Skip to content
Úti

Úti

NewVið erum brjáluð og fleiraNovember 5, 2026 · 60 min
Episodes
81
Released
every two weeks
Latest episode
Nov 5, 2026

About the podcast

ÚTI er hlaðvarp um útivist, ævintýri og fólkið sem er alltaf að finna sér eitthvað til að brasa úti. Í þáttunum er farið yfir fjallamennsku, hjólreiðar, ferðalög, hálendið, náttúruna og alls konar sögur úr íslenskri útivist. Umsjónarmenn eru Búi Bjarmar Aðalsteinsson og Kristín Ýr Lyngdal. Þættirnir eru gefnir út á tveggja vikna fresti. Email: [email protected] eða [email protected] Instagram: @utihladvarp

Episodes 81

  1. Við erum brjáluð og fleira

    60 min

    Búi og Kristín tókum þennan saman. Allskonar viðfangsefni í dag, Taco Bell hlaupið, Andrea okkar Kolbeins (#takk), ástand í borginni, rammaáætlun og fleira.

  2. Kilimanjaro fyrir þrítugt - Steinunn Helgadóttir

    1 h 19 min

    Steinunn er ung og metnaðarfull útivistarkona með Bs í jarðfræði og Ms í umhverfisbreytingum á Norðurslóðum. Hún starfar sem náttúruvásérfræðingur á Veðurstofunni, elskar Snæfellsjökulsþjóðgarð, á góða kúkasögu …

    Show notes

    Steinunn er ung og metnaðarfull útivistarkona með Bs í jarðfræði og Ms í umhverfisbreytingum á Norðurslóðum. Hún starfar sem náttúruvásérfræðingur á Veðurstofunni, elskar Snæfellsjökulsþjóðgarð, á góða kúkasögu af Kilimanjaro og stefnir á að heimsækja Machu Picchu á næsta ári. Við fengum að kynnast þessari duglegu konu sem væri til í að vera utandyra alla daga, svona eins og við.




    .

  3. Úti í borginni og bíllaus lífstíll - Brynhildur Bolladóttir

    50 min

    Brynhildur Bolladóttir nýkjörinn formaður samtaka um bíllausan lífstíl kíkti í Úti. Já það er líka hægt að vera Úti í borginni. Við förum yfir fréttir af sviði útivistar og rennum svo yfir í virkar samgöngur …

    Show notes

    Brynhildur Bolladóttir nýkjörinn formaður samtaka um bíllausan lífstíl kíkti í Úti. Já það er líka hægt að vera Úti í borginni. Við förum yfir fréttir af sviði útivistar og rennum svo yfir í virkar samgöngur bæði í borg og úti á landi.

  4. Klifursenan og snarbratta Þuríður með Jónasi G. Sig. (Jonna)

    1 h 33 min

    Í þættinum fáum við til okkar Jónas G. Sigurðsson klifrara og útivistargarp. Við vörum yfir helstu fréttir af útivist svona í byrjun hausts og hendum okkur svo í mál málana; hver var fyrstur uppá Þuríði …

    Show notes

    Í þættinum fáum við til okkar Jónas G. Sigurðsson klifrara og útivistargarp. Við vörum yfir helstu fréttir af útivist svona í byrjun hausts og hendum okkur svo í mál málana; hver var fyrstur uppá Þuríði, klettur sem stendur úr Óshyrnu sunnan við Bolungarvík. En Jónas og félagi hans Andri fóru uppá hana í byrjun september en voru þeir fyrstir, það kemur í það minnsta í ljós í þessum þætti. Ásamt mörgu um klifursenuna á Íslandi.


    Hægt er að fá góða vettlinga í Peloton, eins og fram kemur í þættinum. Gott að kíkja þangað.

    Eins má fá flenni fínan vatna- og sjóúbúnað hjá Villimanninum um að gera að græja sig upp þar.



