
Segðu mér með Viktoríu Hermannsdóttur
- Episódios
- 62
- Formato
- Série – ouça desde o começo
- Último episódio
- 6 ago 2026
Sobre o podcast
Gestur úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir
Episódios 62
Ívar Örn Hansen - helvítis kokkurinn
Ívar Örn Hansen betur þekktur sem Helvítis kokkurinn er gestur Viktoríu Hermannsdóttur í dag. Ívar var ungur þegar hann fékk áhuga á matargerð. Hann var varaður við af læknum að hann myndi fá hjartaáfall ef …
Notas do episódio
Ívar Örn Hansen betur þekktur sem Helvítis kokkurinn er gestur Viktoríu Hermannsdóttur í dag. Ívar var ungur þegar hann fékk áhuga á matargerð. Hann var varaður við af læknum að hann myndi fá hjartaáfall ef hann tæki sig ekki á og það reyndist rétt. Fyrir nokkrum árum tók hann ákvörðun um að láta á það reyna að vinna fyrir sjálfan sig og er í dag einkakokkur fyrir ríka ferðamenn meðal annars. Hann framleiðir líka sultur undir nafninu Helvítis. Við kynnumst Ívari betur í þætti dagsins.Berglind Viggósdóttir
Berglind Viggósdóttir er gestur Viktoríu Hermannsdóttur í dag. Hún hefur misst tvo syni og hefur heitið því að berjast fyrir bættum úrræðum innan kerfisins fyrir börn sem passa ekki inn í hið hefðbundna kerfi …
Notas do episódio
Berglind Viggósdóttir er gestur Viktoríu Hermannsdóttur í dag. Hún hefur misst tvo syni og hefur heitið því að berjast fyrir bættum úrræðum innan kerfisins fyrir börn sem passa ekki inn í hið hefðbundna kerfi. Eftir að hafa barist í hljóði fyrir sonum sínum allt frá unga aldri ákvað hún að skila skömminni og gera sitt til að bæta kerfið í minningu þeirra.Silja Sóley Birgisdóttir
Silja Sóley Birgisdóttir borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands er gestur Viktoríu Hermannsdóttur í dag. Hún segist hafa komið sjálfri sér á óvart í baráttunni enda séu aðeins örfá ár síðan að hún var svo …
Notas do episódio
Silja Sóley Birgisdóttir borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands er gestur Viktoríu Hermannsdóttur í dag. Hún segist hafa komið sjálfri sér á óvart í baráttunni enda séu aðeins örfá ár síðan að hún var svo feimin og kvíðin að koma fram að hún fékk að flytja kynningar fyrir kennara sína í einrúmi. Við heyrum sögu Silju Sóleyjar í þætti dagsins.Snorri Helgason
Tónlistarmaðurinn Snorri Helgason hefur verið heillaður af tónlist frá barnsaldri. Hann les allt sem hann kemst yfir um tónlist, meira segja ævisögur tónlistarmanna sem hann er ekki sérlega hrifinn af. Snorri …
Notas do episódio
Tónlistarmaðurinn Snorri Helgason hefur verið heillaður af tónlist frá barnsaldri. Hann les allt sem hann kemst yfir um tónlist, meira segja ævisögur tónlistarmanna sem hann er ekki sérlega hrifinn af. Snorri missti föður sinn sama dag og útgáfutónleikar hans fóru fram og hann segir ekkert annað hafa komið til greina en að halda tónleikana og um leið minnast föður síns, tónlistarmannsins Helga Péturssonar.Þórir Kjartansson
Þórir Kjartansson bílstjóri og öryggisvörður borgarstjóra er gestur Viktoríu Hermannsdóttur í Segðu mér í dag. Saga Þóris er sannkölluð kraftaverkasaga en hann fór frá því að vera heimilislaus og sofa stundum í …
