Skip to content
Hlaupalíf Hlaðvarp
PodcastSportsIS

Hlaupalíf Hlaðvarp

New#80 Það sem við tölum um, þegar við tölum um hlaup-a-líf 🙏😀November 13, 2026 · 52 min
Episodes
80
Released
every two weeks
Latest episode
Nov 13, 2026

About the podcast

Verið hjartanlega velkomin í hlaðvarpsþáttinn “Hlaupalíf”. Við erum Elín Edda og Vilhjálmur Þór og við höfum ástríðu fyrir hlaupum. Hér verður fjallað um allt á milli himins og jarðar um hvað eina sem tengist hlaupum; æfingar, markmið, næring, keppnishlaup og almenningshlaup og auðvitað undirbúningur fyrir hlaup . Einnig verður fjallað almennt um líkamsrækt, æfingamagnið, þjálfun með púlsmæli, hlaupastíllinn(mikilvægt!), mataræði, meiðsli og fyrirbyggjandi aðgerðir og MARGT FLEIRA! Tune in!

Episodes 80

  1. #80 Það sem við tölum um, þegar við tölum um hlaup-a-líf 🙏😀

    52 min

    Brakandi ferskur föstudagur í styttingu sem heldur sambandinu gangandi með heitt ceremonial cacao á kantinum og barn á brjóstinu. Já, það er komið kvef-season og hvarmabólgu-season og við alltaf 20% stífluð og …

    Show notes

    Brakandi ferskur föstudagur í styttingu sem heldur sambandinu gangandi með heitt ceremonial cacao á kantinum og barn á brjóstinu. Já, það er komið kvef-season og hvarmabólgu-season og við alltaf 20% stífluð og það er víst það sem við þurfum að venjast! Fórum yfir ýmis ráð við kuldanum og fyrst og fremst hvernig maður ver húð og augu fyrir þessu hnjaski! Fyrsta 8x8 paraþrekmótinu lokið og margt sem gekk vel og annað sem hefði getað gengið betur! Kudos á þau Ultraform parið og hlökkum til að endurtaka leikinn.

    Þessi þáttur er í boði:

    - Optical Studio👓

    - Hreysti💪

    - Kerlingafjöll Ultra⛰️

  2. #79 Back on track

    48 minSeason 1 · Episode 79

    Hvíldartímabili lokið og langt uppbyggingartímabil hafið! Spennandi tímar, þrekmótaröð og Hyrox innifalið í því tímabili! Fórum yfir brautaræfingar, fjölskyldulífið, sturlaðan árangur Andreu Kolbeins í S-Kóreu …

    Show notes

    Hvíldartímabili lokið og langt uppbyggingartímabil hafið! Spennandi tímar, þrekmótaröð og Hyrox innifalið í því tímabili! Fórum yfir brautaræfingar, fjölskyldulífið, sturlaðan árangur Andreu Kolbeins í S-Kóreu og margt fleira!

    Þátturinn er í boði “Hreysti”

  3. #78 POST Berlín!

    59 min

    Berlínarmaraþons uppgjör! Fórum yfir maraþondaginn, tvær gjörólíkar upplifanir af maraþoni og ýmsar skemmtilegar hliðar á því að fara í svona stórt maraþon. Nú er komið langþráð hvíldarseason og við hlökkum til …

    Show notes


    Berlínarmaraþons uppgjör! Fórum yfir maraþondaginn, tvær gjörólíkar upplifanir af maraþoni og ýmsar skemmtilegar hliðar á því að fara í svona stórt maraþon. Nú er komið langþráð hvíldarseason og við hlökkum til að taka Hyrox föstum dögum á næsta season! Stay tuned!

    Þátturinn er í boði “Optical Studio” og “Hreysti”

  4. #77 LOKSINS komin til Berlínar 🫡

    28 min

    KLÁR Í BERLÍNARMARAÞONIÐ!Tapering veikin tók yfir með hinum ýmsu draugaverkjum, veikindatilfinningu og andlegu ójafnvægi! Verkfalli flugvirkja aflýst og við komumst út, en lendingin var hörð og áfram …

    Show notes

    KLÁR Í BERLÍNARMARAÞONIÐ!