  5. Róbert Marshall og meira úti

    1 h 9 minSeason 2 · Episode 8

    Um þessar mundir sýnir RÚV þriðju seríuna af Úti, þáttarseríu Róberts Marshall og Brynhildar Ólafsdóttur. Í þáttunum fá áhorfendur að fylgja hópum þeirra hjóna í gegnum hin ýmsu útivistarævintýri. Okkur fannst …

    Show notes

    Um þessar mundir sýnir RÚV þriðju seríuna af Úti, þáttarseríu Róberts Marshall og Brynhildar Ólafsdóttur. Í þáttunum fá áhorfendur að fylgja hópum þeirra hjóna í gegnum hin ýmsu útivistarævintýri. Okkur fannst því tilvalið að fá Róbert til okkar í spjall um þættina, ævintýrin, útivistina og lýðheilsumál þjóðarinnar. Við mælum eindregið með að kíkja á þættina Úti sem finna má í Sarpinum. Einnig mælum við með að kynna sér haustdagskrá Útihreyfingarinnar.Við þökkum Peloton fyrir gott samstarf og hvetjum ykkur til að kíkja á þangað, þessa dagana er 30% afsláttur af fatnaði og því hægt að gera kjarakaup.

    Fyrir þau sem ætla skella sér í sjóinn er síðan um að gera að kíkja á Villimanninn þar sem er allskyns sjó- og vatnadót til sölu.

  6. Reykjavíkurmaraþon og haustið - Kristín og Búi

    1 h 4 min

    Í þessum þætti þá förum við yfir eitt og annað, undirbúning fyrir Reykjavíkurmaraþon og líka skort á undirbúningi. Eins förum við aðeins yfir sumarið okkar og rútínuna sem haustið ber með sér. Það er af nægu að …

    Show notes

    Í þessum þætti þá förum við yfir eitt og annað, undirbúning fyrir Reykjavíkurmaraþon og líka skort á undirbúningi. Eins förum við aðeins yfir sumarið okkar og rútínuna sem haustið ber með sér.

    Það er af nægu að taka í dagskrá haustsins, Kristín verður með Fjallakonu námskeið sem byrjar í haust (tilvalið fyrir konur sem vilja ganga á fjöll og eins þær sem stefna á að verða fjallkona næsta júní) og Búi verður með styrktarþjálfun fyrir hlaupara og hjólara uppí Mjölni (meira um það síðar).

    Eins ætlum við að hlaupa til styrktar Reykjadal og hvetjum fólk eindregið til þess að heita á okkur eða önnur flott málefni.

    Eins má sækja sér ævintýrabúnað í versluninni Peloton sem hentar vil til allskyns fjallabrölts.

  7. Birta & Emil - Allir í skátana!

    52 minSeason 2 · Episode 6

    Birta Hall og Emil Kjartan Valdimarsson, skátar og verðandi menntaskólanemar komu og spjölluðu um nýliðið Landsmót skáta og sjálfboðaliðastarf sitt í skátamiðstöð í Svíþjóð fyrr í sumar.Landsmót skáta var …

    Show notes

    Birta Hall og Emil Kjartan Valdimarsson, skátar og verðandi menntaskólanemar komu og spjölluðu um nýliðið Landsmót skáta og sjálfboðaliðastarf sitt í skátamiðstöð í Svíþjóð fyrr í sumar.Landsmót skáta var haldið á Akureyri dagana 20.-26. júlí. Þar komu saman skátar alls staðar að úr heiminum, skelltu upp tjaldbúðum og sóttu veglega og fjölbreytta dagskrá. Birta og Emil komu reynslunni ríkari heim og þau hvetja alla til að koma í skátana.

    Úti er í boði Peloton ævintýra-verslunar, um að gera að sækja sér útbúnað þangað.

    Um að gera að kynna sér dagskránna hjá Úti hreyfingunni fyrir þau sem vilja keyra á útivist næsta haust.

    Eins erum við með fréttabréf fyrir áhugasöm. Þar koma tilkynningar um nýja þætti og einhverjar hugrenningar dagskrárstjóra svona af og til.

  8. María Ögn, leiðsagnarlífið og Rift

    1 h 20 minSeason 2 · Episode 5

    Fimmti þáttur, gjörðu svo vel. Förum aðeins yfir vegferðina hjá Maríu úr stífu keppnisprógrami og yfir í hjólaleiðsögn, rútuprófið og fleira stuð. Tökum aðeins stöðuna á endurstillingu á markmiðum og forsendum …

    Show notes

    Fimmti þáttur, gjörðu svo vel. Förum aðeins yfir vegferðina hjá Maríu úr stífu keppnisprógrami og yfir í hjólaleiðsögn, rútuprófið og fleira stuð. Tökum aðeins stöðuna á endurstillingu á markmiðum og forsendum gagnvart útivist og hreyfingu og allskonar eins og smá Rift yfirferð séð frá hliðarlínunni.


