2019 og er því á sínu sjötti ári með liðið. Hann er á leið á sitt fjórða stórmót í röð en samningur hans við HSÍ rennur út eftir mótið. Hann ræddi EM hópinn, framtíðina, stöðuna á leikmönnum hópsins, vegferðina og framtíð sína sem þjálfara íslenska landsliðsins.
  6. Besta byrjun Hauka síðan 2000 og Selfoss á síðasta séns

    1 h 12 min

    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Benni Grétars mættu í Rapyd stúdíóið og gerðu upp heila umferð í Olís deild karla sem fram fór í vikunni. Haukarnir geta ekki hætt að vinna leiki og stefna á bestu byrjun …

    Show notes
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Benni Grétars mættu í Rapyd stúdíóið og gerðu upp heila umferð í Olís deild karla sem fram fór í vikunni. Haukarnir geta ekki hætt að vinna leiki og stefna á bestu byrjun síðan árið 2000. KA fór í Kaplakrika og rassskellti FH. Selfoss eru á síðasta séns hjá Séffanum. ÍBV fóru fáliðaðir í Virkið og tóku bæðin stigin með sér til Eyja. Gunnar Róberts hafði hægt um sig í þessari umferð en þá mætti Arnór Snær til leiks. Olís deild kvenna er að fara aftur af stað eftir landsleikjahlé. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  7. Sérveitin verður heima og Haukar ætla ekki að tapa leik

    1 h 3 min

    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Einar Ingi mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum hér heima og erlendis. Gunnar Róbertsson heldur áfram að vera allt í öllu þegar Valur vann …

    Show notes
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Einar Ingi mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum hér heima og erlendis. Gunnar Róbertsson heldur áfram að vera allt í öllu þegar Valur vann ÍBV. Guðjón Valur var fyrstur til að vinna Flensburg í þ´ýsku úrvalsdeildinni. Haukar ætla sér langt í Evrópu þetta árið. Línur eru farnar að skýrast í Olís deild karla. Tvær umferðir framundan í vikunni hjá körlunum. Stelpurnar fara aftur af stað í vikunni eftir landsleikjahlé. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  8. 18 ára á meðal markahæstu leikmanna Evrópu og hverjir hafa komið mest á óvart?

    1 h 11 min

    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum á Íslandi og erlendis. Gunnar Róbertsson er 5. markahæsti leikmaður Evrópudeildarinnar …

    Show notes
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum á Íslandi og erlendis. Gunnar Róbertsson er 5. markahæsti leikmaður Evrópudeildarinnar. Íslenska kvennalandsliðið vann Pólland í leik sem fór fram í kyrrþey í Póllandi. Línur farnar að skýrast í Meistaradeild Evrópu. Afturelding missti 2 leikmenn í meiðsli gegn KA. Markvarsla neðstu liða Olís deildinnar er áhyggjuefni. Nóg af handbolta um helgina. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  9. Yfirvinna í Eyjum og allt undir á Selfossi

    1 h 18 min

    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum hérlendis og erlendis. Var eitthvað óvænt í landsliðshóp Snorra Steins? Þarf að breyta …

    Show notes
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum hérlendis og erlendis. Var eitthvað óvænt í landsliðshóp Snorra Steins? Þarf að breyta félagsskiptaglugganum í Evrópu? Þórsarar náðu 50% árangri í Eyjum um helgina en það var nóg að gera hjá dómaraparinu. Stjarnan er að koma öllum á óvart í upphafi tímabilsins. Hafdís mætti aftur í markið hjá Val og lokaði búrinu. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  10. Valur með svarta beltið í Evrópu og fimm mestu harðhausar Olís-deildanna

    1 h 3 min

    Sérfræðingurinn fékk Sigurjón Friðbjörn og Gunnar Val beint af grillinu í Rapyd-stúdíóið. Farið var yfir fyrstu tvo leikina í 6.umferð Olís-deildar karla og spáð í spilin í næstu leiki auk þess sem spa´ð var í …

    Show notes
    Sérfræðingurinn fékk Sigurjón Friðbjörn og Gunnar Val beint af grillinu í Rapyd-stúdíóið. Farið var yfir fyrstu tvo leikina í 6.umferð Olís-deildar karla og spáð í spilin í næstu leiki auk þess sem spa´ð var í spilin í 6.umferð í Olís-deild kvenna. Farið var yfir frammistöðu Vals og FH í Evrópudeildinni. Í lokin var farið yfir fimm mestu harðhausana í Olís-deildum karla og kvenna og var Sérfræðingurinn fenginn til að blind ranka leikmennina. Þar var mikið hlegið og mikið fjör.
  11. Facebook færslur og hvað er í gangi hjá Fram?