    Tapering veikin tók yfir með hinum ýmsu draugaverkjum, veikindatilfinningu og andlegu ójafnvægi! Verkfalli flugvirkja aflýst og við komumst út, en lendingin var hörð og áfram smávægilegar uppákomur við komu til Berlínar, en þetta var allt saman bætt upp með vægast sagt sturluðu hóteli😲👑

    Þátturinn er í boði Optical Studio og Hreysti!

  5. #76 Á tæru fljótandi í maraþonblokk

    43 min

    Tapering tímabilið er formlega hafið! Því fylgir að sjálfsögðu óvæntar uppákomur eins og ristilspeglun, blöðrur á fótum og yfirvofandi verkfall flugvirkja😲 Fórum yfir lokametrana í preppi fyrir Berlín og ýmsar …

    Show notes


    Tapering tímabilið er formlega hafið! Því fylgir að sjálfsögðu óvæntar uppákomur eins og ristilspeglun, blöðrur á fótum og yfirvofandi verkfall flugvirkja😲

    Fórum yfir lokametrana í preppi fyrir Berlín og ýmsar vangaveltur varðandi búnað, startholl og þar fram eftir götunum. Stay tuned!

    Þátturinn er í boði “Hreysti” og “Optical Studio”

  6. #75 Mömmusigur í 1/2 MÞ og stutt í tapering, takk.

    44 min

    #75 þáttur af Hlaupalíf Hlaðvarp kominn í loftið. Umfjöllunarefni:-Sigur EES í 1/2 MÞ í Rvk-maraþoninu- Staðan á road2Berlin-Næst síðasti langi túrinn sem við tókum saman LOKSINS- Krafturinn í hlaupunum fyrir …

    Show notes

    #75 þáttur af Hlaupalíf Hlaðvarp kominn í loftið. Umfjöllunarefni:

    -Sigur EES í 1/2 MÞ í Rvk-maraþoninu

    - Staðan á road2Berlin

    -Næst síðasti langi túrinn sem við tókum saman LOKSINS

    - Krafturinn í hlaupunum fyrir okkur foreldrana

    -Lok afmælisvikunnar

    -UTMB shout out

  7. #74 Totally eclipse of Hlaupalíf

    45 min

    Hlaupalíf keyrir af stað afmælisvikuna með brakandi ferskum þætti. Tökum stöðuna á road2Berlin, erum við að trust the process, vangaveltur um langatúrinn sem reynir vel á hausinn, vlog-ið hjá Andreu Kolb …

    Show notes


    Hlaupalíf keyrir af stað afmælisvikuna með brakandi ferskum þætti. Tökum stöðuna á road2Berlin, erum við að trust the process, vangaveltur um langatúrinn sem reynir vel á hausinn, vlog-ið hjá Andreu Kolb., sólmyrkrinn og margt margt fleira!

  8. #73 Að loknu sumarfríi og fyrsti þriðjungur í MÞ prógramminu DÖNN 🫡😎

    50 min

    .Umfjöllunarefni:*Elin Edda að hamra Súlur*Berlín þokast nær og nær*Frammistöðukvíði*Næring í löngu túrunum*Sumafrí fjölskyldunnar ‘26 og lífið almennt

  9. #72 Í endorfínvímu

    44 min

    Hlaupalíf heldur áfram umfjöllun um Road to Berlin’26. Erum að ljúka þriðju æfingavikunni í Run Less Run Faster prógramminu og förum yfir hvernig það hefur gengið. Eru æfingar á Air Runner too good to be true? …

    Show notes

    Hlaupalíf heldur áfram umfjöllun um Road to Berlin’26. Erum að ljúka þriðju æfingavikunni í Run Less Run Faster prógramminu og förum yfir hvernig það hefur gengið. Eru æfingar á Air Runner too good to be true? Endorfínvíma eftir æfingar er aðeins of góð (og ávanabindandi). Fjölskyldulífið í fríi með þrjú börn. Bubbi, Eminem o.fl.ofl.