    Þessi þáttur er í boði Peloton þar sem er hægt að fá allskonar snilld í ævintýrin.


    Eins má endilega kynna sér snildina sem er í boði hjá Úti ef einhver áhugi er á að gíra sig í útið.

  9. Þroskaferlar á fjöllum og þermistigið

    1 h 17 min

    Í þættinum förum við yfir ævintýri síðustu daga hjá Kristínu og Búa. Kristín endaði bæði í á og á vegg í hjólaferð og er farin að uppgötva sjarma tjaldlífsins. Búi átti hins vegar eftirminnilega stund uppi á …

    Show notes

    Í þættinum förum við yfir ævintýri síðustu daga hjá Kristínu og Búa. Kristín endaði bæði í á og á vegg í hjólaferð og er farin að uppgötva sjarma tjaldlífsins. Búi átti hins vegar eftirminnilega stund uppi á heiði – þar sem náttúran var bæði yfirþyrmandi og hans innri náttúra minnti á sig (hann kúkaði uppá heiði).


    Þátturinn er í boði Peloton hvar fást frábærar útivistarvörur gegn vægu gjaldi.

    Bestu þakkir fá BL fyrir að lána okkur Dacia Bigster sem kom að mjög góðum notum við andlega krefjandi aðstæður.

    Eins viljum við benda fólki á Villimanninn, verslun með vörur fyrir sjó- og vatnasport.




  10. Eru allir að hneykslast á hlunknum? - Kristín og Sigga Bára

    1 h 5 min

    Í þetta sinn er gestur þáttarins Sigríður Bára Ingadóttir, 2ja barna móðir, vélaverkfræðingur, og útivistarkona með meiru.Frænkurnar Kristín og Sigga Bára ræða saman reynslu sína af því að hreyfa sig lítið …

    Show notes

    Í þetta sinn er gestur þáttarins Sigríður Bára Ingadóttir, 2ja barna móðir, vélaverkfræðingur, og útivistarkona með meiru.Frænkurnar Kristín og Sigga Bára ræða saman reynslu sína af því að hreyfa sig lítið, vera of þungar, andlega og líkamlega yfir í að gera útivist að lífsstíl sem þær geta ekki hugsað sér að vera án í dag.

    Þær tækla spurningar eins og hvernig megi komast yfir óttann við vera hægastur, hvaða námskeið skal velja, hvernig maður öðlast sjálfstraust til að byrja og gefast ekki upp, hvernig maður heldur sér við eftir barnsburð og margt fleira.Takk fyrir komuna Sigga Bára.


    Peloton ⁠er ævintýraverslun með allskonar gotterí fyrir útivistarfólk, endilega að gera sér ferð þangað eða skoða vöruúrvalið á netinu.

    Tónlist í þáttunum er eftir DJ flugvél og geimskip

  11. 90% meira næs með súkkulaði, Guðrún Sóley Gestsdóttir

    1 h 7 min

    Í þætti dagsins er þemað að komast af stað, það eru fá betur til þess fallin en hún Guðrún Sóley enda fá sem nenna jafn miklu og eru jafn peppuð gagnvart því að peppa aðra. Guðrún fer yfir brothvarf úr hlaupum …

    Show notes

    Í þætti dagsins er þemað að komast af stað, það eru fá betur til þess fallin en hún Guðrún Sóley enda fá sem nenna jafn miklu og eru jafn peppuð gagnvart því að peppa aðra. Guðrún fer yfir brothvarf úr hlaupum, endurstillingu gagnvart hreyfingu og talar mikið og fallega um kajak ástundun.


    Peloton er ævintýraverslun með allskonar gotterí fyrir útivistarfólk, endilega að gera sér ferð þangað eða skoða vöruúrvalið á netinu.