Notas do episódio
Þórir Kjartansson bílstjóri og öryggisvörður borgarstjóra er gestur Viktoríu Hermannsdóttur í Segðu mér í dag. Saga Þóris er sannkölluð kraftaverkasaga en hann fór frá því að vera heimilislaus og sofa stundum í bílakjallara ráðhússins yfir í að vera bílstjóri borgarstjóra. Hann segir okkur ótrúlega sögu sína í dag- frá ofbeldi, neyslu og skömm yfir í að öðlast frelsi, fallegt líf og að vera treyst fyrir mikilli ábyrgð í störfum sínum. Við kynnumst Þóri í þætti dagsins.Sigríður Birna Sigvaldadóttir
Sigríður Birna Sigvaldadóttir er gestur Viktoríu Hermannsdóttur í Segðu mér í dag. Hún var á dögunum valinn sjálfboðaliði ársins hjá Rauða krossinum fyrir starf sitt með föngum. Hún stendur fyrir konukvöldum …
Notas do episódio
Sigríður Birna Sigvaldadóttir er gestur Viktoríu Hermannsdóttur í Segðu mér í dag. Hún var á dögunum valinn sjálfboðaliði ársins hjá Rauða krossinum fyrir starf sitt með föngum. Hún stendur fyrir konukvöldum einu sinni í viku í fangelsinu á Hólmsheiði þar sem reynt er að gleyma lífinu í fangelsinu um stund. Hún hefur mikla trú á að betrun skili fólki betra út í lífið að afplánun lokinni. Sigríður segir okkur frá lífi sínu og veitir innsýn inn í líf í fangelsum á Íslandi.María Einarsdóttir, Maya
María Einarsdóttir framkvæmdastjóri NTC er gestur Viktoríu Hermannsdóttur í Segðu mér í dag. María var orkumikið barn sem skipti nánast á einni nóttu íþróttum út fyrir tísku. Hún hefur lifað og hrærst í heimi …
Notas do episódio
María Einarsdóttir framkvæmdastjóri NTC er gestur Viktoríu Hermannsdóttur í Segðu mér í dag. María var orkumikið barn sem skipti nánast á einni nóttu íþróttum út fyrir tísku. Hún hefur lifað og hrærst í heimi tískunnar í áratugi en tók líf sitt í gegn fyrir um 15 árum, hætti að drekka og gerði upp áföll, meðal annars sáran barnsmissi en elsti sonur hennar lést aðeins nokkurra mánaða gamall.Monika Hjálmtýsdóttir
Monika Hjálmtýsdóttir er gestur Viktoríu Hermannsdóttur í Segðu mér í dag. Monika varð eiginlega óvart fasteignasali en er í dag formaður félags fasteignasala. Hún gekk í gegnum mikinn missi fyrir tveimur árum …
Notas do episódio
Monika Hjálmtýsdóttir er gestur Viktoríu Hermannsdóttur í Segðu mér í dag. Monika varð eiginlega óvart fasteignasali en er í dag formaður félags fasteignasala. Hún gekk í gegnum mikinn missi fyrir tveimur árum þegar bróðir hennar, tónlistarmaðurinn Róbert Örn Hjálmtýsson, lést langt fyrir aldur fram. Hún segist í dag skilgreina lífið fyrir og eftir þann missi. Við kynnumst Moniku betur í þætti dagsins.Ragnar Jónasson
Rithöfundurinn Ragnar Jónasson hefur skrifað frá unga aldri. Hann bjóst þá aldrei við því að geta lifað af skrifunum - hvað þá að bækur hans væru seldar í 35 löndum og þýddar á 27 tungumálum. Í dag ferðast hann …
Notas do episódio
Rithöfundurinn Ragnar Jónasson hefur skrifað frá unga aldri. Hann bjóst þá aldrei við því að geta lifað af skrifunum - hvað þá að bækur hans væru seldar í 35 löndum og þýddar á 27 tungumálum. Í dag ferðast hann um heim allan að kynna bækur sínar en finnst þó mikilvægast að gefa sér tíma til að sinna skriftum.Guðni Már Harðarson