  10. #71 Road 2 Berlín! 🫡

    44 min

    Hlaupalíf orðin fimm manna fjölskylda. Ekki lengur maður á mann og við að hefja 12 vikna æfingablokk fyrir Berlínarmaraþonið í sept’ 26! Við förum yfir óhefðbundna nálgun okkar að maraþonundirbúningi og ætlum …

    Show notes

    Hlaupalíf orðin fimm manna fjölskylda. Ekki lengur maður á mann og við að hefja 12 vikna æfingablokk fyrir Berlínarmaraþonið í sept’ 26! Við förum yfir óhefðbundna nálgun okkar að maraþonundirbúningi og ætlum að leyfa ykkur að fylgjast með næstu misserin. Stay tuned!

  11. #70 Sumardagurinn fyrsti nálgast ☀️🙏

    48 min

    Við gáfum okkur loksins tíma í almennilegt Hlaupalíf deit sem er hægara sagt en gert þessa dagana! Elín Edda er hægt og rólega að komast á steypirinn og orkan ekki jafn mikil, en styttist í sumardaginn fyrsta = …

    Show notes
    Við gáfum okkur loksins tíma í almennilegt Hlaupalíf deit sem er hægara sagt en gert þessa dagana! Elín Edda er hægt og rólega að komast á steypirinn og orkan ekki jafn mikil, en styttist í sumardaginn fyrsta = settur dagur. Við ræddum komandi verkefni, en Vilhjálmur keppir á Hyroxmóti í CPH um miðjan mars og svo verður það Berlínarmaraþonið 2026 = fertugsáskorun Vilhjálms! …
  12. #69 Hlaupalíf stefnumót í upphafi árs 🤝🙏

    1 h 8 min

    2026: nýtt hlaupalífár og kósýmánuður ársins mættur! :) Við ungbarna-hlaupa-foreldrarnir drógum fram hljóðnemana og fórum yfir hlaupatópíkin þessi misserin. Gamlárshlaupið, Nýárshlaup Ultraform, komand …

    Show notes
    2026: nýtt hlaupalífár og kósýmánuður ársins mættur! :) Við ungbarna-hlaupa-foreldrarnir drógum fram hljóðnemana og fórum yfir hlaupatópíkin þessi misserin. Gamlárshlaupið, Nýárshlaup Ultraform, komand vetrarhlaup og vor-hlaupin auðvitað. Þá dustuðum við rykið af sturluðum hlaupastaðreyndum og að lokum slógum við á þráðinn til Elísu Kristinsdóttur sem átti ótrúlegt hlaupaár, en hún er stödd í miðri æfingaferð á Tenerife, og gerði upp hlaupaárið sitt og komandi markmið. …
  13. #68 Aðventuþáttur 🎄🧑‍🎄

    57 min

    Aðventan og nýr þáttur hjá Hlaupalíf. Enda var kominn tími á að við skutuhjúin settumst niður og ræddum hitt og þetta í hlaupalífinu og bara lífinu almennt. Umræðupunktar: * Jólaspenningur. Eflaust meiri hjá …

    Show notes
    Aðventan og nýr þáttur hjá Hlaupalíf. Enda var kominn tími á að við skutuhjúin settumst niður og ræddum hitt og þetta í hlaupalífinu og bara lífinu almennt. Umræðupunktar: * Jólaspenningur. Eflaust meiri hjá foreldrum en börnunum. * Hlaupalífið og hreyfi-rútínan þessi misserin með tvö börn (og þriðja á leiðinni!) * Maraþon-deit-pælingar fyrir haustið 2026. * Valencia maraþonið. * Ástandsskoðun @Sjúkrasport. …..og margt margt fleira. Þátturinn er í boði Hreysti, Sportvörur og Optical Studio.
  14. #67 Hafsteinn Óskarsson segir öldungum að hlaupa hraðar! 🏃🏼‍♀️‍➡️

    1 h 27 min

    Hafsteinn Óskarsson er hlaupari á heimsmælikvarða sem nældi sér í evrópumeistaratitil í 800m á EM masters utanhúss á dögunum og silfur verðlaun í 800m á heimsmeistaramóti innanhús fyrr á þessu ári! Hann lætur …