    Tónlist í þáttunum er eftir DJ flugvél og geimskip

  12. Hvað er planið? - Fyrsti þáttur af Úti ævintýra hlaðvarpi

    1 h 3 minSeason 2 · Episode 1

    ÚTI er nýtt hlaðvarp um útivist í öllum sínum myndum — fjallamennska, ferðalög, hjólreiðar, ævintýri og allt sem fær okkur af stað og í útið. Umsjónarmenn eru Búi Bjarmar Aðalsteinsson og Kristín Ýr Lyngdal sem …

  13. 69. Síðasti þátturinn - Hjólavarpið þakkar fyrir sig

    35 min

    Jæja, þá er komið að þessu síðasti þátturinn. Þakka öllum ofboðslega vel fyrir þessa vegferð, þeim sem hlustuðu og þeim sem komu í þáttinn. Ég er búinn að eignast góða vini á þessari vegferð og verð …

  14. 68. Hamfaraástand og eElja, nýtt rafmagnsfjallahjól frá Lauf

    50 minSeason 1 · Episode 67

    Í þættinum kemur Benedikt Skúlason stofnandi og framkvæmdastjóri Lauf og lýsir vendingum sem hafa átt sér stað síðustu vikur og segir frá nýju rafmagnsfjallahjóli sem var sett á markað núna á dögunum …

  15. 67. Holdafar er ekki heilsa með Töru Margréti Vilhjálmsdóttur

    1 h 9 minSeason 1 · Episode 67

    Í þessum þætti ræðum við tengsl milli holdafars og heilsu eða öllu heldur skortin á tengslum milli holdafars og heilsu. Á dögunum voru sett fram drög að aðgerðaráætlun um málefni offitu. Í umsögnum eru mörg sem …

  16. 66. Mæja Sæm og gullhjálmurinn

    25 min

    Mæja María Sæm Bjarkardóttir er handhafi Gullhjálmsins í ár sem er viðkenning veit þeim sem hafa lagt mikið til hjólasamfélagsins á Íslandi. Hún var í fyrstu tilnefnd og síðar kosinn í kostningu á vegum …

  17. 65. Rafmagnshjól

    45 min

    Ég og Hafsteinn Ægir rennum yfir helstu málaflokka sem snúa að rafmagnshjólum og hvað maður ætti að pæla í þegar maður ætlar að kaupa eitt slíkt.Endilega deilið með vinum og félögum sem spyrja um …

  18. 64. Uppgjörið 2025

    1 h 27 min

    Í þessum þætti förum við yfir allt sem gerðist á hjólaárinu 25, gleymdum samt helling en gerðum okkar besta. Þau Auðunn, Ása, Bríet og Magne kíktu til mín í Podcaststöðina og við rendum yfir árið bæði það súra …

  19. 63. „Gaman að vera með erfiða samkeppnisaðila“ - Einar Bárða og nýja keppnin Cuckoo

    1 h 39 minSeason 1 · Episode 63

    Yfirferð yfir nýja gravel keppni sem bætist við flóruna næsta sumar. Við rennum yfir aðdragandann og síðan helstu einkenni þessarar nýju keppni. Í lokinn rennum við aðeins yfir sveitastjórnarmálin í ljósi …

  20. 62. Hafsteinn Ægir og vetrarhjólerí

    49 min

    Í þessum þætti veltum við upp áskorunum vetrarhjólreiða. Við ræðum hvernig best sé að laga sig að breyttum aðstæðum þegar myrkrið lengist og göturnar verða hálar. Gestur þáttarins er Hafsteinn Ægir Geirsson …

  21. 61. Efni

    34 minSeason 1 · Episode 61

    Í þætti dagsins förum við yfir helstu efnin sem eru í reiðhjólum. Stál, ál og koltrefjar - vonandi lærum við eitthvað á þessum þætti.Hjólavarpið er í boði Pelaton, hjólreiða- og útivistarverslun í Klettagörðum …

  22. 60. „Það voru mistök að taka þessi lyf“ - afbrigðilegar niðurstöður Þorsteins Bárðarsonar