    1 h 10 min

    Sérfræðingurinn, Einar Ingi og Ásgeir Jónsson settust í Rapyd-stúdíó-ið og fóru yfir Facebook færslur, Olís-deild kvenna, Powerade-bikar karla, spáðu í spilin fyrir næstu umferð í Olís-deild karla og sitthvað …

    Show notes
    Sérfræðingurinn, Einar Ingi og Ásgeir Jónsson settust í Rapyd-stúdíó-ið og fóru yfir Facebook færslur, Olís-deild kvenna, Powerade-bikar karla, spáðu í spilin fyrir næstu umferð í Olís-deild karla og sitthvað fleira í þessum þætti. Erlingur Richardsson er ósigraður í Þýskalandi og óskum við honum til hamingju með það að hætti Maggi Stef. Valur og FH verða í eldlínunni í Evrópudeildinni þar sem Valur er í dauðafæri að koma sér í kjörstöðu í sínum riðli. Arnar Pétursson og Rakel Dögg Bragadóttir settust við lyklaborðið a´ dögunum og skrifuðu Facebook-færslur sem farið var vel yfir. Þá var velt fyrir sér þeirri ákvörðun Þórs að spila tvo leiki á tveimur dögum í Vestmannaeyjum um næstu helgi.
  12. Þjálfarinn ræður og hvað er að fæðast í Mosfellsbænum?

    1 h 2 min

    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Davíð Már mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum. Arnar Pétursson er búinn að velja landsliðshópinn og hann ræður. Haukar og Afturelding eru …

    Show notes
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Davíð Már mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum. Arnar Pétursson er búinn að velja landsliðshópinn og hann ræður. Haukar og Afturelding eru mættir í 8 liða úrslit Powerade bikarsins. Fáum við óvænt úrslit í hinum leikjum 16 liða úrslitanna? Gidsel jafnaði markametið og Emil Nilsen er allt önnur skepna hjá Veszprém. Heil umferð í Olís deild kvenna um helgina. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  13. Evrópa truflaði ekki og markaskor nær nýjum hæðum í Olís deildinni

    1 h 7 min

    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó´ Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum hér heima og erlendis. Valur og FH létu ekki Evrópuleikina trufla sig og unnu sigra í Olís …

    Show notes
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó´ Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum hér heima og erlendis. Valur og FH létu ekki Evrópuleikina trufla sig og unnu sigra í Olís deildinni. HK vann sigur á Stjörnunni í svokölluðum fjögurra stiga leik. Þrjú lið eru á toppi Olís deildar kvenna með fullt hús stiga eftir fjórar umferðir. Botnbaráttan mun vera æsispennandi hjá stelpunum í vetur. Álaborg skíttapaði gegn GOG í dönsku deildinni um helgina. Strákarnir okkar eru hættir að vera í liði umferðarinnar í Þýsklandi. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  14. Fjárhagsvandamál hjá Val og voru menn sviknir í Eyjum?