    Show notes
    Hafsteinn Óskarsson er hlaupari á heimsmælikvarða sem nældi sér í evrópumeistaratitil í 800m á EM masters utanhúss á dögunum og silfur verðlaun í 800m á heimsmeistaramóti innanhús fyrr á þessu ári! Hann lætur aldurinn alls ekki stöðva sig heldur þvert á móti þá heldur hann áfram að æfa og keppa líkt og hann gerði þegar hann var að stíga sín fyrstu skref í hlaupunum fyrir um 50 árum síðan. …
  15. #66 DNF á HM í utanvegahlaupum 🫣

    1 h 8 min

    Hvernig er að standa frammi fyrir stórum verkefnum eins og að fjölga mannkyninu og vera með stór markmið í hlaupunum….á sama tíma? Við ræddum þessa stóru lífsins áskorun og hvernig við tókum meðvitaða ákvörðun …

    Show notes
    Hvernig er að standa frammi fyrir stórum verkefnum eins og að fjölga mannkyninu og vera með stór markmið í hlaupunum….á sama tíma? Við ræddum þessa stóru lífsins áskorun og hvernig við tókum meðvitaða ákvörðun hvernig við myndum tækla hana með okkar reynslu. Við áttum einnig létt spall um ýmislegt sem hefur verið á döfinni í hlaupaheiminum s.s: ​Chicago maraþonið og önnur stór maraþon á döfinni ​Slógum á þráðinn til Ósk Gunnarsd sem fékk bónorð í maraþoni! …
  16. #65 Hildur hlaupahvíslari

    1 h 43 min

    Í þætti vikunnar tökum við fyrir umræðu sem er nauðsynleg og mikilvæg, en nennum ekki alltaf að hugsa of mikið um: hlaupaeymsli, hlaupameiðsli, fyrirbyggjandi aðferðir, hlaupamýtur og allt þar á milli. Til að …

    Show notes
    Í þætti vikunnar tökum við fyrir umræðu sem er nauðsynleg og mikilvæg, en nennum ekki alltaf að hugsa of mikið um: hlaupaeymsli, hlaupameiðsli, fyrirbyggjandi aðferðir, hlaupamýtur og allt þar á milli. Til að hjálpa okkur að greina þetta umfjöllunarefni fengum við í settið einn öflugasta sjúkraþjálfara hér á landi, Hildi Kristínu Sveinsdóttur sjúkraþjálfara og framkvæmdastjóra Sjúkrasport, betur þekkt sem Hildur Hlaupahvíslari. …
  17. #64 Anna Berglind að loknu HM í utanvegahlaupum 🏃‍♀️

    40 min

    Ofurhlauparinn Anna Berglind settist niður með Elínu Eddu á svölunum á Candanchu hótelinu með útsýni yfir Pýranafjöllin - þar sem Anna Berglind var einmitt að keppa með íslenska landsliðinu. Þar kom Anna fyrst …

    Show notes

    Ofurhlauparinn Anna Berglind settist niður með Elínu Eddu á svölunum á Candanchu hótelinu með útsýni yfir Pýranafjöllin - þar sem Anna Berglind var einmitt að keppa með íslenska landsliðinu. Þar kom Anna fyrst ísl kvenna í mark á frábærum tíma við krefjandi aðstæður.


    Við fáum smá innsýn inn í hlaupalífið hjá þessari flottu hlaupakonu sem hefur náð ótrúlegum framförum á undanförnum árum og er í bætingafasa 46 ára gömul! Geri aðrir betur!

  18. #63 Hlaupalíf umræður í lok sumars 🤝🙏☀️

    55 min

    Umræður um hitt og þetta:​Kynnum til leiks nýjan dagskrárlið: ,,Heitt og kalt”. ​Eika hornið og umræður um vegginn fræga í MÞ.​RM pælingar og umfjöllun eftir keppni. ​Hversu flottir voru(og eru) HHHC í RM …

    Show notes

    Umræður um hitt og þetta:

    • ​Kynnum til leiks nýjan dagskrárlið: ,,Heitt og kalt”.
    • ​Eika hornið og umræður um vegginn fræga í MÞ.
    • ​RM pælingar og umfjöllun eftir keppni.
    • ​Hversu flottir voru(og eru) HHHC í RM vikunni.
    • ​Afmælisvikan hjá Hlaupalíf family
    • ​Og margt margt fleira