    1 h 9 minSeason 1 · Episode 60

    Í þessum þætti ræðum við umtalaðasta íslenska hjólamál þessa árs, Þorsteinn Bárðarson hefur verið úrskurðaður í bráðabirgðabann eftir að lyfjapróf sýndi tilvist fjögurra efna sem öll eru á bannlista WADA – þar …

  23. 59. „Ógeðslega gott að næstum því missa eitthvað“ með B-boy Hot Take @Reynisson

    1 h 26 min

    Í þætti dagsins kemur enginn annar en Böðvar Tandri Reynisson, hann hefur verið virkur í hreyfingu, þjálfun og næringafræði og við förum yfir þessi viðfangsefni í þættinum.Böddi hefur verið virkur í …

  24. 58. Viku á undan Tour de France

    1 h 6 min

    Félagarnir Magnús Fjalar Guðmundsson og Bjarni Birgisson, eigendur hjólreiðaverslunarinnar Peloton, létu drauminn rætast og hjóluðu þvert yfir Frakkland – sömu leið og farin er í Tour de France. Í þættinum …

  25. 57. Fjallahjólin kalla - RIFT MTB yfirferðin

    1 h 29 minSeason 1 · Episode 57

    Í þessum þætti förum ég og Erlingur nágranni, vinur og hjólafélagi yfir þetta 5 daga hjólaævintýri sem Rift MTB er. Fjallahjólakeppni sem fer fram í og í kringum Akureyri. Keppnin er skipulögð af Lauf. Í …

  26. 56. RIFT MTB SPECIAL with Starla Teddergreen and Lauren Zimmer

    52 minSeason 56 · Episode 1

    We’re heading into the rugged landscapes of The Rift MTB 5 day stage race. I sat down at the end of Day 4 with two riders who were leading the race. By the close of Day 5, they had claimed every single stage …

  27. 55. Súlur Vertical - nýjasta útspil norðursins

    34 minSeason 1 · Episode 55

    Umfjöllun um þessa nýjustu viðbót malarheimsins. Talað við góðkunningja þáttarins Hafdísi Sigurðardóttur og eins mótastjórann knáa Rögnvald Má Helgason.Þessi þáttur er unninn í samstarfi við Fors.is sem selur …

  28. 54. Grefillinn yfirferð

    39 min

    Smá yfirferð frá frábærri keppni, ný leið og allskyns snilld í gangi. Hafdís Sig. tók þetta kvennamegin í 200 km og hún kíkti í viðtal, heyrðum líka í Jóhönnu Bárðard. og mótastjóranum Mæju Sæm.Þátturinn er …

  29. 53. Le Tour de France Special með Snorra Björns og Auðunn Eiríks

    1 h 22 minSeason 1 · Episode 53

    Að þessu sinni fékk ég hlaðvarpsfrömuðinn Snorra Björnsson og hjólaköttinn Auðunn Eiríksson til mín og við fórum aðeins yfir helstu stærðirnar í þessari keppni frönsku hjólakeppni. Í þættinum förum við aðeins …

  30. 52. The Rift uppgjörið

    1 h 11 minSeason 1 · Episode 52

    Í þættinum er farið yfir aðdraganda og undirbúning minn fyrir Riftið, eins tók ég upp mjög skrautlegt efni í brautinni sjálfri og er síðan með smá play-by-play brautarlýsingu. Eins er í þættinum viðtal við Dönu …

These are the latest 40 of 81 episodes. You’ll find older episodes in the podcast’s feed.

Similar podcasts

More Sports podcasts
Is this your podcast?

Confirm it with an entry in your feed: you get a code here, add it as podcast:txt to the channel of your feed, and we check it. Your podcast is then shown as “verified” on SoundNode.

Settings

Display

Language

Decides which stations you see first on the home page.

History

Recently played stations and episodes and your latest searches are only stored in this browser.

Notifications

A short notice when a podcast you follow has a new episode. Turn off single podcasts with the bell on their page.

Account

Save favorites – in the app and on the website.

Keyboard shortcuts

/
Open search
Space
Play or pause
← →
In the player: back 15 s, forward 30 s (episodes) · in a row: next tile
↑ ↓
In a row: target within the tile
Home / End
In a row: first or last tile
Esc
Close window or menu
?
This overview
Now playing

Go to station page

Play next

    Add episodes with “Play next” – they play after the current episode.