    1 h 11 min

    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Einar Ingi mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum hérlendis og erlendis. Orri Freyr er á leiðinni til Guðjóns Vals. Veszprem eru heimsmeistarar …

    Show notes
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Einar Ingi mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum hérlendis og erlendis. Orri Freyr er á leiðinni til Guðjóns Vals. Veszprem eru heimsmeistarar félgasliða. Mönnum var heitt í hamsi fyrir Vestan. Sissi kveður Val með 13 titla í farteskinu. Fram eru í mikilli brekku eftir 18 marka tap gegn UMFA. KA og Haukar með góða sigra í 5.umferðinni. Mikill handbolti alla helgina bæði hjá strákunum og stelpunum. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  15. Þjálfaraskipti og krísufundur í Olís deild karla

    1 h 6 min

    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Ásgeir Jónsson mættu í Rapyd stúdíó-ið og gerðu upp handbolta helgina hér heima og erlendis. Valur og FH byrja Evrópuævintýrið í vikunni. Mikið um óvænt úrslit í Olís deild …

    Show notes
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Ásgeir Jónsson mættu í Rapyd stúdíó-ið og gerðu upp handbolta helgina hér heima og erlendis. Valur og FH byrja Evrópuævintýrið í vikunni. Mikið um óvænt úrslit í Olís deild karla. Hvernig eru liðin í Olís deild karla að hefja tímabilið? Erlingur Richardsson hefur tekið við þjálfun hjá Minden í Þýskalandi og fengum við þær upplýsingar í miðjum þættinum. Olís deild kvenna hefst aftur í vikunni. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  16. 307 daga bið Stjörnunnar á enda og nennir enginn að spila vörn lengur?

    1 h 3 min

    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Sigurjón Friðbjörn mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum á Íslandi og erlendis. Haukar unnu FH en gerðu sitt besta til að kasta leiknum frá …

    Show notes
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Sigurjón Friðbjörn mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum á Íslandi og erlendis. Haukar unnu FH en gerðu sitt besta til að kasta leiknum frá sér. Stjarnan vann loksins í Olís deildinni eftir 307 daga bið. Einar Jónsson var virkilega ósáttur með sína menn. Afturelding fór illa með Selfyssinga. HK fór til Eyja og stal báðum stigunum. Einars Braga hornið hóf göngu sína í Handkastinu. Þetta og miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  17. Jóhanna í hefndarhug og það styttist alltaf í sigurleik

    1 h 3 min

    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum hér heima og erlendis. Magdeburg tapaði óvænt gegn Melsungen. Elítuhópurinn æfði um helgina …

    Show notes
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum hér heima og erlendis. Magdeburg tapaði óvænt gegn Melsungen. Elítuhópurinn æfði um helgina. Haukar vinnu stórleikinn í kvennaboltanum um helgina. Meiðsli herja á leikmenn og þjálfarateymi KA/Þórs. Fram tapaði niður 9 marka forskoti. FH og Haukar mætast í st´órleik á fimmtudaginn. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  18. Þór með montréttinn og kveður Gunnar Róbertsson okkur í janúar?

    1 h 8 min

    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Björn Ingi mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp 3.umferð í Olís deild karla. Gunnar Róbertsson er á góðri leið með að taka yfir þessa deild. Siggi Dan bjargaði …

    Show notes
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Björn Ingi mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp 3.umferð í Olís deild karla. Gunnar Róbertsson er á góðri leið með að taka yfir þessa deild. Siggi Dan bjargaði stigi fyrir Stjörnuna fyrir austan fjall. Þórsarar unnu KA á útivelli í kvöld og eru með montréttinn fyrir norðan næstu dagana. Haukar eru á toppi deildinnar með fullt hús stiga. Heil umferð fer fram í Olís deild kvenna um helgina. Þetta og miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  19. Markametið slegið og undarlegustu félagsskipti síðustu ára

    1 h 3 min

    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Gaupi mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum á Íslandi. Víkingar verða byrja leikina. Hvað var KA að spá að reyna ekki að halda í Magnús Dag? …

    Show notes
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Gaupi mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum á Íslandi. Víkingar verða byrja leikina. Hvað var KA að spá að reyna ekki að halda í Magnús Dag? Markametið slegið á Hlíðarenda? Verður Einar Jónsson að fara að róa sig? Valskonur svöruðu eftir slæma byrjun með þægilegum sigri á ÍBV. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastins.
  20. Aron til bjargar og Eyjamenn með veskið á lofti

    54 min

    Stymmi Klippari, Geiri Gunn og Davíð Már mættu í Rapyd stúdíóið og gerðu upp vikuna í handboltanum hér á Íslandi og erlendis. Aron reddar Íslendingum og mætir til landsins í janúar. Arnar Pétursson hefur valið …