Guðni Már Harðarsson var harðákveðinn frá unglingsaldri að verða prestur. Hann segir að starfið sé gefandi og hans köllun en það geti líka verið erfitt. Hann segir það hafa reynt mikið á að koma að hrikalegu …
Notas do episódio
Guðni Már Harðarsson var harðákveðinn frá unglingsaldri að verða prestur. Hann segir að starfið sé gefandi og hans köllun en það geti líka verið erfitt. Hann segir það hafa reynt mikið á að koma að hrikalegu máli þegar ung stúlka í blóma lífsins var myrt, Bryndís Klara Birgisdóttir. En af þessu hörmulega máli hafi þó sprottið upp kærleikshreyfing í minningu hennar. Hann ákvað á dögunum að breyta til og stefnir nú til Danmerkur þar sem hann verður prestur Íslendinga í Kaupmannahöfn.Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fyrrverandi ráðherra og þingmaður hætti á þingi fyrir nokkrum mánuðum og gerist eftir nokkra daga sendiherra Íslands í London. Hún fer yfir ferilinn og ákvörðunina um að …
Notas do episódio
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fyrrverandi ráðherra og þingmaður hætti á þingi fyrir nokkrum mánuðum og gerist eftir nokkra daga sendiherra Íslands í London. Hún fer yfir ferilinn og ákvörðunina um að bjóða sig ekki fram til formanns, ákvörðun sem var henni erfið. Hún ræðir líka æskuárin á Akranesi, hvað mótaði hana mest og hvað framundan er.Rósa Ólöf Ólafíudóttir
Rósa Ólöf Ólafíudóttir ólst upp í mikilli fátækt og bjó á mörgum vistheimilum þar sem hún hlaut misgott atlæti. Hún þráði ekkert heitar en að fá að búa hjá móður sinni sem þráði að hafa börn sín hjá sér en fékk …
Notas do episódio
Rósa Ólöf Ólafíudóttir ólst upp í mikilli fátækt og bjó á mörgum vistheimilum þar sem hún hlaut misgott atlæti. Hún þráði ekkert heitar en að fá að búa hjá móður sinni sem þráði að hafa börn sín hjá sér en fékk ekki. Rósa vinnur nú að því að skrifa sögu bróður síns heitins, Lalla Johns.Sema Erla Serdaroglu
Sema Erla Serdaroglu hefur verið áberandi undanfarið ár í baráttu fyrir réttindum flóttafólks. Hún hefur fengið hótanir í ýmsu formi síðan hún hóf að vinna fyrir þennan hóp og hefur ekki tölu á öllum þeim …
Notas do episódio
Sema Erla Serdaroglu hefur verið áberandi undanfarið ár í baráttu fyrir réttindum flóttafólks. Hún hefur fengið hótanir í ýmsu formi síðan hún hóf að vinna fyrir þennan hóp og hefur ekki tölu á öllum þeim hótunum sem henni hafa borist. Gjarnan er vísað í uppruna hennar en Sema er hálf tyrknesk en hefur alltaf búið á Íslandi, gekk hér í skóla og er fermd til kristinnar trúar þó hún aðhyllist engin sérstök trúarbrögð í dag. Hún ræðir ofsóknirnar, baráttuna og unglingsárin þar sem örlagarík ferð á Neyðarvistun Stuðla breytti miklu í hennar lífi.Auður Guðjónsdóttir
Auður Guðjónsdóttir hefur í yfir þrjá áratugi barist fyrir rannsóknum á mænuskaða eftir að Hrafnhildur dóttir hennar lamaðist í alvarlegu bílslysi. Við heyrum sögu Auðar og Hrafnhildar heitinnar í þættinum í dag.