    Þátturinn er í boði: Heilsa, Sportvörur og Optical Studio 🙏




  19. #62 Stebbi Páls: ævintýrahlaupari með stór markmið 🤝

    1 h 31 min

    Við fengum ævintatýrahlauparann Stefán Páls í settið. Hann kemur úr fimleikum, en byrjaði að hlaupa fyrir einungis nokkrum árum eftir langa baráttu við brjósklos. Stefán hefur tekið ævintýralega miklum …

    Show notes
    Við fengum ævintatýrahlauparann Stefán Páls í settið. Hann kemur úr fimleikum, en byrjaði að hlaupa fyrir einungis nokkrum árum eftir langa baráttu við brjósklos. Stefán hefur tekið ævintýralega miklum framförum á stuttum tíma m.a með nýlegum Íslandsmeistaratitli í 10 km og stórum bætingum í öðrum keppnisgreinum á breiðum grunnni - allt frá 800m upp í ultra hlaup eins og Laugavegshlaupið. Stefán Páls er hlaupari sem leyfir sér að dreyma um stór markmið - rétt eins og við öll ættum að gera. …
  20. #61 Arnar Péturs og Rauðavatn Ultra

    1 h 21 min

    Arnar Péturs mætti í settið til HH og ræddi við okkur um næsta markmið: Íslandsmeistaramótið í 100km @Rauðavatn Ultra. Þar fer sömuleiðis fram keppni í 3/6/12 og 24 klst hlaupum. Hversu spennandi? Mjög. Arnar …

    Show notes
    Arnar Péturs mætti í settið til HH og ræddi við okkur um næsta markmið: Íslandsmeistaramótið í 100km @Rauðavatn Ultra. Þar fer sömuleiðis fram keppni í 3/6/12 og 24 klst hlaupum. Hversu spennandi? Mjög. Arnar fór yfir undirbúninginn fyrir keppnina, gæðaæfingarnar, framkvæmd hlaupsins, hvata, markmið og margt margt fleira. Ræddum einnig stöðuna í Ármannshlaupinu, Laugaveginn, hlaupalífið og Valencia 25. …
  21. #60 Post-Laugavegur 🙏

    29 min

    Húsadalur. Hlaupalíf Hlaðvarp náði í skottið á Elínu Eddu á milli mingla. Fórum inn í tjald með einn Leffe og gerðum upp hlaup hlaupanna: Laugaveginn 2025.*Hvernig var upplifunin af fyrsta hlaupinu?*Sátt með …

    Show notes

    Húsadalur. Hlaupalíf Hlaðvarp náði í skottið á Elínu Eddu á milli mingla. Fórum inn í tjald með einn Leffe og gerðum upp hlaup hlaupanna: Laugaveginn 2025.


    *Hvernig var upplifunin af fyrsta hlaupinu?

    *Sátt með niðurstöðuna?

    *Hrikalega sterkt hlaup

    *Flottar aðstæður - mikill hiti.

    *Ótrúlega góð stemning í Þórsmörk.

  22. #59 Jón Kristófer Sturluson: fimm MÞ bætingar í fimm hlaupum!

    1 h 7 min

    Við fengum í settið ofurhlauparann Jón Kristófer Sturluson sem hefur vakið töluverða athygli í hlaupaheiminum m.a með nýlegum bætingum í 5 og 10 km. JKS státar sömuleiðis af mögnuðum maraþonferli sem felur í …

    Show notes
    Við fengum í settið ofurhlauparann Jón Kristófer Sturluson sem hefur vakið töluverða athygli í hlaupaheiminum m.a með nýlegum bætingum í 5 og 10 km. JKS státar sömuleiðis af mögnuðum maraþonferli sem felur í sér fimm bætingar í jafnmörgum hlaupum, frá 2:58-2:37! Ath fyrsta hlaupið fór fram vorið 2022. Hversu peppandi? Mjög. …
  23. #58 Laugavegsvikan er hafin!