    Show notes
    Stymmi Klippari, Geiri Gunn og Davíð Már mættu í Rapyd stúdíóið og gerðu upp vikuna í handboltanum hér á Íslandi og erlendis. Aron reddar Íslendingum og mætir til landsins í janúar. Arnar Pétursson hefur valið æfingarhóp fyrir landsliðið. Danskir dagar í Þorpinu þegar Þórsarar unnu sinn fyrsta leik í vetur. FH kastaði frá sér sigri í Mosfellsbænum. Nóg af handbolta alla helgina bæði í karla og kvenna. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  21. Óvæntustu úrslit síðari ára og 2010 árgangurinn er mættur til leiks

    1 h 9 min

    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum. Haukar mættu til leiks með látum. Það tók 2 sólarhringa að klára leik Aftureldingar og …

    Show notes
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum. Haukar mættu til leiks með látum. Það tók 2 sólarhringa að klára leik Aftureldingar og Víkings. Selfoss kom öllum á óvart og unnu Íslandsmeistaranna. Stelpurnar voru með skotleyfi um helgina. Lið umferðanna opinberuð. Þetta og miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  22. Valur slapp með skrekkinn og ný nöfn í deild þeirra bestu

    1 h 2 min

    Olís-deild karla er farin af stað og hinar deildirnar hefjast um helgina. Boltinn er farinn að rúlla í Evrópu. Óvænt félagaskipti síðustu daga og nýtt félag í Grill66-deildinni. Sérfræðingurinn, Einar Ingi og …

    Show notes
    Olís-deild karla er farin af stað og hinar deildirnar hefjast um helgina. Boltinn er farinn að rúlla í Evrópu. Óvænt félagaskipti síðustu daga og nýtt félag í Grill66-deildinni. Sérfræðingurinn, Einar Ingi og Kiddi Bomba fóru yfir allt það helsta í Rapyd stúdíóinu.
  23. Olís deildirnar að byrja, Iðkendagjöld HSÍ og yfirferð á Olísdeild kvenna

    1 h 18 min

    Stymmi Klippari, Sigurjón Friðbjörn, Gunnar Valur og Björn Ingi mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og fóru yfir fréttir vikunnar. Iðkendagjöld HSÍ voru rædd og möguleg útfærsla á þeim. Ákvörðun Víkinga að taka …

    Show notes
    Stymmi Klippari, Sigurjón Friðbjörn, Gunnar Valur og Björn Ingi mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og fóru yfir fréttir vikunnar. Iðkendagjöld HSÍ voru rædd og möguleg útfærsla á þeim. Ákvörðun Víkinga að taka ekki þátt í Olís deild kvenna var rædd. Selfyssingar ósáttir við vinnubrögð Víkinga. Yfirferð yfir öll liðin í Olís deild kvenna Olís deildirnar hefjast í vikunni. Þetta og miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  24. Tvær bombur úr Virkinu og yfirferð yfir Olís deild karla

    1 h 33 min

    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og fóru yfir helstu mál handboltans í dag. Kvennalið Víkings hefur afþakkað sæti sitt í Olís deild kvenna 9 dögum fyrir fyrsta …

    Show notes
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og fóru yfir helstu mál handboltans í dag. Kvennalið Víkings hefur afþakkað sæti sitt í Olís deild kvenna 9 dögum fyrir fyrsta leik. Stiven Tobar Valencia er ennþá án liðs. Fórum yfir öll liðin í Olís deild karla og veltum fyrir okkur félagskiptaglugga liðanna, áhyggjum fyrir komandi tímabil, þakinu, gólfinu og hver er með lyklavöldin þegar nýtt tímabil fer af stað. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  25. Barnalandsliðin vinna ekkert án Heimis og mánuður í mót

    1 h 20 min

    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Davíð Már kíktu í stúdíó Handkastsins og fór yfir fréttir vikunnar. Handboltapassinn er kominn yfir á Livey. 18 ára landsliðs okkar datt út í dag gegn Þýskalandi á HM. Heimir …