Patrik Atlason
Þegar Patrik Atlason var lítill ætlaði hann að verða betri en pabbi sinn í fótbolta. Þegar það gekk ekki eftir sneri hann sér alfarið að tónlistinni og það hefur heldur betur skilað sér enda er hann einn …
Notas do episódio
Þegar Patrik Atlason var lítill ætlaði hann að verða betri en pabbi sinn í fótbolta. Þegar það gekk ekki eftir sneri hann sér alfarið að tónlistinni og það hefur heldur betur skilað sér enda er hann einn vinsælasti tónlistarmaður landsins í dag. Hann reynir ekki að fela hvaðan hann kemur og segist hafa fengið meira en margir aðrir. Hann ræðir lífið, ferilinn og áfallið sem mótaði fjölskylduna þegar frændi hans var myrtur.Gerður Jónsdóttir - Gerða Inshape
Íþróttafræðingurinn Gerða Jónsdóttir hefur slegið í gegn með líkamsræktarnámskeið sín undir nafninu Inshape. Hún ræðir æskuna í Mosfellsdalnum, íþróttirnar, sáran systurmissi, áföll og hvernig getur hjálpað …
Notas do episódio
Íþróttafræðingurinn Gerða Jónsdóttir hefur slegið í gegn með líkamsræktarnámskeið sín undir nafninu Inshape. Hún ræðir æskuna í Mosfellsdalnum, íþróttirnar, sáran systurmissi, áföll og hvernig getur hjálpað manni á öllum aldursskeiðum.Bríet Ísis Elfar
Söngkonan Bríet hefur verið lengi í sviðsljósinu þrátt fyrir ungan aldur. Hún var 16 mánaða þegar hún byrjaði að fara í svett indjánaathafnir með móður sinni sem hún segir hafa mótað sig mikið. Hún ræðir …
Notas do episódio
Söngkonan Bríet hefur verið lengi í sviðsljósinu þrátt fyrir ungan aldur. Hún var 16 mánaða þegar hún byrjaði að fara í svett indjánaathafnir með móður sinni sem hún segir hafa mótað sig mikið. Hún ræðir bernskuna, ferilinn og það sem framundan er.Júlía Margrét Alexandersdóttir og Freyr Gígja Gunnarsson
Hjónin Júlía Margrét og Freyr Gígja ræða à einlægan og opinskáan hátt um geðhvörf sem Júlía veiktist fyrst af fyrir 15 árum. Þau veita dýrmæta innsýn inn í það hvernig er að veikjast af þessum sjúkdóm og vera …
Notas do episódio
Hjónin Júlía Margrét og Freyr Gígja ræða à einlægan og opinskáan hátt um geðhvörf sem Júlía veiktist fyrst af fyrir 15 árum. Þau veita dýrmæta innsýn inn í það hvernig er að veikjast af þessum sjúkdóm og vera aðstandandi í þeim aðstæðum.Gulla Bjarnadóttir
Gulla Bjarnadóttir átti óvenjulega æsku. Fyrsta árið var hún vistuð á barnaheimili þar sem foreldar hennar deildu um forræði yfir henni. Móðir hennar var andlega veik og faðir hennar glímdi við alkhólisma en …
Notas do episódio
Gulla Bjarnadóttir átti óvenjulega æsku. Fyrsta árið var hún vistuð á barnaheimili þar sem foreldar hennar deildu um forræði yfir henni. Móðir hennar var andlega veik og faðir hennar glímdi við alkhólisma en hann fékk á endanum forræðið yfir henni. Hann hvarf oft í nokkra daga þegar hann datt í það en móðir hennar brýndi fyrir henni að láta engan vita af því svo kerfið myndi ekki skipta sér af. Hún var oft með móður sinni á geðdeild sem barn og segir hafa verið hálfgerður heimalningur þar. Þrátt fyrir óvenjuleg og erfið bernskuár segist hún engu vilja breyta þar sem reynslan geri hana að því sem hún er í dag.Nadine Guðrún Yaghi
Fjölmiðlakonan Nadine Guðrún Yaghi er hálf íslensk og hálf líbönsk. Foreldrar hennar skildu þegar hún var fimm ára og móðir hennar þorði ekki að senda hana og systur hennar einar til pabba þeirra í frí vegna …
Notas do episódio