    47 min

    #58 Laugavegsvikan er hafin! Jæja nokkrir dagar í LAUGAVEGINN, takk. Að því tilefni tókum við í Hlaupalíf smá ,,Laugavegs-trúnó’’ við betri helming H.H. Við förum yfir hvernig ferðalagið hefur gengið fram til …

    Show notes
    #58 Laugavegsvikan er hafin! Jæja nokkrir dagar í LAUGAVEGINN, takk. Að því tilefni tókum við í Hlaupalíf smá ,,Laugavegs-trúnó’’ við betri helming H.H. Við förum yfir hvernig ferðalagið hefur gengið fram til þessa, af hverju ákvað Elín Edda að prófa LV, hvaða tímamarkmið er hún með, hvernig metur hún samkeppnina, næringarplan, hlaupabúnaður og plan síðustu dagana fyrir hlaup og hlaupadaginn. …
  24. # 57 Hitaþjálfun frá A-Ö með Sigga TRI

    1 h 25 min

    Íþróttagúrúinn Siggi TRI kom til okkar í settið og ræddi við okkur um HOT TOPIC dagsins: HITAÞJÁLFUN. Hver er sagan á bakvið þessi fræði? Hvað er hitaþjálfun? Hvaða áhrif hefur hitaþjálfun á líkamann og hvernig …

    Show notes

    Íþróttagúrúinn Siggi TRI kom til okkar í settið og ræddi við okkur um HOT TOPIC dagsins: HITAÞJÁLFUN.


    Hver er sagan á bakvið þessi fræði? Hvað er hitaþjálfun? Hvaða áhrif hefur hitaþjálfun á líkamann og hvernig fer maður af stað? Passíf vs. actíf hitaþjálfun? Er þetta fyrir alla? hverjir eru að stunda þetta? Hvernig getur þetta gagnast mér?


    Strangheiðarlegt spjall við einn öflugasta íþróttamann okkar Íslendinga.


    Þátturinn er í boði: Heilsu, Sportvörur og Optical Studio.

  25. #56 H-in tvö: hlaup og húðin

    1 h 34 min

    Það eru ýmis atriði sem við hlauparar þurfum að huga að í tengslum við hlaupin s.s styrktaræfingar, teygjur, hvíld og góð næring. Ekki má þó gleyma fyrirbyggjandi atriðum tengt stærsta líffærinu okkar: HÚÐINNI …

    Show notes
    Það eru ýmis atriði sem við hlauparar þurfum að huga að í tengslum við hlaupin s.s styrktaræfingar, teygjur, hvíld og góð næring. Ekki má þó gleyma fyrirbyggjandi atriðum tengt stærsta líffærinu okkar: HÚÐINNI. En við hlauparar þurfum sannarlega að huga að atriðum tengt sólarvörnum, sólgleraugum, nuddsárum, rósroða, ofnæmi, sólarexemi og áhrifum hitaþjálfunar á húðina. Þetta eru allt umfjöllunarefni sem við förum yfir með sérsnámslækni á Húðdeild Landspítalans: Sunnu Kristínu Hannesdóttur. …
  26. #55 Hlaupalíf á persónulegu nótunum

    52 min

    .....en einnig á þeim léttu enda við í Hlaupalíf stemningsfólk en fyrst og fremst stemningshlauparar. Sturlaðar hlaupastaðreyndir á sínum stað og almennt gott spjall um hlaupalífið þessa dagana.

  27. #54 Sigurbjörg Eðvarðsdóttir - margfaldur Íslandsmethafi

    1 h 15 min

    Við fengum til okkar margfaldan Íslandsmethafa í götuhlaupum, Sigurbjörgu Eðvarðsdóttur kennara og leiðsögukonu en hún á hvorki meira né minna en 11 Íslandsmet í hinum ýmsum aldursflokkum - og er enn að slá …

    Show notes
    Við fengum til okkar margfaldan Íslandsmethafa í götuhlaupum, Sigurbjörgu Eðvarðsdóttur kennara og leiðsögukonu en hún á hvorki meira né minna en 11 Íslandsmet í hinum ýmsum aldursflokkum - og er enn að slá slík met, m.a nýlega í 5 km Víðavangshlaupi ÍR. Þá hljóp hún Lissabon maraþonið sl. haust á 3.35 og var fyrst í sínum aldursflokki. Langfyrst. 66 ára gömul. Og sló þar með Íslandsmetið í sínum aldursflokki (65-69 ára). Geri aðrir betur. …
  28. #53 Sonja Sif og hlaupalífið