    Show notes
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Davíð Már kíktu í stúdíó Handkastsins og fór yfir fréttir vikunnar. Handboltapassinn er kominn yfir á Livey. 18 ára landsliðs okkar datt út í dag gegn Þýskalandi á HM. Heimir Ríkharðsson er eini þjálfarinn sem hefur klárað þann stóra. Mánuður í mót og mörg lið þurfa ennþá að styrkja sínar herbúðir fyrir veturinn. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  26. Stútfullur fréttapakki í sumarútgáfu Handkastsins

    57 min

    Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í stúdíó Handkastsins og fóru yfir fréttir sumarsins. Vinstri hornamenn landsliðssins á ferð og flugi. Unglingalandsliðin út um allan heim undanfarnar viku. Hreyfingar á …

    Show notes
    Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í stúdíó Handkastsins og fóru yfir fréttir sumarsins. Vinstri hornamenn landsliðssins á ferð og flugi. Unglingalandsliðin út um allan heim undanfarnar viku. Hreyfingar á íslenska markaðnum. Ótímabær spá í karla og kvenna. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  27. Gústi Jó fer yfir tímabilið og fréttir vikunnar með Handkastinu

    1 h 9 min

    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Gústi Jó mættu í stúdíó Handkastsins og gerðu upp fréttir vikunnar. Dagur Árni genginn í raðir KA. Er Benedikt Gunnar Óskarsson á leiðinni heim í Val. Valur tekur alltaf …

    Show notes
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Gústi Jó mættu í stúdíó Handkastsins og gerðu upp fréttir vikunnar. Dagur Árni genginn í raðir KA. Er Benedikt Gunnar Óskarsson á leiðinni heim í Val. Valur tekur alltaf stöðuna á strákunum sínum erlendis eftir hvert ´tímabil. Aron Pálmarsson tekinn við FH. Handboltafólkið okkar heldur áfram að gera frábæra hluti erlendis með félagsliðum sínum. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  28. Viðtal við nýráðinn þjálfara FH - Aron Pálmarsson

    8 min

    Aron Pálmarsson var kynntur sem nýr þjálfari karlaliðs FH í dag.

  29. Viðtal við Steina Arndal fráfarandi þjálfara FH

    10 min

    Viðtal við Steina Arndal eftir að hann var kynntur sem nýr aðstoðarþjálfari FH og stígur til hliðar sem aðalþjálfari liðsins eftir sjö ár í starfi.

  30. Þjálfarabreytingar í Krikanum og samningarlausir Íslendingar

    56 min

    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp síðustu dagana í handboltanum. Það stefnir allt í að það verði þjálfarabreytingar í Krikanum þar sem Aron Pálmarsson …

    Show notes
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp síðustu dagana í handboltanum. Það stefnir allt í að það verði þjálfarabreytingar í Krikanum þar sem Aron Pálmarsson gæti verið næsti þjálfari karlaliðsins. Valsmenn eru byrjaðir að styrkja sig. Íslendingar í Kolstad á leiðinni heim? Elín Klara og Einar Bragi að gera það gott í Svíþjóð. Hvar enda Bjarki Már og Stiven Tobar? Hvað eru heitustu take Stymma og Kidda fyrir næsta tímabil? Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

These are the latest 40 of 378 episodes. You’ll find older episodes in the podcast’s feed.

Similar podcasts

More Sports podcasts
Is this your podcast?

Confirm it with an entry in your feed: you get a code here, add it as podcast:txt to the channel of your feed, and we check it. Your podcast is then shown as “verified” on SoundNode.

Settings

Display

Language

Decides which stations you see first on the home page.

History

Recently played stations and episodes and your latest searches are only stored in this browser.

Notifications

A short notice when a podcast you follow has a new episode. Turn off single podcasts with the bell on their page.

Account

Save favorites – in the app and on the website.

Keyboard shortcuts

/
Open search
Space
Play or pause
← →
In the player: back 15 s, forward 30 s (episodes) · in a row: next tile
↑ ↓
In a row: target within the tile
Home / End
In a row: first or last tile
Esc
Close window or menu
?
This overview
Now playing

Go to station page

Play next

    Add episodes with “Play next” – they play after the current episode.