Fjölmiðlakonan Nadine Guðrún Yaghi er hálf íslensk og hálf líbönsk. Foreldrar hennar skildu þegar hún var fimm ára og móðir hennar þorði ekki að senda hana og systur hennar einar til pabba þeirra í frí vegna aðvarana annarra um að kannski kæmu þær ekki aftur til baka. Hún heldur sambandi við föður sinn og vann meðal annars á sumrin í menntaskóla á hótelkeðjum í Miðausturlöndum sem faðir hennar var hótelstjóri hjá. Nadine ræðir æskuna, fjölmiðlabakteríuna, Eftirmál og hjónabandið sem var ekki jafn löglegt og hún stóð í trú um.Ingi Hans Ágústsson
Ingi Hans Ágústsson hefur alltaf búið á Íslandi en er af þýskum uppruna en foreldrar hans fluttu bæði til Íslands eftir stríð. Hann bjó við mikinn harðræði í æsku; ofbeldi og mikinn aga. Hann segist í raun …
Notas do episódio
Ingi Hans Ágústsson hefur alltaf búið á Íslandi en er af þýskum uppruna en foreldrar hans fluttu bæði til Íslands eftir stríð. Hann bjó við mikinn harðræði í æsku; ofbeldi og mikinn aga. Hann segist í raun aldrei hafa elskað foreldra sína en hafi þó ákveðið sem ungur maður að láta af reiðinni í garð þeirra fyrir sig. Hann á albróður í Þýskalandi sem hann hefur aldrei hitt og átti systir sem var greindarskert og honum fannst hann þurfa að vernda. Ingi Hans hefur starfað í Vin Batasetur í 27 ár og segir það muni breyta lífi margra til hins verra ef úrræðinu verði lokað.Óskar Finnsson
Árið 2019 greindist Óskar Finnsson matreiðslumeistari með banvænt krabbamein og lífslíkurnar voru sagðar vera innan við tvö ár. Hann gjörbreytti öllu sínu lífi. Hann segist fyrst og fremst þakklátur fyrir að …
Notas do episódio
Árið 2019 greindist Óskar Finnsson matreiðslumeistari með banvænt krabbamein og lífslíkurnar voru sagðar vera innan við tvö ár. Hann gjörbreytti öllu sínu lífi. Hann segist fyrst og fremst þakklátur fyrir að vera enn hér og fá að hafa tilgang. Hann ræðir matreiðsluna, baráttuna við krabbameinið, æðruleysið og ævintýrin.Páll Matthíasson
Páll Matthíasson fyrrverandi forstjóri Landspítalans segir margt hafa breyst í geðlækningum. Hann lærði geðlækningar í Bretlandi eftir að hafa ferðast um Suður-Ameríku í nokkra mánuði með vinum sínum. Í …
Notas do episódio
Páll Matthíasson fyrrverandi forstjóri Landspítalans segir margt hafa breyst í geðlækningum. Hann lærði geðlækningar í Bretlandi eftir að hafa ferðast um Suður-Ameríku í nokkra mánuði með vinum sínum. Í Bretlandi kynntist hann öðrum aðferðum en þekktust hér heima og hefur unnið að því að breyta kerfinu hér heima frá því hann kom frá námi. Hann segir margt gott hafa breyst þó vissulega megi margt bæta.Bergþóra Snæbjörnsdóttir
Bergþóra Snæbjörnsdóttir rithöfundur og baráttukona segist skrifa útaf þráhyggjum sínum. Hún hætti að drekka fyrir tólf árum eftir að hafa reynt að hætta alla sunnudaga eftir djamm. Hún hefur undanfarið hjálpað …
Notas do episódio
Bergþóra Snæbjörnsdóttir rithöfundur og baráttukona segist skrifa útaf þráhyggjum sínum. Hún hætti að drekka fyrir tólf árum eftir að hafa reynt að hætta alla sunnudaga eftir djamm. Hún hefur undanfarið hjálpað flóttafólki frá Palestínu og fór til Egyptalands til að ná í fjölskyldu vinar síns og segir það hafa verið ótrúlega upplifun að hjálpa til við að sameina fjölskyldu sem hafði ekki verið saman í nokkur ár.Jóhannes Kr. Kristjánsson
Fjölmiðlamaðurinn Jóhannes Kr Kristjánsson missti föður sinn þegar hann var 11 ára gamall og segist stundum hugsa um að líf sitt hefði orðið öðruvísi ef það hefði ekki gerst. Hann varð reiður í kjölfarið og var …