    1 h 47 min

    Sonja Sif Jóhannsdóttir íþróttagarpur kom til okkar í settið þar sem við fórum yfir hennar fjölbreyttu aðkomu inn í íþróttaheiminn og ekki síst íþróttabakgrunn. Sonja Sif tók þátt í London maraþoninu sl. helgi …

    Show notes
    Sonja Sif Jóhannsdóttir íþróttagarpur kom til okkar í settið þar sem við fórum yfir hennar fjölbreyttu aðkomu inn í íþróttaheiminn og ekki síst íþróttabakgrunn. Sonja Sif tók þátt í London maraþoninu sl. helgi, æfir fyrir heilan Iron Man í ágúst, hefur langa og mikla reynslu af þjálfun, er með master í íþrótta og heilsufræðum, kennir við MH og Háskóla Íslands - og hefur fyrst og fremst mikla ástríðu fyrir heilbrigðum lífsstíl, rétt eins og við í Hlaupalíf Hlaðvarp. …
  29. #52 Að loknu EM í götuhlaupum

    40 min

    Evrópumeistaramótið í götuhlaupum fór fram í Brüssel um liðna helgi. Nokkrir af frambærilegustu hlaupurum okkar kepptu fyrir Íslands hönd í 10 km, hálfu og heilu maraþoni. Elín Edda var á meðal keppanda í …

    Show notes
    Evrópumeistaramótið í götuhlaupum fór fram í Brüssel um liðna helgi. Nokkrir af frambærilegustu hlaupurum okkar kepptu fyrir Íslands hönd í 10 km, hálfu og heilu maraþoni. Elín Edda var á meðal keppanda í maraþoni sem við förum rækilega yfir í þættinum sem og allt mulighed tengt mótinu en betri helmingur Hlaupalíf Hlaðvarp tók upptökugræjurnar með sér og átti gott spjall við nokkra keppendur íslenska landsliðsins daginn fyrir keppnisdag. …
  30. #51 Laugavegurinn og Elísabet Margeirs

    1 h 5 min

    Það eru tæpir þrír mánuðir í STÓRA hlaupið; Laugavegshlaupið 2025 12 júlí nk. Því fannst okkur í Hlaupalíf ekki úr vegi að fara yfir ýmis atriði tengd hlaupinu; hvernig best væri að undirbúa sig næstu vikurnar …

    Show notes
    Það eru tæpir þrír mánuðir í STÓRA hlaupið; Laugavegshlaupið 2025 12 júlí nk. Því fannst okkur í Hlaupalíf ekki úr vegi að fara yfir ýmis atriði tengd hlaupinu; hvernig best væri að undirbúa sig næstu vikurnar, dæmi um góðar ,,Laugavegs-æfingar'', umræður um næringu, endurheimt og andlega þáttinn eru allt umfjöllunarefni sem við fórum yfir og meira til með Elísabetu. Það þarf vart að kynna viðmælandann. Hún hefur hlaupið Laugaveginn oft. Mjög oft. …

These are the latest 40 of 80 episodes. You’ll find older episodes in the podcast’s feed.

Similar podcasts

More Sports podcasts
Is this your podcast?

Confirm it with an entry in your feed: you get a code here, add it as podcast:txt to the channel of your feed, and we check it. Your podcast is then shown as “verified” on SoundNode.

Settings

Display

Language

Decides which stations you see first on the home page.

History

Recently played stations and episodes and your latest searches are only stored in this browser.

Notifications

A short notice when a podcast you follow has a new episode. Turn off single podcasts with the bell on their page.

Account

Save favorites – in the app and on the website.

Keyboard shortcuts

/
Open search
Space
Play or pause
← →
In the player: back 15 s, forward 30 s (episodes) · in a row: next tile
↑ ↓
In a row: target within the tile
Home / End
In a row: first or last tile
Esc
Close window or menu
?
This overview
Now playing

Go to station page

Play next

    Add episodes with “Play next” – they play after the current episode.