Notas do episódio
Fjölmiðlamaðurinn Jóhannes Kr Kristjánsson missti föður sinn þegar hann var 11 ára gamall og segist stundum hugsa um að líf sitt hefði orðið öðruvísi ef það hefði ekki gerst. Hann varð reiður í kjölfarið og var sendur sem unglingur á heimavistarskóla. Hann lifir og hrærist í blaðamennskunni og hefur undanfarið unnið að þáttum þar sem hann hefur verið fluga á vegg hjá kynferðisbrotadeild lögreglunnar.Sandra Barilli
Sandra Gísladóttir eða Sandra Barilli eins og hún er gjarnan kölluð vissi ekkert hvað hún var að fara út í þegar hún tók að sér hlutverk umboðsmannins Mollý í þáttunum Iceguys ásamt því að framleiða þættina …
Notas do episódio
Sandra Gísladóttir eða Sandra Barilli eins og hún er gjarnan kölluð vissi ekkert hvað hún var að fara út í þegar hún tók að sér hlutverk umboðsmannins Mollý í þáttunum Iceguys ásamt því að framleiða þættina. Hún lærði leiklist en segist þó eiginlega alls ekkert vilja leika þó hún hafi reynt fyrir sér hér og þar. Sandra ræðir Ítalíu, leiklistarnámið, leiklistina, framleiðslu og karíóki svo eitthvað sé nefnt.Agnar Bragason
Agnar Bragason forstöðumaður í Batahúsi missti móður sína, stjúpföður og tvö systkini í bruna þegar hann var sjö ára gamall. Líf hans varð ekki samt eftir það. Hann ólst upp við alkhólisma og ofbeldi og …
Notas do episódio
Agnar Bragason forstöðumaður í Batahúsi missti móður sína, stjúpföður og tvö systkini í bruna þegar hann var sjö ára gamall. Líf hans varð ekki samt eftir það. Hann ólst upp við alkhólisma og ofbeldi og leiddist út í afbrot og neyslu á unglingsárum. Hann sat margoft inn í fangelsum þar til honum tókst að komast á breinu brautina fyrir tólf árum síðan og er í dag að hjálpa fólki í sömu sporum og hann var sjálfur í.Una Torfadóttir
Söngkonan Una Torfadóttir hefur alltaf verið óhrædd við að hafa sínar eigin skoðanir. Hún segir það vera gjöf úr æsku þar sem hlustað var á hana. Hún kemur úr tónelskri fjölskyldu sem syngur gjarnan saman þegar …
Notas do episódio
Söngkonan Una Torfadóttir hefur alltaf verið óhrædd við að hafa sínar eigin skoðanir. Hún segir það vera gjöf úr æsku þar sem hlustað var á hana. Hún kemur úr tónelskri fjölskyldu sem syngur gjarnan saman þegar þau hittast og viðurkennir hún að líklega finnist einhverjum það undarlegt. 19 ára gömul greindist hún með krabbamein sem hún segir hafa kennt sér dýrmæta lexíu og breytt sýn sinni á lífið.Jóna Dóra Karlsdóttir
Jóna Dóra Karlsdóttir missti tvo syni sína í hræðilegum bruna árið 1985. Tveimur árum síðar stofnaði hún ásamt fleirum samtökin Ný dögun eftir að hafa komist að því að enga hjálp var að fá fyrir aðstandendur í …
Notas do episódio
Jóna Dóra Karlsdóttir missti tvo syni sína í hræðilegum bruna árið 1985. Tveimur árum síðar stofnaði hún ásamt fleirum samtökin Ný dögun eftir að hafa komist að því að enga hjálp var að fá fyrir aðstandendur í hennar sporum. Á dögunum hlaut hún fálkaorðuna fyrir störf sín í þágu syrgjenda. Jóna Dóra ræðir sorgina, strákana sína og hvernig það er hægt að lifa áfram eftir að upplifa barnsmissi.
Aqui estão os 60 episódios mais recentes de 62. Os mais antigos estão no feed do podcast.
Podcasts parecidos
Mais podcasts de ArtesEste podcast é seu?
Confirme com uma entrada no seu feed: você recebe um código aqui, adiciona como podcast:txt no canal do seu feed e nós verificamos. Depois disso, seu podcast aparece como “verificado” no SoundNode.







